Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Ég ætla mér ekki að gera neitt sérstakt,“ segir söngkonanMargrét Kristín Blöndal, sem jafnan er kölluð Magga Stína,í tilefni 45 ára afmælisins í dag. Hún segist reyndar aldrei
undirbúa neitt sérstakt þegar hún eigi afmæli heldur hugsi meira til
afmælis dóttur sinnar tveimur dögum síðar og úr verði gjarnan
sameiginlegt afmæli. „En svo hefur líka oft brostið á með óvæntu
kaffiboði á mínum degi.“
Magga Stína lauk BA-námi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands í
fyrra og situr stíft þessar vikurnar við að skrifa nótur á milli þess
sem hún sækir fundi í mannréttindaráði og menningar- og ferða-
málaráði Reykjavíkur og kennir í Hjallastefnuskólanum í Reykja-
vík. „Ég er með börnunum í hljómsveitarstarfi og það er dásamlegt,
eitt það besta sem fyrir mig hefur komið,“ segir hún. „Það er ný
reynsla að vinna svona markvisst með fimm til átta ára börnum í
hljómsveit. Það er ótrúlega gott fyrir hjartað.“
Margt hefur breyst á ferlinum síðan Magga Stína tók þátt í stofn-
un Risaeðlunnar. „Ég er tækifærissöngkona og tónskáld,“ segir
hún. „Ég skýst samtímis upp úr rjómatertum í brúðkaupum og sinni
háalvarlegum tónsmíðum en nú er ég að semja eitthvað sem ég von-
andi get sungið síðar.“ Hún segist hafa nóg að gera. „Það vantar
ekki verkefnin en ég gef mér tíma til þess að fá mér súkkulaðiköku
því það er eitt af því besta sem ég veit.“ steinthor@mbl.is
Magga Stína söngkona 45 ára
Morgunblaðið/Sverrir
Magga Stína Söngkonan sinnir háalvarlegum tónsmíðum og vonast
til þess að geta sungið síðar það sem hún semur þessar vikurnar.
Upp úr rjómatertu
í brúðkaupum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akureyri Brynjólfur
Hólmar fæddist 14.
september kl. 1.56.
Hann vó 4.520 g og
var 56 cm langur.
Foreldrar hans eru
Anna Margrét Páls-
dóttir og Oddur
Brynjólfsson.
Nýr borgari
U
nnur fæddist í Reykja-
vík en ólst upp á
Kambi í Reykhóla-
sveit við öll almenn
sveitastörf þar sem
stundaður var blandaður búskapur.
Hún flutti síðan á Akranes með fjöl-
skyldu sinni er hún var fjórtán ára,
flutti á Sauðárkrók árið 1993 og hef-
ur átt þar heima síðan.
Unnur var í Barnaskólanum á
Reykhólum, stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi, lauk þaðan stúdentsprófi 1993
og hóf síðar nám í viðskiptafræði við
HA.
Lánaráðgjafi hjá Íbúðalána-
sjóði á Sauðárkróki
Unnur vann í tvö sumur við Þör-
ungaverksmiðjuna á Reykhólum og
Unnur Ólöf Halldórsdóttir, lánaráðgjafi á Sauðárkróki – 40 ára
Stórfjölskylda Efri röð frá vinstri: Bjarni, eiginmaður Unnar; sonurinn Finnbogi; Halldór, faðir Unnar; Sæbjörg,
móðir hennar, með Gígju, dóttur Unnar; Hrafnhildur, mágkona Unnar, og bróðir hennar, Jón Karl.
Neðri röð frá vinstri: Berglind mágkona, Friðrik bróðir og Unnur sjálf.
Ein af eldhressum
Krækjum á Króknum
Hjónin Unnur Ólöf og eiginmaður hennar, Bjarni Jónasson tamningamaður.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is