Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 35
var tvö sumur við afgreiðslustörf í Staðarskála í Hrútafirði. Eftir að Unnur flutti á Sauðár- krók starfaði hún hjá Loðskinni á árunum 1993-98, vann síðan við Pósthúsið á Sauðárkróki 1998-2001 en hóf þá störf hjá Íbúðalánasjóði á Sauðárkróki, hefur starfað þar síð- an og er þar lánaráðgjafi. Unnur æfði og keppti í frjálsum íþróttum á æskuárunum með Aftur- eldingu UDN, Ungmennafélagi Dalamanna og Norður-Breiðfirð- inga. Skemmtilegt íþróttafélag Á Sauðárkróki hefur hún æft og keppt með blakfélaginu Krækjunum sl. sex ár: „Krækjurnar eru náttúrlega al- vöruíþróttafélag og ég held bara að við séum nokkuð góðar í blaki. En þetta er nú engu að síður meira en hefðbundið íþróttafélag. Við erum mjög samhentur og hress hópur, hittumst oft og ræðum málin og höldum okkar eigin árshátíðir með pomp og prakt. Við erum þess vegna nokkurs konar blanda af íþróttafélagi og saumaklúbbi. Ein- hverjum kann að þykja það skrýtin blanda. En auðvitað er það aðal- atriðið hvað við höfum gaman af þessu. Sonur minn æfir og keppir með Tindastóli í körfunni svo ég fylgist vel með henni og fer á alla leiki sem ég mögulega kemst á. Ég hef alltaf fylgst vel með íþróttum almennt, ekki síst handboltanum sem er held- ur betur búinn að vera spennandi nú að undaförnu. Loks er ég í hestamannafélaginu Léttfeta en það helgast nú einkum af því að við höldum hesta og mað- urinn minn er mikill hestamaður. Ég hef gaman af hestum og fer auð- vitað oft á bak en ég hef aldrei keppt í hestaíþróttum og er ekkert sérstaklega mikið fyrir langa útreið- artúra.“ Unnur starfaði með Leikfélagi Sauðárkróks í nokkur ár, tók þátt í nokkrum uppfærslum félagsins og söng með kirkjukórnum á Sauðár- króki um skeið. Þá situr hún í ung- lingaráði körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Fjölskylda Eiginmaður Unnar er Bjarni Jón- asson, f. 12.4. 1972, tamningamaður á Sauðárkróki. Hann er sonur Jón- asar Samúelssonar, bónda á Reyk- hólum í Reykhólasveit, og Berg- ljótar Bjarnadóttur, húsfreyju og starfsmanns við leikskólann á Reyk- hólum. Börn Unnar og Bjarna eru Finn- bogi Bjarnason, f. 13.2. 1996, og Gígja Rós Bjarnadóttir, f. 6.10. 2010. Bræður Unnar eru Jón Karl Hall- dórsson, f. 24.2. 1975, starfsmaður við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, og Friðrik Rúnar Halldórsson, f. 21.5. 1985, rafvirki og nemi, nú búsettur í Reykjavík. Foreldrar Unnar eru Halldór Karlsson, f. 22.2. 1952, fyrrv. vöru- bifreiðastjóri við Kaupfélag Króks- fjarðarness og síðar starfsmaður við Járnblendiverksmiðjuna á Grund- artanga, og Gígja Sæbjörg Jóns- dóttir, f. 4.12. 1950, lengi starfs- maður við Pósthúsið í Króksfjarðar- nesi og síðar starfsmaður við bókasafn Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi. Úr frændgarði Unnar Ólafar Halldórsdóttur Unnur Ólöf Halldórsdóttir Guðrún Hansdóttir húsfr. á Raufarhöfn Friðrik Guðmundsson búsettur á Raufarhöfn Ólöf Friðriksdóttir húsfr. á Blönduósi Guðmar Jón Kristinsson rafstöðvarstj. á Blönduósi Gígja Sæunn Jónsdóttir bókasafnsstarfsm. á Akranesi Pálína Elísabet Árnadóttir Kristinn Ágúst Ásgrímsson Margrét Hjartardóttir húsfr. á Patreksfirði Halldór Jóhannesson sjóm. á Patreksfirði Unnur Halldórsdóttir húsfr. á Kambi Karl Árnason b. á Kambi í Reykhólasv. Halldór Karlsson starfsm. Járnblendiverksm. Guðbjörg Loftsdóttir húsfr. í Hlíð Árni Ólafsson b. í Hlíð í Þorskafirði Börnin Finnbogi Bjarni og Gígja Rós. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 Jónas Þorbergsson útvarps-stjóri fæddist 22.1. 1885 áHelgastöðum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var sonur Þorbergs Hallgrímssonar, bónda þar, og k.h., Þóru Hálfdan- ardóttur. Þorbergur var af Hraunkotsætt, sonur Hallgríms á Hallbjarn- arstöðum Þorgrímssonar, bróður Jóns, langafa Kristjáns Eldjárns forseta og Gísla Jónssonar mennta- skólakennara. Jónas var bróðir Jóns Helga á Laxamýri og Hallgríms á Halldórsstöðum. Jónas var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þorbjörg Jónsdóttir hús- freyja sem lést rúmlega þrítug en seinni kona hans var Sigurlaug Mar- grét Jónasdóttir húsfreyja. Dætur Jónasar og Þorbjargar: Hallfríður og Kolbrún, en börn Jón- asar og Sigurlaugar: Björg og Jón- as, hinn vinsæli útvarpsmaður sem sá um viðtalsþættina Kvöldgesti um langt árabil og sem veitti um skeið forstöðu RÚV á Akureyri. Jónas útvarpsstjóri lauk gagn- fræðaprófi á Akureyri 1909 og dvaldi ungur í Kanada í sex ár. Hann var ritstjóri Dags á Akureyri 1920- 27 og ritstjóri Tímans í Reykjavík 1927-30. Jónas var einn af dyggum, ungum stuðningsmönnum nafna síns frá Hriflu sem var menntamálaráðherra þegar Ríkisútvarpið var stofnað 1930. Hann skipaði Jónas Þorbergs- son fyrsta útvarpsstjórann og gegndi hann embættinu til 1953. Staða útvarpsstjóra þótti þá eitt virðulegasta embætti þjóðarinnar enda hlutverk útvarpsins sem menn- ingar- og upplýsingamiðils mun þýð- ingarmeira þá en síðar varð. Jónas mótaði embættið, var gætinn stjórn- andi, forðaðist ofstjórnun og lagði áherslu á pólitískt hlutleysi stofn- unarinnar. Hann var alþingismaður Dalamanna 1931-33. Eftir Jónas liggja nokkur rit, m.a. um dulræn fyrirbrigði og lífið eftir dauðann en hann var um árabil sannfærður spíritisti, eins og sonur hans og nafni síðar. Jónas lést 6.6. 1968. Merkir Íslendingar Jónas Þorbergsson 95 ára Vilhjálmur Oddsson 90 ára Guðrún M. Kjerulf 85 ára Baldvin Ársælsson Þráinn Haraldsson 80 ára Bjarnveig Karlsdóttir Gunnlaugur R. Jónsson Ingibjörg Karlsdóttir Magnús Sigurðsson 75 ára Jón Kristinn Valdimarsson Þórarinn Sigþórsson Þórunn Sigurðardóttir 70 ára Bára Pétursdóttir Helga Sigþórsdóttir Jón Dan Jóhannsson Steinunn Kristjana Jónsdóttir 60 ára Birgir Benediktsson Brynja Þ. Erlendsdóttir Grétar Ottó Róbertsson Heiðar Halldórsson Heiðar Sigvaldason Magnús Kristjánsson Sigríður Einarsdóttir Sigurður Guðnason 50 ára Elfa Guðmundsdóttir Gestur Ólafsson Grazyna Zofia Bajda Hallbjörg Jónsdóttir Harpa Hrönn Gunnarsdóttir Helga Hólmfr. Gunnlaugsdóttir Hulda Kristín Valgarðsdóttir Jónína Ágústsdóttir Oddný Þórunn Bragadóttir Petra Bragadóttir Ragnheiður Jónsdóttir Örn Sævar Holm 40 ára Guðný Júlía Kristinsdóttir Gylfi Þór Guðmundsson Gylfi Þór Gylfason Hilmar Arngrímur Frímannsson Hilmar Þór Elefsen Kristjana Bjarnþórsdóttir Lilja Björk Baldvinsdóttir Margrét Ása Þorsteinsdóttir Ólöf Elísabet Þórðardóttir Snjólfur Gunnarsson Wilaiwan Jampasa 30 ára Björg Guðjónsdóttir Einar Magnús Einarsson Hrafn Daði Haðarson Iuliia Sergeeva Katrín Eva Hinriksdóttir Monika Kiersznowska Sigrún Harpa Bjarnadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Viktor Bjarki stundar nám í tækniteikn- un, lék með meistarafl. KR í knattspyrnu en var nú að byrja með Fram. Maki: Álfrún Pálsdóttir, f. 1983, blaðamaður við Fréttablaðið og eigandi Prentmets. Dóttir: Halla Elísabet, f. 2008. Foreldrar: Gísli Arnar Gunnarsson, f. 1954, og Halla Guðrún Jónsdóttir, f. 1855. Viktor Bjarki Arnarsson 30 ára Agnes ólst upp á Akureyri, er svæðanuddari en starfar sem stuðnings- fulltrúi við Naustaskóla. Maki: Lúðvík Trausti Lúð- víksson, f. 1979, félagsliði hjá Akureyrarbæ. Börn: Mikael Guðmunds- son, f. 2003; Kolfinna Lúð- víksdóttir, f. 2009, og Bríet Lúðsvíksdóttir, f. 2012. Foreldrar: Ellen Einars- dóttir, f. 1952, kennari, og Þorleifur Jóhannsson, f. 1951, kennari. Agnes Þorleifsdóttir 30 ára Jóhann ólst upp í Hveragerði, er bráða- tæknir og er á fjórða ári í læknisfræði. Maki: Svandís Sigurð- ardóttir, f. 1989, að ljúka námi í flugumferð- arstjórn. Systkini: Arnþór Æv- arsson, f. 1963, og Ágústa Kristín Andersen, f. 1971. Foreldrar: Jórunn And- ersen, f. 1944, húsfreyja, og Ævar Axelsson, f. 1943, járnsmiður. Jóhann Már Ævarsson TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 16 ÁR HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14 Verið velkomin SJÓNMÆLINGAR Á STAÐNUM VORUM AÐ TAKA UPP UMGJARÐIR FRÁ Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.