Morgunblaðið - 22.01.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Persónuleg ráðgjöf
Gjafavara
Mikið úrval gjafavöru,
borðbúnaðar, skúlptúra
og skartgripa.
Hurðarhanki
9.900 kr
Skeið fyrir t.d.
ofnrétti og ís
16.800 kr
Viðgerðaþjónusta, verkstæði og
verslun Jens í Síðumúla
Eilífðarrósin
lítil 41.500 kr
stór 44.800 kr
Blaðastandur
11.900 kr
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu þess að skapa ekki stærri
vandamál með framkomu þinni en þau sem
þú ætlar að leysa. Gerðu því fyrst upp eigin
hug og gakktu svo til fundar við vini þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að huga vel að stöðu þinni
jafnvel þótt það þýði að þú látir vandamál
sem vind um eyru þjóta. Talaðu hreint út og
láttu engan fara í grafgötur um tilgang þinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt erfitt með að átta þig á fólki í
dag því margir virðast vera úrillir. Innst inni
þráir þú að komast út úr rútínunni. Forðastu
mikilvæg verkefni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Krabbinn vill vera góður við sjálfan
sig og láta eftir sér alls kyns duttlunga og
uppátæki. Gefðu þér góðan tíma til íhugunar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður að freista þess að fá lengri
tíma til þess að ljúka verkefnum sem þú hef-
ur tekið að þér. Minningar úr fortíðinni skjóta
upp kollinum með heimsókn kunningja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru gerðar miklar kröfur til þín í
starfi svo þú þarft að taka á honum stóra þín-
um til þess að hafa allt á þínu valdi. Auðvelt
er að öðlast virðingu samstarfsfólks.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er létt yfir þér í dag og þú átt því
auðvelt með að laða að þér fólk. Láttu öfund
annarra sem vind um eyru þjóta því þinn tími
er kominn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að taka á honum stóra
þínum í dag því náinn vinur mun aldeilis
reyna á þolrifin í þér. Leggðu áherslu á það að
líta björtum augum á tilveruna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það gengur svo mikið á í kringum
þig að þú þarft að gæta þess að verða ekki
stressinu að bráð. Byrjaðu á því að tala ein-
ungis vel um sjálfan þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú átt umfram allt að stefna að því
að láta drauminn rætast, hversu fjarlægt sem
takmarkið virðist í upphafi. Þú þarft á öllum
þínum styrk að halda í dag svo byrjaðu á að
hreinsa til innra með þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú heldur þér uppteknum við eitt
og annað til þess að losna við að takast á við
þau mál sem skipta öllu. Hugsaðu um heils-
una því hún er lykillinn að lífshamingju.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ættir að reyna að bæta við mennt-
un þína eða starfsþjálfun á næstunni. Njóttu
þess að vera sólarmegin í lífinu.
eftir Jim Unger
„ÞAÐ VAR HALDIN STARFSLOKAVEISLA
MÉR TIL HEIÐURS, EN ÉG VAR SÁ EINI
SEM VAR EKKI BOÐIÐ.“
HermannÍ klípu
„GÆTIRÐU GERT ÞETTA DÁLÍTIÐ
BJÁNAHELDARA?“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eins og að svífa í
lausu lofti.
HÆ LÍSA, ÉG Á
AFMÆLI Í DAG!
NEI, EKKI Í ALVÖRU, MIG
LANGAR BARA Í VEISLU.
ER ÞAÐ
GLÆPUR AÐ
ÞYKJAST?
OOOOG
HÚN ER EKKI
Á GESTA-
LISTANUM.
BÍÐIÐ,
MENN!
ÁÐUR EN VIÐ BRJÓTUM NIÐUR HURÐINA
VIL ÉG GERA EINA TILRAUN ENN!
MÉR ÞYKIR LEITT AÐ ÉG GLEYMDI
BRÚÐKAUPSAFMÆLINU OKKAR, HELGA! EF
ÞÚ VILDIR BARA OPNA DYRNAR LOFA ÉG
AÐ ÞAÐ GERIST ALDREI AFTUR!
8.675BOÐORÐ
SNÚ
Þegar grannt er skoðað má sjá ýmismerki þess hvað getur verið dýrt
að vera fátækur. Minna er til skipt-
anna í ríkiskassanum og ekki er nú
mikið verið að gera í því að stækka
þann kassa. Sundurlyndið og aftur-
haldssemin ríður ekki við einteyming
á stjórnarheimilinu. Víkverji sér ekki
betur en að allir bíði eftir þeim degi að
þessi handónýta ríkisstjórn fari frá
völdum.
x x x
Afleiðingar endalauss niðurskurðarí fjögur ár koma æ betur í ljós.
Nægir að líta til heilbrigðiskerfisins
sem komið er að hættumörkum með
úrvinda og langþreytt heilbrigðis-
starfsfólk innanborðs, sem gerir
kraftaverk á hverjum degi. Uppsagnir
hundraða hjúkrunarfræðinga blasa
við og fleiri stéttir hafa skilað inn upp-
sögnum. Mælir þessa fólks er fullur.
x x x
Niðurskurður á landsbyggðinni ereinnig farinn að segja til sín og
unga fólkið flýr heimahagana í leit að
atvinnu og betri tíð. Sum héruð hafa
komið verr út úr þessu en önnur, líkt
og kom fram í Morgunblaðinu í gær.
Byggðastefnan virðist vera fólgin í því
að gera unga fólkinu auðveldara að
flytja á mölina eða flýja land.
x x x
Vegakerfið hefur þurft að láta und-an í niðurskurðinum. Vegagerðin
hefur viðurkennt að viðhald vega hef-
ur þurft að sitja á hakanum. Verktak-
ar fá úr litlu að moða og þeir virðast
vera farnir að spara í vegklæðningum
ef marka má fréttir af þjóðvegunum
þar sem tjaran leysist upp, með til-
heyrandi óþægindum og tjóni fyrir
ökumenn, svo ekki sé minnst á aukna
hættu á slysum.
x x x
Byggingaverktakar eru einnig aðkasta til höndunum, líklega sök-
um vanefna, ef marka má fregnir af
myglusveppum í jafnvel nýbyggðum
húsum.
x x x
Þannig mætti lengi telja og alvegljóst að það getur reynst dýr-
keypt að spara aurinn og kasta krón-
unni. víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofsöngur Maríu Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin og andi
minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
(Lúkasarguðspjall 1:46-47)
Þorsteinn frá Hamri sendi elsku-legt bréf að gefnu tilefni:
„Kæri Pétur. Lítil athugasemd
vegna vísu Halldórs Laxness „Ljót
er bölvuð blekkingin“ o.s.frv. Þar
sem við ræddumst við símleiðis um
daginn hefur annaðhvort óskýr tal-
andi minn eða misheyrn þín valdið
því að vísan er sögð bera þess skýr
merki að Halldór Laxness hafi ort
hana „á sínum yngri árum“. Ég
mun einungis hafa getið þess að
vísan væri augljóslega yngri en
þeir séra Snorri og séra Jón Þor-
láksson. Og samkvæmt Brekku-
kotsannál á að standa „verst“ í
stað vont í þriðju ljóðlínunni.“
Umsjónarmaður tekur sökina al-
farið á sig og pantar tíma í heyrn-
armælingu. Vísan hljóðar þá
svona:
Ljót er bölvuð blekkingin,
blindar á lífsins Kjalveg,
þó er verst ef þekkingin
þjónar henni alveg.
Vísan birtist í vísnaþætti Adolfs
Petersens í Þjóðviljanum 11. júlí
árið 1976 og var eignuð Jóni Þor-
lákssyni á Bægisá og Snorra
Björnssyni á Húsafelli. Tveim dög-
um síðar færði Halldór rök fyrir
því í Þjóðviljanum, að vísan væri
ekki eftir Jón og Snorra, enda væri
orðið „alveg“ seinni tíma uppfynd-
ing. Svo skrifar skáldið:
„En svo slept sé málfræðilegum
látalátum útaf þessari vísu, er þar
skemst frá að segja að við séra
Halldór heitinn Kolbeins suðum
hana saman á æskudögum, og mun
sú hafa verið orsök þess að ég fór
að grufla úti hvernig þetta stór-
skrýtna orð „alveg“ hefði orðið til,
og hvaða orð væri á íslensku sem
hægt væri að ríma á móti því. Við
fundum ekki annað en „Kjalveg“,
sem þó er ekki kórrétt staðarfall;
mundi heita „á Kjalvegi“. Síðan
baunguðum við vísuna saman með
kröftum. Mig minnir ég hafi ein-
hversstaðar látið prenta hana í
skáldsögu, og þá vitaskuld með
uppspunnum útskýringum, sem
siður er á þeim vettvángi; og látið í
veðri vaka að vísan væri eldri en
steinabrú.
Við nafni minn dáðumst mest að
ferskeytlum í íslenskum stil: í ör-
skoti er brugðið ljósi yfir mála-
flækjur heimsins; eða yfir voveif-
legan atburð, land, sjó og ofviðri
mannskaða og Unga stúlku, sbr.
„Aldan rjúka gerði grá.“ Við ská-
geingum athugasemdalítið glans-
myndaferskeytlur og vemmilegar
náttúrulýsíngar þar sem verið er
að reyna að herma eftir sveita-
sælukvæðum Steingríms og Þor-
steins Erlingssonar frá fyrri öld:
Vor er inndælt og Ekki er mart
sem foldarfrið; góð 19dualdarróm-
antík í sjálfu sér, en á ekki skylt
við islenska ferskeytlu.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Enn af vísu um blekkingu