Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Umræða um hljómburðóskasalar Íslands, sómaþess, sverðs og skjaldarer Eldborg nefnist fer
e.t.v. að æra óstöðugan, enda hefur
undirritaður þar sízt slegizt undan.
Þó skal enn á tæpa, jafnvel þótt
RÚV 1 hafi nýlega sýnt þá athygli-
verðu viðleitni til menningarrann-
sóknarfréttamennsku að inna tón-
listarstjóra Hörpu eftir því hverjir
„leika“ á þetta stærsta hljóðfæri
landsins – þ.e.a.s. sjá um hljómburð-
arstillingu salarins og hvernig – er
til skamms tíma var almenningi hul-
ið.
Nýtt tilefni gafst á vel sóttum sin-
fóníutónleikunum sl. föstudag þegar
leikar hófust á Holbergsvítu Griegs
frá 1884, með Jólaóratóríuflutning
Mótettukórsins og Barokksveit-
arinnar í Haag sl. 29. janúar í fersku
minni. Að vísu stóð ekkert í tónleika-
skrá frekar en endranær um heyrð-
arstillingu salarins þetta kvöld. Hitt
var auðheyrt frá upphafi að 40
manna strengjasveit SÍ naut sín
ólíkt betur í Eldborg en gert hafði 15
manna girnistrengd Haagsveitin, og
munaði augljóslega mestu um fjöl-
mennið og kraft nútímahljóðfæra.
Að fyrri reynslu fenginni neðan úr
gólfsætum er rétt að taka fram að nú
var hlustað af neðstu svölum, enda
má orðið gruna að upphækkun
hljómsveitarpalls undir óperusvið
(er ekki var inni í upphaflegustu
hönnun) hafi varla þjónað akústík
sinfóníuleiks til neðstu sæta sem
bezt skyldi.
Hvað sem því líður var sannkölluð
unun að Holbergsvítunni. Vitanlega
ekki aðeins þökk sé viðeigandi óm-
vist, heldur einnig fyrir óvenju inn-
sæja og fágaða túlkun undir forystu
landa tónskáldsins er greinilega
vissi allt sem máli skipti um tón-
verkið, höfund þess og þann ramm-
norska harðangursfiðlarabakgrunn
er aukmótaði sýndarbarokksstíl
Griegs og bjargaði þessu verðugt
vinsæla strengjastykki frá eintómri
stílhermu. Hér fór blæðandi fegurð,
framreidd með stæltri snerpu þá við
átti – og mun víðfeðmari dýnamík en
maður átti að venjast.
Viðkynning er nú háð tilvilj-
anakenndara ferli en áður var í int-
ernetleysi. Hvað mig varðar féll ég
sl. desember gjörsamlega í stafi yfir
frammistöðu brezka gestasóprans
kvöldsins í Come scoglio („Così fan
tutte“) úr YouTube upptöku frá
Amsterdam 2006, og átti því von á
sambærilegri meðferð á Mozart-
aríunum fjórum (Dove sono úr
„Figaro“ og Lungi da te úr „Mitra-
date“, ásamt konsertaríunum Voi
avete (K217) og Ah se in ciel (K538).
Í millitíðinni hafði röddin – til við-
bótar við 40 m fjarlægð frá sviði –
greinilega stækkað svo að fyrrver-
andi daggfersk YT upplifun lét nú á
sér standa. Að vísu þykir raddfars-
legt „safaríki“ sízt til ama hjá sjóuð-
ustu óperufíklum. En fyrir mér dró
sá óskýrleiki svolítið úr eftirvæntri
ánægju. Til að bæta gráu á svart
reyndist aldrei þessu vant ekki til-
tæk upptaka RÚV þegar eftir var
leitað, og því vonlaust að kanna eft-
ir á hvort eitthvað kynni að hafa
farið á mis á téðum 40 metrum.
Eftir sem áður bar söngur Sally-
ar Matthews ótvíræð merki
snemmreynds túlkanda, og vakti
ekki sízt manndrápsflúrsöngur
hennar í Ah se in ciel mikla hrifn-
ingu. Sá var raunar n.k. dúett á
móti krefjandi einleik Josephs
Ognibene, og þakkaði söngkonan
fyrir lipurt samstarf með því að
skutla blómvendi sínum til horn-
leikarans.
SÍ lauk kvöldinu með síðustu sin-
fóníu Haydns frá 1795 af tólf fyrir
Salomon tónleikahaldara í London,
er þekktust er fyrir lokaþáttinn
byggðan á götusalaköllum á við
„Komið hér! Kaupi hver / kálhausa
og rófur!“ Miðað við frábæra með-
ferð á Holbergsvítunni datt þessi
ágæta hljómkviða meistarans af
einhverjum ástæðum furðuflatt nið-
ur. Þótt ekkert væri í sjálfu sér illa
leikið, og fágun og samstilling ávallt
í fyrirrúmi, þá vantaði samt arnsúg-
inn og snerpuna sem einkennt hafði
Grieg. Kom það verulega á óvart
eftir jafngæfulegt upphaf og raun
bar vitni – og þvert á framvindu
flestra sinfóníutónleika.
Ljósmyndari/Johan Persson
Manndrápsflúrsöngur „Eftir sem áður bar söngur Sallyar Matthews ótví-
ræð merki snemmreynds túlkanda, og vakti ekki sízt manndrápsflúrsöngur
hennar í Ah se in ciel mikla hrifningu,“ segir m.a. í gagnrýni.
Holbergsvíta á fleygiferð
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbnn
Grieg: Holbergsvíta. Mozart: fjórar
óperuaríur. Haydn: „Lundúnasinfónían“.
Sally Matthews sópran og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Eivind
Aadland. Föstudaginn 18. janúar kl.
19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
„Gamla (berháttaða) bænda-
samfélagið: af prjónuðum smokk-
um, hrafnseistum og öðrum kynlífs-
tengdum munum fyrri alda“ nefnist
fyrirlestur sem Eiríkur Valdimars-
son flytur á fundi sem Mannfræði-
félag Íslands stendur fyrir í Reykja-
víkurAkademíunni, Hringbraut 121
á 4. hæð, í kvöld kl. 20.
„Ég hef verið að kenna námskeið
sem heitir „Lúsakambar, hland-
koppar og kynlíf“ þar sem fjallað er
um sveitamenningu fyrri alda á Ís-
landi,“ segir Eiríkur, sem lauk
meistaranámi í þjóðfræði frá Há-
skóla Íslands vorið 2010 og hefur
frá þeim tíma sinnt kennslu og
rannsóknum við HÍ.
„Heimildirnar segja okkur mjög
lítið um persónulegt líf og kynlíf
fólks á þessum tíma, þ.e. á 18. og
19. öld. Það er einna helst að hægt
sé að finna heimildir í fórum kirkj-
unnar, því kirkjan reyndi að hafa
mikil áhrif á það hvernig fólk
stundaði sitt kynlíf. Ef fólk stund-
aði kynlíf fyrir hjónaband þurfti
það að borga sektir, sömuleiðis ef
fólk stundaði kynlíf á rangan hátt,“
segir Eiríkur og tekur fram að
heimildir sem tengjast hjátrú hafi
lumað á ýmsum upplýsingum um
kynlíf landans.
„Ég hef rekist á ýmislegt áhuga-
vert í Íslenskum þjóðháttum sem
Jónas Jónasson frá Hrafnagili tók
saman sem og í þjóðháttasafni
Þjóðminjasafni Íslands. Meðal þess
sem ég hef rekist á eru ráðlegg-
ingar um hvað beri að gera til að
koma í veg fyrir getnað. Þarna má
t.d. finna upplýsingar um hjón á
Austurlandi sem notuðu handprjón-
aða smokka til þess að reyna að
koma í veg fyrir að þau eignuðust
fleiri börn. Konum sem vildu auka
líkur á getnaði var hins vegar ráð-
lagt að þurrka hrafns- eða refa-
eistu, mylja þau smátt og blanda út
í drykk sem drukkinn skyldi strax
að loknum tíðum,“ segir Eiríkur og
tekur fram að sjaldan ef nokkurn
tímann fylgi hins vegar sögunni
hvernig til hafi tekist hjá þeim sem
fylgdu ofangreindum húsráðum.
silja@mbl.is
Handprjónaðir smokkar
Fjallar um per-
sónulegt líf Íslend-
inga á fyrri öldum
Innsýn Eiríkur Valdimarsson er
stundakennari í þjóðfræði við HÍ.
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 26/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 3/2 kl. 13:00 41.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 45.sýn
Lau 26/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/2 kl. 16:00 42.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 46.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 43.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 47.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 44.sýn Sun 24/2 kl. 16:00
25.000 hafa komið á Dýrin í Hálsaskógi! Febrúarsýningar komnar í sölu!
Macbeth (Stóra sviðið)
Mið 23/1 kl. 19:30 Aukas. Fös 25/1 kl. 19:30 11.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 Síð.s.
Fim 24/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 12.sýn
Aðeins sýnt út janúar! Athugið - strobe lýsing notuð. Ekki við hæfi barna.
Jónsmessunótt (Kassinn)
Lau 26/1 kl. 19:30 29.sýn Fim 31/1 kl. 19:30 31.sýn
Sun 27/1 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 32.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk! Síðustu sýningar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 26/1 kl. 13:30 17.sýn Sun 3/2 kl. 13:30 23.sýn Sun 10/2 kl. 15:00 28.sýn
Lau 26/1 kl. 15:00 18.sýn Sun 3/2 kl. 15:00 24.sýn Sun 10/2 kl. 16:30 Aukas.
Lau 26/1 kl. 16:30 Aukas. Sun 3/2 kl. 16:30 Aukas. Lau 16/2 kl. 13:30 29.sýn
Sun 27/1 kl. 13:30 19.sýn Lau 9/2 kl. 13:30 25.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 30.sýn
Sun 27/1 kl. 15:00 20.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 26.sýn Lau 16/2 kl. 16:30 31.sýn
Lau 2/2 kl. 13:30 21.sýn Lau 9/2 kl. 16:30 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:30 32.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 22.sýn Sun 10/2 kl. 13:30 27.sýn
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Fös 15/2 kl. 20:30 24.sýn
Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Lau 9/2 kl. 20:30 23.sýn Lau 16/2 kl. 20:30 25.sýn
Nýtt sýningatímabil! Miðasala í fullum gangi!
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 26/1 kl. 20:00 Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 23:00
Lau 26/1 kl. 23:00 Fös 1/2 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Með fulla vasa af grjóti (Samkomuhúsið Akureyri)
Lau 26/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 16:00
Sýningar á Akureyri
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 22/2 kl. 19:00 Sun 10/3 kl. 19:00 Lau 13/4 kl. 19:00
Lau 23/2 kl. 19:00 Mið 13/3 kl. 19:00 Sun 14/4 kl. 19:00
Lau 2/3 kl. 19:00 Lau 16/3 kl. 19:00 Lau 20/4 kl. 19:00
Sun 3/3 kl. 19:00 Sun 17/3 kl. 19:00 Sun 21/4 kl. 19:00
Þri 5/3 kl. 19:00 Fös 22/3 kl. 19:00 Mið 24/4 kl. 19:00
Mið 6/3 kl. 19:00 Lau 23/3 kl. 19:00 Lau 27/4 kl. 19:00
Fim 7/3 kl. 19:00 Sun 24/3 kl. 19:00 Fös 3/5 kl. 19:00
Lau 9/3 kl. 19:00 Fim 11/4 kl. 19:00 Lau 4/5 kl. 19:00
Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Forsala hefst á miðvikudag.
Mýs og menn (Stóra svið)
Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Lau 9/2 kl. 20:00 Fim 28/2 kl. 20:00
Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Fös 15/2 kl. 20:00 aukas Fös 1/3 kl. 20:00
Lau 26/1 kl. 20:00 aukas Lau 16/2 kl. 20:00 Fös 26/4 kl. 20:00
Sun 27/1 kl. 20:00 12.k Sun 17/2 kl. 20:00 Fim 2/5 kl. 20:00
Fim 31/1 kl. 20:00 13.k. Sun 24/2 kl. 20:00 aukas Mið 8/5 kl. 20:00
Fös 1/2 kl. 20:00 14.k Þri 26/2 kl. 20:00 aukas
Fös 8/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar komnar í sölu.
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Sun 3/2 kl. 14:00 Lau 9/2 kl. 14:00 Lokas
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Síðustu sýningar
Gullregn (Nýja sviðið í janúar. Stóra sviðið í febrúar)
Mið 23/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 aukas Fös 8/3 kl. 20:00
Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00
Fös 25/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 Fös 15/3 kl. 20:00
Lau 26/1 kl. 20:00 Sun 10/2 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré. Flyst a Stóra sviðið í febrúar
Tengdó (Litla sviðið og Hof, Akureyri)
Fim 7/2 kl. 20:00 1.k Mið 27/2 kl. 20:00 6.k Lau 16/3 kl. 20:00 11.k
Sun 10/2 kl. 20:00 2.k Fim 28/2 kl. 20:00 aukas Sun 17/3 kl. 20:00 12.k
Mið 13/2 kl. 20:00 * Fös 1/3 kl. 20:00 7.k Fim 21/3 kl. 20:00 13.k
Fim 14/2 kl. 20:00 * Mið 6/3 kl. 20:00 8.k Fös 22/3 kl. 20:00 14.k
Þri 19/2 kl. 20:00 3.k Lau 9/3 kl. 20:00 9.k Lau 23/3 kl. 20:00 aukas
Mið 20/2 kl. 20:00 4.k Fim 14/3 kl. 20:00 10.k Sun 24/3 kl. 20:00 15.k
Fim 21/2 kl. 20:00 5.k Fös 15/3 kl. 20:00 aukas Fös 5/4 kl. 20:00 16.k
Grímusýning síðasta leikárs. *Sýningar í Hofi, Akureyri, 13/2 og 14/2.
Saga þjóðar (Litla sviðið)
Lau 26/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Fim 14/2 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Aukasýningar.
Ormstunga (Nýja sviðið)
Fös 8/2 kl. 20:00 1.k Lau 16/2 kl. 20:00 5.k Fös 22/2 kl. 20:00 9.k
Lau 9/2 kl. 20:00 2.k Sun 17/2 kl. 20:00 6.k Lau 23/2 kl. 20:00 10.k
Fim 14/2 kl. 20:00 3.k Mið 20/2 kl. 20:00 7.k Sun 24/2 kl. 20:00 11.k
Fös 15/2 kl. 20:00 4.k Fim 21/2 kl. 20:00 8.k
Tungan rekin framan í þjóðararfinn á ný
Nóttin nærist á deginum (Litla sviðið)
Fös 1/2 kl. 20:00 Frums Lau 9/2 kl. 20:00 4.k Sun 17/2 kl. 20:00
Lau 2/2 kl. 20:00 2.k Fös 15/2 kl. 20:00 5.k Fös 22/2 kl. 20:00
Fös 8/2 kl. 20:00 3.k Lau 16/2 kl. 20:00 6.k Lau 2/3 kl. 20:00
Stundarbrot (Nýja sviðið)
Þri 22/1 kl. 20:00 lokas
Framsækið sjónarspil á mörkum vísinda, leikhúss og dans
Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið)
Lau 26/1 kl. 11:00 Sun 27/1 kl. 11:00 Sun 3/2 kl. 11:00
Lau 26/1 kl. 13:00 Sun 27/1 kl. 13:00 Sun 3/2 kl. 13:00
Mary Poppins – forsalan hefst á morgun kl 10!