Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Fyrir ári frumsýndi fram-sækni leikstjórinn Mar-teinn Þórsson sterkumyndina Rokland og nú
um helgina var nýjasta mynd hans,
hin vægast sagt áræðna og frum-
lega XL frumsýnd. Óhætt er að
fullyrða að myndin komi til með að
hrista allhressilega upp í íslenskri
kvikmyndaflóru en í henni fá áhorf-
endur afar ógeðfellda innsýn í líf
hamslausa flagarans og áfeng-
issjúka þingmannsins Leifs (Ólafs
Darra) sem stundar gegndarlaust
sukk og svínarí í hópi vina af sama
sauðahúsi. Leifur notar Æsu, tví-
tuga vinkonu dóttur sinnar (Maríu
Birtu), sem kynlífsdúkku og greiðir
henni fyrir. Æsa sem virðist alveg
sátt við fyrirkomulagið er eina hald-
bæra tenging Leifs við fyrrverandi
fjölskyldu sína sem hann splundraði
líklega í átakanlegum harmleik.
Aðalpersónur myndarinnar eru
allar ógeðslegir siðblindingjar. Þær
eru haldnar persónuleikaröskun
sem einkennist af fáránlegu kæru-
leysi, hvatvísi og sjálfhverfri mik-
ilmennsku. Þær níðast fólskulega á
öllum sem á vegi þeirra verða og
sýna af sér afar andfélagslynda
hegðun og hafa gaman af, eins og
sést vel þegar þær fara, ofstæk-
isfullar í fasi og huldar grímum, að
versla í Nóatúni. Þær iðrast einskis
og lifa eins og verulega spillt
sníkjudýr á samfélaginu og eymd
annarra sem standa utan þeirra
sjúka vinahóps. Stöðu sinnar vegna
eru Leifur og félagar hans fjár-
hagslega vel settir og leyfa sér að
tala yfirlætislega til annarra sam-
borgara en það er erfitt að sjá ein-
hverja pólitíska samfélagsádeilu í
stærra samhengi út frá hátterni
þeirra því líf þeirra og störf utan
sukksins og ofbeldisverkanna kem-
ur nánast ekkert við sögu.
XL á að gefa raunhæfa mynd af
sundruðu og stjórnlausu lífi alka en
þessar persónur teljast seint dæmi-
gerðir alkar. Fæstir alkar eru
svona firrtir og lausir við sjálfs-
hatur, sálarstríð og þjáningar.
Skrímslin í XL virðast njóta sín í
botn og þau beita hvert annað kyn-
ferðislegu, andlegu og líkamlegu of-
beldi í afbrigðilegri sameiginlegri
nautn. Þrátt fyrir að persónurnar
séu ekki dæmigerðir alkar miðla
kvikmyndataka og klipping á afar
magnaðan hátt takmörkuðu og
brengluðu sjónsviði alka. Myndavél-
in er á mikilli hreyfingu, oft ekki á
þrífæti, og myndefni er gjarnan
ekki allt í fókus. Mikið er um klipp-
ingar þar sem eyður myndast í
framvindunni eins og þegar mjög
fullur alki missir tímabundið með-
vitund. Erfitt er að henda reiður á í
hvaða röð atburðir gerast því stokk-
ið er fram og til baka í tíma og
rúmi. Stundum er erfitt að greina á
milli þess sem gerist í raun eða
villtra ofskynjana og óáreiðanlegra
minninga Leifs.
Leikmynd, búningar og áfeng-
ismettuð, sjúskuð gervi persóna eru
mjög heildræn og fanga vel lok-
aðan, úrkynjaðan og dimman heim
þeirra. Þar að auki er leikstjórn og
leikur ótrúlega sterkur og þá sér-
staklega hjá meistara Ólafi Darra
og Maríu Birtu. Þau eru eiginlega
óþægilega trúverðug því áhorfand-
inn þekkir þau af öðrum geðþekkari
hlutverkum og jákvæðri, heilbrigðri
opinberri ímynd.
Gallinn við XL er að myndina
virðist skorta allt orsakasamhengi,
ádeilu eða boðskap og persónurnar
eru svo mikil skrímsli að ómögulegt
er fyrir áhorfendur að mynda
tengsl við þær. Myndir eins og Am-
erican Psycho og A Clockwork Or-
ange eru um álíka siðblindar per-
sónur en í þeim er ádeila og
óréttlæti sem kemur við kaun
áhorfenda, stuðar og vekur við-
brögð. Vammlausum áhorfendum
myndarinnar XL er á hinn bóginn
misboðið í rúmar 90 mínútur af sið-
blindum persónum og þeir sitja
uppi algjörlega áttavilltir, nánast
með áfallastreituröskun og glóru-
lausa, heljarinnar áfengisþynnku.
Úrkynjaður og dimmur heimur
Óþægilegt „Þau eru eiginlega óþægilega trúverðug því áhorfandinn þekkir þau af öðrum geðþekkari hlutverkum
og jákvæðri, heilbrigðri opinberri ímynd,“ segir m.a. í gagnrýni um Ólaf Darra og Maríu Birtu í XL.
Sambíóin
XL bbbnn
Leikstjórn: Marteinn Þórsson. Handrit:
Marteinn Þórsson og Guðmundur Ósk-
arsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri
Ólafsson, María Birta, Thorsteinn Bach-
mann, Helgi Björnsson og Elma Lísa
Gunnarsdóttir. 92 mín. Ísland, 2013.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Latínkvartett
kontrabassaleik-
arans Tómasar
R. Einarssonar
heldur tónleika í
kvöld kl. 20.30 á
KEX Hosteli. Í
kvartettinum
eru, auk Tóm-
asar, Snorri Sig-
urðarson sem
leikur á trompet,
Gunnar Gunn-
arsson á píanó
og Matthías
Hemstock á
trommur.
Latínkvarett Tómasar
á KEX Hosteli
Tónleikar Tómas plokkar
kontrabassann á KEX
Hosteli í kvöld.
ÍSL.
TEXTI
SÉÐ OG HEYRT/VIKAN
ÍSL.
TEXTI
-EMPIRE
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
RYÐ OG BEIN
OPNUNARMYNDIN
ÁST
ENSKURTEXTI
ÍSL.
TEXTI
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
STÓRLAXARNIR
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
DJANGO KL. 5.40 - 9 16
THE MASTER KL. 5.20 14
LIFE OF PI 3D KL. 6 - 9 10
STÓRLAXARNIR KL. 5.50 L / ÁST KL. 10.10 L
GRIÐARSTAÐUR KL. 10 L / RYÐ OG BEIN KL. 8 L
JARÐARFÖRIN HENNAR ÖMMU KL. 8 L
2 GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR
GOLDEN GLOBE
BESTA ERLENDA MYNDIN
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR 11 ÓSKARSTILNEFNINGAR
DJANGO KL. 6 - 9 16
THE HOBBIT 3D KL. 6 - 9 12
DJANGO KL. 4.30 - 8 - 9 16
DJANGO LÚXUS KL. 4.30 - 8 16
THE MASTER KL. 6 14
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 3.30 L
GOÐSAGNIRNAR FIMM KL. 3.50 L
THE HOBBIT 3D KL. 4.30 - 8 12
LIFE OF PI 3D KL. 5.15 - 8 10
-H.V.A., FBL
JARÐARFÖRIN
HENNAR ÖMMU
- H.S.S., MBL” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
-H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
DJANGO UNCHAINED sýndkl.6-10
Sýndkl.8-10:30
(48 ramma) Sýndkl.6
THE HOBBIT 3D Sýndkl.10
LIFE OF PI 3D Sýndkl.5:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
12
10
16
- H.V.A., FBL
JACK REACHER
THE HOBBIT 3D
11 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
„Life of Pi er mikil bíóveisla og ekta jólamynd,
falleg og upplífgandi“
-H.S.S., MBL
„Life of Pi er töfrum líkust”
- V.J.V., Svarthöfði.is
3 óskarstilnefningar
SÝND Í 3D
OG Í 3D(48 ramma)
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
The Hollywood Reporter
EMPIRE
“Tom Cruise Nails it.”
- The Rolling Stone
“It’s part Jason Bourne,
part Dirty Harry.”
- Total Film
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
- H.S.S MBL
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is