Morgunblaðið - 22.01.2013, Page 44

Morgunblaðið - 22.01.2013, Page 44
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Andlát: Snæfríður Baldvinsdóttir 2. Sprengjumennirnir í Laxá voru … 3. Sprauta sig 15-20 sinnum á dag 4. Vilja rafmagn upp í Icesave »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Úrslit Söngvakeppninnar 2013 fara fram í Hörpu 2. febrúar og verða bæði seldir miðar á hana og loka- æfinguna sem fram fer kl. 15 sama dag. Miðasala á úrslitakeppnina og lokaæfinguna hefst á morgun kl. 12, á vefsíðunum harpa.is og midi.is og í miðasölu Hörpu. Kynnar verða Þór- hallur Gunnarsson og Guðrún Dís Emilsdóttir en þeim til aðstoðar verða hraðfréttamennirnir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Miðar seldir á loka- æfingu í Eldborg  Prince Aval- anche, bandarísk endurgerð ís- lensku kvikmynd- arinnar Á annan veg eftir leikstjór- ann Hafstein Gunnar Sigurðs- son, var frumsýnd á Sundance-kvik- myndahátíðinni í Bandaríkjunum um helgina og fer gagnrýnandi kvik- myndaritsins The Hollywood Report- er um hana fögrum orðum. Skv. til- kynningu framleiðanda Á annan veg er mikill áhugi á myndinni vestra og löngu orðið uppselt á allar sýningar. Prince Avalanche vinsæl á Sundance  Þjóðleikhúsið sýnir leik- ritið Með fulla vasa af grjóti í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri um næstu helgi, á laugardag og sunnudag. Í verkinu fara Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason með fjórtán hlutverk. Með fulla vasa af grjóti á Akureyri Á miðvikudag og fimmtudag Austlæg átt 5-10 m/s. Skýjað með köflum, en skúrir eða él við S- og SA-ströndina. Vægt frost inn til landsins en annars um og yfir frostmarki. SPÁ KL. 12.00 Í DAG SA og A 5-10 m/s, en 10-15 við S- og SV- ströndina. Skúrir og á stöku stað él sunnan- og austantil, en ann- ars skýjað með köflum. Hiti um og undir frostmarki norðantil. VEÐUR Ísland fær tækifæri til að verja Evrópumeistaratitil sinn í hópfimleikum í ung- linga- og fullorðinsflokki á heimavelli á næsta ári. Fim- leikasamband Evrópu tók tilboði Íslands um að halda EM 2014 en íslensku stelp- urnar hafa unnið síðustu tvö Evrópumót. Mótið fer væntanlega fram í Laug- ardalshöll og er búist við um 2.000 áhorfendum á það. » 1 Verja titilinn á heimavelli Aron Kristjánsson kemst vel frá sínu fyrsta stórmóti með íslenska lands- liðið í handknattleik. Bjarki Sigurðs- son, þjálfari og fyrrverandi landsliðs- maður, og Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður Morgunblaðsins, gefa honum góða einkunn, sér- staklega fyrir að nýta breiddina vel og gefa óreyndari leikmönnum óhikað tækifæri til að spila. »2-4 Aron óhræddur við að gefa mönnum tækifæri Arnór Atlason, landsliðsmaður í handbolta, gat ekki hjálpað liðs- félögum sínum á HM á Spáni þar sem hann sat eftir heima með slitna há- sin. Hann segir það hafa verið erfitt að þurfa að horfa á leikina heima í stofu en er bjartsýnn á gott gengi á EM í Danmörku eftir tvö ár því þar geti Ísland verið með gott lið og með breiðari hóp en áður. »4 Arnór Atlason horfði á HM heima í stofu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég er forstjórinn og get leyft mér að tefla þegar ég vil,“ segir Magnús V. Pétursson eða Maggi Pé eins og hann er gjarnan kallaður, en hann byrjaði að tefla á gamla Melavellinum fyrir meira en 60 árum og var einn af stofnendum skákdeildar Þróttar. Það hefur alltaf verið völlur á Magga og hann hefur ekkert breyst í áratugi. Mætir snemma á morgnana í vinnuna í Jóa útherja, teflir þar reglulega sem annars staðar og í til- efni áttræðisafmælisins á dögunum var hann sleginn til heiðursstórridd- ara Riddarans, skákklúbbs eldri borgara, fyrir m.a. tryggð hans við skákgyðjuna. Milliríkjadómarinn kunni hætti að dæma í fótboltanum fyrir um 30 árum og handboltanum eitthvað fyrr. Tók seinna upp pílukast og varð meistari í tvíliðaleik í fyrstu tilraun. „Ég hafði aldrei kastað pílu en sigraði á fyrsta móti,“ segir hann innilegur að vanda. Á stalli með Ríkharði Maggi fékk snemma viðurnefnið „sá besti“ og þakkar það Atla Stein- arssyni, fyrrverandi íþróttafrétta- manni Morgunblaðins. „Hann skrif- aði að annaðhvort ætti Magnús Pétursson að hætta að dæma eða verða sá besti eftir að ég rak fyrirliða Spora af velli á móti Akranesi.“ Maggi áréttar samt að Ríkharður Jónsson hafi verið langbesti íslenski fótboltamaðurinn. Óformlegi skákklúbburinn á Mela- vellinum og síðar á Laugardalsvelli lagðist af þegar Jóhannes Óli Garð- arsson hætti sem vallarstjóri. Þar hittust margir góðir skákmenn reglu- lega og Maggi saknar þeirra stunda. Hann tekur fram skákbók eftir Mikhail Tal og rifjar upp uppáhalds- skákina. „Ég gerði jafntefli við Tal í fjöltefli í Moskvu 1957. Alþjóðameist- arinn Bragi Þorfinnsson gaf mér bók- ina í tilefni afmælisins og sjáðu hvað hann skrifaði í hana: „Giskaði á að Tal væri þinn uppáhaldsskákmaður, svona í ljósi skákstíls ykkar beggja.““ Hann bætir við að hann hafi kennt Braga á sínum tíma og látið hann finna fyrir sér í fyrsta leik með því að skella drottningarpeðinu með látum niður á borðið. „Ég kom honum úr jafnvægi eins og Nunna í KR, sem sagði við svipaða uppákomu: „Ég vissi ekki að þú værir svona sterk- ur.““ Þeir bestu eiga það til að tapa og við hliðina á bókinni er úrklippa úr skáksíðu danska Extrablaðsins. „Sjáðu hvað stórmeistarinn Bent Larsen skrifaði eftir skák okkar 1989: „Hefði hvítur nú leikið 17. Dxe4 hefði ekki verið ástæða til að birta skákina í blaðinu.“ Ég var með miklu betri stöðu en lék af mér.“ Sá besti heiðursstórriddari  Jafnteflisskák við Tal í mestu uppáhaldi Morgunblaðið/RAX Upp með taflið Sæbjörn Guðfinnsson og Magnús Pétursson að tafli í gær. Valdimar, sonur Magnúsar, fylgist með. „Ég brilleraði á vellinum áður en margir sem ég tala við fæddust,“ segir Maggi Pé, heiðursmeðlimur íslenska Liverpoolklúbbsins númer eitt, og bendir á erlendar umsagnir máli sínu til stuðnings. Hann segir að eftirminnilegasti leikurinn sem hann dæmdi sé viðureign Sovét- ríkjanna á móti úrvalsliði Norður- landanna í Helsinki 1967. „Allar Norðurlandaþjóðirnar urðu að eiga fulltrúa á vellinum og þar sem við áttum ekki nógu góða leikmenn var sá besti valinn til að dæma.“ En viðurnefnið Puskas eftir ung- verska heimsklassaleikmanninum fékk hann í Varsjá í Póllandi 1955. „Ég var fararstjóri hjá Þrótti en þurfti að spila með í einum leik og stóð hérna,“ segir hann og bendir á svæði á töflu við miðlínu úti við vinstri kant. „Markmaðurinn sparkaði út og beint á mig, ég spyrnti viðstöðulaust til baka með vinstri þótt réttfættur sé og kall- aði „Bjarni“ sem var senter hjá okkur. Ég þurfti reyndar ekki á honum að halda því boltinn fór í stöngina og inn. Þá kallaði lýð- urinn: „Puskas, Puskas.““ Þekktur sem Puskas í Póllandi MAGNÚS V. PÉTURSSON MILLIRÍKJADÓMARI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.