Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
100%
ekta
ostur
rifnir ostar
auðvelda matseldina og gera matinn girnilegri.
Þú finnur frábærar uppskriftir á gottimatinn.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur Rætt var um niðurstöðu Ice-
save-málsins í utanríkismálanefnd.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Það er ekki gefið að hægt verði
að ráða á einfaldan hátt í niður-
stöðu dómstólsins. Við gætum
unnið málið og þá liggur það al-
veg ljóst fyrir. Hitt er snúnara ef
einhvers konar áfellisdómur fellur
yfir Íslandi. Þá er hægt að sjá fyr-
ir sér mjög ólíka þýðingu eftir því
hver efnisatriði dómsins verða,“
segir Árni Páll Árnason, fyrsti
varaformaður utanríkismála-
nefndar Alþingis.
Á fundi nefndarinnar í gær var
rætt um viðbúnað stjórnvalda
vegna dómsuppkvaðningar í Ice-
save-málinu hjá EFTA-dóm-
stólnum á mánudag.
Samstaðan haldi áfram
Málsvarnarteymi Íslands kom á
fund nefndarinnar og segir Árni
Páll að það sé viðbúið því að taka
á móti dómnum og greina hann.
Mikilvægt sé að stjórnvöld fái
fljótt skýringar á lögfræðilegri
stöðu Íslands eftir að dómurinn
liggur fyrir.
„Það er hægt að sjá fyrir sér
ýmsar afleiðingar, sumar létt-
vægar, aðrar þungbærari, ef dóm-
urinn telur að Ísland hafi með ein-
hverjum hætti brotið gegn skuld-
bindingum sínum,“ segir Árni
Páll. Erfitt sé að átta sig á því áð-
ur en dómur fellur en búið sé að
kortleggja slíkar sviðsmyndir.
Árni Páll segir mikilvægt að
viðhalda þeirri samstöðu sem
náðst hafi um vörn Íslands í mál-
inu, óháð því hver niðurstaðan
verður.
Sjálfur segist hann bera þá von
í brjósti að dómstóllinn fallist á
málatilbúnað Íslands enda séu
sterk efnisleg rök fyrir afstöðu Ís-
lendinga.
„Ég held að þróun mála í Evr-
ópu síðustu árin geri ekkert annað
en að staðfesta enn frekar hversu
skynsamlegar, hóflegar og eðlileg-
ar þær aðgerðir voru sem Ísland
greip til við þessar fordæmalausu
aðstæður,“ segir hann.
Búið að kortleggja ólíkar sviðsmyndir
Rætt um viðbúnað vegna væntan-
legrar dómsniðurstöðu í Icesave-máli
Rúmlega 47%
landsmanna
fannst Áramóta-
skaupið 2012 vera
slakt. Þetta er
niðurstaða könn-
unar MMR á við-
horfum almenn-
ings til Skaupsins.
Af þeim sem
tóku afstöðu til Áramótaskaupsins
2012 sögðu 32,7% að þeim hefði þótt
það gott, til samanburðar þótti 64,8%
Áramótaskaupið árið 2011 gott. Þá
sögðu 47,4% að Skaupið 2012 hefði
verið slakt en til samanburðar sögðu
17,2% í fyrra að Skaupið 2011 hefði
verið slakt. Ef horft er á viðhorf fólks
til Skaupsins út frá stjórnmálaskoð-
unum þess sést að mest ánægja með
það mældist á meðal stuðningsmanna
Vinstri-grænna, eða 50,6%.
skulih@mbl.is
Fáir lands-
menn ánægðir
með skaupið
Verð á kílói af óslægðum þorski hefur
verið undir 300 krónum að meðaltali á
fiskmörkuðum frá 5. janúar. Verðið
fór lægst í 216 krónur 12. janúar, en í
gær fékkst 271 króna fyrir kílóið.
Verð á kílói af ýsu hefur hins vegar
verið yfir 300 krónum síðan á föstu-
dag og var 314 krónur að meðaltali á
fiskmörkuðum í gær.
Ýsukvóti hefur undanfarið verið
leigður á talsvert yfir 300 krónur kíló-
ið, enda margir í vandræðum vegna
lítils kvóta í tegundinni. Undanfarið
hefur kílóið verið leigt á 316 krónur
og er það fjórði mánuðurinn í röð sem
ýsan er leigð á yfir 300 krónur að
meðaltali í króka- og aflamarkskerfi.
aij@mbl.is
Meira borgað
fyrir ýsu
en þorsk
Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson,
sauðfjárbóndi í
Bakkakoti í Staf-
holtstungum og
fyrrverandi for-
maður Lands-
samtaka sauð-
fjárbænda, hefur
ákveðið að gefa
kost á sér til for-
mennsku í
Bændasamtökum Íslands. Nýr for-
maður verður kosinn á Búnaðar-
þingi í byrjun mars. Eins og fram
hefur komið ætlar Haraldur Bene-
diktsson að láta af formennsku í BÍ á
sama fundi. Í frétt á vefsíðu Lands-
sambands kúabænda er haft eftir
Sindra að hann hafi fengið mikla
hvatningu úr röðum bænda til að
gefa kost á sér í formannsembættið.
Sækist eftir að
gegna for-
mennsku í BÍ
Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson