Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 ✝ Baldur Sveins-son fæddist í Dagverðarnesseli, Klofningshreppi í Dalasýslu, 23. apr. 1931. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnu- daginn 13. jan. 2013. Foreldrar hans voru Sveinn Hallgrímsson bóndi, f. 17. sept. 1896, d. 26. nóv. 1936 og Salóme Kristjánsdóttir hús- móðir, f. 10. mar. 1891, d. 29, jún. 1973. Systkinin frá Sveinsstöðum voru tíu og var Baldur númer átta í röðinni. Eftirlifandi eru Kristinn, Jófríður og Kristján. Árið 1956 giftist Baldur Guð- nýju Pálsdóttur, f. 25. okt. 1935, d. 14. nóv. 1988. Börn þeirra eru: 1. Aðalbjörg Baldursdóttir, f. 4. mars 1956, gift Gylfa Skúlasyni. Börn þeirra eru: A. Baldur Rafn f. 22 mars 1977, giftur Sigrúnu Bender. Sonur þeirra er Baltasar Guðmundur f. 21. maí 2008. Son- ur Baldurs og Ragnheiðar Guð- rún og Sandra Björk. C. Guð- björg Torfadóttir, f. 12. mar. 1956, synir hennar eru Torfi Ragnar og Sigurður Rúnar. D. María Petersen, f. 17. júní 1964, börn hennar eru: Unnur, Karl Erik, Sverre og Oystein. Síðustu ár hefur Baldur átt kæra vin- konu, Sigríði Möggu Steingríms- dóttur, f. 12. des. 1931. Baldur ólst upp hjá einstæðri móður í tíu systkina hópi á Sveinsstöðum í Dalasýslu. Faðir hans lést skyndilega árið 1936 þegar Baldur var aðeins 5 ára gamall. Baldur fluttist til Reykja- víkur með eiginkonu sinni og barnsmóður. Hann nam húsa- smíði hjá bróður sínum Kristni Sveinssyni. Lengst af starfaði hann sem húsasmiður í Reykja- vík en síðustu 10 ár starfsferils síns vann hann sem húsvörður í Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi. Eftir að hann lauk störfum fluttu þau Ragna í Borgarnes. Aðal- áhugamál Baldurs voru sveitin og dýrin ásamt því að dans, tón- list og gleði voru honum efst í huga í lífinu. Útförin fer fram í dag, 23. jan- úar 2013, frá Grafarvogskirkju kl. 13. finnu Guðnadóttur er Tristan Gylfi, f. 22. des. 2001. B. Elsa Ruth, f. 5. jan. 1984, í sambúð með Karli Ragnari Juto. Sonur þeirra er Erik Bjarki, f. 26. maí 2011. 2. Páll Baldursson, f. 5 október 1956, d. 9. okt. 1986. Sonur hans og Gígju Magnúsdóttur er Magnús Andri, f. 4. jan. 1984. 3. Þóra Björk Baldursdóttir, f. 23 feb. 1970. Börn hennar og Einars Her- mannssonar eru: Aron, f. 12. feb. 1992, og Orri, f. 7. jan. 1994. Baldur og Guðný slitu sam- vistum. Seinni eiginkona Baldurs var Ragna María Sigurðardóttir, f. 1. ág. 1934, d. 15. mars 2007. Börn Rögnu eru: A. Ingveldur Jóna Gunnarsdóttir, f. 31. des. 1952, synir hennar eru Ólafur og Ingi Þór. B. Ingólfur Torfason, f. 30. jan. 1955, börn hans eru: Torfi, Ásta Nína, Margrét, Sig- Ýmsu og mörgu á ég til að gleyma en okkar fyrstu kynnum gleymi ég aldrei. Þegar ég nálg- aðist Álakvíslina sá ég mann í gegnum eldhúsgluggann, sem dansaði af lífi og sál. Þið Ragna voruð nýflutt þangað, þú dans- aðir í gegnum lífið og lést ekki mikið á þér sjá, þó að það væri stífur vindur á móti. Nú, þegar ég kveð þig í bili og hugsa til baka um þau rúm 28 ár sem við þekktumst, er mér efst í huga þakklæti til þín. Ég fullyrði að ég væri ekki sá maður sem ég er í dag nema fyrir þig og að þið Ragna buðuð mér að flytja til ykkar í Álakvíslina þegar ég var ungur og mjög óþroskaður ung- lingur. Fyrst var ég í gestaher- berginu en ég var reyndar ekki lengi að læða mér inn í herbergið til hennar Þóru. Það fyrsta sem ég lærði inni á þínu heimili var að borða venjulegan íslenskan mat, annað var að sækja um venjulega vinnu og sýna dugnað í vinnu, hvorugu hafði ég haft áhuga á. Þriðja var að kynna mig fyrir hestum, ég var fljótur að fá ástríðu gagnvart hestum og öllu sem þeim viðkom. Ég hef búið að því til dagsins í dag. Það fjórða var að kenna mér að vinna með höndunum, ótrúlegt hvað þú sýndir mér mikla þolinmæði í þeim efnum. Fljótlega hófum við Þóra bú- skap og eignuðumst okkar drengi. Betri afa gátu drengirnir mínir ekki fengið, alltaf voruð þið Ragna til í að passa fyrir okkur. Best þótti drengjunum að koma til ykkar í Laugagerðisskóla, þar var afi með sundlaug og allt. Þú sýndir þeim mikinn kærleika og ást, alltaf til í að spila, segja sög- ur eða smíða með þeim. Seinna, þegar við Þóra fórum í hesta- mennskuna, komstu ansi oft upp í hesthús til að fylgjast með og gefa okkur góð ráð. Ragna lést árið 2007 og höfðu flestir áhyggj- ur af þér, einum uppi í Borga- nesi. Þær áhyggjur voru óþarfar. Þú áttir ekki í erfiðleikum með að finna þér verkefni, sjá um morg- ungjafir, keyra eldri borgara og að spila félagsvist. Um áramót 2008/09 taldi ég mig eiga erfitt símtal fyrir hönd- um, þegar ég hringdi í þig til að segja þér frá skilnaði okkar Þóru. Skilningur þinn var mér ómetanlegur, skilningur frekar en fordæming eins og ég hafði búist við. Eftir þetta símtal breyttist okkar samband mikið, þó að samband okkar hafi alltaf verið mjög gott, þá urðum við nánari vinir og áttum mörg trún- aðarsamtöl. Ég kíkti reglulega upp í Borganes og við spjölluðum yfirleitt saman í síma einu til tvisvar sinnum í mánuði. Við gát- um treyst hvor öðrum fyrir öllu. Að mörgu leyti höfðum við sömu lífsskoðanir, þú talaðir mikið um að vera til staðar og að gefa sér tíma fyrir sitt fólk, fordæmdir græðgi og sýndarmennsku. Aldr- ei heyrði ég þig tala illa um annað fólk, talaðir frekar um að við- komandi væri sérstakur. Okkar hefð sl. 6 eða 7 ár var að borða saman skötu á Þorláksmessu, ég mun sakna þess. Með þessum fátæklegum orð- um kveð ég þig, kæri tengdafaðir og vinur. Þakka þér fyrir að bjarga ráðvilltum unglingi á sín- um tíma og að hafa stutt mig og mína í gegnum allt. Ég veit að það var beðið eftir þér á hinum endanum, Palli búinn að leggja á tvo hesta, annar sennilega Sörli og hinn Baldursgráni, svo hafa Guðný og Ragna tekið þér fagn- andi. Þinn tengdasonur, Einar. Það er svo margt í minning- unni um afa. Ástkær maður sem alltaf var í góðu skapi og vildi öll- um mjög vel. Hann gerði ekki upp á milli fólks og sýndi öllum jafn mikinn áhuga. Síðast þegar ég talaði við afa barst í tal hand- boltalandsliðið sem var á leiðinni á stórmót. Afi talaði þá sérstak- lega um einn landsliðsmann og hrósaði honum mikið. Þvílíkur dugnaður í þessum strák, svona menn ná langt í lífinu, sem leggja hart að sér og þú skalt muna það, Orri, að þú getur gert allt sem þig langar til, þú verður bara að vinna fyrir því. Það er ekki til- viljun að þetta voru síðustu orðin sem ég heyrði frá afa því svona var hann alltaf, hvetjandi. Það sem er mér efst í huga þegar ég hugsa um þig er að þú varst á góðu hliðinni hjá öllum. Ég hef aldrei og mun aldrei heyra neinn tala illa um þig. Í ásatrú er Baldur guð fegurðar og það á mjög vel við um þig. Út- geislunin þín og sjarmi fór ekki framhjá neinum. Enda hugsa ég að það séu ekki margir sem geta státað sig af því að hafa náð sér í kærustu, komnir nálægt áttat- ræðu. Það eitt fannst mér segja helling um þig. Þú ert flottasti maður sem ég hef og mun nokk- urn tímann hitta. Það ættu marg- ir að taka þig til fyrirmyndar. Ég man hvað mér fannst alltaf gaman að fá þig í heimsókn og ennþá skemmtilegra að fá að heimsækja ykkur ömmu í sveit- ina og fátt fannst mér skemmti- legra en þegar þú sagðir mér sögur, ég gat hlustað á þig segja sögur tímunum saman. Ég gæfi það litla sem ég á til þess að fá að eyða einu kvöldi enn með þér og hlusta á þig segja sögur. Hvíldu í friði, elsku afi, ég sakna þín þitt barnabarn. Orri Einarsson. Mig langar að skrifa hér nokkrar línur, sem heita má minningargrein til afa míns eins og upplifið hann og hvernig mér fannst hann hafa áhrif á aðra. Baldur afi var sá frábærasti maður sem ég hef kynnst á ævi minni. Hann hafði bara góðar hliðar og hann skammaði mig aldrei, ég hef aldrei séð hann reiðan. Það skein af honum lífs- gleðin og ég man eftir því hvað öllum í kringum hann leið vel. Hann var líka svo fljótur að kynnast fólki, einu sinni þegar vinkona mín kom til mín fór hann strax að tala við hana og þau „bonduðu“ strax. Sýnir bara hvað afi var mikill mannvinur. Ég hef alla tíð verið mikill ein- fari og haft meira gaman af dýr- um en mönnum, átt lítinn vina- hóp og liðið alltaf bara best heima hjá mér. Nema hjá afa, þar gat ég verið heilu vikurnar. Afi hafði mikinn tíma fyrir mig, hon- um fannst fátt skemmtilegra en að horfa með mér á dýraþætti og risaeðluþætti á Ríkissjónvarpinu þegar ég var polli. Árin liðu og við héldum þeirri iðju áfram. Þegar ég varð eldri og var ekki eins mikið heima hjá afa hringdi hann stundum í mig til að segja mér að einhverjir þættir væru að byrja svo að ég gæti verið tilbú- inn fyrir framan kassann. Ég sakna þess mjög mikið. Hann sjálfur var mikill dýravinur, að- allega hestamaður, og fékk ég að heyra ótal sögur um hesta og hestaferðir sem hann hafði upp- lifað í lífinu. Ég man eftir því að þegar ég fékk minn fyrsta hest samdi hann ljóð um hann og mér þótti fáránlega vænt um það. Mamma færði honum kött þegar amma Ragna dó því við héldum að honum myndi þá ekki leiðast eins mikið. Hann skírði hana Díönu prinsessu og hugsaði um hana eins og mannveru og bar miklar tilfinningar til hennar. Afi var mikið fyrir að spila og kenndi mér að spila rommí, þrátt fyrir að ég væri að lengi að læra fékk hann aldrei leið á því að kenna mér að spila þótt þetta ætti ekki bara við mig. Þar sem krakkar voru kenndi hann þeim að spila rommí, enda spila bæði börn og barnabörn og konur og menn þeirra rommí. Ég var svo oft pirraður yfir því að ég skyldi aldrei vinna, þá sagði afi. „Aron, þú þarft að vera svolítið meiri rebbi“ rebbi þýðir að vera svolít- ið tækifærissinnaður og rólegur/ þolinmóður, eins og ég skildi það, og þetta eina orð hefur haft fá- ránlega mikil áhrif á mig, að vera svolítið eins og refur. Eftir þenn- an lærdóm tókst mér að vinna mikið af leikjum, meira að segja hann afa sem var snilld. Allir eiga að skilið að eiga afa eins og Baldur. Afa fannst gaman að segja brandara, þeir hefðu ekki verið fyndnir nema þegar hann sagði þá, og það var líka best hvernig rödd hann notaði, ég hlæ upphátt þegar ég hugsa til eins brandarans sem hann sagði mér og bróður mínum um síðustu jól. Manni leið alltaf vel hjá honum, hann var eiginlega svona andlegur leiðtogi í fjöl- skyldunni. Hann hafði tíma fyrir okkur öll. Ég sakna þín mikið, afi, ég hefði viljað hafa þig lengur hjá okkur. Það var gott að fá að kveðja þig í síðasta skipti og þú átt skilið að fá að hvíla þig. Aron Einarsson. Elsku bróðir minn! Nú hefur þú lagt í þá löngu ferð, sem við förum öll, þegar tími okkar er á enda hér á jörðu. Á þessari kveðjustund vakna fjölmargar minningar frá liðnum árum. Sumar tengjast erfiðum stund- um en aðrar eru ljúfar. Þú varst alla tíð sá maður að standa sem hetja í stafni á hverju sem gekk. Ég minnist þess þegar við stóðum öll tíu systkinin, ásamt mömmu, við kistuna hans pabba og presturinn flutti húskveðjuna í baðstofunni heima á Sveinsstöð- um, 1936. Það var okkur öllum erfið og þungbær stund. En lífið er barátta. Baldur var hress og fallegur drengur, afar dugmikill og ljúfur á allan máta. Þegar Sigurjón bróðir og Anna, kona hans, tóku síðar við Sveinsstöðum voru þau ákaflega ánægð með öll hans verk meðan hann dvaldi þar. En margt fer öðruvísi en ætlað var, hvort heldur valda örlög eða til- viljanir. Það atvikaðist svo að Baldur kom til Akureyrar 1953. Þar tók ég hann sem minn fyrsta nema í húsasmíði. Baldur reynd- ist frábær maður í öllum verkum og vann hjá mér um tuttugu ár. Hann vann bæði vel og sam- viskusamlega og naut vinsælda og virðingar samstarfsmanna sinna, enda vildu allir vinna með Baldri. Fjölmargir húseigendur óskuðu eftir því að fá Baldur til verka því frískleiki hans, verk- snilld og ljúfmennska hrifu alla. Baldur var afar barngóður mað- ur og mikill dýravinur. Hestarnir skipuðu alltaf háan sess í huga hans og allir málleysingjar hændust að Baldri, því hann var þeim bæði nærgætinn, mjúk- hentur og blíður. Á ævi manna skiptast á skin og skúrir. Baldur mátti reyna mikla erfiðleika í veikindum konu sinnar, Öbbu. En aldrei kiknaði Baldur og gerði sem best hann gat. Hið sviplega fráfall sonar þeirra var ógnarþungur baggi. En þá sem fyrr lét Baldur ekki bugast og vann sig smám saman frá þessari miklu sorg. Hann horfði hnarreistur fram á veginn, varðveitti minningu látinna ást- vina og kunni ávallt að meta og njóta þeirra gleðistunda sem lífið ber manninum í bland við bar- áttu og áföll. Hann var sannur drengskapar- og mannkostamað- ur. Þegar Baldur hitti Rögnu, seinni konu sína, fylgdu í kjölfar- ið bjartir dagar og ótal gleði- stundir. Hún féll því miður frá langt um aldur fram, en Baldur átti vini í varpa, sem gerðu hon- um síðustu árin léttbærari og deildu með honum gleði sinni og sorgum. Að endingu kveðjum við Mar- grét þig hinstu kveðju og þökk- um þér af alhug samverustundir og drenglyndi þitt. Þökk fyrir þennan vetur þökk fyrir brosið þitt. Þú hefur sól og sumar sent inn í hjarta mitt. (Höf. ókunnur) … og samferðamannanna. Börnum, fjölskyldu og að- standendum öllum sendum við samúðarkveðju í minningu þessa góða drengs. Guð blessi þig, elsku bróðir. Margrét Jörundsdóttir og Kristinn Sveinsson frá Sveinsstöðum. Baldur Sveinsson ✝ Faðir okkar og bróðir, JÓHANN JÓNSSON, Hátúni 10, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 17. janúar. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði föstudaginn 25. janúar kl. 15.00. Heimir Andri Jóhannsson, Ingvar Jóhannsson, Kristján Jónsson, Einar Jónsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar og amma, LINDA GUÐRÚN LILJA GUÐBRANDSDÓTTIR, Aðalbraut 4, Drangsnesi, lést í faðmi dóttur sinnar föstudaginn 18. janúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 28. janúar kl. 13.00. Berglind Björk Bjarkadóttir, Guðbrandur Máni Filippusson, Kolbrún Lilja Jónsdóttir. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HENRIK VILHELM AUNIO ÁRNASON, Austurbrún 6, Reykjavík, lést á lungnadeild Landspítala, Fossvogi, mánudaginn 14. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Anna Henriksdóttir, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, Ardís Henriksdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Asta Henriksdóttir, Finnur Magnússon og barnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTINSDÓTTIR, Miðtúni 2, Keflavík, lést mánudaginn 21. janúar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Jakob Árnason, Ísleifur Árni Jakobsson, Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir, Guðrún Sigríður Jakobsdóttir, Gunnar I. Baldvinsson, Kristinn Þór Jakobsson, Ólöf K. Sveinsdóttir, Ásdís Ýr Jakobsdóttir, Valur B. Kristinsson, Sigrún Björk Jakobsdóttir, Jón Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÉÐINN ÁGÚSTSSON, Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 21. janúar. Gylfi Ómar Héðinsson, Svava Árnadóttir, Hörður Héðinsson, Berglind Bendtsen, Rut Marsibil Héðinsdóttir, Þorkell Einarsson, Páll Vignir Héðinsson, Gunnhildur Kjartansdóttir, Ágúst Héðinsson, Baldvina Snælaugsdóttir, barnabörn og langafabörn. ✝ Okkar ástkæri ERLENDUR FRANKLÍNSSON, Óðinsvéum, Danmörku, lést sunnudaginn 13. janúar. Útför hans verður auglýst síðar. Aníta Rut Erlendsdóttir, Alex Nói Erlendsson, Agnes Klara Ingadóttir, Margrét Elín Sigurðardóttir, Ingibjörg Erlendsdóttir og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.