Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson, aij@mbl.is Búið er að veiða um 80 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni, en kvóti ís- lenskra skipa er um 210 þúsund tonn. Rannsóknaskipið Árni Frið- riksson hefur hafið mælingar að nýju og var í gær úti fyrir Austur- landi á leið norður og vestur um. Í mælingum fyrr í mánuðinum er talið að ekki hafi náðst að mæla nema hluta veiðistofnsins, enda voru nið- urstöður ekki í samræmi við það sem mældist í leiðangri í október. Mislangt komnar með kvótann Útgerðir eru mislangt komnar með kvóta sína, en Eskja á Eskifirði á aðeins eftir að veiða um 900 tonn, að sögn Benedikts Jóhannssonar, útgerðarstjóra. Bæði skip félagsins, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjart- ansson, komu til hafnar á mánudag. Til þessa hefur loðnan öll farið í bræðslu hjá Eskju, enda gott verð fyrir mjöl og lýsi um þessar mundir að sögn Benedikts. Verð á fiskimjöli og lýsi hefur hækkað undanfarið á heimsmarkaði og er helsta ástæðan minni ansjósukvóti Perúmanna. Ráðgert er að þau 900 tonn sem Eskja á eftir verði veidd síðari hluta febrúar og loðnan þá heilfryst fyrir Japansmarkað. Eiginleg hrogna- frysting er ekki á döfinni hjá Eskju nema hugsanlega ef bætt verður við kvótann. Á kolmunnaveiðar í kvöld Jón Kjartansson SU hefur veitt rúmlega níu þúsund tonn á vertíð- inni og er aflahæstur ásamt Beiti NK og Berki NK. Jón Kjartansson heldur væntanlega í kvöld að lokinni löndun á kolmunnaveiðar suður af Færeyjum. Færeysk skip hafa verið á veiðum á þessum slóðum og ein- hver þeirra fengið afla. Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni, segir að loðnu- vertíðin hafi gengið vel. Þeir hafi náð einum túr með nót fyrir áramót og síðan fjórum túrum með troll eft- ir áramótin. „Þetta hefur gengið vel hjá okkur og loðnan verið stór og vel haldin,“ segir Grétar. Hann segist ekki átta sig á hversu mikið sé á ferðinni af loðnu, en svör um það fá- ist væntanlega um eða eftir næstu helgi þegar Hafrannsóknastofnun lýkur mælingum sínum. Um allt á miðunum Grétar segir að mikið sé af hnúfu- bak og öðrum hval á loðnuslóðinni. Hvalurinn hafi gert mörgum erfitt fyrir sem voru með nót fyrir ára- mótin og í einhverjum tilvikum farið í nótina. Hvalurinn trufli ekki veiðar í troll, en hann sé um allt á mið- unum. „Það hefur orðið mikil fjölg- un á hnúfubaknum og eitthvað þarf þessi stóra skepna að éta,“ segir Grétar. Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Ingunni AK, segir á heimasíðu HB Granda að loðnan sé óvenju stór og sáralítil áta hafi verið í henni síðustu daga. Hann segir hins vegar að þótt víða lóði á góðar loðnutorfur þá sé magnið ekki í samræmi við vænt- ingar sjómanna. „Annars hef ég ekki mestar áhyggjur af því, heldur af hvalavöðunum sem hundelta loðnuna. Hnúfubakarnir fylgja loðnugöngunni og eftir að það hlýn- aði í sjónum þá segir mér hugur að hvalirnir muni fylgja loðnunni alla Gott verð fyrir fiskimjöl og lýsi  Skip Eskju að klára loðnukvótann  Hnúfubakurinn „hundeltir“ loðnuna  Hefur verið alfriðaður frá árinu 1956 30-50 tonn » Hnúfubakur er skíðishvalur af ætt reyðarhvala » Fæða þeirra er fjölbreytt og mismunandi eftir árstíma. » Fyrst og fremst er um að ræða svif, átu og smáfisk, svo sem sandsíli og loðnu. » Hnúfubakar þurfa að éta mikið til að viðhalda sér enda eru fullorðin dýr venjulega um 30 til 50 tonn að þyngd. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, tekur undir ábendingar sérfræðinga sem Alþingi fékk til að fara yfir frumvarp stjórnlagaráðs um nauðsyn þess að heildstætt og skipulegt mat fari fram á áhrifum frumvarpsins í heild. Tryggvi gerði grein fyrir umsögn sinni á stjórn- arskrárfrumvarpinu á fundi stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar í gær. Tryggvi miðaði umsögn sína að mestu við þau ákvæði er kunna að hafa áhrif á verkefni og starf fram- kvæmdavaldsins, kröfur til lagasetn- ingar og réttindi borgaranna. Tryggvi gerir fjölmargar athuga- semdir við frumvarpið en í máli hans kom fram að hann liti ekki á það sem sitt hlutverk að koma með beinar til- lögur. Í ábendingum Tryggva segir að tilefni kunni að vera til að orða ákvæði frumvarpsins með skýrari og greinilegri hætti, þannig að betur sé ljóst hvaða réttindi borgurunum eru fengin og hvaða skyldur og verkefni handhafar ríkisvaldsins hafa. Annars konar og ríkari skerðingarákvæði Í umsögn um mannréttindakafla frumvarpsins kemur fram að Tryggvi telji skerðingarákvæði sem þar eru væntanlega munu leiða til þess að heimilt verði að takmarka eða skerða mannréttindi sem fjallað er um í stjórnarskránni í fleiri til- vikum og á öðrum grundvelli en samkvæmt núgildandi stjórnarskrá. Þess má geta að almenn skerðing- arákvæði sem nú eru í frumvarpinu eru komin frá sérfræðinganefnd sem fjallaði um lagatæknileg atriði í frumvarpinu. Í umsögn Tryggva kemur fram að hann telji greinargerð sem fylgir frumvarpinu (sér- staklega athugasemdir við einstakar greinar) veita tak- markaðar skýringar á efni frumvarpsins. Hann segir skýringarnar sem með fylgi í ýmsum tilvikum misvísandi. Einnig beri á skorti á að gerð sé grein fyrir efnislegum sjón- Ekkert varð af því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd afgreiddi stjórn- lagafrumvarpið úr nefndinni í gær eins og áður hafði verið stefnt að. Þar með bendir allt til þess að önnur umræða um frumvarpið hefjist ekki fyrr en eftir helgi. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á enn eftir að fá umsagn- ir einhverra þingefnda um frumvarpið. Valgerður Bjarnadóttir, for- maður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segist vera þeirrar skoð- unar að þrátt fyrir það hefði mátt fara með málið í aðra umræðu. „Ég tel það gamaldags vinnubrögð að ekki sé hægt að vinna mál áfram þó þau séu komin áfram í aðra umræðu.“ Hún segir að á fundi með fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á mánudag hafi komið fram andstaða við að afgreiða frumvarpið þegar enn átti eftir að fara yfir umsagnir nefnda. Í kjölfarið hafi hún lagt til að fresta afgreiðslu málsins og meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu í gærmorgun. „Gamaldags vinnubrögð“ VALGERÐUR VILDI FARA Í AÐRA UMRÆÐU Valgerður Bjarnadóttir armiðum sem búi að baki texta sem einstakar greinar feli í sér. Af þessu tilefni telur hann að huga þurfi að úrbótum við athugasemdir við ein- stakar greinar, gera þær hnitmið- aðri, svo þar megi finna skýringar á afstöðu flutningsmanna frumvarps- ins og á hvaða grundvelli skilningur þeirra er byggður. Þannig yrði greinargerðin betri til túlkunar á þeim reglum sem settar verða fram í stjórnarskránni. Umsögn Tryggvi Gunnarsson mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gærmorgun þar sem hann gerði hann grein fyrir ábendingum sínum. Mætti orða ákvæði með skýrari hætti  Umboðsmaður gagnrýnir stjórnarskrárfrumvarpið Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ómögulegt er að leggja mat á verð- mæti þeirra kirkjujarða sem ríkið tók við með samningi við þjóðkirkj- una árið 1997. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðuneytisins við fyr- irspurn um jarðirnar. Fyrr í þessum mánuði kom í ljós að ekki er til listi í ráðuneytinu yfir þær jarðir sem ríkið tók við gegn því að greiða laun presta og starfs- manna þjóðkirkjunnar til ótiltekins tíma á grundvelli samkomulagsins. Engin sjálfstæð rannsókn Í svari ráðuneytisins kemur jafn- framt fram að ekki hafi verið ráðist í sjálfstæða rannsókn eða verðmat á öllum þeim eignum sem komu til álita í viðræðum ríkisins og kirkj- unnar á sínum tíma. Það hefði kallað á að rannsaka þyrfti sögu hverrar landspildu eða jarðar fyrir sig, jafnvel margar aldir aftur í tímann. Þá hefði verið eftir að leggja lögfræðilegt mat á stöðu við- komandi eignar og komast að sam- eiginlegri niðurstöðu fulltrúa ríkis og kirkju um hvorum megin eignir ættu að lenda og hvert áætlað verð- mæti þeirra væri. „Ómögulegt er því að segja til um verðmæti þeirra landspildna, fast- eigna og jarða sem sátt var um að myndu tilheyra íslenska ríkinu enda yrði það alltaf ágiskun,“ segir í svari ráðuneytisins. Þess í stað hafi verið horft til álits kirkjueignarnefndar sem hún skilaði þáverandi dóms- og kirkjumálaráð- herra í desember árið 1984 og þeirr- ar upptalningar á eignum sem þar er að finna. Með samkomulaginu frá 1997 hafi verið gert fullnaðaruppgjör á kirkjujörðunum. Vita ekki um verðmætið  Geta ekki metið virði kirkjujarða sem ríkið fékk Morgunblaðið/Eggert Prestar Ríkið skuldbatt sig til að greiða laun presta og starfsfólks kirkj- unnar ótímabundið á grundvelli kirkjujarðasamkomulagsins árið 1997. Á morgun 24. janúar gefur Íslandspóstur út frímerki í tilefni 150 ára afmælis Þjóðminjasafns Íslands og Árs alþjóðlegrar samvinnu um vatn. Einnig koma út ferðamannafrímerki þar sem myndefnið er íslenskt landslag. Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum um land allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050 Fax: 580 1059 Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is Safnaðu litlum listaverkum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.