Morgunblaðið - 23.01.2013, Síða 15
leið suður og vestur fyrir landið,“
segir Guðlaugur.
10-15% fjölgun hnúfubaks á ári
Mörgum tegundum stórhvela hef-
ur fjölgað við landið á síðustu ára-
tugum. Í samtali við Morgunblaðið í
september 2011 nefndi Gísli Vík-
ingsson, hvalasérfræðingur á Haf-
rannsóknastofnun, að hnúfubak
hefði fjölgað jafnt og þétt frá því að
hvalatalningar byrjuðu fyrir rúm-
lega 30 árum, jafnvel um 10-15% á
hverju ári. „Hnúfubak hefur í raun
fjölgað meira en margir töldu að
hvalastofni gæti fjölgað líffræði-
lega,“ sagði Gísli. „Þó ber að hafa í
huga að hnúfubakur var langt fram
eftir síðustu öld mjög sjaldgæfur við
Ísland. Upp úr 1970 virðist hann
hins vegar hafa komist yfir einhvern
þröskuld og hefur fjölgað mjög mik-
ið síðan.“
Eldri kenningar gerðu ráð fyrir
að hnúfubakar og aðrir skíðishvalir
yfirgæfu landið á haustin og kæmu
aftur að vori. Þegar loðnusjómenn
fóru að tilkynna í auknum mæli um
hnúfubaka á loðnumiðum að vetrar-
lagi samhliða því sem hnúfubak tók
að fjölga eftir 1980 varð ljóst að
hluti stofnsins væri hér að vetarlagi.
Sjaldgæfir í kjölfar veiða
Talið er að 2.800 húfubakar hafi
verið veiddir við Vestfirði og Aust-
firði á árunum 1889 til 1915 en fyrir
þann tíma var hann mjög algengur
við strendur landsins. Eftir þessar
miklu veiðar urðu hnúfubakar mjög
sjaldgæfir við Ísland. Veiddust ein-
ungis sex hvalir af þessari tegund
frá því að hvalstöðin í Hvalfirði tók
til starfa 1948 þar til hnúfubakar
voru friðaðir 1955. Veiðar annars-
staðar á Norður-Atlantshafi voru
öllu minni en við Ísland eða milli tvö
og þrjú þúsund samanlagt en Al-
þjóðahvalveiðiráðið alfriðaði hnúfu-
bak þar 1956.
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Líflegt Kap VE á miðunum í fyrravetur, hvalur stingur sér utan við nótina.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
Komdu á frumsýningu í dag
20% sparneytnari og enn öruggari Mazda6 á frábæru verði
Glæsilegur staðalbúnaður, m.a. snjallhemlunarkerfi (Smart City Break Support),
blindpunktsaðvörunarkerfi (Rear Vehicle Monitoring), 17” álfelgur, Bluetooth, nálægðarskynjarar,
upplýsingasnertiskjár í mælaborði, hraðastillir (cruise) og regnskynjari í framrúðu.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 l Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 l mazda.is
Mazda6 kostar aðeins frá 4.390.000 kr.