Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Ég býð mig fram í prófkjöri sjálfstæð- ismanna 26. janúar nk. og vænti stuðnings í 1.-3. sæti. Skoðanir mínar og viðhorf til ýmissa brýnna mála hef ég sett fram í Mbl. og héraðsblöðum und- anfarnar vikur og einn- ig á fundum um allt kjördæmið. Veiti sjálf- stæðismenn í Suðurkjördæmi mér brautargengi mun ég í engu hlífa mér við að fylgja eftir þessum málum með rökum og af fullum þunga. Landsfundur sjálfstæðismanna sem framundan er, verður að setja fram skýra stefnu í samræmi við hin gömlu gildi Sjálfstæðisflokksins um réttlæti, jafnræði, samábyrgð, grund- völl eignamyndunar heimila og frelsi einstaklingsins til athafna með ábyrgð. Samþykktir landsfundar ber að virða. Ég hvet sjálfstæðismenn um land allt til þess að undirbúa fundinn vel með málefnavinnu og kosningu fulltrúa til þess að fylgja eftir þeim málum, sem samstaða myndast um. Við skulum ekki leyfa óréttlæti að viðgangast, heldur berjast með kjör- orð sjálfstæðismanna að leiðarljósi: Gjör rétt, þol ei órétt. Verði ég kjörinn á Alþingi mun ég fylgja eftir málflutningi mínum varð- andi afnám óréttlátrar verðtrygg- ingar, leiðréttingu á stökkbreyttum lánum og losun gjaldeyrishafta. Ég mun vinna að því að ná fram skýrum siðareglum um störf og stöðu þing- manna, ná fram breytt- um þingsköpum á Al- þingi til þess að styrkja stöðu þess sem lög- gjafaþings, þannig að þingmenn flytji þar öll mál, en ráðherrar flokksins sitji ekki á Al- þingi. Þannig yrðu sett skýrari skil á milli lög- gjafarvalds og fram- kvæmdarvalds, sem myndi auka tiltrú þjóð- arinnar á störfum Al- þingis, allri vinnu þar og umfjöllun fjölmiðla um þingfundi. Virðingu Al- þingis þarf að endurheimta og hlýtur það að verða veigamikið verkefni allra þeirra sem ná kjöri á Alþingi næsta vor. En umfram allt vil ég vera trúr mínum hugsjónum og samvisku um að gera það sem ég tel vera best fyrir þjóð mína og hið gjöfula land sem við eigum. Drottinn Guð gefi mér hand- leiðslu í því starfi, ef ég verð kjörinn til þess. Framboð í Suðurkjördæmi Eftir Halldór Gunnarsson Halldór Gunnarsson » Virðingu Alþingis þarf að endurheimta og hlýtur það að verða veigamikið verkefni allra þeirra sem ná kjöri á Alþingi næsta vor. Höfundur er bóndi í Holti og fyrrver- andi sóknarprestur. Hann býður sig fram í forystusæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Suðurlandi 26. janúar. Sveit Lögfræðistofunnar Reykjavíkurmeistari Sveit Lögfræðistofu Íslands er Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni 2013. Í sveitinni spiluðu Jón Bald- ursson, Þorlákur Jónsson, Bjarni H. Einarsson, Aðalsteinn Jörgensen, Steinar Jónsson og Sverrir Ár- mannsson Lokastaðan: Lögfræðistofa Íslands 262 stig Karl Sigurhjartarson 251 stig Grant Thornton 242 stig Bridsdeild Breiðfirðinga Sunnudaginn 20/1 var spilaður tví- menningur á 12 borðum. Hæsta skor kvöldsins í Norður/Suður. Þorleifur Þórarinss. – Haraldur Sverriss. 277 Benedikt Egilss. – Sigurður Sigurðss. 252 Jón Jóhannsson – Birgir Kristjánss. 239 Austur/Vestur Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 271 Bergljót Gunnarsd. – Jón Hákon Jónss. 254 Oddur Hanness. – Árni Hannesson 251 Þetta var fyrsta spilakvöldið í fimm kvölda tvímenningskeppni . Þar sem fjögur bestu kvöldin gilda til úrslita. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 18. janúar 2013 var spilað á 14 borðum hjá FEBH (Félag eldri borgara í Hafnarfirði), með eft- irfarandi úrslitum í N/S. Auðunn Guðmss. – Óskar Ólafsson 419 Gróa Þorgeirsd. – Kristín Óskarsd. 355 Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 338 Friðrik Hermannss. – Ragnar Björnss. 336 Óli Gíslason – Sverrir Jónsson 326 A/V. Tómas Sigurjóns. – Björn Svavarsson 386 Skarphéðinn Lýðsson – Stefán Ólafss. 354 Svanhildur Gunnarsd. – Magnús Láruss. 347 Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 338 Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 333 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Almáttugi, miskunn- sami, kærleiksríki og eilífi Guð, þú sem ert höfundur og fullkomn- ari lífsins. Þakka þér fyrir trú- festi þína sem varað hefur frá kyni til kyns. Þú ert í dag hinn sami og um aldir og lofaðir að yfirgefa ekki börnin þín sem þú sannarlega hefur velþóknun á. Tíminn líður, ég eldist og líkaminn hrörnar en ég bið þig að minn innsti kjarni mætti þroskast og endurnýj- ast dag hvern vegna samfélagsins við þig. Á tímamótum fyllumst við trega og eftirsjá, jafnvel stundum feg- inleika en einnig kvíða fyrir huldri framtíð. Ég bið þig að blessa allar minn- ingar mínar. Vilt þú slípa þær og helga svo þær verði að veðruðum en dýrmætum perlum. Verði að kjarn- góðu nesti inn í nýja tíma. Hjálpaðu mér að koma fram við ástvini mína af nærgætni og vænt- umþykju. Hjálpaðu mér að rækta tengsl við ættingja mína og vini og reynast þeim náungi þegar á þarf að halda. Gef að umhyggjan aukist og vináttan dýpki. Blessaðu einnig samskipti mín við aðra samferðamenn mína og hjálpa mér að takast á við þau verkefni sem bíða mín af alúð og heiðarleika, metnaði og þakklæti. Gef að verk mín mættu verða þér til dýrðar, samferðafólki mínu til blessunar og sjálfum mér til heilla. Ég þakka þér að ekkert skuli geta slitið mig úr þinni almáttugu vernd- arhendi. Gefðu að hvert fótmál mitt, andardráttur og æðarslag mætti vera í takt við þig, lífið sjálft. Hjálp- aðu mér að stefna ótrauður áfram og missa ekki sjónar á markinu, til- gangi lífsins. Blessaðu íslensku þjóðina. Veit ráðamönnum vísdóm og visku, æðruleysi og auðmýkt til að takast á við verkefni sín af heið- arleika og heilindum með almannahagsmuni að leiðarljósi, ekki síst þeirra sem einhverra hluta vegna standa höllum fæti. Gefðu okkur öllum víðsýni, skilning og umburðarlyndi hverju í annars garð. Hjálpaðu okkar að standa saman sem þjóð á sömu vegferð þrátt fyrir eðlilega misjafnar skoðanir og áherslur á stundum. Sameinaðu okk- ur í að lifa í þakklæti fyrir það að fá að vera Íslendingar og fá að búa á þessu undurfagra landi. Snertu við okkur og veit kærleika þínum farveg inn í hjörtu okkar og lát hann síðan smitast frá hjarta til hjarta. Hjálpaðu okkur að vera fús að fyr- irgefa og leita eftir sáttum. Styrktu þau og blessaðu sem brotið hefur verið gegn. Hjálpaðu okkur að styðja þau og styrkja. Leið þú einnig ofbeldis- og illgjörðarmenn frá villu síns vegar og inn í ljós kærleikans og sannleikans svo þeir sjái að sér og hætti sinni mannskemmandi iðju og taki að njóta náðar þinnar og kær- leika. Gefðu að þetta nýja ár verði náð- arár. Ár tækifæra og uppskeru. Alls þessa leyfi ég mér að biðja í auðmýkt og af einlægu hjarta. Í trausti þess að þú munir varðveita okkur, leiða og vel fyrir sjá. Í Jesú nafni. Amen. Bæn á nýju ári Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Snertu við okkur og veit kærleika þínum farveg inn í hjörtu okk- ar og lát hann síðan smitast þaðan frá hjarta til hjarta. Höfundur er rithöfundur. ÚTSALA allt að 50% afsláttur Metravara Rúmföt Rúmteppi Handklæð i Dúkar Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is Opnunartími: virka daga kl. 10-18 og laugardaga 11-15 ar t& co nc ep t > z- on e cr ea tiv e te am ph ot o > K am il S tru dz iń sk i ISON Sìmi 588 2272 Fæst aðeins á hársnyrtistofum fyrir hárið Mjúkt, glansandi... slétt eða krullað, aldrei aftur úfið. > Inniheldur lífræna Argan olíu frá Marocco > Inniheldur hvorki paraben né súlfat > þyngir ekki hárið Prófaðu þú finnur muninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.