Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 41

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Á Krúsku færðu: heilsusamlegan mat, kjúklingarétti, grænmetisrétti, fersk salöt, heilsudrykki, súkkulaðiköku, gæðakaffi frá Kaffitár og fallega stemningu. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI Næring fyrir líkama og sál “IT’S PART JASON BOURNE, PART DIRTY HARRY.” -EMPIRE  -TOTAL FILM -THE HOLLYWOOD REPORTER  NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ NAOMI WATTS TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA - ÞÞ, FRÉTTATÍMINN  "SKOTHELD Í ALLA STAÐI!" - HELGI SNÆR SIGURÐSSON, MORGUNBLAÐIÐ “AÐDÁENDUR TARANTINO VERÐA EKKI FYRIR VONBRIGÐUM.” BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM FRÁBÆR MYND MEÐ GERALD BUTLER OG ELISABETH SUE “SURPRISING” -ROGER EBERT “SOLID PERFORMANCES” -HOLLYWOOD REPORTER MÖGNUÐ NÝ ÍSLENSK MYND 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR -SÉÐ & HEYRT/VIKAN “THE BEST FILM OF “SPELLBINDING DGA AWARD NOMINEE BEST DIRECTOR PGA AWARD NOMINEE BEST PICTURE OF THE YEAR WGA AWARD NOMINEE BEST ADAPTED SCREENPLAY SAG AWARD® N O M I N A T I O N S OUTSTANDING PERFORMANCE BY A MALE ACTOR IN A SUPPORTING ROLE OUTSTANDING PERFORMANCE BY A CAST IN A MOTION PICTURE 2 ACADEMY AWARD ® NOMINATIONS7 INCLUDING BEST PICTURE GRANT HESLOV BEN AFFLECK GEORGE CLOONEY WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR CRITICS’ CHOICE AWARDS BEN AFFLECK WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR GOLDEN GLOBE® AWARDS DRAMA 7 TILN FNING R TILÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYND BESTA YND BESTA MYND BESTI LEIKSTJÓRI BESTI LEIKSTJÓ I SIGURVEGA I MEÐAL ANNARS SIGURVEGA I EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP XL KL. 5:50 - 8 - 10:30 CHASING MAVERICKS KL. 8 - 10:30 JACK REACHER KL. 5:20 - 8 - 10:40 JACK REACHER VIP KL. 5:20 - 8 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY3D KL. 5 - 8:30 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50 KRINGLUNNI MARIA STUARDA ÓPERA KL. 18:00 XL KL. 5:50 - 8 - 10:10 JACK REACHER KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 SINISTER KL. 10:30 DJANGO UNCHAINED KL. 5 - 8 - 10:30 CHASING MAVERICKS KL. 5:30 - 8 JACK REACHER KL. 8 - 10:40 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 LIFE OF PI3D KL. 5:20 ARGO KL. 10:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK DJANGO UNCHAINED KL. 8 XL KL. 8 CHASING MAVERICKS KL. 10:10 AKUREYRI XL KL. 8 CHASING MAVERICKS KL. 10:10 JACK REACHER KL. 10:10 THE IMPOSSIBLE KL. 8 ENN EITT STÓRVIRKIÐ FRÁ TARANTINO.” -GÍSLI FREYR VALDÓRSON, VIÐSKIPTABLAÐIÐ  TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þriðja röð gamanþáttanna Hæ gosi hefur göngu sína á SkjáEinum 31. janúar næstkomandi og segir enn af bræðrunum Víði og Berki, ævintýr- um þeirra og vandræðum. Leikstjóri þáttanna er Arnór Pálmi Arnarson en handritið skrifaði hann ásamt Önnu Svövu Knútsdóttur, Katrínu Björgvinsdóttur og Baldvini Z sem er einnig framleiðandi þáttanna. Blaðamaður ræddi við Baldvin um þættina í gær og bað hann að rekja söguþráð þeirra fyrir þá sem ekki til þekkja. „Hæ gosi er í raun og veru dramakómedía um fjölskyldu og vini hennar norður á Akureyri. Sagan byrjar á því að fjalla um bræðurna Börk og Víði, sem eru leiknir af Kjartani Guðjónssyni og Árna Pétri Guðjónssyni, þegar þeir eru á þeim tímamótum í lífinu að mamma þeirra er nýdáin og pabbi þeirra, Reynir, skráir sig sjálfviljugur inn á elliheim- ili og þeir komast að því að hann á ástmann á elliheimilinu, hann kemur s.s. út úr skápnum. Þannig að Börkur og Víðir eru í seríunni að díla við „mömmu“ sína sem er leikin af Þráni Karlssyni. Á sama tíma erum við að kynnast Berki og Víði, konum þeirra og börnum og þar eru týpísk fjöl- skylduátök í gangi. Víðir er svolítið kúgaður og Börkur á mjög yndislega, færeyska konu, Fríðborgu, sem hann skilur eiginlega aldrei. Síðan er það Krummi, besti vinur þeirra, leikinn af Hjálm- ari Hjálmarssyni sem er svona góð- ur, íslenskur at- hafnamaður, allt- af að gera eitthvað á mörk- um hins ósiðlega, veit ekki alveg hvar velsæmismörkin liggja en meinar alltaf vel,“ segir Baldvin. Eiginkon- urnar leika María Ellingsen og Helga Braga Jónsdóttir. Í annarri þáttaröð hefur eiginkona Barkar yfirgefið hann og snúið aftur til Færeyja. Feðgarnir halda þangað til að end- urheimta hana og lenda þar í ýmsum ævintýrum og endar þáttaröðin á því að Börkur og Fríðborg sættast. „Það er barn á leiðinni í þriðju seríu. Það gerist eitthvað stórkostlegt,“ segir Baldvin og lætur blaðamaður þessa útlistun nægja þar sem engin leið er að rekja söguþráð þáttanna í heild sinni. Flækjurnar eru svakalegar. „Hver á barnið?“ – Eins og þú lýsir þessu þá minnir þetta á suður-ameríska sápuóperu! „Já, þetta er íslensk sápuópera á mjög dramakómískan hátt. Við hugs- um alltaf í sápu, „hver á barnið?“ og allt þetta. Það eru rosamargar fjöl- skylduflækjur en á sama tíma erum við einhvern veginn að segja mjög ís- lenska sögu sem allir kannast við. Ís- land er eitt stórt „inbred“ samfélag,“ segir Baldvin. – Nú er þetta þriðja þáttaröðin þannig að þættirnir hljóta að hafa notið mikilla vinsælda? „Já, þetta er ein vinsælasta sjón- varpssería sem SkjárEinn hefur ver- ið með frá upphafi og þættirnir slógu gjörsamlega í gegn í fyrra,“ svarar Baldvin. Önnur þáttaröð hafi notið mun meiri vinsælda en sú fyrsta og það hafi vissulega komið á óvart. Hann hafi í raun ekki átt von á því að sú þriðja yrði gerð. – Nú er Anna Svava komin í hóp handritshöfunda. Hefur það haft mik- il áhrif á húmorinn? „Já, þetta hentaði henni mjög vel, ég veit ekki hvað á að kalla þetta en þetta er pínu sjúkur húmor en samt alltaf mjög menntað. Þegar við erum að dansa á þessari gráu línu erum við að gera það snyrtilega. Þannig að það hentaði Önnu Svövu mjög vel. Hún er mjög opinská og brútal,“ segir Bald- vin. Að lokum má geta þess að Björn Jörundur Friðbjörnsson leikur sjálf- an sig í þáttunum og fer einnig með hlutverk tvíburabróður síns, Árna Jörundar. Baldvin segir Björn þar vera í „epísku“ hlutverki og skelli- hlær. Frekari fróðleik um Hæ gosi, ætt- artré o.fl. má finna á skjarinn.is. Íslensk og afskaplega „dramakómísk“ sápa  Þriðja þáttaröð Hæ gosi hefst brátt á SkjáEinum Ljósmynd/SkjárEinn Átök Það gengur á ýmsu í grínþáttunum Hæ gosi. Hér fær Árni Pétur Guðjónsson það óþvegið, María Ellingsen grýtir í hann kökusneið og Helga Braga Jónsdóttir fylgist forviða með og lítið, ónefnt kríli í fangi Árna. Baldvin Z Hljómsveitin Mr Mookie mun halda tvenna órafmagnaða tónleika til heiðurs hljómsveitinni Pearl Jam, þá fyrri á Gamla Gauknum á morgun og þá seinni í Hvíta húsinu á Selfossi, degi síðar. Tónleikarnir hefjast kl. 22 bæði kvöldin og verða órafmagn- aðir. Í tilkynningu segir að hljóm- sveitin muni leika valin lög eftir rokkhljómsveitina góðkunnu. Hljómsveitina Mr Mookie skipa þeir Valur Heiðar Sævarsson söngvari, Sigurpáll Jóhannesson gítarleikari, Sveinn Pálsson gítarleikari, Gísli Elíasson trommuleikari og Gúzti Tórzhamar bassaleikari. Pearl Jam var stofnuð í Seattle í Bandaríkjunum árið 1990 og er söngvari hennar, Eddie Vedder, lík- lega þekktastur liðsmanna. Hljóm- sveitin þykir með þeim merkari í grugginu (e. grunge) sem varð til í byrjun tíunda áratugarins. Hljóm- sveitin hefur selt yfir 30 milljónir platna í Bandaríkjunum og um 60 milljónir á heimsvísu. Heiður Söngvarinn Eddie Vedder veit líklega ekki af tónleikunum. Mr Mookie heiðrar Pearl Jam AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.