Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2013
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
K
eppnin var mjög spenn-
andi, það voru margar
góðar hljómsveitir sem
tóku þátt í henni,“ seg-
ir Ásþór Loki Rún-
arsson, gítarleikari og söngvari í
hljómsveitinni Meistarar dauðans,
en hún sigraði nýlega í hljómsveit-
arkeppninni Tónabær rokkar. Þeir
eru að vonum ánægðir með sigurinn
en leggja mikla áherslu á að mark-
mið þeirra sé fyrst og fremst að
skemmta öðrum og sjálfum sér.
„Tónabær rokkar er keppni fyrir
grunnskólana sem var sett á lagg-
irnar til þess að krakkar sem eru
undir þrettán ára aldri hafi vettvang
til að koma fram og keppa, vegna
þess að það er þrettán ára aldurs-
takmark í Músíktilraunum,“ segja
Meistarar dauðans sem spiluðu fjög-
ur frumsamin lög í Tónabær rokkar.
Eitt af þeim lögum heitir Drekinn og
í viðlaginu koma þessi orð m.a fyrir:
Brennir, eyðir, falsar, flýgur, brýtur
meiðir, logar, lýgur. Þeir segja text-
ann fjalla um vonda foreldra. „Drek-
inn í steypuhellinum er barn sem for-
eldrar ala þannig upp að það verður
skíthæll.“
„Ég elska að tromma og fékk
trommusett fimm ára“
Hljómsveitin er ung að árum í
tvennum skilningi, meðlimirnir eru á
aldrinum níu til fjórtán ára og hljóm-
sveitin varð til fyrir aðeins einu ári.
„Við byrjuðum fyrst bara þrír, við
bræðurnir, ég og Þórarinn Þeyr sem
spilar á trommur og bassaleikarinn
Albert Elías Arason. En svo bættist
Bjarki Mar Jónsson söngvari við í
haust og loks Árni Dagur, bróðir Al-
berts, á hljómborð,“ segir Ásþór.
Það eru því tvennir bræður í hljóm-
sveitinni og Bjarki er systkinabarn
þeirra Ásþórs og Þórarins. Ásþór er
elstur, nýorðinn fjórtán ára, Albert
tólf, Bjarki þrettán, Árni Dagur tíu
og Þórarinn Þeyr níu ára. „Ég elska
að tromma. Ég var ekki nema
þriggja ára þegar ég byrjaði að
tromma á fullu með sleifum á potta.
Meistarar dauðans
komnir til að vera
Þeir segjast ekki vera fastir í einhverri einni tónlistarstefnu, þó svo að þeir
kunni vel að meta þungarokk. Þeir byrjuðu að spila fyrir ári en gerðu sér lítið
fyrir og unnu nýlega hljómsveitarkeppnina Tónabær rokkar.
Trymbill Þórarinn Þeyr fer á kostum á trommunum.
Góðir Bræðurnir Albert á bassa og Árni Dagur á hljómborð.
Íslenskir herramenn sem vilja fylgja
klassískum tískustraumum ættu að
fletta Fésbókarsíðu Herrafataversl-
unar Kormáks og Skjaldar. Þar má
finna fjölda fallegra mynda af vel
klæddum mönnum. Þeir sem sjá eitt-
hvað sem þeim líst á geta síðan
freistað þess að fara á fatamarkað á
Kex Hostel á morgun, laugardag, milli
klukkan 12 og 17 og þar gætu leynst
buxur, vesti, brók eða skór á fínu
verði.
Þeir sem hafa haft löngun til að
klæðast ullarvesti og sixpensara
dagsdaglega en skort kjark til að
skilja við gallabuxurnar og stutt-
ermabolinn, ættu ekki að láta þennan
markað framhjá sér fara. Þarna er
komið kjörið tækifæri til að kaupa
jafnvel sína fyrstu klassísku tískuflík
og ekki skemmir fyrir að starfsmenn
verslunarinnar verða á staðnum og
veita góð ráð.
Vefsíðan www.facebook.com/kormakurskjoldur
Kormákur
og Skjöldur
á Kexinu
Afmælisveisla Kirsuberjatrésins
verður haldin á morgun og er öllum
boðið. Þessi fallega verslun á Vest-
urgötu fagnar 20 ára afmæli sínu en
engin verslun í Reykjavík þar sem
hönnuðir koma sjálfir að rekstri hefur
náð jafn háum aldri. Alls 11 konur,
hönnuðir og listakonur, reka versl-
unina og ræður þar fjölbreytileikinn
og hugmyndaauðgin ríkjum.
Húsnæði verslunarinnar er sögu-
frægt en það var byggt árið 1882 og
er því 131 árs. Verslun hefur verið
rekin í húsinu í 125 ár og hefur inn-
réttingunum verið vel við haldið en
þær hafa verið nánast óbreyttar frá
árinu 1922. Hvort sem áhugi er fyrir
því að fagna afmæli eða forvitni á að
skoða fallega skartgripi, fatnað, hús-
búnað, töskur eða listmuni þá er allt-
af notalegt að stíga inn í versl-
unarhúsnæðið við Vesturgötu.
Endilega...
...kíkið í afmæli í Kirsuberjatréð
Morgunblaðið/G.Rúnar
List Kirsuberið er handverks- og hönnunarverslun rekin af 11 listakonum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Árleg tískusýning útskriftarnem-
enda fatahönnunarbrautar Listahá-
skóla Íslands verður haldin í kvöld
klukkan 20 í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Þar sýna 10 útskrift-
arnemendur afrakstur þriggja ára
háskólanáms í fatahönnun. Þetta eru
þau Arnar Már Jónsson, Ásgrímur
Már Friðriksson, Bethina Elverdam
Nielsen, Elísabet Karlsdóttir, Hall-
dóra Gestsdóttir, Hildur Sumar-
liðadóttir, Linda Jóhannsdóttir,
Rakel Sölvadóttir, Sara Arnars-
dóttir og Sigurborg Selma Karls-
dóttir. Undanfarna dag hafa þau set-
ið við, þanið saumavélarnar, breytt
og bætt sem hefur krafist þolinmæði
hjá fyrirsætunum.
Áhuga- og atvinnumenn í tísku-
geiranum ættu ekki að láta þennan
viðburð framhjá sér fara. Það er fátt
meira gefandi en að sjá afrakstur
skapandi vinnu á sviði. Undanfarin
ár hefur mikill fjöldi fólks mætt á
sýninguna og stemningin ætíð góð.
Hver nemandi sýnir sex alklæðn-
aði. Níu sýna kvenlínu og einn nem-
andi er með línu fyrir karlmenn. Er-
lendir prófdómarar að þessu sinni
eru þau Martine Sitbon og Marc As-
coli en bæði eru þau stórstjörnur í
tískuheiminum. Beata Aurell, starfs-
mannastjóri H&M, kemur sér-
staklega til landsins til að vera
viðstödd tískusýninguna.
Tíska Frá útskriftarsýningunni í
fyrra sem lukkaðist vel.
Afrakstur þriggja ára háskóla-
náms á tískupöllum í kvöld
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun
Myndin hér að ofan er samsett og tekin á tveimur stöðum.
Veist þú hvaða staðir það eru? Reyndu á kunnáttu þína og
berðu saman við rétt svar sem þú finnur á www. frumherji.is
Meirihluti landsmanna
treystir Frumherja fullkomlega
fyrir bíl sínum og öryggi
Keyrum örugg inn í vorið og látum skoða
bílinn þar sem reynslan er mest!
APRÍL
SKOÐUN
ARMÁN
4
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
VEIST ÞÚ HVAR MYNDIN ER TEKIN?