Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 23
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri tölvuleikjaframleið-
andans CCP, segir að það sé afar
erfitt að fá leyfi frá hinu opinbera til
að erlendir starfsmenn fyrirtækisins
fái að búa hér á landi, og nefndi
dæmi af Bandaríkjamanni og öðrum
frá S-Ameríku, sem standi fyrir utan
Evrópska efnahagssvæðið.
Hann segir að vegna skorts á
tæknimenntuðu fólki hér á landi sé
það mikilvægt fyrir tæknifyrirtæki
að geta ráðið til sín erlenda starfs-
krafta. Þeir þjálfi um leið aðra
starfsmenn fyrirtækisins. Þekking
þeirra hafi því margfeldisáhrif innan
fyrirtækisins. Á sama tíma og Hilm-
ar Veigar var að reyna að afla leyfa
fyrir bandarískan hugbúnaðarsér-
fræðing, flutti hann inn kórala, sem
njóta verndar alþjóðasamfélagsins, í
fiskabúr CCP án vandkvæða. „Það
var erfiðara að flytja inn bandarísk-
an hugbúnaðarsérfræðing til lands-
ins en kórala,“ segir hann. Þetta kom
fram á vel sóttu Nýsköpunarþingi á
Grand Hótel í gær.
Jón von Tetzchner sagði í viðtali
við Viðskiptablað Morgunblaðsins í
gær að meðal tækifæra Íslands væri
að draga hingað til lands erlenda
hugbúnaðarsérfræðinga vegna þess
að landið sé heillandi og hann telur
að margir hafi áhuga á að búa hér ef
rétt verkefni bjóðast. „Ég gerði mik-
ið af því þegar ég rak Opera að ráða
hæft erlent starfsfólk sem flutti til
Noregs – og það er miklu kaldara á
veturna í Noregi en á Íslandi! Netið
gerir það að verkum að það er hægt
að byggja upp tæknifyrirtæki á
heimsmælikvarða nánast hvar sem
er.“
Að sögn Hilmars hefði CCP aldrei
orðið að því fyrirtæki sem það er í
dag ef margir af fyrstu starfsmönn-
unum hefðu ekki áður unnið hjá OZ.
Það hafi verið dýrmætur skóli og
þeir fjármunir sem lagðir voru í það
fyrirtæki hafi því ekki farið til spillis.
Meðal þess sem hafi staðið fyrir-
tækinu fyrir þrifum á upphafsárun-
um var hve fáir hafi kunnað til verka.
Glenda Napier, verkefnisstjóri hjá
NGER, segir að fjöldi nýrra fyrir-
tækja sem stofnuð eru á Íslandi sé í
meðallagi. Aftur á móti vaxi íslensk
fyrirtæki hægar en á hinum Norð-
urlöndunum. Einungis 17% stækki
það mikið að starfsmenn telji fleiri
en 50 en til að mynda er þetta hlut-
fall 48% í Finnlandi.
Erfitt að flytja inn starfsmenn
Ljósmynd/Arnaldur
Nýsköpunarverðlaun Starfsmenn hátæknifyrirtækisins Völku voru viðstaddir verðlaunaafhendinguna.
Framkvæmdastjóri CCP segir auðveldara að flytja inn kóral en að fá leyfi fyrir bandarískan starfs-
mann til að flytja til Íslands Íslensk sprotafyrirtæki vaxa mun hægar en þau á Norðurlöndunum
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2013
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
Hátæknifyrirtækið Valka hlaut
Nýsköpunarverðlaun Íslands
2013 sem afhent voru á Nýsköp-
unarþingi í gær. Fyrirtækið sér-
hæfir sig í hönnun á tækjum og
hugbúnaði fyrir fiskvinnslu.
Helgi Hjálmarsson, stofnandi og
framkvæmdastjóri Völku tók við
verðlaununum úr hendi Stein-
gríms J. Sigfússonar, atvinnu-
og nýsköpunarráðherra
„Ég byrjaði nú bara einn í bíl-
skúrnum og svo hefur þetta
smám saman undið upp á sig og
vörum og viðskiptavinum fjölg-
að,“ sagði Helgi í samtali við
mbl.is í gær.
Valka var stofnuð árið 2003.
Þar starfa 18 manns við tækja-
hönnun, hugbúnaðargerð, fram-
leiðslu og sölu. Öll samsetning
á tækjum fer fram innanhúss en
aðkeypt smíði er að mestu leyti
unnin af íslenskum verktökum.
Valka verð-
launuð
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN