Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 2

Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 2
Morgunblaðið/Ásdís Búð Norvík á m.a. verslunarkeðj- urnar Krónuna, Nóatún og Kjarval. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Stjórnendur fyrirtækjasamsteyp- unnar Norvíkur eiga í viðræðum við SÍA II, sjóð í rekstri sjóðastýr- ingarfyrirtækisins Stefnis hf., um aðkomu að innlendum rekstri Nor- víkurfélaga. Málið er á byrjunar- stigi, samkvæmt yfirlýsingu frá Jóni Helga Guðmundssyni, for- stjóra og stjórnarformanni Norvík- ur. „Ég horfi á þetta þannig að senn fari að líða að kynslóðaskiptum í fyrirtækinu og mér er að sjálfsögðu ekki sama hverj- ir taka við kefl- inu eða hvað þeir hyggjast gera,“ segir Jón en fjöl- skylda hans hyggist áfram reka Byko og er- lend starfsemi Norvíkur standi sömuleiðis utan við fyrrnefndar þreifingar. „Okkur finnst mikilvægt að þeir aðilar sem við eigum í viðræðum við deila að miklu leyti okkar sýn um uppbyggingu fyrirtækisins. Þá finnst okkur ekki síður mikilvægt að ekki er um að ræða samkeppn- isaðila, heldur fjárfesta sem sjá fyrir sér að fyrirtækið verði skráð á markað. Það ættu því ekki að verða neinar kollsteypur í rekstri eða skipulagi fyrirtækisins,“ segir Jón. Starfsmenn Norvíkur voru yfir þrjú þúsund talsins árið 2011 en þá nam velta fyrirtækisins um 500 milljónum evra. Önnur dótturfélög þess utan Byko eru m.a. raftækja- verslunin Elko ehf., sportvöruversl- unin Intersport ehf. og Kaupás hf. en undir Kaupási eru reknar versl- unarkeðjurnar Krónan, Nóatún og Kjarval, alls 25 verslanir. Viðræður um sölu tengjast kyn- slóðaskiptum innan fyrirtækisins  Á byrjunarstigi, segir Jón Helgi Guðmundsson  Hyggjast reka Byko áfram Jón Helgi Guðmundsson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Það var ósköp lítill tími til að hugsa. Þetta gerð- ist svo snöggt. Ég setti skófluna sjávarmegin og svo rann grafan 20 til 30 metra niður og stoppaði á vegbrúninni á gamla veginum,“ segir Bragi Árnason, gröfumaður hjá Suðurverki. Skriða rann úr hlíð í Kjálkafirði í gær og á gröfuna. Mildi þykir að ekki fór ver en skriðan fór upp á vélarhlífina hjá Braga. „Skriðan hefði allt eins getað farið yfir gröfuna,“ segir Gísli Eysteins- son, verkstjóri hjá Suðurverki. Eins og sést á myndinni er skriðan efnismikil en hún lokaði veginum. Óljóst er hvenær hann verður opnaður fyrir almennri umferð. Enn er hætta á hruni úr hlíðinni. Verður því aukaferð með ferjunni Baldri í dag. Bragi segir að hefðbundnu verklagi hafi verið fylgt en hann var að snyrta neðan af svonefndri skeringu þegar óhappið varð. Ljósmynd/Bjarni Kristjánsson „Það var ósköp lítill tími til að hugsa“ Eins og sýnt er á grafinu hér til hliðar hafa peningalegar eignir sveitarfélaganna rýrnað um tæpa 30 milljarða frá 2010, fara úr 130 milljörðum í um 102 milljarða í fyrra. Umskiptin eru enn meiri ef árin 2007 og 2012 eru borin saman. Peningaleg eign var þannig neikvæð um 17,6 milljarða árið 2007 borið saman við neikvæða stöðu upp á rúma 149 milljarða í fyrra. Innistæður í sjóðum og á bankareikningum hafa einnig rýrnað en þær fara úr 34,6 millj- örðum 2010 í 18,8 ma. 2012. Sviptingar í bókhaldinu UMSKIPTI Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hrein peningaleg eign sveitarfélaga var 54,7 milljörðum króna lakari í lok síðasta árs en í árslok 2010. Peninga- leg eign þeirra var neikvæð um 94,5 milljarða króna 2010 en var neikvæð um 149,2 milljarða í fyrra. Þessi breyting er sýnd á grafinu hér til hliðar en það sýnir einnig hvernig peningaleg eign hefur rýrn- að um 30 milljarða á sama tímabili. Skal tekið fram að hér er aðeins horft til A-hlutans í rekstri sveitar- félaga og er Orkuveita Reykjavíkur því til dæmis ekki meðtalin. Gengið verulega á fjármunina Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin standa frammi fyrir áskorun vegna skuldavandans. „Það hefur gengið verulega á fjár- muni sveitarfélaga og skuldir hafa aukist mikið í framhaldi af hruninu. Erlendar skuldir tvöfölduðust. Síðan hafa sveitarfélög sem áttu til þess fjármuni notað þá til að greiða niður skuldir og þannig styrkt stöðu sína. Á sama tíma hefur fjárfesting dreg- ist saman,“ segir Halldór sem telur að áratugurinn fari í afborganir skulda á kostnað framkvæmda. Þá bendir hann á að rekja megi skulda- vanda margra sveitarfélaga aftur til ársins 2005. „Það var orðin of mikil skuldsetn- ing árin fyrir hrun. Það var hafin umræða um það í sveitarstjórnar- geiranum en hún var tekin misjafn- lega alvarlega,“ segir Halldór. Þung staða sveitarfélaganna  Hrein peningaleg eign hefur minnkað um 55 milljarða frá 2010  Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir áratuginn munu fara í afborganir skulda Peningalegar eignir og skuldir sveitarfélaga 2006 - 2012* 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 -50.000 -100.000 -150.000 Heimild: Hagstofa Íslands *2012: Bráðabirgðatölur 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 Peningalegar eignir Sjóður og bankareikningar Skuldir Lántökur Hrein peningaleg eign Milljónir 153.086 106.621 59.546 11.216 -46.465 -149.243 18.783 102.155 183.539 251.398 „Við erum að setja hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjarferju inn í markvissan farveg. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að bjóða út hönnun ferjunnar á Evrópska efna- hagssvæðinu í byrjun maí. Sú vinna fari af stað í júlí og verði lokið í des- ember og þá verði smíði skipsins boðin út. Við sjáum það fyrir okkur að vera komin með nýja ferju á árinu 2015 eins og að var stefnt,“ sagði Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra eftir fund með fulltrúum bæjarstjórnar Vest- mannaeyja þar sem þetta var kynnt í gær. Hann segir áætlað að smíði nýrrar ferju kosti 4-5 ma. kr. Morgunblaðið/Styrmir Kári Herjólfur Smíða á nýtt skip. Hyggjast bjóða út hönnun nýrrar Vest- mannaeyjaferju Lögreglan á höf- uðborgarsvæð- inu fann við hús- leit í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborg Reykjavíkur í fyrradag tæp- lega tvö kíló af sprengiefni og hvellhettur. Á sama stað einnig talsvert af fíkniefnum; amfetamíni og kannabisefnum. Tveir karlmenn á fertugsaldri voru handteknir og í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir hafi áður komist í kast við lögin. Geymdu sprengiefni í fjölbýlishúsi Lögregla Sprengi- efni fannst í́ íbúð. Í gærkvöldi höfðu 19.725 atkvæði verið greidd utan kjörstaðar. Alls höfðu 17.385 kosið á kjörstað og 2.340 atkvæði verið send. Á kjörskrá eru 237.957 manns og eru þessi atkvæði rúm 8% þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá kjör- stjórn utankjörstaðaatkvæða- greiðslu höfðu talsvert fleiri greitt atkvæði í gær en þegar jafn langt var til alþingiskosninganna árið 2009. Þá höfðu 5.134 kosið utan kjörfundar. Um 20.000 manns hafa þegar kosið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.