Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 10

Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 HYGEA Kringlunni og Smáralind g töskum Mikið úrval af sumarle um Gleðilegt sumar Þrívídd Áhersla er lögð á þrívíddarverkefni þar sem börnin vinna meðal annars eftir fyrirmyndum. bak við þau. „Tilgangurinn er að stykja börnin enn frekar í skapandi starfi og auka tengsl leikskólans við samfélagið. Við á Sæborg leggjum mikið upp úr skapandi starfi í tengslum við listir og höfum horft til hugmyndafræði Reggio Emilia á Ítalíu. Þar er litið á barnið sem sterkan einstakling sem hefur mikið fram að færa. Það er til dæmis frægt ljóð sem upphafsmaður þessarar hugmyndafræði bjó til sem segir: Börn hafa 100 mál, en frá þeim tekin 99. Þannig að þetta snýst um að vinna með allt barnið, öll skilning- arvitin og þá sérstaklega sjónina,“ segir Soffía Þorsteinsdóttir, leik- skólastjóri á Sæborg. Áhersla lögð á þrívíddarverk Soffía segir börnin vera mjög opin og að þau taki þessum áherslum skólans afskaplega vel. „Við höfum verið að vinna mikið með verðlaust efni sem við köllum gull af því að það er hægt að breyta þessu verð- lausa efni í svo marga skemmtilega hluti. Börnin eru að búa til bóndabæi og lest og sjóræn- ingjaskip og ýmislegt úr þessu efni sem kemur að miklu leyti frá heim- ilum þeirra. Börnin fara heim með Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Sýningin Maður málar baraeins og manni sýnist verðuropnuð á Kjarvalsstöðum klukkan 15 í dag. Á sýningunni er verk sem leikskólabörn á leikskól- anum Sæborg hafa unnið í samvinnu við myndlistarmanninn Daða Guð- björnsson. Mikið listastarf hefur far- ið fram í leikskólanum í vetur þar sem börnin hafa hlotið leiðsögn í listasmiðjum og meðal annars frá Daða. Eins fengu þau að heimsækja listamanninn sem sýndi börnunum verk sín og sagði þeim sögurnar á poka og biðja foreldrana um að hjálpa sér að safna í þá. Þannig hvetjum við börnin til skapandi hugsunar en við erum alltaf að leita eftir að gera meira úr hugmyndum þeirra og stækka þær,“ segir Soffía. Börnin á Sæborg fara gjarnan í vettvangsferðir á listasöfn og Þjóð- minjasafnið með kennurum sínum þar sem þau læra að umgangast og meta list. „Við ræðum mikið við þau um listaverk og hvað er listaverk og hvað ekki. Daði hefur farið mikið í þrívíddarverk með þeim og þá dett- ur börnunum kannski eitthvað snið- ugt í hug og þá býr hann það til. Hann er með límbyssuna og þau segja honum til og svo málar hann myndir eftir þessum verkum svo úr verður skemmtileg samvinna en þær verða líka til sýnis á Kjarvals- stöðum. Við höfum lagt sérstaklega áherslu á styttur en börnin fengu til dæmis að taka eina mynd hvert af stytt- unni Björgun eftir Ásmund Sveinsson og svo hafa þau ver- ið að skoða mynd- irnar sem voru hengdar upp í þeirra hæð og búa svo sjálf til verk, hvert á sinn hátt, eftir þessum myndum. Þetta gera þau aðeins þriggja ára gömul.“ Barnið hefur mikið fram að færa Lærifaðir Börnin hrífast með Daða Guðbjörnssyni lista- manni, sem miðlar af visku sinni og reynslu. Morgunblaðið/Rósa Braga List Soffía Þorsteinsdóttir leikskólastjóri á Sæborg við eitt af verkum Daða og barnanna sem var unnið í kjölfar heimsókna á Þjóðminjasafnið. Leikskólabörn á Sæborg og Daði Guðbjörnsson sýna á Kjarvalsstöðum „Við höfum verið að vinna mikið með verðlaust efni sem við köllum gull …“ Á heimasíðu Gerðubergs er hægt að fylgjast með viðburðum í þeirri frá- bæru menningarmiðstöð og þar kem- ur fram að í kvöld kl. 20 verður þar svokallað Bókakaffi undir heitinu: Samar eða Lappar eða hálfrisar norð- ur á Finnmörk. Jón Björnsson, sál- fræðingur og rithöfundur, fær til sín góða gesti og gluggar í samískar bók- menntir um Sama. Hvaða fólk er það, hvað hefur verið sagt um það og hvað hefur það sjálft sagt? Gestir Jóns verða þau Sigrún Óskarsdóttir og Haraldur Ólafsson. Sigrún les ljóð eftir Sama í þýðingu Einars Braga og Haraldur segir frá fornum trúar- brögðum Sama. Markmiðið með bókakaffinu er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt sem og að sýna fjöl- breytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku. Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur. Vefsíðan www.gerduberg.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Samar Þeir búa í Finnmörk. Hér eru nokkrir Samar í Íslandsheimsókn 1999. Samar eða Lappar eða hálfrisar Söngfjelagið stendur fyrir söng- skemmtun og dansiballi í Iðnó í kvöld. Vetur verður kvaddur og tekið fagnandi á móti sumri. Auk Söngfje- lagsins, sem Hilmar Örn Agnarsson stjórnar, koma fram Raddbandafélag Reykjavíkur, kvennakórinn Hrynjandi og Ljótikór. Fyrst syngja kórarnir nokkur lög hver um sig og saman, en síðan verður dansað inn í sumarnótt- ina. Hljómsveitirnar Pep, Belleville og stórsveitin „Án gríns“ leika fyrir dansi. Tekið verður á móti sumri með lúðrablæstri af svölum Iðnó á mið- nætti. Miðasala í Iðnó og í s. 562- 9700. Dagkráin hefst kl. 21. Endilega... ...dansið inn sumarið í Iðnó Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Barnamenningarhátíð í Reykjavík Reykjavík blómstrar af barnamenningarlífi þessa dagana fram til 28. apríl þar sem Barnamenningarhátíð er haldin hátíðleg í borginni nú þriðja árið í röð. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf fyrir börn og ungmenni. Hægt er að skoða fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar á síðunni barnamenningarhatid.is og ættu allir að geta dregið fram barnið í sér og fundið dagskrá við hæfi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.