Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og þægindabúnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja akstursupplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense. HANNAÐUR FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUROutlander kostar frá 6.190.000 kr. Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur Nýr Mitsubishi Outlander HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði mitsubishi.is Kynntu þér f rábært verð á nýjum Outlander sem eyðir að eins frá 5,5 l/100 km. Barnamenningarhátíð var formlegasett í gær í Hörpu þar sem tónelskbörn fluttu fjöldann allan af tónlist- aratriðum. Karen María Jónsdóttir, einn af þremur verkefnastjórum Barnamenning- arhátíðar segir að í ár verði einmitt sér- staklega lögð árhersla á tónlist og leiklist og því kjörið að opna hátíðina á þennan hátt. „Þetta er í þriðja skiptið sem við höldum hátíðina og hún hefur verið í þróun í þessi þrjú skipti en við höfum svolítið verið að leika okkur með áherslur á milli ára.“ Dansa samtímis í Grafarvogi Karen segir erfitt að velja einhverja við- burði sem standa upp úr þar sem svo gíf- urlega margt er í boði en allt í allt eru þetta um 150 viðburðir. „Tónlistaráherslan sem hófst í Hörpu í gær heldur áfram í gegnum Ævintýrahöllina sem er barna- menningarhús í Iðnó. Þar munu margar unglingahljómsveitir spila og Kammersveit Reykjavíkur stendur fyrir viðburðinum Til- raunatónskáld.“ Myndlistin á líka sinn sess eins og alltaf. Börn í Dalsskóla eru til dæmis að búa til styttu af kvenskörungi sem verður af- hjúpuð á föstudaginn en þessi kvenskör- ungur er engin önnur en Vilborg pólfari.“ Danslistinni er líka gefinn gaumur en í Grafarvogi ætla öll börn á frístundaheim- ilunum að dansa sama dansverkið samtímis og haldið verður dansíókí á Dansverkstæði Reykjavíkur. „Það er líka gaman að segja frá því að Laugalækjarskóli er með blindrakaffihús. Nemendur skólans hafa útbúið myrkraherbergi þar sem boðið verð- ur upp á kaffi, kleinur og uppistand. Þá er hægt að upplifa heim þeirra sem ekkert sjá og í leiðinni eru skynfærin örvuð,“ segir Karen. Prumpugangur í Laugardalslaug Náttúran er nátengd listsköpun og verða því nokkrir náttúruviðburðir á hátíðinni. „Í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur munu fjórir myndlistamenn búa til lista- verk inni í skógi til að brjóta upp hefðbundna upplifun og gera hana spennandi. Svo má ekki gleyma því að það eru svo margar náttúruperlur sem leynast í Reykjavík og oft bara í næstu götu eða handan næstu götu eins og til dæmis steinafjaran í Norðurkotsvör þar sem hægt er að upplifa náttúruna, skoða fugla og læra að kasta steinum og hvíta ströndin við Skarfaklett en þar verður sandkastalanámskeið.“ Hátíðin hófst í Hörpu í gær en verður lokið í Laug- ardalslaug á sunnudag. „Dr. Gunni verður að spila með vinum sínum af plötunni Abbababb og þar verður líka Sirkus Íslands. Það verður því mikið stuð, buslu- og prumpugangur í Laugardalslaug. Það eiga allir erindi á þessa hátíð. Sá sem hefur einhvern tímann verið barn, þekkir barn eða á barn.“ Fjölbreyttir viðburðir á Barnamenningarhátíð Morgunblaðið/Styrmir Kári Afhjúpa styttu af Vilborgu pólfara Verkefnastjóri Karen María Jónsdóttir segir barnið búa í okkur öllum. Það eiga allir erindi á þessa hátíð. Sá sem hefur einhvern tím- ann verið barn, þekk- ir barn eða á barn. Þegar manni er ekki alveg sama um fram-tíð lands og þjóðar sér maður hversumikilvægt það er að hlúa að börnunum og sýna þeim undur, töfra og dásemdir leik- hússins og leyfa þeim að upplifa,“ segir María Pálsdóttir sem situr í stjórn ASSITEJ á Ís- landi. ASSITEJ eru alþjóðleg samtök um leik- hús fyrir unga áhorfendur sem styðja listafólk sem starfar á þeim vettvangi. Samtökin blása nú í hátíðarlúðra dagana 24.-28. apríl. „Við fáum að vera lítil hátíð inni í Barnamenning- arhátíðinni og fljótum svolítið með. Við ætlum að prófa að sjá hvernig það virkar, hvort þess- ar tvær hátíðir styðji ekki hvor aðra. Við hugs- um þetta sem fyrstu hátíðina af mörgum og vonandi verður hún síðan haldin einu sinni á ári eða annað hvert ár hér eftir. Hátíðin er bara lítil og sæt, næstum því alíslensk. Þetta eru þrjár aðalsýningar sem dómnefnd valdi og svo er ein gestasýning frá Svíþjóð. Það er frítt á allar sýningarnar en það þarf bara að ná í miða á sýningarstaðinn klukkutíma fyrr svo hægt sé að átta sig á gestafjölda,“ segir María. Sýning í minningu Þorvaldar Aðalsýningarnar þrjár eru Skrímslið litla systir mín sem hlaut Grímuverðlaunin í fyrra, danssýningin Skýjaborg og Völuspá í uppsetn- ingu Möguleikhússins. „Svo er ein sýning til minningar um Þorvald Þorsteinsson og hans ómælda framlag til barna- menningar. Það er sýning sem hann skrifaði fyrir mörgum árum og heitir Prumpuhóllinn og verður hún sýnd í Gerðubergi. Hin- ar sýningarnar verða allar í Iðnó og Tjarnarbíói.“ Gesta- sýningin er norræn sam- starfssýning byggð á sögu eftir Íslendinginn Kára Tulinius. Leikhópurinn Potato Potato setur á svið verk sem fjallar um það hvernig er hægt að vera hetja á hugsunarlausum tímum í norrænni velferðarparadís. Sýningin hentar unglingum, 14 ára og eldri. Það verða vinnu- smiðjur í boði sem tengjast þemum leiksýning- anna og eru þær unnar í samstarfi við Listahá- skólann. Það verður líka leiklestur á nýju íslensku verki eftir Þórarin Leifsson og sögu- stund með Sólveigu Simha. Vilja auka hróður barnaleikhúss „Við erum að prufukeyra barnaleiklistar- hátíð sem vonandi verður að föstum lið og jafn- vel stærri og alþjóðlegri. Hátíðin ætti að vera góð innspýting í barnaleikhús á Íslandi og hvetja listamenn til að huga að þessum stóra og dýrmæta áhorfendahópi.“ María hefur áhyggjur af framtíð barna- leikhúss á Íslandi, sérstaklega í ljósi þess að erfitt sé að halda þessum flokki innan Grím- unnar sökum fárra uppsettra sýninga. „Við viljum með þessari hátíð gera ungum áhorfendum okkar hærra undir höfði. Ég hef svolítið verið að leika í barnasýningum. Ég var í Fíusól og Bláa gullinu og svo á ég þrjú börn og mér finnst þetta svo sterkt og áhrifamikið tæki í lífsleikni sem er mikilvægt að nota.“ Leiklistarhátíð ASSITEJ 24.-28. apríl „Það er frítt á allar sýningarnar en það þarf bara að ná í miða á sýningarstaðinn klukkutíma fyrr …“ Morgunblaðið/Golli ASSITEJ María Pálsdóttir leikkona. Morgunblaðið/Kristinn Leikhús Skrímslið litla systir mín er ein af þremur aðalsýningunum á leiklistarhátíðinni. Leiklist er tæki í lífsleikni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.