Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 12

Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró su Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ Krabba l a- s a t uferskum kryd- d j u r í brauðbol- l Bruchet- ta m n dMiðjarðarhafs- t a p e Risa-ræk- ja pjóás með peppadew ngSilu hrogn n s kmeð j a p ö ómmajónesi sin- nepsrj osti á bruchettu Birkireykt-ur lax illaá bruchettu með alioli, gr papriku og fetaosti Hörpuskeljar aídý, 3 smáar á spjóti m/kryddjurt Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum vaVanillufylltar nsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingur-sataySími 511 8090 • www.yndisauki.is Partýbakkinn inniheldur: Satay kjúklingaspjót, Teriyaki nauta- spjót, Hörpuskel með baconvafðri döðlu á spjóti, Tígrisrækja með peppadew á spjóti, Mangó-cilli sósu, Kóríander-jógúrtsósu. Samlokuogvefjubakkinninnheldur fjórar tegundir af sælkera samlokum. Par ýbakki Yndisau a Akraness var stofnað og formleg íþróttastarfsemi hófst á Akranesi, tvöfaldaðist sýningin meðan hún var uppi. Ástæðan er sú að hún hreyfði við fólki, það fór að skoða mynda- albúm sín, meta myndirnar á nýjan hátt. Allt í einu gerði fólk sér grein fyrir að það var með mikil verðmæti í höndum, myndir sem börn og barnabörn höfðu ekki áhuga á en við tókum við með miklu þakklæti.“ Hann bætir við að myndasafn Ljós- myndasafns Akraness sé ómetanlegt og hann eigi gott samstarf við það, en þar séu tugir þúsunda mynda. Í safni Haraldar eru um 3.500 myndir. „Það er saga á bak við hverja mynd og ritgerðir fylgja mörgum þeirra,“ segir hann. „Vinnan við myndirnar og skrásetningin er seinleg en ár- angurinn er þeim mun ánægjulegri.“ Merkilegt Merkurtún Skammt frá Haraldarhúsi rétt við Akraneskirkju er Merkurtún. Marg- ir hafa sýnt því áhuga að setja þar upp söguspjöld um landsliðsmenn Akraness í knattspyrnu, sem eru nær 60 samtals. „Um 80% allra landsliðsmanna Skagamanna ólust upp á Merkurtúni, þar spiluðu þeir fótbolta daginn út og daginn inn,“ segir Haraldur. „Við viljum koma upp spjöldum með upplýsingum um þessa menn sem byrjuðu að sparka þarna.“ Haraldur bendir á að söguspjöldin séu ekki aðeins hugsuð almenningi til fróðleiks heldur ekki síður til þess að auðga bæjarlífið. „Með þessu gef- um við bænum aukið líf,“ segir hann og nefnir sem dæmi að hann sé kom- inn með myndir af öllum um 50 skip- unum, sem voru smíðuð frá 1913 í skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts og fyrirrennurum hennar. Með aukinni tækni hefur ljós- myndun orðið almennari en ekki endilega betri. „Í gamla daga var alltaf farið á ljósmyndastofu og því eigum við góðar myndir frá þeim tíma en nú eru flestar myndir teknar á síma og upplausnin oft ekki nógu góð,“ segir Haraldur. Saga Skagamanna í nýju ljósi  Vinna að því að gera atvinnu- og íþróttasögu Akraness aðgengilega á torgum úti fyrir almenning  Um 3.500 myndir í safni Haraldar Sturlaugssonar í Haraldarhúsi og stöðugt bætist í safnið Meistarar Myndir af öllum Íslands- og bikarmeisturum ÍA hanga uppi á veggjum Íþróttamiðstöðvarinnar við Jaðarsbakka á Akranesi. Ljósmyndir/Friðþjófur Helgason Aggapallur Agnar Sigurðsson starfaði alla sína tíð hjá sömu fjölskyldunni, fjórum ættliðum, fyrst í verslun Böðvars Þorvaldssonar við Bakkatún, síðan hjá Haraldi Böðvarssyni, í Sandgerði og á Akranesi. 10. mars 2011 var fyrsta skóflustungan tekin að útivistarpalli fyrir aftan stúkuna á Jaðarsbakkavelli og var pallurinn nefndur Aggapallur. Þar er gott skjól á fallegum sumardögum. SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Akranes er þekkt fyrir K-in þrjú, konur, knattspyrnu og kartöflur, en það er til lítils að eiga sætustu kon- urnar, bestu knattspyrnumennina og bragðmestu kartöflurnar ef eng- inn getur rifjað upp söguna þessu til staðfestingar. Haraldur Sturlaugs- son hefur brugðist við þessu með því að safna myndum frá Akranesi og gera þær aðgengilegar almenningi með skýringum. Margt hefur verið brallað í kjall- aranum í Haraldarhúsi við Vest- urgötu á Akranesi, en undanfarin ár hafa Haraldur og Friðþjófur Helga- son ljósmyndari, unnið þar að heim- ildasöfnun í máli og myndum um Akranes, en Björn Ingi Finsen hefur að mestu séð um textagerð og Steinn Helgason um uppsetningu efnisins. „Þegar Friddi er hérna á Skaganum kemur hann í kjallarann hjá mér og er kannski í klukkutíma, svo tökum við upp þráðinn í næstu heimsókn,“ segir Haraldur og bætir við að nágrannarnir Stefnir og Guð- mundur hafi sett upp skiltið við Har- aldarhús. Fjársjóður leynist víða Haraldur segir að stöðugt hafi bæst í myndasafnið frá því sýning var í Haraldarhúsi í um eitt og hálft ár frá nóvember 2006 (harald- arhus.is). „Þegar sýningin „Íþróttir í 100 ár“ var haldin hérna 2010 í til- efni þess að þá voru eitt hundrað ár liðin frá því að Ungmennafélag Við gangstéttina fyrir framan Har- aldarhús er söguskilti með skemmtilegum upplýsingum, meðal annars um goðsögnina Ríkharð Jónsson knattspyrnumann. „Fyrsti landsliðsmaður okkar Skagamanna í knattspyrnu, Rík- arður Jónsson frá Reynistað, byrj- aði að sparka knetti hér á götunni. Hann var 16 ára þegar hann var fyrst valinn í landsliðið. „Ég man ekki eftir mér öðru vísi en með knöttinn á tánum. Við strákarnir notuðum mikið steypta vegginn við Haraldarhús til að æfa okkur. Rafmagnsstaurarnir beggja vegna götunnar var lengdin á vell- inum. Boltarnir sem við notuðum voru ekki svo merkilegir. Peningar til að kaupa rándýra uppblásna leð- urfótbolta með gúmmíblöðru voru ekki fyrir hendi og við krakkarnir björguðum okkur eins og hægt var. Tuskum var vöðlað saman og bund- ið utan um þær og vöndullinn gerð- ur eins hnöttóttur og hægt var. Stundum var troðið heyi inn í bolt- ann og vafið vel utan um. Þetta þótti okkur alveg prýðilegir gripir, er haft eftir Ríkarði.“ Æfingasvæði Ríkharður Jónsson við kortið við Haraldarhús. Steypti veggurinn gerði gæfumuninn Arnþrúður Karlsdóttir í Flokki heim- ilanna telur að taka eigi fram hverjir séu eig- endur fyrirtækja sem framkvæma skoðanakann- anir á fylgi stjórnmálaflokka og hverjir greiði fyrir þær. Nefnir hún sérstaklega Capacent Gallup og MMR í þessu samhengi þar sem eignarhald sé óljóst. Hún telur eignarhald liggja fyrir hjá öðrum einkaaðilum sem framkvæma skoðanakannanir. „Þetta eru skoðanamyndandi fyrirtæki og það á að liggja á borðinu hver greiðir fyrir þessar kannanir og hverjir eigendurnir eru. Þar fyrir utan á Rík- isútvarpið fyrst og síðast að birta þessar upplýsingar, ekki einkaað- ilar,“ segir Arnþrúður. Einkaaðilar fram- kvæmi ekki skoðanakannanir Arnþrúður Karlsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.