Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
er ódýrara! 15%
AFSLÁTT
UR
Gildir fyrir allar pakkningastærðir
og styrkleika af Nicotinell Fruit
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það er bara mok,“ sagði Illugi Jens
Jónasson, skipstjóri á Guðmundi
Jenssyni SH, í samtali í gærmorgun.
Þeir eru á dragnót og voru að draga
um 400 faðma frá landi við norðvest-
anvert Snæfellsnes og voru um átta
tonn í voðinni.
„Við höldum áfram í nokkra daga
svo förum við aftur í frí, það þýðir
ekkert að standa í þessu fyrstu daga
strandveiðinnar í byrjun maí því þá
lækkar verðið á mörkuðunum.“
„Skilur ekkert í því að ekki
skuli vera meira inni á heftinu“
Illugi segir að menn stundi ekki
magnveiðar þessa dagana, það sé
liðin tíð. Nú reyni menn að lengja út-
haldið eins og hægt sé og fá sem
mest fyrir fiskinn. „Á mánudaginn
vorum við með rúmlega 20 tonn, en
við gætum veitt miklu meira, það er
nóg af fiski. Við veiddum þorsk fram
að hádegi, en fórum þá að leita að
kola og steinbít, bara einhverju öðru
en þorski,“ segir Illugi og sömu sögu
var að segja í gær.
Hann sagði að sem betur fer væri
þorskurinn blandaður þessa dagana.
Ekki bara stórþorskur, sem hefði
lækkað mikið í verði miðað við það
sem áður var.
Spurður um afkomuna sagði Illugi
að ríkið tæki rúmlega það sem ætti
að heita hagnaður. „Faðir minn er
búinn að vera við sjó og í útgerð í
hálfa öld og hann hefur aldrei
kynnst annarri eins vitleysu og
núna,“ segir Illugi. „Hann er kominn
í land og skilur ekkert í því að ekki
skuli vera meira inni á heftinu en
raun ber vitni, það sem ætti að fara í
viðhald og endurnýjun fer allt til rík-
isins.
Við keyptum þennan bát, sem nú
er tæplega 40 ára, fyrir sjö árum og
höfum verið að endurnýja hann
smátt og smátt. Hugmyndin var að
leggja til hliðar í tvö ár svo við gæt-
um sett á hann nýja brú. Það kostar
30-40 milljónir og við erum þannig
gerðir að við vildum eiga um helm-
inginn af því svo við gætum byrjað. Í
þessari stöðu verður ekkert af þess-
um áformum. Hér á Nesinu er fullt
af mönnum í landi, sem gætu haft at-
vinnu af svona verkefnum og þurfa á
vinnu að halda. En í staðinn fyrir að
þessar krónur fari í endurnýjun og
uppbyggingu, hirðir ríkið þetta allt,“
segir Illugi.
Ágætis fiskirí í öll veiðarfæri
Veiðibanni vegna hrygningar
þorsks lauk við Snæfellsnes á sunnu-
dag og reru þá hátt í 50 handfæra-
bátar frá Ólafsvík, Rifi og Arnar-
stapa. Afli þeirra fór upp í 3,5 tonn.
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í
Snæfellsbæ, segir að vorvertíðin hafi
byrjað af fullum krafti eftir fæðing-
arorlofið og á mánudag hafi dragnót-
arbátar frá Ólafsvík og Rifi mok-
fiskað. Þeir hafi nánast allir verið
með um og yfir 20 tonn og ekki þurfi
að sækja langt til að fá góðan afla.
Í hrygningarstoppinu hafi nokkrir
veitt steinbít á línu í sérstöku hólfi
norður undir Látrabjargi og yfirleitt
veitt vel, hátt í 10 tonn hafi verið al-
gengt, þar af 6-7 tonn af steinbít.
Grásleppuvertíðin er nýbyrjuð og
segir Björn að ágætlega hafi gengið.
Dagsaflinn þegar best láti um tvö
tonn af óskorinni grásleppu, en frá
og með síðustu vertíð var farið að
skera nánast alla grásleppu í landi
og hirða bæði hrogn og fiskinn sjálf-
an.
„Það er bara ágætis fiskirí í öll
veiðarfæri og ekkert stress í gangi.
Miklu frekar að menn reyni að
hægja á til að drýgja kvótann,“ segir
Björn hafnarstjóri.
Umsvif í Grindavík
Sigurður Arnar Kristmundsson,
hafnarstjóri í Grindavík, segir að
hjólin séu að byrja að snúast eftir
hrygningarstoppið. Ágætis afli hafi
fengist í troll, en veður hafi verið erf-
itt fyrir minni bátana. Færabátar
hafi þó fengið upp í tvö tonn á sunnu-
daginn.
Hann segir að síðustu mánuði hafi
mikil umsvif verið við höfnina og um
2.300 tonnum meiru verið landað það
sem af er ári, en á sama tíma í fyrra.
Landanir í Grindavík séu um 200
fleiri en í fyrra.
Veiða þorsk fram að hádegi
Mokveiði að loknu hrygningarstoppi Ekkert stress í gangi og menn reyna að hægja á til að drýgja
kvótann „Í staðinn fyrir að þessar krónur fari í endurnýjun og uppbyggingu, hirðir ríkið þetta allt“
Ljósmynd/Björn Gunnarsson
Góður afli í netarallinu
Netaralli Hafrannsóknastofnunar lauk 18. apríl, en endanleg
úrvinnsla gagna liggur ekki fyrir. Alls veiddust um 850 tonn af
þorski og er það næstmesti afli sem rallið hefur skilað, aðeins
metárið í fyrra fékkst meiri afli. Afli var góður á öllum svæð-
um að kantinum austan við Eyjar undanskildum, en þar fékkst
lítill afli fimmta árið í röð að sögn Vals Bogasonar, líffræðings
á Hafrannsóknastofnun. Hann segir að netarallið hafi eins og
stofnmatið sýnt vöxt í hrygningarstofni þorsks á undanförnum
árum. Bátarnir sem tóku þátt í rallinu voru Saxhamar SH í
Breiðafirði, Magnús SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á
svæðinu frá Reykjanesi að Þrídröngum, Ársæll ÁR frá Þrí-
dröngum að Skeiðarárdjúpi, Hvanney SF frá Meðallandsbugt
að Hvítingum og Þorleifur EA fyrir Norðurlandi. Myndin er
tekin um borð í Ársæli og greinilega hefur fengist góður afli af
fallegum þorski í þessa trossu.
Ljósmynd/Björn Gunnarsson
Mælt og vigtað Vísindastörf um borð í Ársæli ÁR, en margvíslegum
gögnum er safnað í netaralli til rannsókna á hrygningarstofni þorsks.
Í einstökum fisktegundum er mjög mismunandi hvað eftir er að veiða mik-
ið á fikveiðiárinu. Um fjórðungur aflamarks í þorski og ýsu er þegar kom-
inn á land, en rúmir fjórir mánuðir eru eftir af fiskiveiðiárinu. Tillögur um
aflamark næsta árs eru væntanlegar í byrjun júní.
Heildarstaða afla
Þorskur
Aflamark:
162.941
Afli t. aflam.:
122.044
Hlutfall:
74,9%
Ýsa
Aflamark:
31.001
Afli t. aflam.:
23.717
Hlutfall:
76,5%
Ufsi
Aflamark:
43.042
Afli t. aflam.:
27.228
Hlutfall:
63,3%
Keila
Aflamark:
5.909
Afli t. aflam.:
3.139
Hlutfall:
53,1%
Langa
Aflamark:
9.342
Afli t. aflam.:
5.858
Hlutfall:
62,7%
Karfi/gullk.
Aflamark:
45.189
Afli t. aflam.:
32.458
Hlutfall:
71,8%
Steinbítur
Aflamark:
7.354
Afli t. aflam.:
4.701
Hlutfall:
63,9%
Grálúða
Aflamark:
13.549
Afli t. aflam.:
7.616
Hlutfall:
56,2%
Djúpkarfi
Aflamark:
10.451
Afli t. aflam.:
8.672
Hlutfall:
83%
Heimild: Fiskistofa
Kvótinn langt kominn