Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Hestadagar verða í Skagafirði á
föstudag og laugardag undir yf-
irskriftinni Tekið til kostanna.
Á dagskránni er meðal annars
sýning í Reiðhöllinni Svaðastöðum
á Sauðárkróki laugardagskvöldið
27. apríl. Fyrr um daginn fer fram
kennslusýning reiðkennaraefna
Hólaskóla í reiðhöllinni og opið hús
verður í Hrímnishöllinni hjá
Hrossaræktarbúinu Varmalæk,
bæði föstudag og laugardag.
Í Hrímnishöllinni verður m.a.
nokkur fjöldi hrossa til sölu og má
þar finna hross allt frá veturgömlu
til 1. verðlauna hrossa.
Forsala aðgöngumiða er á N1 á
Sauðárkróki.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sýning Hestamenn í Skagafirði.
Tekið til kostanna
í Skagafirði
Á formannafundi Læknafélags Ís-
lands í síðustu viku var samþykkt
ályktun þar sem skorað er á stjórn-
málamenn í öllum flokkum að setja
heilbrigðismál í forgang á næsta
kjörtímabili.
„Heilbrigðiskerfi Íslendinga hef-
ur búið við mikinn niðurskurð frá
efnahagshruninu haustið 2008,“
segir í ályktuninni. „Heilbrigð-
iskerfi landsmanna hefur liðið fyrir
þetta með þeim afleiðingum að
þjónusta við sjúklinga hefur versn-
að og biðlistar hafa lengst. Heil-
brigðisstarfsmönnum hefur fækk-
að, álag aukist, húsnæði er illa við
haldið og tækjabúnaður úr sér
genginn og þarfnast endurnýj-
unar.“
Heilbrigðiskerfið
verði sett í forgang
Seltjarnarnesbær er um þessar
mundir að dreifa margnota inn-
kaupapokum til allra bæjarbúa.
Með átakinu vill bærinn hvetja
fólk til að draga úr notkun á
plasti.
Pokinn er gerður að frumkvæði
umhverfisnefndar Seltjarnarness,
sem fékk liðsinni frá fim-
leikastúlkum í Gróttu til að setja
hann inn um hverja blaðalúgu á
Seltjarnarnesi í vikunni. Seltjarn-
arnesbær mun auk þess gefa sér-
hverju leikskólabarni í bæjarfélag-
inu slíkan poka.
Dreifa margnota
innkaupapokum
Hermann Ottós-
son hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Rauða krossins á
Íslandi.
Hermann lauk
BA-prófi í mann-
fræði og fé-
lagsfræði frá Há-
skóla Íslands og
cand. mag.-próf í sömu fögum frá
Árósaháskóla. Þá er hann með
MBA-gráðu frá Viðskiptaháskól-
anum í Árósum. Hann hefur m.a.
starfað hjá Íslandsstofu og Útflutn-
ingsráði.
Hermann tekur við starfinu af
Kristjáni Sturlusyni 1. júní. Krist-
ján fer nú til starfa hjá Hafnar-
fjarðarbæ sem sviðsstjóri stjórn-
sýslusviðs.
Nýr framkvæmda-
stjóri Rauða krossins
Hermann Ottósson
STUTT
Oddur Helgason ættfræðingur og samstarfsfólk
hans hjá Ættfræðiþjónustu ORG kynntu þjóð-
minjaverði og fulltrúa menntamálaráðuneytisins
starfsemi sína í fyrradag. Unnið er að stofnun
sjálfseignarstofnunar um þjónustuna í samvinnu
við Landsbókasafn og Árnastofnun og Oddur von-
ast til að nú bætist Þjóðminjasafnið og Þjóð-
skjalasafnið við enda eigi allir að vinna saman.
Starfsmenn safnanna leiti mikið til Ættfræði-
þjónustunnar við ýmis verkefni. Jafnframt er unn-
ið að því að tryggja framtíð starfseminnar með
stofnun Hollvinasamtaka íslenskrar þjóðfræði.
Á bak við Odd standa Nanna Halldóra Sigurð-
ardóttir, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, Elín
Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir,
Helga Þórarinsdóttir og Þór Magnússon.
Kynntu sér Ætt-
fræðiþjónustuna
Morgunblaðið/Árni Sæberg