Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Full búð af nýjum vörum Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafn- arfirði fagnar 90 ára afmæli á þessu ári, en það var stofnað 11. apríl árið 1923. Fyrsti formaður var Guðrún Einarsdóttir og stofnfélagar 46 talsins. Félagar í dag eru um 150 og formaður er Fríða Sæmundsdóttir. Konur í söfnuðinum hafa hins vegar ver- ið virkar í starfinu allt frá fyrsta starfsári kirkjunnar, sem fagnar einmitt 100 ára afmæli í ár. Félagskonur hafa frá upphafi safnað fé og unnið í þágu kirkj- unnar með margvíslegum hætti, haldið basara, hlutaveltur, skemmtisamkomur, happdrætti og selt merki og kaffiveitingar. „Kvenfélagið er enn einn helsti máttarstólpinn í rekstri safn- aðarins, sem væri rekinn með talsverðu tapi ef ekki kæmu til fjárframlög og annar stuðningur kvennanna,“ segir í tilkynningu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Söfnuðurinn 100 ára Kvenfélagið styrkti m.a. ritun 100 ára sögu safnaðarins með einnar milljónar kr. framlagi. Auk stuðnings við bókina, sem kemur út í ár, ætlar kvenfélagið í ár að styðja endurnýjun áklæð- is á kirkjubekkjum, gerð bæna- altaris, kaup á búnaði til að bæta flutning á hljóði og mynd frá kirkju til safnaðarheimilis og þannig mætti lengi telja. Einnig ætlar kvenfélagið að safna fyrir gerð sérstaks hátíðarfána, í til- efni 100 ára afmælis kirkjunnar, og hafa opnað sérstakan reikn- ing til að standa straum af út- gjöldunum. Reikningsnúmerið er 140-15-630585 og kt. 610995- 2179. Konur Stjórn Kvenfélags Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði, standandi f.v. Ragna Valdimarsdóttir, Fríða Sæ- mundsdóttir og Birna Loftsdóttir. Sitjandi f.v. eru Sigrún Óskarsdóttir og Sigríður Valdimarsdóttir. Kvenfélag Frí- kirkjunnar 90 ára Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þetta hefur þá þýðingu að það hefur tekist að finna lausn fyrir þá sem tóku lán tryggð með lánsveði og að- gerðin mun ekki valda fjárhags- legri skerðingu á réttindum sjóð- félaga lífeyris- sjóðanna. Áður en skuldaúrræðið kemur til fram- kvæmda þarf að uppfylla ákveðin skilyrði og trúlega lýkur því ekki fyrr en í haust.Við höf- um trú á því að þetta gangi eftir,“ sagði Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, spurður um nýja viljayfirlýsingu um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila þar sem lánsveð koma við sögu. Aðkoma fjögurra ráðherra Yfirlýsingin var undirrituð í gær af ráðherranefnd um skuldamál heim- ilanna, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og fulltrúum Landssamtaka lífeyris- sjóða, fyrir hönd hlutaðeigandi lífeyrissjóða. Rituðu fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar undir skjalið. Spurður hvernig ætlunin sé að út- færa þetta segir Gunnar að líkindi séu með aðferðinni og 110%-leiðinni. „Þetta felst í því að þeir sem tóku lán með lánsveði geta sótt um niður- fellingu á lánum ef lán á þeirra eigin eign að viðbættu lánsveðinu er yfir 110% af þeirra eigin eign.“ Áætlað er að framlag sjóðanna verði 12% en framlag ríkisstjórn- arinnar 88%. Samkvæmt viljayfirlýs- ingunni verður hlutur ríkissjóðs greiddur með þremur greiðslum í janúar 2014, 2015 og 2016. „Við ger- um ráð fyrir að hafa ákveðinn ábata af þessari leið og að hann sé svipaður og kostnaður sjóðanna.“ Yfirlýs- ing um lánsveð  Mun ekki skerða réttindi sjóðfélaga Gunnar Baldvinsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bændur sem rækta plöntur til ol- íuframleiðslu leggja áherslu á að kanna möguleika sumarafbrigðis nepju í sumar. Hún gaf góða raun í fyrrasumar. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif ótíðin á Norðurlandi hefur á þessa tilraunaræktun þar. „Þetta gekk framar vonum í fyrra og kom manni á óvart hvað plönturnar gátu náð sæmilegum þroska víða því sumarið var þurrt fyrir norðan og gras spratt seint,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri og formaður Lands- sambands kornbænda, um til- raunaræktun á repju og nepju til olíuframleiðslu. Á þriðja tug bænda hafa ræktað repju, í smáum stíl, meðal annars fyrir forgöngu Siglingastofnunar. Árangur hefur verið misjafn en þekkingin hefur verið notuð til að þróa ræktunina áfram. Tilraunir hafa verið gerðar með aðferðir sem henta mismunandi aðstæðum og með ýmis yrki. Síðasta vor voru gerðar tilraunir með finnskt yrki af sumarnepju og gaf hún góða uppskeru. Sumarnepju er sáð að vori og þreskt að hausti. Vetrarafbrigði af repju hefur verið ræktað hér í nokkur ár en því er sáð síðla sumars og fræjum safnað rúmu ári síðar. Vetrarafbrigðin gefa yfirleitt meiri uppskeru en sumarafbrigðin en meiri hætta er á skakkaföllum. Ólafur telur að uppskera fræja af repju og nepju hafi orðið um 160 tonn í fyrra. Úr þeim er unnt að vinna rúm 50 tonn af olíu og rúm 100 tonn af skepnufóðri. Ólaf- ur segir ekki fyllilega ljóst hversu mikið land verði undir í sumar, en reiknar með að það verði svipað og í fyrra. Nepju sáð í 20 hektara í vor Jón Bernódusson áætlar að sumarnepju verði sáð í um 20 hektara í vor. Það er um tvöföldun frá síðasta ári. „Árangurinn var góður í fyrra, við fengum góða uppskeru, og ástæða er til að skoða þessa möguleika betur. Þeir bændur sem hafa verið með í verkefninu frá upphafi eru að ná tökum á ræktuninni og nú er tímabært að fá fleiri með.“ Hann ráðleggur nýjum rækt- endum að taka lítið fyrir í upphafi, einn til tvo hektara, á meðan þeir eru að læra á ræktunina. Jón hvetur bændur til að sá sem allra fyrst, jafnvel þótt hlýindin láti á sér standa. Sumarafbrigði repju og nepju megi sá í kalda jörð og jafnvel frjósa og hún taki við sér þegar þegar jörð hitnar. Ólafur á Þorvaldseyri nýtti góð- an kafla sem var í byrjun apríl og sáði þá sumarnepju í um 10 hekt- ara lands. Hann segir að unnt sé að rækta nepju og repju í landi sem síður henti til kornræktar. Þó sýna rannsóknir að nánast von- laust er að rækta olíufræ á berum og útvötnuðum sunnlenskum vík- ursöndum. Það kemur fram í nið- urstöðum skýrslu sem Þóroddur Sveinsson, tilraunastjóri hjá Land- búnaðarháskóla Íslands, gerði um ræktunina á síðasta ári fyrir Fé- lag áhugamanna um ræktun fram- andi nytjaplantna. Flöskuháls í úrvinnslu Ekki er hægt að hefja stórrækt- un á repju og nepju til olíu- framleiðslu fyrr en komið hefur verið upp aðstöðu til að vinna úr fræjunum olíu og fóður. Á nokkr- um bæjum eru til litlar pressur og eru þær meðal annars notaðar við framleiðslu á matarolíu. Þá er unnt að framleiða lífdísil til að blanda í dísilolíu. Þannig ol- ía hefur verið flutt inn og seld hér. Ólafur á Þorvaldseyri hefur sett repjuolíu á dráttarvél í tilrauna- skyni. „Mér finnst það spennandi að knýja vélar á mínu búi með olíu af eigin ökrum. Við verðum þá komin ansi langt í sjálfbærri bú- vöruframleiðslu,“ segir Ólafur á Þorvaldseyri. Góð uppskera af nepju  Ræktun á repju og nepju gaf um 160 tonn af olíufræjum  Skilar 50 tonnum af olíu og 100 tonnum af fóðri  Áhersla lögð á tilraunir með ræktun á sumarnepju Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Olíuræktun Nokkuð er í að skærgular blómabreiður verði á repju- og nepjuökrunum á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Verkefni sem Jón Bernódusson, staðgengill forstöðumanns rann- sókna- og þróunarsviðs Sigl- ingastofnunar, stjórnar gengur út orkuskipti í íslenska fiskiskipaflot- anum. Jón telur að repja og nepja geti orðið grunnur að framleiðslu á vistvænu innlendu eldsneyti og vill stefna að framleiðslu á 10% þess eldsneytis sem flotinn notar. Á fjárlögum ársins eru fjármunir til að endurgreiða hluta þess kostnaðar sem útgerðir verða fyrir við breytingu á vélum til að geta skipt í innlenda orkugjafa. Þá vekur hann athygli á því að úti í Evrópu sé farið að blanda dísilolíu að 7,5% hluta með repju- olíu. „Ef við ætl- um að gera það hér er eðlilegt að framleiða það í landinu enda hefur grundvöllur til þess verið skapaður,“ segir Jón og bætir við: „Við viljum að um leið og rannsóknunum lýkur komist þær til framkvæmda.“ Grunnur að orkuskiptum RANNSÓKNIR HJÁ SIGLINGASTOFNUN Jón Bernódusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.