Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
námi á tilskildum tíma.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að
fjárframlag hins opinbera til náms
fylgi nemanda á öllum skólastigum
og val nemandans ráði hvort þetta
framlag gangi til opinberra skóla
eða fræðslustarfs á vegum einka-
aðila.
Námsefni og tölvuvæðing
Framsóknarflokkurinn vill leggja
nægilegt fé til námsgagnagerðar
með sérstaka áherslu á þróun ís-
lenskra námsgagna á rafrænu formi.
Hægri grænir vilja að öll börn og
unglingar fái fríar spjaldtölvur í stað
bóka. Sjálfstæðisflokkurinn leggur
einnig áherslu á að rafvæða náms-
efni og styrkja upplýsingatækni og
tölvulæsi.
Tengsl við atvinnulífið
Sjálfstæðisflokkur telur að efla
þurfi iðn-, verk- og starfsnám í takt
við þarfir atvinnulífsins, m.a. með
því að atvinnurekendum verði gert
kleift að gera námssamninga við
nemendur. Slíkt hið sama er upp á
teningnum hjá Framsóknarflokki
sem leggur til að komið verði á fót
samstarfsvettvangi mennta-
málayfirvalda, kennara og hags-
munaaðila í atvinnulífi.
Menntamál og framboðin
Taka á brottfalli úr skólummeð því að auka valkosti og
sveigjanleika í skólakerfinu.
Bjóða þarf upp á fleiri möguleika varðandi lengd náms og fleiri
leiðir sem henta styrkleikum hvers og eins.
Björt framtíð XA
Auka fjölbreytni námsleiða til aðmæta styrkleika námsmanna.
Bjóða upp á fjölbreyttar leiðir í kennaramenntun þar sem
sérmenntað starfsfólk eigi kost á sí- og endurmenntunarnámi.
Leggja nægilegt fé til námsgagna gerðar með sérstaka áherslu
á þróun íslenskra námsgagna á rafrænu formi.
Framsóknarflokkurinn XB
Vilja að tekin verði upp skólastyrkir eins og í Danmörku og
núverandi námslánakerfi lagt niður.
Tekið verði á brottfalli úr skólummeð nýjum náms og
kennsluleiðum.
Öll börn og unglingar fái fríar spjaldtölvur í stað bóka.
Hægri grænir XG
Fjárframlag hins opinbera til náms fylgi nemanda á öllum
skólastigum og val nemandans ráði hvort þetta framlag gangi
til opinberra skóla eða fræðslustarfs á vegum einkaaðila.
Aukin áhersla verði lögð á iðn- og tækninám.Unnið að
styttingumeðalnámstíma til stúdentsprófs.
Sjálfstæðisflokkurinn XD
Stúdentar útskrifist 18 ára. Stefna ber að breytingum á LÍN frá lánakerfi yfir í
árangurstengt styrkjakerfi.
Flokkur heimilanna XI
Fjölbreytt menntun og möguleikar til náms undir umsjá
hins opinbera.
Fyrirbyggja þarf að ungmenni flosni upp úr skóla.
Regnboginn XJ
Allir geti stundað grunnnám óháð efnahag.
Bæta aðgengi fatlaðs fólks að námi, huga sérstaklega að
þörfum nemenda af erlendum uppruna.
Sérstök áhersla lögð á iðn- og tæknimenntun og
endurskipuleggja og efla háskólastigið.
Lýðræðisvaktin XL
Sporna við brottfalli m.a. aðmiða að því að allir nemendur
stundi nám við hæfi.
Bæta þjónustu LÍN við nemendur, taka upp blandað kerfi
styrkja og lána, endurreisa samtímagreiðslur ogmiða fjárhæð
námslána við neysluviðmið velferðarráðuneytis.
Samfylkingin XS
Gjaldfrír aðgangur barna að skóla frá 4-18 ára aldurs þar sem
námsgögn, skólabúningar ogmáltíðir eru hluti af skipulagi á
ábyrgð skólans.
Aðgengi að grunnmenntunmegi aldrei raskameð gjaldtöku
rekstraraðila að skólum og skólatengdum skylduverkefnum
þó frelsi til einkarekstrar (án hagnaðar) og sjálfstæði
stofnana verði verulega aukið.
Dögun XT
Byggjamenntakerfið ámenntastefnu, sem birtist í nýjum
aðalnámskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Afgreiða nýtt frumvarp til laga um Lánasjóð íslenskra
námsmanna þar sem gert er ráð fyrir að hluti lána breytist í
styrki ef námi er lokið á eðlilegum viðmiðunartíma.
Vinstri Græn XV
Uppfæramenntakerfið í heild. Tilgangur skólakerfisins er að kenna fólki á það hvernig
samfélagið virkar og hvernig á að búa til nýja þekkingu.
Píratar XÞ
Við léttum þér lífið
F
A
S
TU
S
_H
_0
5.
01
.1
3
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 | Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900
WWW.FASTUS.IS
Stuðningshandföng Göngugrindur Griptangir Salernis- og sturtustólar
Fastus ehf. býður upp á heildarlausnir innan endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja. Í verslun Fastus að
Síðumúla 16, 2. hæð er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum. Sérhæft fagfólk á sviði endurhæfingar, hjúkrunar
og hjálpartækja leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum fyrir einstaklinga og stofnanir.
Komdu og skoðaðu úrvalið
- við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig.
Stefna framboða sem bjóða ekki fram á landsvísu
Alþýðufylkingin, sem býður fram í Reykjavíkur-
kjördæmunum norður og suður, vill að allir geti feng-
ið góða menntun án endurgjalds. Menntun eigi að
skoðast sem samfélagsleg verðmæti fremur en mark-
aðsvara. Landsbyggðarflokkurinn, sem býður ein-
ungis fram í Norðvesturkjördæmi, leggur ríka
áherslu á menntun í heimabyggð. Hann vill festa í lög
rétt allra til að stunda framhaldsskólanám í nágrenni
heimabyggðar til 20 ára aldurs. Greiðslur, þeim til
handa sem kjósa að sækja sér nám utan heimabyggð-
ar, verði tryggðar. Húmanistaflokkurinn, sem býður
fram í Reykjavík norður og suður, vill að nám verði
aðgengilegt öllum án endurgjalds því líta verði á nám
sömu augum og vinnu.
Ekki fengust upplýsingar frá framboði Sturlu Jóns-
sonar í Reykjavík suður um stefnu í menntamálum.
Morgunblaðið/Ómar
Styrkir og lán Margir flokkar, m.a. Framsókn og VG, eru fylgjandi því að
hluti námslána breytist í styrk ljúki nemandi grunnnámi á tilskildum tíma.