Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Opið: mán.-fös 8:30-18:00, lau 11:00-16:00 Öryggi – gæði - leikgildi Gleðilegt sumar STUTTAR FRÉTTIR ● Í mars sl. var 62 kaupsamningum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 65 utan þess, samkvæmt heimasíðu Þjóðskrár í gær. Heildarfast- eignamat seldra eigna á höfuðborg- arsvæðinu var 7.4 milljarðar en 1.2 milljarðar utan þess. Af þessum samn- ingum voru 26 um verslunar- og skrif- stofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma var 21 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði á höfuðborg- arsvæðinu skráður og 23 utan þess. Heildarupphæð samninga á höfuðborg- arsvæðinu var 1.2 milljarðar og fast- eignamat þeirra eigna sem samning- arnir fjölluðu um 676 milljónir króna. Atvinnuhúsnæði í mars ● Japönsk flugmálayfirvöld skoða nú möguleikann á því að leyfa aftur flug á Boeing 787 Dreamliner-vélunum, en ákvörðun um það verður tekin nú í vik- unni eftir að forsvarsmenn Boeing hafa mætt fyrir samgöngumálanefnd í Bandaríkjunum. Dreamliner-vélarnar voru kyrrsettar fyrr á þessu ári þegar bilun í rafhlöðum leiddi til lítils eldsvoða í rafkerfi vél- anna. Í kjölfar þess fyrirskipaði banda- ríska flugmálastjórnin allsherjarskoðun á framleiðslu og hönnun 787-vélanna. Boeing 787 Dreamliner aftur á leið í loftið? Frumjöfnuður hins opinbera á Íslandi (frumjöfnuður er jöfnuður tekna og gjalda hins opinbera að fjármagns- tekjum og -gjöldum undanskildum) verður 2,5% af landsframleiðslu (VLF) í ár og hefur batnað um 9% af landsframleiðslu frá árinu 2009. Þetta er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en á vorfundi sjóðsins í Washington um helgina var kynnt skýrsla um stöðu opinberra fjármála í aðildarríkjum hans. Afgangurinn á frumjöfnuði segir til um hvort rekstur ríkissjóðs sé að skila einhverjum peningum upp í vaxtakostnað, en áætlað er að hann verði 88 milljarðar á ríkissjóði Íslands á þessu ári. Víða er hallarekstur Í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu frá fundinum segir að AGS reikni með að frumjöfnuðurinn á þessu ári verði 2,5%. Í fjárlögum þessa árs var hins vegar reiknað með 3,2% frumjöfnuði. AGS segir í skýrslu sinni að afgangur á frumjöfnuði árið 2012 hafi verið 1,5%, en fjármálaráðu- neytið sendi frá sér tilkynningu í vet- ur og sagði að hann hefði verið 1%. AGS skoðaði stöðuna í ár í 30 þró- uðum ríkjum, m.a. frumjöfnuð, sem er jöfnuður tekna og gjalda að fjár- magnstekjum og –gjöldum undan- skildum. Morgunblaðið/Golli Afgangur AGS reiknar með 2,5% frumjöfnuði á Íslandi í ár. AGS áætlar 2,5% frumjöfnuð í ár  Vaxtakostnaður áætlaður 88 ma. FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Orkuveita Reykjavíkur (OR) á í við- ræðum við sjóðsstýringarfyrirtækið Landsbréf um mögulega sölu Magma-skuldabréfs. OR eignaðist skuldabréfið þegar kanadíska orku- fyrirtækið Magma Energy keypti hlut Orkuveitunnar í HS Orku árið 2009. Skuldabréfið, sem er að fjár- hæð tæplega 68 milljónir Bandaríkja- dala og með einn gjalddaga í desem- ber 2016, var bókfært á 9,7 milljarða króna í ársreikningi OR um síðustu áramót. Orkuveitan hefur væntingar um að söluverð skuldabréfsins gæti verið nálægt bókfærðu virði. Á fundi stjórnar Orkuveitunnar í síðasta mánuði var samþykkt að heimila forstjóra að ganga til við- ræðna við Landsbréf eftir að tilboð barst frá félaginu í skuldabréfið. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins barst einnig tilboð frá er- lendum fjárfesti í skuldabréfið. Fast- lega má gera ráð fyrir því að náist samkomulag milli Orkuveitunnar og Landsbréfa þá verði kaupin á skulda- bréfinu fjármögnuð af lífeyrissjóðum og fagfjárfestum í gegnum fagfjár- festasjóð á vegum Landsbréfa. Líf- eyrissjóðir eiga nú um þriðjungshlut í HS Orku. Orkuveitan tilkynnti sl. haust að ákveðið hefði verið að kanna áhuga fjárfesta á skuldabréfinu að því gefnu að „viðunandi verð“ fengist. Í kjölfar- ið fól Orkuveitan Straumi fjárfest- ingabanka að skoða mögulega sölu bréfsins. Það eru hlutabréf Magma í HS Orku sem standa að veði fyrir greiðslum af bréfinu. Ingvar Stefánsson, framkvæmda- stjóri fjármála hjá Orkuveitunni, seg- ir í samtali við Morgunblaðið að vonir standi til að niðurstaða fáist í málið á allra næstu vikum. Þrátt fyrir að við- ræður hafi einungis átt sér stað við Landsbréf, sem Straumur leiðir fyrir hönd OR, þá er ekki loku fyrir það skotið að frekari tilboð muni berast í Magma-skuldabréfið. Heimildir Morgunblaðsins herma að Orkuveit- an hafi á síðustu vikum fengið fyr- irspurnir um skuldabréfið frá áhuga- sömum innlendum og erlendum fjárfestum. Tíu milljarða afborgun Í áætlun Orkuveitu Reykjavíkur um að leysa fjárhagsvanda fyrirtæk- isins, Planið svonefnda, var gert ráð fyrir því að Orkuveitan myndi eiga skuldabréfið fram að gjalddaga í árs- lok 2016. Ingvar segir að það sé þess vegna ljóst að ef fyrirtækinu takist að selja skuldabréfið, fyrir „ásættanlegt verð,“ þá muni það tvímælalaust styrkja Planið „heilmikið,“ ekki síst lausafjárstöðu Orkuveitunnar. Orkuveitan stóð frammi fyrir mjög þungri greiðslubyrði í erlendri mynt á þessu ári og nema afborganir og vaxtagreiðslur um 30 milljörðum króna. Þar munar mestu um afborg- un upp á 67 milljónir evra, jafnvirði ríflega 10,2 milljarða króna, sem er á gjalddaga 30. apríl næstkomandi. Orkuveitan hefur haft heimild frá Seðlabankanum til að kaupa gjald- eyri í því augnamiði að undirbúa af- borganir af erlendum lánum fyrir- tækisins og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á fyrirtækið nægj- anlegt laust fé í gjaldeyri til að greiða afborgunina sem er á gjalddaga í næstu viku. „Þegar Orkuveitan er búin að greiða þann gjalddaga þá er miklu lygnari sjór framundan,“ útskýrir Ingvar. Hann bendir á að nái sala eigna fram að ganga, til að mynda Magma-skuldsbréfsins, þá myndi það bæta lausafjárstöðuna og um leið auka líkur á því að Orkuveitunni tak- ist að sýna fram á að fyrirtækið hafi aðgang að erlendum lánamörkuðum. Slíkt væri aftur forsenda þess að al- þjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s breytti horfum Orkuveit- unnar úr neikvæðum í stöðugar. Opnað á erlendar lánalínur Stjórn Orkuveitunnar hefur veitt samþykki sitt að gerðir verði samn- ingar um gjaldeyrislán frá erlendum og innlendum bönkum og umfangs- mikla áhættuvarnarsamninga gegn sveiflum í gengi gjaldmiðla og vöxt- um. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru viðræður við erlenda banka um opnun erlendrar lánalínu langt komnar og gæti niðurstaða í legið fyrir mjög bráðlega, hugsanlega strax í næstu viku. Jafnframt standa vonir til þess að það takist á næstu vikum að ganga frá samkomulagi við erlendan banka um að endursemja um afborganir af erlendum lánum bankans í því augnamiði að bæta sjóðsstreymi Orkuveitunnar. Orkuveitan í viðræðum um sölu Magma-skuldabréfs  Samþykkt að ganga til viðræðna við Landsbréf  Bókfært virði 9,7 milljarðar Batnandi horfur Takist að selja Magma-skuldabréfið, fyrir „ásættanlegt verð,“ þá mun það styrkja Planið „heilmikið,“ ekki síst lausafjárstöðuna. Morgunblaðið/Styrmir Kári Magma-skuldabréf » Orkuveitan fékk skuldabréf frá Magma Energy fyrir hlut sinn í HS Orku árið 2009. Kaupverðið á þriðjungshlut var 12 milljarðar - 30% voru stað- greidd en afgangurinn greidd- ur með skuldabréfi með einum gjalddaga í desember 2016. » Orkuveitan hefur átt í við- ræðum við Landsbréf um sölu á skuldabréfinu. Bókfært virði bréfsins var 9,7 milljarðar um síðustu áramót. » Samkomulag við erlenda banka um opnun lánalínu gæti náðst mjög bráðlega.                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-+. +,/-., ++.-/, 01-.2. +2-/03 +,-,00 +03-34 +-+/,2 +,5-,. +50-1. ++,-3+ +,/-/ ++3-0 01-35. +2-//0 +,-,,3 +03-/+ +-+2+3 +,4-05 +50-34 01,-03+2 ++,-42 +,2-0. ++3-5. 01-5+. +2-23 +,-/04 +05-+4 +-+232 +,4-,, +50-/2 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á MMeira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.