Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 23

Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 23
NASA/JPL-Caltech/Cornell/Arizona State University úr hverju hún er, hvernig hún hefur þróast og hvernig lofthjúpurinn hefur þróast. Þetta eru mörg púsl sem koma saman og mynda heildarmynd af reikistjörnu sem var einu sinni líf- vænleg en eitthvað gerðist sem olli því að hún er það ekki í dag.“ Líklega ekki á næstu 50 árum Sævar segir mjög mikilvægt að kanna aðra hnetti til að skilja jörðina betur. „Eina leiðin til að vita hvernig jörðin hegðar sér er að bera hana saman við aðrar reikistjörnur. Það er einn af lykilþáttunum í að skoða lofts- lagsbreytingar, bæði á jörðinni og annars staðar í sólkerfinu. Ef sólin ætti til dæmis sök á loftslagsbreyt- ingum á jörðinni í dag ættum við væntalega að sjá það á öðrum reiki- stjörnum en það gerum við ekki. Þá getum við strax dregið þá ályktun að það sé eitthvað á jörðinni sjálfri sem breytir loftslaginu.“ Sævar er handviss um að menn eigi eftir að fara til Mars í framtíð- inni. Enn þurfi að þróa tækni til þess að gera það mögulegt en ekki þurfi mikið til þess. Það fari aðallega eftir áhuga ríkisstjórna heims á að ráðast í slíkt verkefni. Sævar vonast til þess að slík ferð yrði alþjóðlegt verkefni sem margar þjóðir kæmu að. Mesta vandamálið væri ferðatím- inn. Það tæki 6-9 mánuði að ferðast til Mars. Geimfarar þyrftu svo að dvelj- ast þar í eitt og hálft ár þar til það væri orðið heppilegt að skjóta geim- fari frá Mars til jarðar aftur. Til að halda lífi í fólkinu þyrfti að rækta plöntur þar sem ekki væri hægt að flytja vistir til svo langs tíma með geimfari. Sævar er ekki bjartsýnn á að af Marsför verði í bráð. „Ég vona að þetta gerist á minni ævi en miðað við hvernig staðan er í dag hef ég því miður ekki trú á að við förum til Mars fyrr en eftir svona fimmtíu ár. En það getur svo sem allt breyst á stuttum tíma,“ segir hann. AFP Ævintýri Bas Lansdorp, framkvæmdastjóri hollenska fyrirtækisins Mars One, kynnir leit þess að Marsförum á blaðamannafundi í New York. FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Allt á einum stað! Lágmarks biðtími www.bilaattan.is Bílaverkstæði Dekkjaverkstæði Smurstöð Varahlutir Um tíu þúsund manns hafa þegar falast eftir því að verða fyrstu fulltrúar mannkynsins til að stíga fæti á Mars, að sögn forsvarsmanna hollenska fyrirtækisins Mars One. Það stefnir að því að senda fjóra geimfara til að koma á fót nýlendu á rauðu reikistjörnunni árið 2023. Áætlað er að uppátækið kosti allt að sex milljarða dollara en ferða- lagið á að vera hluti af raunveru- leikaþætti um fyrstu för manna til annarrar reikistjörnu. „Þegar ég heyrði fyrst um verk- efnið hugsaði ég að þetta væri tæki- færi mitt til þess að gera æsku- draum minn að veruleika. Ég gæti orðið einn af brautryðjendunum, reist fyrstu byggðina á Mars og kennt fólkinu heima að það eru enn ókönnuð svæði sem mannkynið get- ur náð til,“ segir Cynthia, 32 ára gömul bandarísk kona sem er ein af þeim þúsundum sem hafa sótt um að komast til Mars. Geta ekki snúið heim Ef ferðin verður að veruleika eiga geimfararnir ekki afturkvæmt og halda líklega út í vísan dauðann. Á heimasíðu Mars One segir að heimferð sé ekki fyrirsjáanleg og geimfarar ættu ekki að reikna með því að snúa aftur til jarðar. Bent hefur verið á að áhrif geisl- unar og sólarvinda á manneskjur, bæði á leiðinni til Mars og á yfir- borði reikistjörnunnar, liggi ekki ljós fyrir. Hætta sé á að geimfar- arnir verði fyrir heilsubresti af þeim sökum. Þá er þyngdarafl Mars aðeins rúmlega þriðjungur af þyngdarafli jarðar. Mannslíkaminn aðlagist þeim aðstæðum, þéttni beinanna minnki, vöðvar rýrni og afköst æða- kerfisins minnki. Ólíklegt sé að lík- amar geimfaranna gætu ráðið við álagið við það að snúa aftur í mun sterkara þyngdarafl jarðarinnar eftir veruna á Mars. Ferðin yrði að líkindum feigðarför  Mars er fjórða reikistjarnan frá sólu og sú næst- minnsta í sólkerfinu. Massi plánetunnar er aðeins um tí- undi hluti af massa jarðar og helmingi minni að þvermáli.  Reikistjarnan hefur alla tíð verið kunn mönnum enda oft meðal björtustu fyrirbæra á næturhimninum. Hún heit- ir eftir rómverska stríðsguðinum Mars.  Stærsta eldfjall sólkerfisins, Ólympusfjall, er á Mars. Það 27 km hátt og er mun stærra en Ísland að flatarmáli skv. Stjörnufræðivefnum.  Á Mars er einnig að finna langstærstu gljúfur sólkerf- isins, Mariner-gljúfrin. Væru þau á jörðinni næðu þau yf- ir þvert meginland Norður-Ameríku. Nokkrar staðreyndir um Mars Stríðsguðinn Mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.