Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 dvaldi í tæpa sex mánuði í Kákasus- héruðum í Rússlandi á síðasta ári vegna þess að nafn hans hefði ekki verið stafsett rétt í ferðaskjölum. Um 50 enn á sjúkrahúsi Tamerlan Tsarnaev, tilræðis- maðurinn sem var yfirheyrður fyrir tveimur árum, beið bana eftir að bandaríska lögreglan hóf viðamikla leit að tilræðismönnum. Bróðir hans, Dzhokhar, sem er nítján ára, særðist og liggur nú á sjúkrahúsi í Boston. Bandarískir saksóknarar hafa ákært hann fyrir að beita hættulegum vopnum til að valda miklu manntjóni. Verði hann fundur sekur á hann dauðadóm yfir höfði sér. Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir ónafngreindum embættismönnum Embættismenn bandarísku alríkis- lögreglunnar FBI komu fyrir þing- nefnd í gær til að svara spurningum þingmanna um hvort lögreglan hefði getað komið í veg fyrir sprengjutil- ræðið í Boston í vikunni sem leið þegar maraþonhlaup fór fram í borg- inni. Embættismennirnir komu fyrir leyniþjónustunefnd öldungadeildar þingsins eftir að nokkrir þingmenn sökuðu alríkislögregluna um að hafa látið hjá líða að rannsaka hvort hætta stafaði af tilræðismönnum eft- ir að yfirvöld í Rússlandi báðu FBI um að yfirheyra annan þeirra árið 2011 vegna hugsanlegra tengsla hans við hryðjuverkasamtök. Hermt var í gær að bandarísk yfirvöld hefðu ekki vitað að tilræðismaðurinn að Dzhokhar Tsarnaev hafi sagt lög- reglumönnum að bræðurnir hafi skipulagt sprengjutilræðið sjálfir, án aðstoðar erlendra hryðjuverka- manna. Þeir hafi notað upplýsingar á netinu til að búa til sprengjurnar. Heimildarmennirnir tóku þó fram að rannsókninni væri ekki lokið og eftir væri að sannreyna svör Tsarnaevs sem svaraði spurningum lögreglunn- ar skriflega þar eð hann getur ekki talað vegna sára á hálsi. Þrír menn biðu bana í sprengju- tilræðinu og alls fengu 264 læknis- hjálp á sjúkrahúsum í Boston og ná- grenni. Um 50 eru enn á sjúkrahúsi og þar af eru þrír enn í lífshættu. Þrettán þeirra sem særðust misstu útlimi í sprengingunum. bogi@mbl.is Þingnefnd yfirheyrir embættismenn FBI  Þingmenn saka alríkislögregluna um að hafa brugðist AFP Sorg Stúlkur faðmast eftir athöfn í sal Boston-háskóla til minningar um konu sem lét lífið í tilræðinu í Boston. Norðmenn búa sig nú undir að bora eftir olíu á hafsvæði sem þeir höfðu áður deilt um við Rússa. Hugsanlegt er að olíuvinnsla Norðmanna á svæð- inu marki tímamót í samskiptum Noregs og Rússlands, að sögn fréttavefjarins Barents Observer í gær. „Þetta er söguleg stund,“ sagði Ola Borten Moe, olíu- og orkumála- ráðherra Noregs, um þá ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar að heimila boranir í suðausturhluta yfirráða- svæðis Noregs í Barentshafi. „Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1994 sem við getum opnað nýtt svæði til rann- sókna og leitar að olíu og gasi á væn- legu hafsvæði,“ sagði ráðherrann í fréttatilkynningu. „Mikill munur á Rússlandi og Íslandi“ Umrætt svæði er hluti af alls 175.000 ferkílómetra hafsvæði sem Norðmenn fengu yfirráð yfir fyrir tveimur árum við gildistöku samn- ings þeirra við Rússa um skiptingu Barentshafsins. Norðmenn sendu rannsóknaskip á svæðið sama dag og samningurinn tók gildi. Skýrsla um mat á áhrifum olíuleitar á svæðinu var lögð fram í október síðastliðnum. Norsku stjórnarflokkarnir þrír eru sammála um að hefja olíuboranir á þessu svæði þótt þeir hafi ákveðið að leyfa ekki olíuleit á svæðum í grennd við Jan Mayen og Lófót, um sinn að minnsta kosti. Barents Ob- server segir að fyrir þessu séu m.a. pólitískar ástæður. „Suðausturhluti Barentshafs liggur að lögsögu Rúss- lands en Jan Mayen liggur að lög- sögu Íslands og það er mikill munur á Rússlandi og Íslandi,“ hefur frétta- vefurinn eftir Bård Vegard Solhjell, umhverfisráðherra Noregs. Norska stjórnin heimilaði olíuleit á 44.000 ferkílómetra hafsvæði og áætlað er að hægt verði að vinna þar um 1,9 milljarða fata af olíu. Talið er að enn stærri olíulindir séu á yfirráðasvæði Rússlands í Bar- entshafi, eða allt að 18,7 milljarðar fata af olíu. Gert er ráð fyrir að olíu- boranir hefjist þar fyrir árið 2020. bo- gi@mbl.is Undirbúa olíubor- anir í Barentshafi  Ríkisstjórn Noregs heimilar olíuleit AFP Undirhershöfðingi í Ísrael, Itai Brun, sagði í gær að her Sýrlands hefði beitt efnavopnum nokkrum sinnum gegn uppreisnarmönnum í stríðinu sem geisað hefur í landinu. Undirhershöfðinginn sagði þetta á ráðstefnu um öryggismál í Jerúsal- em. Þegar hann var spurður hvers konar efnavopnum hefði verið beitt svaraði hann að Sýrlandsher hefði að öllum líkindum notað sarín, banvænt taugagas. Hópur vopnasérfræðinga Samein- uðu þjóðanna hefur reynt að komast til Sýrlands í því skyni að rannsaka hvort efnavopnum hafi verið beitt þar. Einræðisstjórnin í Sýrlandi hef- ur einnig sakað uppreisnarmennina um að hafa notað efnavopn í stríðinu. Bandaríkjastjórn hefur sagt að hún myndi ekki láta efnavopnaárásir viðgangast í Sýrlandi. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi NATO-ríkja í gær að bandalagið þyrfti að ræða hvernig bregðast ætti við hugsanlegum efna- vopnaárásum Sýrlandshers. bogi@mbl.is AFP Átök Sýrlendingar á vélhjóli við ónýta strætisvagna í borginni Aleppo. Segir Sýrlandsher beita efnavopnum Lög sem heimila hjónavígslu para af sama kyni hafa verið samþykkt endanlega í fulltrúadeild franska þingsins. Frakkland varð þar með 14. ríki heims til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra. Lögin heim- ila einnig pörum af sama kyni að ættleiða börn. Eftir lokaumræðuna, sem stóð í 136 klukkustund- ir, voru lögin samþykkt með 331 atkvæði gegn 225. Tíu þingmenn sátu hjá, að sögn fréttaveitunnar AFP. Lögin um hjónabönd samkynhneigðra para hafa verið mjög umdeild í Frakklandi. Fyrr um daginn voru her- og lögreglumenn sendir að þinghúsinu í París til að verja það eftir að mikill mannfjöldi safnaðist þar saman vegna atkvæðagreiðslunnar. FRAKKLAND Hjónabönd samkynhneigðra heimiluð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.