Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 29 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Fjórum mánuðum eftir að hrottaleg hópnauðgun á 23 ára gamalli náms- konu í Nýju-Delhí olli miklu upp- námi á Indlandi hefur enn eitt nauðgunarmálið vakið mikla reiði í landinu. Í þetta sinn var fimm ára stúlku í Nýju-Delhí rænt, haldið í læstu herbergi í tvo sólarhringa og nauðgað hvað eftir annað, að sögn indverskra yfirvalda. Stúlkan fannst í herberginu í vik- unni sem leið og liggur þungt haldin á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna málsins. Foreldrar stúlkunnar segja að lögreglumenn hafi reynt að múta þeim til að kæra ekki nauðgunina. Háttsettir lögregluforingjar hafa fyrirskipað sérstaka rannsókn á þeirri ásökun. Eftir að sjö karlmenn nauðguðu 23 ára námskonu í strætisvagni í Nýju-Delhí og urðu henni að bana í desember lofuðu indversk yfirvöld ýmsum ráðstöfunum til að fækka of- beldisglæpum gegn konum. M.a. voru viðurlögin við nauðgunum hert og konum í lögreglunni í Nýju-Delhí fjölgað. Indversk samtök, sem berj- ast gegn kynbundnu ofbeldi, segja þó að umbæturnar hafi haft lítil áhrif, það taki langan tíma að bæta stöðu kvenna á Indlandi og breyta viðhorfum karlmanna til þeirra. Mikil reiði vegna nauðgana AFP Nauðgunum mótmælt Indversk kona í Nýju-Delhí gengur framhjá veggjakroti þar sem krafist er þess að nauðgurum verði refsað með hengingu.  Ólga á Indlandi Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Margaret Thatcher, fyrrverandi for- sætisráðherra Bretlands, þótti ekki mikið til Denis Thatcher koma þeg- ar þau kynntust fyrst. Þau felldu þó hugi saman og gengu í hjónaband sem stóð í rúma hálfa öld. Sir Denis var stoð hennar og stytta en hjóna- bandið var þó ekki alltaf dans á rós- um og líklegt er að hann hafi jafnvel íhugað skilnað þegar hann nálgaðist fimmtugt. Þetta kemur fram í bók sem kom út í gær og fjallar um ævi Margaret Thatcher. Blaðamaðurinn Charles Moore skrifaði bókina eftir að Thatcher veitti honum aðgang að persónulegum og opinberum gögn- um gegn því skilyrði að bókin yrði gefin út eftir andlát hennar. „Alltof deilugjarn“ „Hann er ekki mjög aðlaðandi – mjög hlédrægur en nokkuð viðfelld- inn,“ skrifaði Thatcher um Denis. Hún bætti við að hann væri „um það bil 36 ára, með kappnóg af pen- ingum“ og ekki vel liðinn meðal starfsmanna sinna vegna þess að hann væri „alltof deilugjan í sam- skiptum sínum við þá“. Sir Denis var þá fyrrverandi höfuðsmaður í hernum og rak fjöl- skyldufyrirtæki. Þau giftust í des- ember 1951 og eignuðust tvíbura, Carol og Mark, 15. ágúst 1953. Í nýju bókinni kemur fram að Sir Denis fékk taugaáfall árið 1964 vegna of mikils álags í vinnunni. Ævisöguritarinn hefur eftir dóttur Thatcher-hjónanna að Sir Denis hafi ekki verið „alls kostar ánægður með að vera kvæntur stjórnmálamanni“. „Hann kann jafnvel að hafa íhugað skilnað,“ hefur hann eftir Carol. Dóttirin segir að Sir Denis hafi litið á taugaáfallið sem krossgötur í lífi sínu og hjónabandi. „Ég tel að hann hafi þurft að gera upp hug sinn.“ Var ekki viss um að hann kæmi aftur Moore hefur eftir Sir Denis sjálf- um að hann hafi fengið taugaáfall vegna of mikillar vinnu, auk þess sem hann hafi líklega drukkið of mikið á þessum tíma. Hann neitaði hins vegar því að störf eiginkon- unnar, sem var aðstoðarráðherra á þessum tíma, hefðu stuðlað að taugaáfallinu. Carol segir hins vegar að honum hafi fundist hann hafa „einangrast“ vegna annasamra stjórnmálastarfa eiginkonunnar og ekki verið sáttur við hlutverk sitt sem maka stjórn- málaleiðtoga fyrr en hann hafi látið af störfum sem kaupsýslumaður. Eftir taugaáfallið fór Sir Denis í tveggja mánaða frí til Suður-Afríku til að jafna sig og þegar hann kom heim ákvað hann að selja fjölskyldu- fyrirtækið til að minnka vinnuálagið. „Þegar Denis fór til Suður-Afríku var [Margaret Thatcher] ekki viss um að hann myndi koma til hennar aftur. Málið snerist ekki aðeins um það að hann væri þreyttur og ráð- villtur: það var einnig mögulegt að hjónabandinu lyki,“ skrifar Moore í bókinni sem nefnist Margaret Thatcher – The Authorized Bio- graphy: Volume One: Not For Turn- ing. Sir Denis íhugaði e.t.v. skilnað eftir taugaáfall  Ævisaga Marg- aret Thatcher gef- in út í Bretlandi AFP „Ekki mjög aðlaðandi Margaret Thatcher með syni sínum, Mark, og eigin- manni, Denis, í janúar 1982. Ný ævisaga Thatcher kom út í Bretlandi í gær. Tók mannfallið nærri sér » Í bókinni kemur m.a. fram að Margaret Thatcher tók það mjög nærri sér þegar breskir hermenn féllu í Falklands- eyjastríðinu gegn Argentínu árið 1982. » Sir Denis segir að hún hafi farið að snökta í rúminu nótt eina eftir mikið mannfall í stríðinu. „Ó, nei. Ó, nei. Annað skip! Allir ungu mennirnir mín- ir!“ sagði hún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.