Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Hótel Sífellt bætist í hótelflóruna í höfuðborginni til að anna aukinni eftirspurn frá ferðamönnum. Nýjasti gististaðurinn er við Hlemm. Golli Á laugardaginn geta um 38 þúsund kjós- endur á aldrinum 18 til 25 ára haft veruleg áhrif á eigin framtíð og tekið þátt í að móta samfélagið. Í kjörklefanum er hægt að senda þau skýru skilaboð að ungt fólk sætti sig ekki við að þeir sem eldri eru skilji þúsund milljarða skuldir eftir sem sérstakan arf. Ungt fólk sem nú er í námi eða er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðinum þarf að óbreyttu að bera þungan skuldabagga – jafngildi heillar íbúð- ar. Skuld upp á 21 milljón er arfurinn sem ungt fólk þarf að glíma við ef haldið verður áfram á sömu braut og undanfarin ár. Við sem eldri erum höfum verið dugmikil við að gefa út víxla á kom- andi kynslóðir. Á síðustu þremur ár- um hafa skuldir ríkissjóðs aukist um 300 milljarða króna. Þær skuldir verða ekki skýrðar eða afsakaðar með því að vísa til hruns íslensku bankanna árið 2008. Skuldirnar eru vegna þess að ekki var pólitískur kjarkur til að skera upp í ríkisrekstr- inum, hagræða og endurskipuleggja. Á sama tíma var efnahagslífið hneppt í fjötra – það fékk ekki að vaxa og skapa verðmæti til að standa undir sameiginlegum útgjöldum. Leið stjórnmálamanna var víxlaútgáfa – vandanum ýtt á undan sér. Mörgum finnst þægilega að ýta vand- anum á undan sér. Nú takið þið til! Ungir kjósendur eiga tvo kosti því varla kem- ur sá þriðji – að sitja heima – til greina. Þeir geta sætt sig við að haldið verði áfram á sömu braut og tekið um leið að sér að glíma við uppsafnaðar skuldir. Eða þeir segja, hingað og ekki lengra. Í kjörklefanum fær ungt fólk tæki- færi til að koma skýrum skilaboðum til stjórnmálamanna: Við höfnum því að verða skuldsett vegna óseðjandi hungurs ykkar eldri í að byggja tónlistarhús, ný fangelsi, glæsihýsi í nafni fræðanna, bora jarð- göng, halda úti sendiráðum í öllum heimshornum, viðhalda rándýrri stjórnsýslu og dæla peningum í gæluverkefni sem engu skipta. Nú skulið þið taka til og búa í haginn fyr- ir framtíðina. Hættið að sóa sameig- inlegum fjármunum. Gefið okkur raunveruleg tækifæri til að njóta góðra lífskjara í framtíðinni. Sameiginlegt verkefni Við sem skipum sveit Sjálfstæð- isflokksins höfum lagt áherslu á að það sé sameiginlegt verkefni okkar allra að brjótast út úr efnahagslegri stöðnun sem ríkt hefur á und- anförnum árum. Við þurfum að fjölga tækifærunum, auka tekjurnar og þar með möguleikana á að bæta lífskjörin en ekki síður að standa við þær skuldbindingar sem hvíla á okkur sameiginlega og stöðva víxlaútgáf- una. Til þess þarf fjárfestingu í at- vinnulífinu, skynsamlega stjórnun opinberra fjármála og opið hagkerfi. Við þurfum að nýta auðlindirnar, stokka upp ríkisreksturinn og gefa atvinnulífinu og heimilunum tækifæri að nýju með lægri sköttum og ein- faldara regluverki. Ungt fólk verður að svara þeirri spurningu á laugardaginn, hvort lík- legt sé að okkur takist að vinna okkur út úr þrengingum og létta skulda- bagga hinna yngri með hug- myndafræði vinstri manna eða skýrri stefnu Sjálfstæðisflokksins þar sem áræðni og frumkvæði einstaklingsins fær að njóta sín. Þetta er í raun spurningin um hvort við trúum á okkur sjálf. Eftir Óla Björn Kárason » Í kjörklefanum fær ungt fólk tækifæri til að koma skilaboðum til stjórnmálamanna: Við höfnum því að verða skuldsett vegna óseðj- andi hungurs ykkar eldri Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þungur baggi ungra kjósenda Þó Ísland sé í dag í röð auðugustu landa heims er ekki svo langt síðan landið var í hópi þróunarríkja. Velmegun okkar og þeim hröðu um- skiptum sem hafa orðið á högum okkar í tíð fáeinna kynslóða fylgir einnig ákveðin siðferðileg ábyrgð, ábyrgð sem við get- um ekki skorast undan. Nýlega samþykkti Alþingi í annað sinn þróunarsamvinnu- áætlun og gildir hún fyrir árin 2013-2016. Nokkur umræða hefur spunnist um gildi þróunarsam- vinnu og hvort og þá hvaða hlut- verki Ísland eigi að gegna í því sambandi. Þróunarsamvinna og utanríkisstefna Þróunarsamvinna hefur til þessa verið óumdeild sem mik- ilvægur hluti af utanríkisstefnu Ís- lands, og íslensk stjórnvöld hafa lengi stefnt að því að uppfylla þú- saldarviðmið Sameinuðu þjóðanna um að þróuð ríki legðu 0,7% af þjóðartekjum til þróunarsam- vinnu. Ástæðan er einfaldlega sú að Ísland er ríkt land. Þrátt fyrir að við höfum að undanförnu glímt við efnahagslega erfiðleika á það eftir sem áður að vera markmið okkar að vera í fararbroddi í þró- unarsamvinnu, að Ísland leggi sitt lóð á vogarskálarnar fyrir bættum lífskjörum í fátækustu hlutum heimsins. Auk baráttu gegn fátækt, fé- lagslegu ranglæti, misskiptingu lífsgæða og hungri höfum við Ís- lendingar lagt áherslu á mannrétt- indasjónarmið og jafnréttismál í þróunaraðstoð okkar. Einnig ber að styðja baráttu fyrir mannrétt- indum og lýðræði, hvar sem hún er háð. Sérstaklega ber að gefa gaum að réttindum þjóðernisminnihluta sem eiga undir högg að sækja. Núverandi ríkisstjórn hefur að auki lagt kapp á að efla samstarf við frjáls félagasamtök, en í því felst við- urkenning á miklu og óeigingjörnu starfi þeirra og á þeirri ómetanlegu sérþekk- ingu sem þar er að finna. Leggjum okkar af mörkum – þrátt fyrir efnahagsþrengingar Efnhagsþrengingarnar sem við Íslendingar lentum í fyrir skemmstu urðu til þess að skera varð niður á öllum sviðum, þar með talið í þróunarsamvinnu. Þær þjóðir sem við berum okkur sam- an við hafa hins vegar ekki skorið niður framlög til þróunaraðstoðar. Norðurlöndin og Írar hafa haldið framlögum sínum jöfnum á meðan Bretar hafa ákveðið að auka fram- lög sín til þróunarmála sem hlut- fall af vergum þjóðartekjum með- an flest svið ríkisútgjalda hafa verið skorin niður. Hér liggja að baki þau grund- vallarsjónarmið að það séu ríkir hagsmunir þróaðra ríkja að draga úr fátækt og hnattrænni misskipt- ingu, bæta heilsufar og auka menntun í þróunarríkjunum. Sér- staklega sé brýnt að bæta kjör kvenna og barna. Framlög til þró- unaraðstoðar og samvinnu eru bæði framlög til jöfnuðar og vel- sældar, en ekki síður til friðar. Með samþykkt þróunarsam- vinnuáætlunar áranna 2013-16 hafa íslensk stjórnvöld viðurkennt að þau samþykki þessar hug- myndir. Friður – mannréttindi – jöfnuður – sjálfbær þróun Misskipting lífskjara í heiminum er mein sem á ríkan þátt í þeirri togstreitu og átökum sem setja mark sitt á samskipti margra ríkja. Því er brýnt að taka á mis- skiptingunni. Við Íslendingar ber- um þar skýlausa ábyrgð. Þó við séum fá og landið smátt á alþjóð- legan mælikvarða, eða framlög okkar stór í heildarmyndinni, njót- um við góðs af því að vera ekki aðalleikarar í valdabaráttu al- þjóðastjórnmálanna. Við getum þannig verið í mörgu tilliti trú- verðug í okkar málflutningi og starfi og eftir því verður alltaf tekið. Baráttan fyrir friði, mannrétt- indum, jöfnuði og lýðræði og sjálf- bærri þróun er um leið barátta fyrir jöfnum lífskjörum og bættri stöðu þeirra sem búa við mesta neyð. Við megum ekki líta undan og vera of upptekin af sjálfum okkur, heldur verðum við að horfa fram á veg og setja hlutina í heild- arsamhengi. Það eru bæði sið- ferðilegir, efnahagslegir, fé- lagslegir og umhverfislegir þættir sem leggja okkur ábyrgð á herðar. Í mínum er huga er því ekki spurning um það hvort við eigum að leggja fjármagn í þróunarstarf, heldur hvernig við gerum það. Sú þróunarsamvinnuáætlun sem ný- lega var samþykkt er góður veg- vísir og ég vona sannanlega og vænti að okkur lánist nú að ná þeim markmiðum sem þar eru sett fram. Til þess höfum við alla burði. Eftir Árna Þór Sigurðsson »Mikilvægt er að Ís- lendingar láti ekki sitt eftir liggja í sam- félagi þjóðanna og fram- lög til þróunaraðstoðar mega ekki líða fyrir efnahagsþrengingar. Árni Þór Sigurðsson Höfundur er formaður utanríkismála- nefndar Alþingis og skipar 2. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavíkur- kjördæmi norður. Látum ekki okkar eftir liggja Á flokksþingi Fram- sóknarflokksins í febr- úar síðastliðnum var samþykkt róttæk byggðastefna sem ber heitið – Jafnrétti til bú- setu. Þar var sam- þykkt að farið yrði í róttækar aðgerðir til að jafna samkeppn- ishæfni og búsetuskil- yrði hvers landshluta. Tillagan er merkileg fyrir þær sakir að enginn flokkur hefur mótað sér sérstaka stefnu í þessum málaflokki. Engum blöðum er um það að fletta að efnahagur landsins og framþróun byggjast á öflugu mann- lífi hringinn í kringum landið. Því miður hefur mikill aðstöðumunur skapast að undanförnu hvað varðar þá nauðsynlegu grunnþjónustu sem ríkið veitir. Aðgangi að heilbrigð- isþjónustu, löggæslu, öryggi sam- gangna, fjarskipta og húshitunar er misskipt á milli þjóðarinnar. Þessu verður að breyta. Aðgangur að sjálf- sögðum grunnþáttum á að vera hinn sami hvar sem fólk kýs að búa. Þar skiptir öllu máli að ákvarðanir sem snúa að fjárhag málaflokka sem hafa áhrif á byggðaþróun í landinu verði alltaf teknar á þeim forsendum að jöfnuður ríki í þjónustu ríkisins hvar sem hún er veitt. Það róttækasta í stefnu Fram- sóknarflokksins er að farið verði í sérstakt átak til að sporna við fólks- fækkun á vissum landssvæðum. Var ákveðið að fara leið norskrar byggðastefnu og veita ýmsar skatta- ívilnanir til að auka hagvöxt á þeim landsvæðum sem hafa þurft að búa við viðvarandi fækkun íbúa. Sú leið hefur reynst það vel að tekist hefur að snúa við margra ára neikvæðri þróun – sérstaklega í Norður- Noregi. Með sérstökum aðgerðum, eins og að veita afslátt af endur- greiðslu námslána og hlúa að barna- fólki sérstaklega, hefur tekist að fá ungt fólk sem hefur farið í nám til að snúa á heimaslóðir og setjast þar að. Þessi stefna Norðmanna hefur vak- ið verðskuldaða athygli á Norðurlöndunum og umræða átt sér stað víðar um að fylgja þeirri stefnu eftir. Ein mikilvægasta að- gerðin í byggðamálum er að jafna tekju- streymi skatta í þjóð- félaginu. Niðurstöður rannsókna sýna að minna en ein af hverjum tveimur krónum, sem almenningur og fyr- irtæki á landsbyggðinni greiða í skatta til ríkisins, skilar sér aftur til baka. Niðurskurður ríkisins síðustu misseri svo sem til heilbrigðis- og menntamála, auk nýrra og hækk- aðra skatta eins veiðigjalda og álagna á eldsneyti, hefur aukið þennan mun enn frekar. Því miður standa Íslendingar hin- um Norðurlandaþjóðunum langt að baka í byggðamálum. Þær hafa til að mynda allar samþykkt að veita þeim sem þurfa að sækja vinnu um langan veg skattalega hagræðingu til að koma í veg fyrir búferlaflutninga. Það jákvæða er þó að rannsóknir sýna að byggðatengdar aðgerðir auki hagvöxt þar sem þeim hefur verið beitt eins og skýrslur OECD gefa vísbendingar um. Á næsta kjör- tímabili er einstakt tækifæri til að jafna réttindi landsmanna hvað bú- setu varðar. Til þess að svo verði þarf að merkja x við B inni í kjör- klefanum. Jafnrétti til búsetu Eftir Höskuld Þór Þórhallsson Höskuldur Þór Þórhallsson » Á næsta kjörtímabili er einstakt tækifæri til að jafna réttindi landsmanna hvað bú- setu varðar. Höfundur er alþingismaður og skipar 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.