Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 28
28 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Kvíði, álag eða
orkuleysi?
Burnirótin hefur reynst mér mjög vel við þunglyndi og kvíða. Ég er mun
hressari á morgnana og hef meira úthald og orku allan daginn og mæli
hiklaust með henni. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrk-
blettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður.
Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði.
– Sigþrúður Jónasdóttir
www.annarosa.is
Burnirótin er talin góð gegn
orkuleysi, kvíða, þunglyndi
og streitu ásamt því að efla
úthald og einbeitingu.
24 stunda kremið þykir einstaklega
rakagefandi og nærandi fyrir þurra
og þroskaða húð. Inniheldur andox-
unarefni og náttúrulega sólarvörn.
Margverðlaunuð
frönsk gæðagler
• Gler og umgjörð frá 16.900 kr.
plast með glampavörn
• Margskipt gleraugu frá 39.900 kr.
umgjörð og gler.
• Verðlaunaglampavörn frá NEVA MAX,
150% harðari, sleipari og þægilegri í
þrifum 8.000 kr.
Öll verð miðast við plast-gler
SJÓNARHÓLL
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi
Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is
Nokkur hundruð umgjarðir á kostnaðarverði
Nú geta ALLIR
keypt sér gleraugu
Ákveðnir veikleikar
í raforku-, samgöngu-
og fjarskiptakerf-
unum komust í frétt-
irnar seint á síðasta
ári þegar margir
Vestfirðingar fengu
að kenna á rafmagns-
leysinu líkt og aðrir
landsmenn. Fram
kom í Bændablaðinu
10. janúar sl. að raf-
magn hefði farið af raforkukerfinu
í 40 klukkustundir og að íbúar Ár-
neshrepps á Ströndum hefðu orðið
að þola þetta rafmagnsleysi ennþá
lengur. Á heildina litið fóru
Strandamenn verst út úr veð-
uráhlaupinu sem tók sinn toll.
Greinarhöfundur skilur vel að
Vestfirðingar séu orðnir þreyttir á
þessu ástandi í raforkumálum,
vegamálum og opinberri þjónustu
við íbúa fjórðungsins. Á Vest-
fjörðum hefur uppbygging vega-
kerfisins tekið fleiri áratugi og á
enn langt í land til þess að hún
teljist viðunandi fyrir alla íbúa
fjórðungsins. Þó að Ólína Þorvarð-
ardóttir styðji réttmæta kröfu
heimamanna í Álftafirði um að
flýta undirbúningsrannsóknum á
jarðgangagerð milli Súðavíkur og
Ísafjarðar hefði hún líka átt að
hafa í huga áhyggjur íbúanna í Ár-
neshreppi á Ströndum sem ekki
geta treyst á landleiðina til Hólma-
víkur. Árneshreppur sem er af-
skekktur einangrast fljótlega þeg-
ar landleiðin norðan
Bjarnarfjarðar lokast alla vetr-
armánuðina vegna illviðris og snjó-
þyngsla. Á þessu svæði geta aur-
skriður, grjóthrun og snjóflóð
fyrirvaralaust hrellt heimamenn
án þess að það verði séð fyrir. Víða
um land hefur það skeð á þeim
stöðum sem menn hafa talið 100%
örugga. Í Jarðgangaáætlun Vega-
gerðarinnar frá árinu 2000 eru
engar hugmyndir til um hvernig
heimamenn á öllu svæðinu norðan
Bjarnarfjarðar geti losnað við
þessa vetrareinangrun fyrir fullt
og allt. Möguleikar á jarðgöngum
fyrir þetta svæði sem hafa aldrei
verið kannaðir eru ekki sjáanlegir
á meðan þingmenn Norðvest-
urkjördæmis vilja ekki kynna sér
ástandið í samgöngumálum byggð-
anna norðan Hólmavíkur. Gagn-
vart Strandamönnum er þessi
framkoma til háborinnar skamm-
ar.
Spurningin er hvort viðunandi
lausn finnist á samgöngumálum
Árneshrepps. Hér sendir grein-
arhöfundur Ólínu Þorvarðardóttur
skýr skilaboð um að hún hefði fyr-
ir löngu átt að flytja á Alþingi til-
lögu um að Vegagerðinni yrði falið
að kanna hvort hagkvæmara sé að
rjúfa þessa vetrarein-
angrun Árneshrepps
við Hólmavík og
Drangsnes með
steyptum vegskálum
sem gera sama gagn
og jarðgöng. Það áttu
þingmenn Norðvest-
urkjördæmis að kynna
sér áður en innanrík-
isráðherra kynnti nýja
samgönguáætlun. Á
Vestfjörðum sitja allir
íbúar fjórðungsins
uppi með stór-
hættulega vegi sem verða aldrei
öruggir fyrir mikilli veðurhæð,
snjóflóðum, aurskriðum og grjót-
hruni. Til að bíta höfuðið af
skömminni létu fyrrverandi þing-
menn Vestfirðinga sig það engu
varða þegar þeir voru árangurs-
laust spurðir að því hvort ekki ætti
að tryggja íbúunum í Árnes- og
Kaldrananeshreppi öruggari vega-
samgöngur við Hólmavík með
steyptum vegskálum í fullri
breidd. Þó að Hólmavík hafi fengið
öruggari vegtengingu við Reyk-
hóla og Dalabyggð með vel upp-
byggðum vegi um Arnkötludal
vantar mikið upp á til þess að allir
heimamenn á svæðinu milli Bjarn-
arfjarðar og Ingólfsfjarðar losni
endanlega við þessa vetrarein-
angrun sem veldur því að þeir geta
aðeins treyst á flugsamgöngurnar
milli Gjögurs og Reykjavíkur.
Miklu máli skiptir að vel upp-
byggðir vegir á Vestfjörðum sem
skulu vera í fullri breidd uppfylli
um ókomin ár hertar kröfur um
öryggi vegfarenda. Því miður eru í
fjórðungnum alltof margir vegir
með einbreiðu slitlagi sem hafa í
för með sér of mikla slysahættu.
Öllum þingmönnum Norðvest-
urkjördæmis ber að taka þetta mál
upp í samgöngunefnd Alþingis.
Spurningin er hvort þetta kæru-
leysi muni fljótlega hrekja von-
svikna Strandamenn norðan
Hólmavíkur til uppreisnar gegn
þessu skeytingarleysi þegar þeir
missa þolinmæðina og segja, hing-
að og ekki lengra. Auðvitað eiga
íbúar afskekktasta byggðarlagsins
við vestanverðan Húnaflóa líka
rétt á því að þeirra sjónarmið séu
tekin til greina. Allt annað er
hnefahögg í andlit Strandamanna.
Um tvennt stendur valið. Annað
hvort fylgja þingmenn Norðvest-
urkjördæmis þessu máli eftir á Al-
þingi eða þeir glata trausti heima-
manna.
Skilaboð til Ólínu
Þorvarðardóttur
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Spurningin er hvort
viðunandi lausn
finnist á samgöngu-
málum Árneshrepps.
Höfundur er farandverkamaður.
Fróðlegt er að skoða lífsstíl 28
þekktra öldrunarsérfæðinga ( þar á
meðal er D. Harmann sem þróaði
fræðin um áhrif sindurefna á öldr-
unina) í BNA, landi bætiefnanna, en
sérfræðingarnir gerðu m.a. grein
fyrir þeim bætiefnum sem þeir tóku
inn að staðaldri og fleiru rétt fyrir
síðustu aldamót. Sameiginlegt þeim
öllum var að taka inn hágæða fjöl-
vítamín með steinefnum en bæta oft
ríflega við A, C (mest 6 g) og E vít-
amíni einkum vegna andox-
unarvirkni þeirra og líka viðbót fyr-
ir oft allt að 7 af B vítamínum (B1,
B2, B3, B5, B6, B12, fólin-sýru og
bíótín) upp á andlega heilsu o.fl. Þá
var oft viðbót við einstök steinefni:
Ca, K, Mg, B, Cr, Fe, Mn, Zn, Se og
Cu en mjög einstaklingsbundið,
bæði magn og fjöldi. Jurtavítamín A
(próvítamínið beta-caroten ) var
vinsælla en A (retinol) úr dýrarík-
inu og í stórum skömmtum enda
óeitrað og sterkt andoxunarefni .
Fáir tóku D vítamín (D2 eða D3) en
bara tveir omega 3 ( EPA og DHA
fjölómettaðar fitusýrur). Allir
drekka mikið vatn og sumir með sí-
trónusafa í til detox (afeitrunar).
Aðrir drykkir voru helst safar,
rauðvín og jurtate. Flest allir
sneiddu hjá steiktum mat og rauðu
kjöti en sóttu í villtan fisk og lax
auk 3-6 stk. ávaxta. Þá stunduðu
þeir allir einhverja líkamsrækt
flesta daga.
Meira en helmingur neytti horm-
óna eins og melatóníns daglega og
svo DHEA annan hvern dag. Þó
nokkrir tóku inn hvítlauk (Kyolic).
Margir tóku Q10. Þá voru margir
með sínar sérþarfir eins og aspirín,
ölger, blá-grænar ölgur, ginseng og
ginkgo biloba, jógúrt o.fl. Allir
lögðu áherslu á trefjaríkan og fitu-
lítinn mat og bara þrír voru að-
allega grænmetisætur.
En hvað ráðlagði aðalfrumherji
orthomolecular-fræðinnar árið 1986,
hinn tvöfaldi Nóbelsverðlaunahafi
Linus Pauling, sem dó 93 ára 1994?
Þetta er fræðin um þau efni sem
líkaminn notar og hvernig breyta
megi styrk þeirra innbyrðis til að
viðhalda bestu heilsu og losna við
ýmsa kvilla. Hans ráð að góðri
heilsu voru í 12 liðum:
Daglega 6-18 g C vítamín á
morgnana. Daglega E vítamín, 400,
800 eða 1200 A.E. 1 eða 2 töflur af
Super B vítamínum daglega. 25.000
A.E. A vítamín daglega. Eina töflu
af 8 steinefnum daglega (Ca, Fe, I,
Cu; Mg, Mn, Cr og Se, magn Bron-
son-formúla).
Annað en C tekið á kvöldin.
Lágmarka sykurneyslu. Borða
allt en lítið af hverju án þess að
fitna. Drekka mikið vatn. Vera
starfsamur og stunda einhverja lík-
amshreyfingu. Vera hófsamur á
áfenga drykki. Ekki reykja sígar-
ettur. Forðast stress í vinnu og
heima.
Þótt þetta eigi við í BNA þar sem
20% matar voru unnar vörur 1940
en voru orðnar 75% fyrir síðustu
aldamót gætum við lært sitthvað. Í
okkar sólarlitla landi verður okkur
eldri gott af þorskalifrarlýsi með 6
lífsnauðsynlegum vítaminum (A, D,
E og 3 fjölómettaðar fitusýrur ) og
tækjum við líka inn um 1 g af þara-
mjöli sem er steinefnaríkt, þá væri
1 tafla af B-fjölvítamíni og svo 400
A. E. af E vítamíni líka gott. C-
vítamín er öllum lífsnauðsynlegt,
minnst 1-2 g. Þessi bætiefni daglega
gætu örugglega bætt heilsu margra
okkar eldri og yngri hérlendis líka.
PÁLMI STEFÁNSSON,
efnaverkfræðingur.
Öldrunarsérfræð-
ingarnir og bætiefnin
Frá Pálma Stefánssyni