Morgunblaðið - 24.04.2013, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Þegar maður fær
sér hund er ætlast til
þess að skrá hann.
Er það vel og ekkert
út á það að setja.
Sjálfsagt er að hund-
ur sem fylgir fjöl-
skyldu sé skráður og
fylgt þeim reglum
sem skráning til-
tekur. Ætlast er til
að hundar séu orm-
ahreinsaðir árlega.
Hvolpar séu bólusettir tvisvar til
þrisvar fyrsta árið, árlega næstu
tvö og eftir það annað hvert ár.
Margt fólk er ómeðvitað um þá
félagslegu og tilfinningalegu þörf
sem hundur hefur. Oft er tekinn
hvolpur og síðar þegar honum
þarf að sinna er hann gefinn á
annað heimili. Sumir hundar fara
þannig á eigendaflakk. Heyrst
hefur sú ágiskun að 40% hvolpa
sem fá nýtt heimili lendi á eig-
endaflakki. Sé fólki settar reglur
um hundahald og hvatt til að
sækja til þjónustu fagaðila, gæti
það vakið marga til meðvitundar
um ábyrgð gagnvart dýrum sínum
og er það vel.
Skráningu fylgir sú kvöð að eig-
andi hunds athugi sína grennd.
Ekki má hafa hund í fjölbýli þar
sem allar íbúðir nota sama stiga-
gang. Í Reykjavík er sveigjanleiki
gagnvart fjölbýli ef allar íbúðir
hafa sérinngang. Á Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæði er einnig
sveigjanleiki en íbúar í grennd
hafa málsrétt. Í parhúsum á síð-
arnefnda svæðinu þarf eigandi
hunds einnig að athuga hvort
næsti granni sé sáttur við hund-
inn. Heilbrigðiseftirlit téðra bæj-
arfélaga setja reglur um hvaða
hundar fá samþykki og hver ekki.
Reglur annarra bæjarfélaga lands-
ins eru mismunandi. Matís hefur
reglur um hvaða tegundir sé
bannað að flytja inn.
Þegar hundur er fyrst skráður, í
fyrrgreind bæjarfélög þarf að
greiða skráningargjald. Framvísa
þarf staðfestingu frá dýralækni
um að hundurinn hafi fengið þá
þjónustu sem hundaskráning
krefst. Skráningargjald er ein-
kvætt en jafnframt á
að greiða skoð-
unargjald eða árgjald.
Þannig er fyrsta árið
tvöfaldur kostnaður
en eftir það, svo lengi
sem hundurinn lifir og
fylgir sama eiganda,
er greitt einfalt ár-
gjald.
Nú kemur til kast-
anna afsláttur af ár-
gjaldi. Fari hundaeig-
andi til viðurkennds
hundaskóla og sæki
þar hlýðninámskeið,
sem ljúki með viðurkenndu prófi,
fær hann afslátt af árgjaldinu.
Heilbrigðiseftirlit gefur út lista yf-
ir viðurkennda hundaskóla sem
fólk getur leitað til um námskeið.
Afsláttur af árgjaldi er yfirleitt
helmingur eða 50%.
Stór og vaxandi hluti hunda-
þjálfara hérlendis er ósáttur við
þetta fyrirkomulag. Menn eru þó
sáttir við afsláttinn. Viðhorf
hundaþjálfara er að hundar og
hundaeigendur hafi hag af að
sækja í þekkingu t.d. í formi nám-
skeiða. Sú þekking veki til ábyrgð-
ar um velferð dýrsins og enn-
fremur stuðli að öryggi fyrir börn,
hunda og mannfólk, í þessari röð.
Röðinni er stillt þannig upp því
ljóst er að visst hlutfall þeirra
hunda sem eru líflátnir fyrir bit
brást í raun við áreiti sem þeir
óttuðust en höfðu ekki tök á að
ráða sér hundalögfræðing.
Hvers vegna eru þá hundaþjálf-
arar ósáttir? Á Íslandi er stór og
ört vaxandi fjöldi hópa sem kenna
hundaþjálfun af öllu tagi og stund-
ar hana reglulega. Í öllum þessum
klúbbum eru til staðar leiðbein-
endur sem hafa leitað sér þekk-
ingar og reynslu i leiðsögn, þjálf-
un, atferli, vandagreiningu ásamt
úrlausnum fyrir hunda og eig-
endur þeirra. Í sumum tilfellum
hafa þeir sótt námskeið erlendis, í
öðrum tilfellum hérlendis og í enn
öðrum leitað uppi hvíslara og
reynslubolta til að leiðbeina sér og
svara erfiðum spurningum. Margt
þetta fólk býr yfir þekkingu sem
lítið er ritað um, en er hluti
reynsluheims þeirra sem taka
dýratamningar alvarlega.
Heilbrigðiseftirlit viðurkennir
nær engan af þessum hópum, utan
örfárra takmarka. Er það vel,
enda hlutverk eftirlitsins að fram-
fylgja reglum, setja reglur og
stuðla að öryggi manna og dýra.
Heilbrigðiseftirlitin eru mönnuð
vandvirku fólki sem tekur ábyrgð
sína alvarlega. Hér eru þrjár
brotalamir sem mismuna:
Það er menntamálaráðuneytis
að skilgreina hver sé hæfur leið-
beinandi og hver ekki.
2. Það er varasamt að sam-
þykkja prófútskrift frá einkaskóla
sem hefur tvíþættan hag af því að
yfir 80% nemenda útskrifist.
3. Heilbrigðiseftirlitin hafa lítt
skilgreindar kröfur til þeirra prófa
sem hundur – og eigandi hans –
skuli standast.
Hér er þessum þrem þáttum
varpað fram í þeirri von að vekja
megi dálitla umhugsun og jafnvel
umræðu. Á höfuðborgarsvæðinu
býr sívaxandi hópur sem stæðist
mun fleiri próf en hlýðnipróf.
Hundar sem búa á heimilum eig-
enda sem þekkingarlega gætu
kennt hlýðninámskeið, vegna
reynslu sinnar úr þjálfun vinnu-
hunda, leitarþjálfunar, hundafimi,
fjársmölun, sleðahunda og efna-
leitarhunda.
Til er sanngirnisleið gagnvart
öllum hundum. Hún er vinsæl í sí-
fellt fleiri borgum erlendis og er
afar einföld. Skilgreint er próf á
vegum eftirlitsins, og greiða þarf
kostnað af prófinu. Það mætti
halda ársfjórðungslega og væri
staðlað. Hundaeigandi sem sækja
vill um afslátt árgjalds þarf að
standast þetta próf. Hvert próf-
taki leitar til að undirbúa sitt próf
væri þá hans mál.
Að mismuna hundafólki
Eftir Guðjón Elías
Ívarsson » Á tuttugu árum hef-
ur hundaeign
margfaldast. Viðhorf
fólks að hundar ættu
aðeins heima í sveit
hefur gjörbreyst. Kerf-
ið er þó svifaseinna.
Guðjón Elías
Ívarsson
Höfundur er leiðbeinandi
hjá hundasport.is
Löggæsla er frum-
skylda hins opinbera.
Talið er að lögregla sé
elsta borgaralega
stofnunin og víða um
heim er heiti lögreglu
dregið af gríska orðinu
polis, sem notað var
um borgríki í Grikk-
landi til forna.
Hlutverk lögreglu
er að halda uppi alls-
herjarreglu, stemma
stigu við afbrotum og greiða götu
borgaranna. Þjónusta lögreglunnar
er almennt góð í Reykjavík og nýtur
hún mikils og verðskuldaðs trausts
almennings.
Mjög reyndi á fámennt lögreglulið
höfuðborgarsvæðisins í end-
urteknum óeirðum í Miðbænum vet-
urinn 2008-09. Þótt flestir mótmæl-
endur færu með friði, var sá hópur
ótrúlega stór og harðskeyttur, sem
réðst að lögregluþjónum með grjót-
kasti og líkamlegu ofbeldi. Nokkrir
lögregluþjónar urðu fyrir líkams-
tjóni og í a.m.k. einu tilviki fyrir
gangstéttarhellum. Eldur var bor-
inn að Alþingishúsinu og tókst á síð-
ustu stundu að koma í veg fyrir að
hann kæmist í eldfima innviði þess.
Lögreglan stóð sig ótrúlega vel og
hélt velli við þessar erfiðu aðstæður
með lagni, snarræði og fagmennsku.
Segir það sína sögu um traust lög-
reglunnar að þegar verst horfði kom
hópur friðsamra mótmælenda og
stöðvaði ofbeldismenn, sem létu
grjótið dynja á fáliðaðri lög-
reglusveit.
Allir ættu að lesa „Búsáhaldabylt-
inguna“, fróðlega bók Stefáns Gunn-
ars Sveinssonar sagnfræðings um
þessa atburði.
Eflum forvarnir
Borgarfulltrúar fá í störfum sín-
um margar ábendingar og at-
hugasemdir frá borgarbúum um það
sem betur mætti fara í löggæslu- og
öryggismálum. Við úrlausn marg-
víslegra viðfangsefna er samvinna
lögreglunnar og borgarinnar nauð-
synleg ef hámarksárangur á að nást,
t.d. í forvarnarstarfi en það verður
að efla.
Í ljósi mikilvægis lögreglunnar
fyrir borgarbúa er æskilegt að gott
samstarf og greið sam-
skipti séu ætíð á milli
borgarstjórnar og lög-
regluyfirvalda. Sam-
starfið á milli þessara
tveggja stofnana hefur
ætíð verið gott en það
má enn bæta, almenn-
ingi til hagsbóta.
Á síðasta borg-
arstjórnarfundi var
tekin fyrir tillaga Sjálf-
stæðisflokksins um að
komið verði á fót sam-
starfsnefnd lögreglu og
Reykjavíkurborgar um löggæslu-
málefni. Nefndin verði vettvangur
fyrir samskipti og samstarf lögregl-
unnar og Reykjavíkurborgar og geri
tillögur um úrbætur í málefnum er
varða löggæslu í borginni. Tillagan
hlaut jákvæðar undirtektir á fund-
inum og samþykkt var einróma að
vísa henni til frekari umfjöllunar
borgarráðs.
Slík nefnd gæti tekið fyrir tillögur
um úrbætur í forvarnarmálum og
önnur málefni er varða löggæslu í
borginni. Síðast en ekki síst gæti
nefndin staðið fyrir opnum fundum
um löggæslumál í Reykjavík og unn-
ið úr ábendingum frá almenningi,
sem fram kæmu á þeim.
Um áratuga skeið var slík sam-
starfsnefnd lögreglunnar og Reykja-
víkurborgar starfandi en hún var
lögð niður árið 2007 í tengslum við
breytingar á lögregluumdæmum.
Samstarfið í nefndinni var ætíð gott
og brást lögreglan yfirleitt mjög vel
við ábendingum, sem fram komu á
fundum hennar. Slíkan vettvang fyr-
ir bein samskipti milli hennar og
borgarfulltrúa hefur vantað und-
anfarin ár og er nú tækifæri til að
bæta úr því. Aukin upplýsinga-
miðlun milli Reykjavíkurborgar og
lögreglunnar mun án efa skapa ný
sóknarfæri við að bæta þjónustu við
borgarbúa á þessu sviði.
Lög og regla
Eftir Kjartan
Magnússon
Kjartan
Magnússon
» Bæta má þjónustu
við almenning með
auknu samráði milli lög-
reglunnar og Reykja-
víkurborgar.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Byggingav
örur - byg
gingatækn
i
I I
Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Asaki VERKFÆRI
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890,-
ALM18DD 18V höggborvél
Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
41.890,-
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890,-
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890,-
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah / 38Nm
39.990,-
ATH:Tvær rafhlöður,
taska og hraðvirkt
hleðslutæki fylgir
hverri hleðsluvél!
***** 5 stjörnu verkfæri
AV245 900W Brothamar
45mm 5,3Kg
21.900,-
Kletthálsi Reykjav.
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
AV224 620W höggborvél
SDS & herðslupatróna
13.900,-
Aukablað alla
þriðjudaga