Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. ODORITE ÖRVERUHREINSIR MILDEX-Q MYGLUEYÐIR WIPE OUT OFNA OG GRILLHREINSIR NOVADAN KLÓRTÖFLUR - Í POTTINN SEPT-O-AID ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR HÁÞRÝSTIDÆLUR ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM. KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! Fyrir nokkru skrif- aði Jóhanna hverja lofræðuna á fætur annarri í Fréttablaðið, um hvernig hún og hennar ríkisstjórn hafa tekið á skulda- vanda heimilanna. Þó svo að það hafi ekki mikið farið fyrir henni að undanförnu, nema þá þessi fíni tolla- samningur við Kína, þá langar mig að þakka henni fyrir. Við hjónin keyptum okkur íbúð árið 2007, sem kostaði þá 34 millj- ónir. Við tókum 19 milljóna lán hjá Íbúðalánasjóði og að sjálfsögðu tókum við verðtryggt lán enda öruggasta leiðin og skynsamleg- asta. Fljótlega hækkaði lánið svo ört að gjöldin voru orðinn hærri heldur en tekjurnar, en við vorum svo heppin að eiga viðbótarlífeyri til þess að borga og standa í skil- um, auk þess fékk ég arð frá for- eldrum mínum. Það gekk stöðugt á inneign okkar sem átti að notast í framtíðinni, því sá ég þann eina kost í stöðunni að skipta um vinnu með hærri tekjum. Alla tíð var mér kennt það að heiðarleiki skili sér alltaf best. Alltaf að standa í skilum og koma hreint fram. Í dag stendur lánið í 31,5 millj. og við erum enn að borga og standa í skilum. Nú eigum við ekkert í íbúðinni. Það er skrítið að vera í þessari stöðu. Þetta er eins og að reyna að fara upp stiga, en detta alltaf niður. Maður er hálfdofinn og sér ekki fyrir endann á þessu ástandi. Svo veltir maður upp fortíðinni í sífellu og hugsar: „Því keypti ég þessa íbúð?“ Jú, ábyrgðin er okkar, því við ákváðum að kaupa hana, en ekki datt okkur í hug að þetta færi svona. Hefðum við verið í fyrri íbúðinni og notað arðinn og hugs- anlega viðbótarlífeyrinn til þess að greiða lánið á þeirri íbúð, þá vær- um við skuldlaus. Ekki það að við værum að spenna bogann við kaup á nýrri íbúð. Ekki tókum við 80% eða 100% lán! Ekki tókum við erlent lán (sem hefði verið skyn- samlegra!). Einnig átt- um við skuldlausan bíl. Þessu má líkja við að vera í afneitun. Maður kaupir eins ódýrt og hægt er, fer með flöskur og til- heyrandi í end- urvinnsluna til þess að kroppa smá pening. Kaupir sama sem engan fatnað, nema þó aðeins á börnin. Jú, jú, það er hægt að spara ein- hverjar krónur með þessu, en af- neitunin felst í því að þetta eru smáaurar. Þótt við gerum allt rétt (eða teljum okkur gera það) þá rétt náum við að láta þetta ganga upp, en ég veit ekki hve lengi. Svo talaði ég við bankann minn um daginn og spurði álits og fékk þessi svör: „Þið eruð að gera allt rétt, en við getum ekkert gert fyrir ykkur af því að þið standið í skilum.“ Frumvarpinu sem Lilja Mós- esdóttir lagði upphaflega fram eða „Lyklafrumvarpinu“ á vorþingi 2010 var hafnað og umræðan í fjöl- miðlum var á þann hátt að „ríka fólkið“ gæti losað sig undan skulda- bagga. Mér leiðast svona umræður, því í mínu tilfelli, a.m.k., þá hef ég aldrei verið „ríkur“ nema þó að eiga 2 börn. Núna er þetta sama frumvarp í kosningaloforðum bæði sjálfstæðismanna og framsókn- armanna. Þetta myndi henta okkur til þess að losa okkur úr þessum vandræðum þó svo að ég sé ekki að kaupa þetta loforð, þá óneitanlega langar mig að trúa þessu. Og þó svo að ég hafi yfirleitt verið hlið- hollari sjálfstæðismönnum, þá var ég einn þeirra sem kenndu þeim um hrunið og gekk úr flokknum eftir hrun. Ég fór einnig niður á Austurvöll og mótmælti bæði rík- isstjórn Geirs Haarde og Jóhönnu, en það var þó merkilegt að færri komu í seinna skiptið. Það var eins og málin væru leyst. Ég skal reyndar viðurkenna að þegar vinstri flokkarnir mynduðu rík- istjórn, þá hugsaði ég: „Já, nú verður eitthvað gert“. Athyglisvert að skoða reiknivél Velferðarráðuneytis um húsa- leigubætur, að ef greiddar eru 150 þús. í leigu á mánuði og heildar- tekjur hjóna eru 7 milljónir, þá eru bæturnar á mánuði: 12.385 (miðað við tvö börn). Fyrir utan það eru engin fasteignagjöld, hússjóður eða hitakostnaður. Ég hef skoðað þetta með því hugarfari að það sé ódýr- ara að leigja, heldur en þessi staða sem við erum í, því við erum að borga 154.200 í lán á mánuði, 22.859 í fasteignagjöld (reyndar í 10 mánuði), 4000 í hússjóð og 10.000 í hita. Einnig má nefna það að það eru engar „12.385 krónur“ á mánuði sem ég get dregið frá. Þó svo að við fáum vaxtabætur í lok júlí, þá koma þær alltof seint! Ég er 43 ára og er búinn með allan viðbótarlífeyrinn minn ásamt konu minnar og einnig arðinn frá foreldrum mínum. Ég hef unnið frá því að ég man eftir mér, sem væri í daglegum skilningi kallað barna- þrælkun. Við eigum ekkert, engan viðbótarlífeyri. Við munum sjá fram á það að geta ekki borgað af húsinu eftir árið, nema þessi vandamál verði leyst. Það eru örugglega fleiri í þessari stöðu eins og við. Þakkir til Jóhönnu forsætisráðherra fyrir skuldavanda heimilanna Eftir Guðmund Guðmundsson » Það er skrítið að vera í þessari stöðu. Þetta er eins og að reyna að fara upp stiga, en detta alltaf niður. Maður er hálfdofinn. Guðmundur Guðmundsson Höfundur er kerfisstjóri. Vandi heilbrigð- iskerfisins er umtal- aður og ein tillaga að lausn fær mesta at- hygli, nýr Landspít- ali. Mér sýnist hún nálgast takmarkaðan hluta vandans og frá þröngu sjónarhorni. Bent er á að spít- alinn, hornsteinn heilbrigðisþjónust- unnar, búi við þrengsli, gangalegur sjúklinga, lé- lega starfsaðstöðu fagfólks, ónýta glugga, myglu o.fl. – réttilega er kallað á úrbætur. Bygging- aráformin eru risavaxin og líkleg til að gleypa stærstan hluta fjár- veitinga til heilbrigðisþjónustu um árabil og Seðlabankinn hefur haft efasemdir um réttmæti þeirra. Landspítalinn er vissulega sá horn- steinn sem um er rætt og hann þarf að laga. Með heildarhagsmuni í huga verður að gaumgæfa rétt- mæti slíkrar framkvæmdar og á byggingarstað þykir góð regla að klára traustan grunn áður en lagð- ur er hornsteinn. Hver er sá grunnur, hefur hann verið byggður og til hans vandað? Almennur skilningur á lögum um heilbrigð- isþjónustu er að heilsugæslan skuli að jafnaði vera fyrsti viðkomu- staður fólks í kerfinu. Hún er því hluti grunnsins undir hornsteininn stóra og var ásamt fleiru í grunn- þjónustu aldrei fullbyggð og er að auki farin að láta á sjá. Heilsu- gæslan var mest byggð upp á 8. og 9. áratug síðustu aldar, úti á landi af myndugleik, en síður í borginni, svo á hana hefur hallað. Samtímis hafa pólitískar aðgerðir, eða frem- ur aðgerðaleysi, orðið til þess að sérfræðileg læknisþjónusta utan sjúkrahúsa hefur nær eingöngu byggst upp í höfuðborginni. Afleið- ingarnar samkvæmt Boston Con- sulting Group (BCG) eru þær að aðgengi að sérfræðilæknum er nánast ótakmarkað en aðgengi að heimilislæknum er áhyggjuefni víða. Sérfræðiþjónusta er dýrari fyrir fólk úti á landi vegna reglna um þátttöku almannatrygginga í ferðakostnaði. Vanmáttug og nið- urskorin heilsugæslan annar ekki verkefnum sínum en á sama tíma hefur opinber kostnaður vegna sjálfstæðrar sérfræðiþjónustu auk- ist jafnt og þétt frá hruni sam- kvæmt BCG. Í gildi hefur verið sú meginregla að heimilislæknar mega ekki opna sjálfstæðan rekst- ur, þ.e. læknar sem hafa sér- menntað sig í að sinna grunnþjón- ustu mega einir allra lækna ekki gera það sjálfstætt starfandi. Þrá- földum ábendingum um að sál- fræðiþjónusta verði hluti grunn- þjónustu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. Horfumst í augu við að vandi heilbrigðiskerfisins er mun eldri en efnahagshrun 2008 og að hluti hans er vegna stefnuleysis í skipu- lagi. Yfirvöld hafa ekki sinnt við- haldi og þróun grunnþjónustu sem skyldi og vaxandi hluta verkefna hennar er sinnt á dýrari þjón- ustustigum, m.a. bráðamóttökum Landspítalans. Þar er árlega sinnt þúsundum erinda, sem eðlilega uppbyggð heilsugæsla gæti gert. Spyrja þarf hverjar eru brýnustu fjárfest- ingar næstu 5-10 árin til að bæta heilbrigð- isþjónustuna; efni hennar (hús og tæki), atgervi (fagfólk) og skipulag (pólitísk stefna og umgjörð). Engum dylst að byggja þarf nýtt sjúkrahús í Reykjavík, þjóð- arsjúkrahús, en það þarf að setja í heildar- samhengi. Hundrað milljarðar í eitt verkefni ógna fjár- festingu í öðrum þáttum kerfisins og þar með undirstöðum og inn- viðum spítalans sjálfs, sem og þeim jöfnuði sem lög um heilbrigðisþjón- ustu boða. Innan spítalans efast ýmsir um réttmæti framkvæmdar- innar þó ekki fari það hátt. Páll Torfi Önundarson, prófessor í blóð- meinafræði, hefur kynnt hug- myndir um smærri áfanga til upp- byggingar spítalans. Slíkt ber að skoða því fjárfesta þarf í mörgu öðru en steypu, s.s tækjum og kjörum starfsfólksins. Ekki bara hinna mest menntuðu, heldur í anda nýs gildismats sem við rædd- um svo mikið eftir hrunið, að bæta kjör umönnunarstétta. Það er í takt við tal allra stjórnmálaafla um að afmá kynjatengdan launamun. Uppbygging spítalans í áföngum leyfir fjárfestingar í grunnþjón- ustu, sem er ekki síður þarft. Brýn verkefni þar eru t.d.; að tryggja nýliðun heimilislækna, gera sál- fræðinga að föstum mannafla heilsugæslu, efla endurhæfingu (sjúkra-, iðju- og talþjálfun), hækka laun samanber fram- angreint, endurskipuleggja sér- fræðiþjónustu, efla almenna hjúkr- unarþjónustu og líknarþjónustu við lífslok, efla Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sem hlekk í almanna- vörnum og sjúkraflugi landsins, styrkja sjúkraflutninga á lands- byggðinni og stuðla að sérnámi í héraðslækningum (rural medicine) við Háskólann á Akureyri. Enn- fremur þarf að líta til þátta sem al- mennt eru ekki taldir hlekkir í heilbrigðisþjónustu s.s. jarðganga, sem í nánustu framtíð eru án efa meðal brýnustu fjárfestinga til að tryggja lögboðna heilbrigðis- og öryggisþjónustu í dreifbýli. Gerum heilbrigðisþjónustuna alla að kosningamáli. Við þurfum nýjan Landspítala, en höfum við siðferðis- og fjárhagsleg efni á því bákni sem um er rætt og leyfir slík framkvæmd að fjárfest verði sam- hliða í grunnþjónustu, sem ekki er síður brýnt? Ég held ekki og tek undir sjónarmið um uppbyggingu spítalans í smærri áföngum til að geta um leið styrkt aðra þætti þjónustunnar. Einblínum ekki á hornsteininn einan, heldur styrkj- um líka grunn, innviði og umgjörð þjónustunnar. Kjósum það! Traustur grunnur, hornsteinn, inn- viðir og umgjörð Eftir Pétur Heimisson Pétur Heimisson » Við þurfum nýjan Landspítala, en höf- um við siðferðis- og fjár- hagsleg efni á því bákni sem um er rætt... Höfundur er heimilislæknir á Egilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.