Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐANKosningar 2013 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Frestur til að skila inn greinum er tengjast alþingiskosningunum rennur út í dag, miðvikudag. Hámarks- lengd greina er 3.000 slög með bilum. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að stytta greinar sem berast eftir þann tíma og vísa í lengri útgáfu á kosningavef mbl.is. mbl.is/kosningar. Alþingiskosningar Nýlega hlustaði ég á viðtal við Evu Joly. Hún hélt því fram að óprúttnir bankamenn og braskarar væru enn ósvífnari í „fjársýslu“ sinni, en fyrir hið svokallaða hrun. „Aðgerðir“ ríkisstjórna væru tómt fúsk. Arðrán og auð- söfnun væri á fullu, sem aldrei fyrr. Þó hún nefndi ekki Ísland á nafn, er öllum ljóst að hér þekkir hún vel til mála. Hún spáði skipu- lögðum efnahagshörmungum (aðeins fyrir al- menning auðvitað!) um allan heim, innan ekki langs tíma. Glæpir alla daga Á Íslandi eru vinnubrögð glæfragengjanna augljós. Með ómeðvitaðri (?) hjálp vonlausra embættis- og stjórn- málamanna er rányrkjan á fullu. Seðlabankinn keypti nýlega gjaldeyri samkvæmt samningum uppá sex þús- und milljónir króna. Peningarnir eru teknir að láni á okkar kostnað, á okkar ábyrgð. Þó Seðlabankinn hafi ekki birt hverjir áttu í þessum viðskiptum er augljóst að hér var aðallega á ferðinni gjaldeyrir, sem tekinn var út úr bönkum og fyrirtækjum, með vafasömum hætti rétt fyrir hrun. Ekki komu þessir aðilar með stolinn feng sinn til baka fyrr en þeir fengu greitt 20% hærra verð fyrir gjaldeyrinn, en skráð gengi dagsins. Þessir illa fengnu peningar eru síðan nýttir til að hirða upp íbúðir og fyr- irtæki af fólki í vandræðum. Í vandræðum vegna gjörða þessara sömu aðila! Skipulögð glæpastarfsemi? Afskriftir bankanna eru einnig sérkennilegar. Hundr- uð milljarða króna eru afskrifuð hjá aðilum sem voru fremstir í glæfralegum fjárfestingum. Góð- mennska? Nei, það er til að lækka skatt- greiðslur fjármálastofnana, skattgreiðslur, sem blasa við eftir hundraða milljarða króna gróða bankanna. Bankarnir halda veðum sín- um í „nýjum“ fyrirtækjum, greiða lægri skatta og geta óhindrað áfram drottnað yfir auðlindum og allri framleiðslu. Ný kennitala. Sama spillingin. Enginn munur er á vinnu- brögðum bankanna, fyrir eða eftir árið 2008. Verri, ef eitthvað er. Að greiða okurvexti með „vaxtabótum“ Aumkunarverð viðbrögð stjórnmálanna eru fólgin í því að innleiða svokallaðar „vaxtabæt- ur“. Greiða úr sameiginlegum sjóðum okkar til fólks, „bætur“ til að greiða bönkunum okurvexti þeirra. Hvernig má það vera að almenningur sé skattlagður til þess eins að fólk geti greitt okurvexti? Ofurháa vexti til banka, sem skila hundruðum milljarða í hagnað, þrátt fyrir himinháar afskriftir hjá vinum og vandamönnum? Hér eru ekki einungis maðkar í mysunni, heldur einnig sníklar í stjórnkerfinu á ferð. Eru þingmenn söluvara? Enginn frambjóðandi hefur boðað uppstokkun á þess- ari sjálfvirku spillingu. Enginn hefur sagt hreint út hvað þurfi að gera. Er það þannig, að hin illu öfl séu svo öflug að enginn þori að hrófla við þeim? Eða eru allir að bíða eftir sínum bita af kökunni? Langar þig í bita, frambjóð- andi góður? Sé það svo, – verði ykkur að góðu. Tilvonandi þingmaður: Hvert stefnir þú? Eftir Sigurjón Benediktsson Sigurjón Benediktsson Höfundur er tannlæknir. Alþingi samþykkti með þingsályktun hinn 16. júlí 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Nú, tæpum fjórum árum síðar, liggur fyrir að umsóknarferli Íslands að ESB verður ekki fram haldið nema vikið sé í verulegum atriðum frá þeim meginhagsmunum sem Al- þingi setti sem skilyrði fyrir samþykkt ályktunarinnar. Ríkisstjórnin hefur ekki lengur umboð Alþingis til að halda áfram og við teljum jafnframt brýnt að ekki verði gengið að nýju til við- ræðna við ESB nema að und- angenginni þjóðaratkvæðagreiðslu sem staðfestir vilja þjóðarinnar til aðildar Íslands að sambandinu. Allt viðræðuferlið lýtur algerlega geðþótta ESB og regluverki þess. Það eru því helber ósannindi, sett fram gegn betri vitund, að við séum í samningaviðræðum við ESB. Fyrirfram aðlögun Krafist er fyrirfram aðlögunar íslenskrar stjórnsýslu og stofnana að ESB. Okkur stendur til boða innlimun í óbreytt regluverk ESB, ekkert annað. Það hafa æðstu tals- menn ESB staðfest. Allt regluverk ESB verður þegar bundið í lög á Íslandi, verði fram- hald á þessari ógæfuför, áður en kemur til hugsanlegrar þjóð- aratkvæðagreiðslu um innlimun. Framsal á fullveldi og einhliða kröfur og skilyrði sem ESB hefur sett í viðræðunum eru með öllu óá- sættanleg fyrir íslenska hagsmuni og fullveldi okkar. Við verðum meðal annars að gefa eftir forræði á fiskveiðilögsögunni utan 12 mílna, sjálfsákvörðunarrétt gagnvart deilistofnum, hagsmunum okkar á norðurslóðum og auðlind- um okkar almennt til lands og sjáv- ar, landbúnaði og fæðu- og mat- vælaöryggi svo eitthvað sé nefnt. Með peningagjöfum, sex millj- örðum, sem stýrt er frá Brussel, er kominn fram ásetningur um að hafa áhrif á afstöðu Íslendinga til ESB- aðildar og um leið á almenna skoð- anamyndun í landinu. Borið fé í dóm þjóðarinnar Beinn og óbeinn kostnaður Ís- lands við ESB-umsóknina mun nema mun hærri fjárhæð verði inn- limunarviðræðum fram haldið. Nú þegar hleypur kostnaðurinn á millj- örðum og við munum sem auðug þjóð ávallt greiða meira til við- skipta- og markaðshyggjublokkar ESB en hún greiðir á móti. Við minnum á makríldeiluna og áform og hótanir Evrópusambands- ins í garð Íslendinga um við- skiptaþvinganir, samtímis því sem aðildarviðræður standa yfir. Sýna þær hótanir best hvernig þetta ríkjasamband beitir sér gegn smá- ríki eins og Íslandi. Samningur ríkisstjórnarinnar um Icesave var skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar. ESB var málsaðili og ákærandi gegn Íslandi í Icesave-málinu fyrir EFTA- dómstólnum. Við í Regnboganum krefjumst þess sem alþjóðasinnar að umsókn- in um aðild að ESB verði aft- urkölluð þegar í stað. Kjósum gegn áframhaldandi innlimunarvið- ræðum í alþingiskosningunum 27. apríl 2013. Regnboginn er eina framboðið sem sett hefur andstöðu við ESB í algeran forgang, enda er fullveldi og sjálfstæði Íslands í húfi. Stöðvum innlimunar- viðræður ESB Eftir Atla Gíslason og Jón Bjarnason Atli Gíslason Höfundar eru alþingismenn og í framboði fyrir Regnbogann fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbæra þróun. Jón Bjarnason Margir sem fylgjast með þjóðmálum telja að auðlindir þjóð- arinnar, þar með fisk- veiðirétturinn, hafi ver- ið eitt helsta átakamál kjörtímabilsins. Þar hafa unnist sigrar, svo sem skötuselur, strandveiðar og veiði- gjaldshækkun. Að auki staðfestu yfir 80% vilja til þess í þjóð- aratkvæðagreiðslu að þjóðareign auðlinda kæmist í stjórnarskrána. Það mistókst í málþófi á Alþingi og nú eru skuldir, eilífðarmál margra heimila, i brennipunkti kosning- anna. Umrótið er slíkt að auðlind- irnar komast ekki á blað, risavaxin kosningaloforð yfirtaka sviðið. Er mögulegt að ræna völdum hér? Víða og oft hefur völdum verið rænt, en menn hefur skort hugar- flug til að sjá það gerast að einn stærsti flokkur landsins, Sjálf- stæðisflokkurinn, sem nú gengur óklofinn til kosninga, yrði fórn- arlambið. Að auki er skammt liðið frá því að Landsfundur kaus Bjarna Benediktsson formann með 79% atkvæða og jafnframt er stutt til kosninga. Menn litu svo á að Evrópusambandsaðild með göllum og möguleikum yrði næstu misseri helsta átakamálið. Eðli rána er að þau gerast fyrir opnum tjöld- um. Kynningarþátt Rík- issjónvarpsins að kvöldi 11. apríl 2013, For- ystusætið, má telja ráns- vettvanginn. Þar var Bjarni formaður næst því að segja af sér, svo ná- lægt að margir töldu að ekki yrði aftur snúið. Ránstækin voru skoðanakannanir, einkum skoðanakönnum Viðskiptablaðsins, sem beint var gegn Bjarna og birt þennan sama dag. Bjarni taldi að öfl innan Sjálfstæðisflokksins með ritstjóra Viðskiptablaðsins og fyrr- um kosningastjóra varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, hefðu staðið fyrir aðgerðunum. Bjarni klykkti svo út með því í Forystusætinu að hann mundi tilkynna af eða á um afsögn sína fljótlega. Umræður um stefnumál féllu að mestu niður i þættinum. Það var svo á fundi sjálfstæðis- manna í Garðabæ að morgni 13. apríl sem Bjarni tilkynnti áfram- hald formennsku sinnar við mikinn fögnuð fundarmanna. Menn þurfa því að vera við öllu búnir! Var reynt að ræna D-listanum? Eftir Tómas Gunnarsson Tómas Gunnarsson Höfundur er lögfræðingur. Hefði nú Alþýðufylkingin verið til haustið 2008 – hefði það einhverju breytt? Já, ég held það. Auðvitað hefði það ekki komið í veg fyrir hrunið, en það hefði getað breytt viðbrögðum fólks við því. Gamall félagi minn sagði: Þarna gerðist það sem við höfðum alltaf spáð. En við höfð- um ekki samtök til að skýra það fyrir almenn- ingi. Íslenska auðvaldið hrundi og nokkrir bófar stálu milljörðum frá íslenskum almenningi. Hver urðu viðbrögðin? Alger glundroði og fólk var ráðvillt. Hefði marxískur flokkur þá verið til, hefði hann getað bent á samhengið, og margir hefðu skil- ið það. Auðvitað hefði ekki orðið bylting, en fjöldi manns hefði áttað sig og getað brugðist við á þann hátt að beita sér fyrir hagsmunum sínum, alþýðuhag. Komandi kosn- ingar sýna nú enn einu sinni að fólk leitar í allar áttir, varla er fyrir nokkurn mann að átta sig á muninum á öll- um þessum framboðum. Ég studdi Vinstri græna meðan ekki bauðst betra. Sá- róánægður var ég samt, því þótt núverandi ríkisstjórn sé sú besta sem ég man eftir, þá hafði hún ekki styrk né stefnufestu til að gera betur en hún gerði. Auðvitað gat hún ekki annað en endurreist auðvaldskerfið. Það er ekki hægt að gera byltingu frá Alþingishúsinu við Aust- urvöll, því bylting er að alþýðan taki sjálf völdin. Og þeg- ar VG var stofnað, réð varkárnin og löngun til að hafa sem flesta með, svo ekki var einu sinni minnst á sósíal- isma í stefnuskránni. Hvað þá að á nokkurn hátt væri unnið í þá átt. Í staðinn vildi flokk- urinn efla smáfyrirtæki! Eins og mögulegt væri að festa auðvaldið á tilteknu, frumstæðu þróunarstigi. Nei, frjáls samkeppni leiðir auð- vitað til þess að sumir sigra, og aðrir tapa. Þeir sem sigra þenjast út og gleypa taparana. Auðvaldskerfinu fylgir að sífellt skiptast á þensluskeið þar sem náttúruauðlindum er só- að til að framleiða fleiri vörur en hægt er að selja, eða verra, vopnaframleiðslu og mútur til herforingja smáríkja til að kaupa þau. Síðan koma kreppur með miklu atvinnuleysi og skorti. Kratar þykjast geta bætt úr þessu með umbótum á auðvaldskerfinu, en það hefur margsýnt sig, t.d. nú í Danmörku, að í kreppu verða þeir fyrstir allra til að skera niður alla sigurvinninga alþýðu undir þenslu- skeiði. Í staðinn hygla þeir fyrirtækjum með skattaíviln- unum og öðru þvílíku. Það vantaði flokk sem gat bent á valkost við þetta kerfi, þar sem þeir fá völd sem kunna að græða peninga, en ekki þeir sem kunna að leika á hljóðfæri, semja skáld- verk, mála myndir, og á annan hátt gera lífið auðugra og fegurra fyrir alþjóð. Nú höfum við loksins fengið flokk sem bendir á valkost við auðvaldið. Alþýðufylkingunni er ekki spáð að fá þingmann kjör- inn nú, svo skömmu eftir stofnun hennar. En það skiptir minnstu máli. Meginatriðið er hitt, að bera fram stefn- una og safna liði um hana. Styðjum Alþýðufylkinguna! Alþýðufylkingin Eftir Örn Ólafsson Örn Ólafsson Höfundur er bókmenntafræðingur í Kaupmannahöfn. Næstkomandi laugardag eiga íbúar í NV kost á að eignast nýjan þingmann, Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur. Eyrún er ein af þessum kjarnorkukonum sem hafa sýnt það með störfum sínum að á þær má treysta í flóknum og erfiðum málum. Eyrún er við- skiptafræðingur að mennt, hefur stýrt Tálkna- firði um árabil sem sveitarstjóri, komið að rekstri útgerðar, ásamt því að reka barnmargt heimili. Eyrún er keppnismanneskja, afreks- kona í íþróttum og alin upp í Vestmannaeyjum þar sem menn kalla ekki allt ömmu sína. Ey- rún hefur unnið ötullega að hagsmunum síns samfélags og hagsmuna NV-kjördæmis. Hún situr í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga, í stjórn Orkubús Vest- fjarða og hefur verið varaþingmaður kjördæm- isins undanfarin 4 ár og setið í samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga undanfarin ár og hefur verið forgöngumanneskja fyrir bættum samgöngum í fjórðungnum. Þeir sem Eyrúnu þekkja ættu ekki að vera í vafa um hvern þeir kjósa næstkomandi laugardag. Það er mikilvægt að íbúar flykki sér um Eyrúnu, enda fáir sem þekkja betur hagsmunamál hinna dreifðu byggða. Íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum hafa ekki átt talsmann á alþingi Íslendinga í alltof langan tíma, nú er möguleiki á að úr því rætist með því að setja X við D í komandi kosningum á laugardag, hvar í flokki sem við stöndum. Vestfirðingar – Flykkjumst um Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur Eftir Ólaf Sæmundsson Ólafur Sæmundsson Höfundur er byggingastjóri og Vestfjarðavinur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.