Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 33

Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 33
UMRÆÐAN 33Kosningar 2013 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Eftir dóm EFTA- dómstólsins í Icesave- málinu er komin upp al- veg ný staða. Þess vegna ber að endurskoða þær greiðslur, um 500 millj- arða, sem fyrirhugað er að greiða úr þrotabúi Landsbankans til Breta og Hollendinga. Neyðarlögin voru sett m.a. til að tryggja allar innistæður að fullu. Gjörningur sem er langt umfram öll lög og reglur. Kröfur Breta og Hollendinga fyrir EFTA-dómstólnum snérust um lá- marksinnistæðurnar, 20.887 evrur á reikning, alls að fjárhæð 700 millj- arða. Aldrei var rætt um neitt um- fram þessar lágmarksinnistæður fyrir dómnum. Neyðarlögin verða þess hins veg- ar valdandi að við munum þegar upp er staðið greiða Bret- um og Hollendingum um 1.200 milljarða vegna Ice- save. Af þessum 1.200 milljörðum standa eftir í dag um 500 milljarðar. Þessa 500 milljarða á að greiða út á næstu mán- uðum og árum, greiða með gjaldeyri sem þjóðin á mjög takmarkað af. Þjóðin sagði nei í tveimur þjóðarat- kvæðagreiðslum Í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum hafnaði þjóðin Icesave-samning- unum. Í síðari þjóðaratkvæðagreiðsl- unni um Bucheit-samninginn var vilji þjóðarinnar alveg skýr. Þjóðin vildi fara dómstólaleiðina og fá úr því skorið fyrir dómstólum hvort hún væri í ábyrgð fyrir þessum Icesave- reikningum eða ekki. Niðurstaðan í þjóðaratkvæða- greiðslunni um Bucheit-samninginn var skýr: Þjóðin vildi ekki borga krónu nema vera dæmd til þess. Niðurstaðan í dómsmálinu fyrir EFTA-dómstólnum er skýr: Þjóðinni ber ekki að borga krónu vegna Ice- save og íslenska ríkinu ber ekki að tryggja innistæður á Icesave. Förum að vilja þjóðarinnar Við eigum að fara að vilja þjóð- arinnar, vilja sem fram kom í tveim- ur þjóðaratkvæðagreiðslum og við eigum að grípa til eftirfarandi að- gerða: Nr. 1 Stöðva strax allar greiðslur til Breta og Hollendinga. Nr. 2 Stofna rannsóknarnefnd á vegum Alþingis sem rannsakar hvers vegna greiddir voru 700 milljarðar í gjaldeyrir út úr þrotabúi Landsbank- ans þó svo þjóðin hefði í þjóð- aratkvæðagreiðslum ítrekað neitað að greiða neitt vegna Icesave nema að undangengnum dómi. Af hverju virti Alþingi og stjórnsýslan þessar þjóðaratkvæðagreiðslur að vettugi og hóf greiðslur áður en dómur féll og borgaði út 700 milljarða í gjaldeyri þvert á skýran vilja þjóðarinnar? Nr. 3 Leitað verði allra leiða til að fá til baka það fé sem þegar hefur verið greitt til Breta og Hollend- inga. Íslenskir lífeyrissjóðir og Seðlabanki Íslands eru stórir kröfu- hafar í þrotabúi Landsbankans og væntanlega í hópi fámennra kröfu- hafa sem enn eiga sínar upphaflegu kröfur í þrotabúinu. Hitt eru vog- unarsjóðir sem keyptu sínar kröfur á hrakvirði og eru að horfa til ann- arra hluta. Ef sækja á þetta fé til Breta og Hollendinga er það Seðla- bankinn og lífeyrissjóðirnir sem væntanlega þurfa að gera það. Nr. 4 Gerð verði úttekt á því hve mikið tjón þjóðarinnar er vegna hryðjuverkalaganna sem Bretar settu í október 2008 á Landsbank- ann, Kaupþing, Seðlabanka Íslands og ríkissjóð ásamt því að kyrrsetja gull- og gjaldeyrisvarasjóð landsins sem geymdur var í Morgan Stanley- bankanum í London. Samhliða því að forsætis- og fjármálaráðherra Breta kynntu það fyrir fjölmiðlum heimsins að Ísland væri gjaldþrota. Eins það tjón sem Bretar og Hol- lendingar ollu þjóðinni með því að tefja fyrir afgreiðslu lána frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum, AGS. Nr. 5 Enn er eftir að greiða um 500 af þeim 1.200 milljörðum sem neyðarlögin skuldbinda þrotabú Landsbankans að greiða til Breta og Hollendinga vegna Icesave. Gera á þessa greiðslu, þessa 500 milljarða, upptæka og nota þetta fé sem bæt- ur fyrir það tjón sem hryðjuverka- lögin ollu þjóðinni og það tjón sem varð vegna dráttar á lánum frá AGS. Er ekki löngu tímabært að þjóðin gefi fjórflokknum frí í eitt til tvö kjörtímabil og kalli til nýja flokka og nýtt fólk? Stöðvum greiðslur til Breta og Hollendinga vegna Icesave Eftir Friðrik Hansen Guðmundsson Friðrik Hansen Guðmundsson. Höfundur er verkfræðingur og fram- bjóðandi Lýðræðisvaktarinnar. – Það ætla ég að vona að Framsókn fái meiri- hluta í þessum kosn- ingum, sagði vinur minn sem oft lítur við í Bóka- kaffinu hér við Aust- urveginn. Kannski var ég eitthvað seinn til svars því einhvernveginn átti ég ekki von á að þessi maður af öllum kysi minn gamla ástkæra flokk. Það bærðust í mér blendnar til- finningar undrunar, klökkva og kvíða fyrir því hvert þetta samtal ætlaði. Þegar ég var búinn að færa tékk- nesku pari á næsta borði tvo mokka- bolla leit ég samt yfir og sagði svoldið hægt eins og ég væri að herma eftir gömlum Skeiðamanni: – Meiri-hluta! – Já, já, meirihluta og þá fyrst verður gaman að lifa. Hefurðu áttað þig á því hvað ástandið er alvarlegt og hvað ger- ist þegar þessir andskotar svíkja þetta allt saman… – Neeeeeei, sagði ég og var nú alveg hættur að látast. – Svíkja, það er hreinlega ekki hægt að efna neitt af þessu sem þeir eru að lofa og ef þeir reyna þá fer samfélagið algerlega á hvolf, það verður óðaverð- bólga og við förum öll á hausinn. Og ef þeir reyna ekki þá verður allt vitlaust hérna og gott ef ekki blóðug bylting. Ætli það sé ekki bara það sem við þurfum hérna á skerinu. Þetta hætt- ir ekki fyrr en einhver hefur verið drepinn! Svo dró aðeins niður í þessum vaska spámanni. Hann setti í brýrnar og hvíslaði næstum því eins og Tékkarnir væru að njósna um okkur. – Þessar kosningar verða mjög merkilegar hvernig sem fer. Þegar veruleikatengslin í umræðunni eru næstum því engin og fólk fer á kjör- stað í von um að fá pening þá hriktir í. Ég ætlaði að segja eitthvað án þess að vita hvað það ætti að vera en í sama mund kom frelsandi amerísk fjölskylda inn í kaffihúsið, fimm sam- an á ferð um Ísland og ég losnaði úr þessari umræðu. Ég var samt enn að hugsa um þetta meðan ég fræddi amerískan mennta- skólakennara um Sturlungu þar sem sagt er frá því hvernig íslenskir oflát- ungar brutu fjöregg þjóðarinnar. Boðið til byltingar Eftir Bjarna Harðarson Bjarni Harðarson Höfundur er bóksali og skipar efsta sæti á lista Regnbogans í Suður- kjördæmi. AUÐUR AVA RÆÐIR UNDANTEKNINGUNA Dagskráin hefst kl. 20.00, miðvikudagskvöldið 24. apríl og er aðgangur ókeypis og öllum opinn. Rithöfundurinn Ragnar Jónasson tekur á móti höfundinum Auði Övu Ólafsdóttur og spjallar við hana um bókina Undantekninguna en bókin fékk gríðarlega góðar viðtökur og var m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar sem þetta er síðasta kvöld vetrar verður slegið á létta strengi í lok dagskrár þegar tónlistarmaðurinn Snorri Helgason spilar nokkur lög og fylgir okkur inn í sumarið. Sumargjöfin i Verð 35.990 kr. Sumarverð 29.990 kr. Gildir til mánudags thdan@simnet.is Við göngum nú til kosninga þann 27. apríl næstkomandi. Þegar kemur að því að velja sér hverjir verða fyrir valinu í kjörklefanum er mik- ilvægt að hugsa sig vel um og horfa á heild- arpakkann. Það eru óvenjumargir pakkar í boði í þessum kosningum og því ærið verk að skoða sig um. Við höfum nú verið undir rík- isstjórn VG og Samfylkingar síðast- liðin fjögur ár, þessi ár eru ár van- nýttra tækifæra og skattaníðs. Þessi hópur hefur flækt skattkerfið og gert yfir 100 skattabreytingar á kjör- tímabilinu. Stefna þessara flokka er sú að skattleggja í drep og vonast eft- ir því besta. Það hefur ekki sýnt sig að aukin skattheimta þýði auknar tekjur fyrir ríkissjóð, þeim mun hærri skattar, því minni hvatning fyr- ir fólk að framkvæma og það veldur frekari stöðnun í atvinnulífinu. Win- ston Churchill sagði eitt sinn „Fyrir þjóð að reyna að skattleggja sig til betri lífskjara er eins og fyrir mann að standa ofan í fötu og toga í handfangið til að reyna að lyfta sér upp“. Hafa má þessi orð Churc- hills í huga þegar rík- isstjórnin telur fólki trú um að hækkun skatta sé svarið við erfiðum tímum. Hvað er mikilvægt fyrir okkur þegar við höld- um áfram? Það er mikilvægt fyrir okkur að smyrja hjól atvinnulífsins og auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Þessum markmiðum vill Sjálfstæð- isflokkurinn ná með þinni hjálp. X-D talar fyrir því að einfalda skattkerfið, lækka skatta og minnka gjöld, þessar aðgerðir eru til þess fallnar að blása lífi í fyrirtækin sem eru nú skattlögð upp í rjáfur, þetta eykur möguleika fyrirtækja á því að ráða til sín starfs- fólk og eykur líkur á því að fyrirtæki geti farið í auknar fjárfestingar. Þessi auknu umsvif ættu svo að auka tekjur ríkissjóðs og með því má standa vörð um þessar grunnstoðir samfélagsins líkt og heilbrigðiskerfið, mennta- kerfið og löggæsluna. Auðvitað vilja allir þeir flokkar sem bjóða fram það besta fyrir íslenska þjóð. Það er hinsvegar áherslumunur á stefnum flokkanna og frambjóð- enda þeirra. Það er mikilvægt að horfa á málefnin, og þegar hin ít- arlega stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins er skoðuð þá er auðvelt að segja X við D. Þau skatta vilja hækka í drep og kæla allt hér niður þau auka við sín skattaþrep og álögur, því miður. Þau átta sig samt ekki á með þessu þau allt drepa, nú fólkið mun og vill nú fá ný stjórnvöld sem eitthvað geta. Sjálfstæðisflokkur kemur nú með tillögur til bjargar sem eiga að veita fólki trú, því lausnirnar eru margar. Ég hvet því alla hér í dag Sjálfstæðisflokkinn að kjósa og bæta okkar allra hag svo Ísland fái að njóta. Skattagleði vinstrimanna Eftir Ólaf Hannesson Ólafur Hannesson Höfundur er stjórnmálafræðingur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.