Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
✝ Lilja Gunn-arsdóttir fædd-
ist á Reynisstað í
Sandgerði 11. jan-
úar 1935. Hún lést
á Landspítala við
Hringbraut 6. apríl
2013.
Foreldrar henn-
ar voru Gunnar
Júlíus Jónsson, f.
28.7. 1904, d. 9.11.
1992 og Rannveig
Guðlaug Magnúsdóttir, f. 24.6.
1902, d. 7.8. 1988. Systkini Lilju
eru þau Jóna Gunnarsdóttir, f.
2.8. 1927, Óskar Gunnarsson, f.
26.5. 1945 og hálfsystirin Mar-
grét Freyja Sigurlásdóttir, f.
steinn. 2) Valþór Söring Jóns-
son, f. 19.7. 1953, maki Halldóra
Lúthersdóttir. Börn, Lilja, Jóna
Karen, Íris Ósk, Lúther. 3)
Guðný Jónsdóttir, f. 21.12. 1954,
maki Terry Avery. Börn,
Sammy og Jón Þór. 4) Arnoddur
Jónsson, f. 3.5. 1959, maki Guð-
finna Arnbjörnsdóttir. Börn,
Arnar Bjarki, Gunnhildur Eva.
5) Rannveig Jónsdóttir, f. 27.9.
1963, maki Sigurjón Óskarsson.
Börn, Jón Söring, Sóley.
Lilja vann ýmis störf í fisk-
vinnslu framan af ævinni en síð-
ar ýmis þjónustustörf í kaffiter-
íu, mötuneyti og flugeldhúsi hjá
Loftleiðum/Flugleiðum þar til
hún lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Útför Lilju fór fram í kyrrþey
frá Keflavíkurkirkju 12. apríl
2013.
29.6. 1921, d. 6.3.
1960.
Árið 1956 gekk
Lilja í hjónaband
með Jóni Söring, f.
á Seyðisfirði 13.
maí 1929, d. 24.
febrúar 2013. For-
eldrar Jóns voru
hjónin Þórarinn
Ólason Söring, f.
6.11. 1890, d. 7.2.
1974 og Valgerður
Einarsdóttir, f. 30.3. 1893, d.
7.10. 1977. Lilja og Jón eign-
uðust fimm börn: 1) Margrét
Jónsdóttir, f. 26.4. 1951, maki
Páll Þorsteinsson. Börn, Þór-
arinn Ingi, Jón Róbert og Þor-
Elsku mamma, við sitjum hér
hálfdofin og skiljum ekki alveg
þá hröðu atburðarás sem við
höfum verið að upplifa undan-
farnar vikur. Saman máttum við
öll kveðja hann pabba í lok febr-
úar og héldum þá að við mynd-
um fá að eiga með þér góðan
tíma framundan en undanfarin
ár hafa verið annasöm hjá þér
við að hjúkra og hugsa um
pabba í veikindum hans auk
þess að takast á við erfið veik-
indi sjálf. Þú varst honum
pabba ómissandi og mátti hann
ekki án þín vera, við vorum að
vona að þú fengir að njóta þín
eftir að hafa hjúkrað honum og
hugsað um hann, en lífið fór í
annan farveg og nú hefur þú
lagst við hliðina á pabba og sef-
ur þar svefninum langa í þess-
ari jarðnesku tilveru.
Við trúum þó að þú sért kom-
in til starfa á öðrum vettvangi
þar sem þín var beðið og hugg-
um okkur við að þið pabbi sem
voruð nánast óaðskiljanleg eruð
nú sameinuð á ný eftir örstutta
fjarveru hvort frá öðru, enda
kvaddir þú hann með þeim orð-
um að þið sæjust fljótlega aftur.
Það var gott að alast upp
undir þinni ást, umhyggju og
leiðsögn, þú gafst okkur gott
veganesti og gerðir okkur að
því sem við erum, þú miðlaðir
ást og umhyggju og innprent-
aðir góð gildi eins og heiðar-
leika, sjálfstæði, umhyggju og
styrk, þú leiðbeindir og gafst
ráð þegar eftir var leitað en
gafst frelsi til að við lærðum af
eigin reynslu og mistökum og
ávallt var þolinmæðin til staðar.
Elsku mamma, við þökkum þér
veganestið sem okkur tekst
vonandi að miðla áfram til okk-
ar afkomenda á jafn árangurs-
ríkan hátt.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
elsku mamma, við erum rík að
minningum um þig og pabba og
þær munu hjálpa okkur sem
eftir sitjum auk þess sem við lif-
um í þeirri vissu að þið hlúið nú
hvort að öðru á ný.
Takk fyrir tímann sem með þér átt-
um,
tímann sem veitti birtu og frið.
Ljós þitt mun loga og leiðbeina
áfram,
lýsa upp veg okkar fram á við.
Gefi þér Guð og góðar vættir
góða tíð yfir kveðjuna hér,
þinn orðstír mun lifa um ókomna
daga,
indælar minningar í hjarta okkar ber.
(P. Ó. T.)
Margrét, Valþór, Guðný,
Arnoddur og Rannveig.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund. Það er sárt að þú
sért farin frá okkur en hugur og
hjarta fyllast af hlýjum minn-
ingum. Nú ertu komin á góðan
stað þar sem við erum viss um
að afi hafi tekið vel á móti þér.
Þú varst með sanni einstök
kona með góða nærveru, það
var alltaf svo gott að koma til
þín. Það er svo margs að minn-
ast, allra góðu stundanna sem
við áttum saman uppi í sum-
arbústaðnum ykkar afa og einn-
ig á Sóltúninu og Skólaveginum.
Það var sjaldan sem ekki var
boðið upp á pönnukökur, flat-
brauð eða súkkulaðiköku. Öll
eigum við hannyrðir sem þú
hefur gefið okkur í gegnum tíð-
ina; lopapeysur, tátiljur, teppi
og fleira.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur og þá gleði sem þú
veittir okkur, elsku amma. Við
erum uppfull af þakklæti yfir að
hafa fengið að hafa þig í lífi
okkar, minning þín mun lifa
áfram í hjörtum okkar.
Við höfði lútum í sorg og harmi
og hrygg við strjúkum burt tárin af
hvarmi.
Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið
því fegursta blómið er frá okkur
horfið.
Með ástúð og kærleik þú allt að þér
vafðir
og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir
þótt móðuna miklu þú farin sért yfir
þá alltaf í huga okkar myndin þín
lifir.
Við kveðjum þig, amma, með söknuð
í hjarta,
en minning um faðmlag og brosið
þitt bjarta.
Allar liðnar stundir um þig okkur
dreymi
og algóður Guð á himnum þig geymi.
(Sigfríður Sigurjónsdóttir)
Þín barnabörn,
Þórarinn Ingi, Jón Róbert,
Þorsteinn, Arnar Bjarki,
Gunnhildur Eva, Jón Sör-
ing, Sóley, Lilja, Jóna Kar-
en, Íris Ósk, Lúther Sör-
ing, Sammy og Jón Þór.
Kærir vinir mínir, mágur
minn og svilkona, hjónin Jón og
Lilja Söring eru nú bæði látin
með aðeins 6 vikna millibili.
48 ár eru nú liðin síðan ég
kynntist þeim hjónum. Ég hafði
þá um nokkurt skeið verið
starfsstúlka á Aðalstöðinni í
Keflavík og kynntist þar þeim
bræðrum Einari, Karli og Jóni
Söring. Einar og Jón voru þá
bílstjórar á Aðalstöðinni. Þegar
ástin barði svo að dyrum hjá
mér og Einari urðu Jón og Lilja
góðir vinir mínir og hafa verið
það alla tíð síðan. Á þessum ár-
um var ekki alltaf leikur einn að
sjá fyrir afkomumöguleika fyrir
stóra fjölskyldu. Á barnmörgu
heimili þeirra hjóna var mikið
að gera. Það var full vinna fyrir
húsmóður að halda heimili og
fyrir húsbónda og föður að
vinna fyrir því. En fyrir ungt,
hraust og duglegt fólk eins og
þau voru er allt hægt. Á þessum
árum áttu Lilja og Jón heima
með barnahópinn sinn á Sóltúni
11. Þar áttu þau fallegt heimili í
tveggja hæða húsi sem þau
byggðu. Seinna þegar börnin
voru flutt að heiman byggðu
þau glæsilegt hús á Skólaveg-
inum þar sem þau lögðu mikinn
metnað í að hafa allt sem falleg-
ast hvort sem var innanhúss eða
utan. Það var ekki hægt annað
en dást að því hversu vel var
um allt hugsað og mér eru
minnisstæð limgerðin á Skóla-
veginum en það var eins og Jón
hefði notað hallamál við snyrt-
ingu þeirra svo bein og falleg
voru þau. Það var gaman að
koma til þeirra og fylgjast með
framkvæmdum. Alltaf var tekið
á móti okkur með hlýju og vin-
semd og áttum við með þeim
margar góðar stundir. Á milli
þeirra bræðra Einars og Jóns
var mikil og góð vinátta. Jón
var mjög duglegur maður og
gat gert nánast hvað sem var.
Og eins og flestir afkomendur
Valgerðar og Þórarins Söring
hafði hann alltaf nóg að gera og
féll aldrei verk úr hendi. Hann
byggði hús fyrir sig og sína,
lagði rafmagn, smíðaði eða hvað
annað sem til féll og þurfti að
gera fyrir vini og ættingja. Lilja
var ekki síður dugleg. Jafn-
framt því að hugsa um börn og
bú vann hún ýmis störf en
lengstan starfsaldur átti hún í
Flugeldhúsinu.
Alltaf var Jón tilbúinn til
þess að aðstoða okkur hjónin og
þegar við byggðum húsið okkar
lagði hann fyrir okkur rafmagn-
ið í það ásamt ýmsu öðru sem
þurfti að gera. Í veikindum Ein-
ars voru þau Jón og Lilja mér
stoð og stytta. Þau voru sannir
vinir í raun. Ég kom til Jóns og
Lilju stuttu áður en Jón lést. Þá
voru þau flutt að Nesvöllum.
Hann tók niður mynd af vegg
og sýndi mér. Myndin var af
Lilju ungri og hann sagði mér
að svona hefði hún verið þegar
hann nældi sér í hana. Hann
hafði verið að keyra leigubíl og
tók hana og vinkonu hennar
upp í bílinn á Sandgerðisheið-
inni. Þær voru þá gangandi á
leiðinni heim í Sandgerði af balli
í Keflavík. Það varð mér til
gæfu, sagði Jón og Lilja brosti.
Það var örugglega gagnkvæmt.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Guð geymi Jón og Lilju Sör-
ing. Við munum hittast á ný.
Kæru vinir Valli, Magga,
Guðný, Addi, Randý og fjöl-
skyldur, Guð gefi ykkur styrk í
sorginni.
Svanhvít Guðmundsdóttir.
Lilja Gunnarsdóttir
Það var í lok ágúst í fyrra að
við Lovísa mæltum okkur mót
hjá mömmu minni, henni Helgu
Páls. Dóra dóttir hennar var á
landinu og ætluðum við að leyfa
krökkunum mínum og hennar að
hittast. Lovísa ljómaði af stolti
þegar hún var með barnabörnun-
um enda flottir og hæfileikaríkir
strákar.
Það var svo gaman að hitta þau
öll. Við rifjuðum upp gamlar og
Lovísa
Einarsdóttir
✝ Lovísa Ein-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 18.
ágúst 1943. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 31. mars
2013.
Útför Lovísu fór
fram frá Vídal-
ínskirkju 12. apríl
2013.
góðar stundir, satt
að segja var bara
eins og við hefðum
öll hist í gær. Við
sátum úti í garði í
dásemdarveðri,
spjölluðum hlógum
og dáðumst að börn-
um sem léku sér í
garðinum. Þau
stóðu á höndum og
gerðu allskonar
hundakúnstir,
tefldu og léku sér í fótbolta, sum-
ir svolítið tapsárir eins og gengur
en þetta var virkilega ánægjuleg
stund.
Ekki óraði mann þá fyrir því
að aðeins nokkrum mánuðum
seinna væri þú öll. En það var um
þetta leyti sem þú varst farin að
finna fyrir einhverjum veikindum
en varst ekki búin að fá grein-
ingu.
Það var alltaf kátt á hjalla þeg-
ar Lovísa mætti í Birkilund með
fjölskylduna, þá var sko hlegið,
sungið og grallarast. Man hvað
þið mamma hlóguð mikið að
fljúgandi beljum uppi í trjám og
einhverju álíka grallarabulli sem
ykkur fannst svo fyndið. Eining
gisti ég oft í Aratúninu og í minn-
ingunni fannst mér þið vera hin
fullkomna fjölskylda, öll svo fal-
leg, heimilið ykkar, garðurinn og
blómin .
En líf þitt var ekki bara dans á
rósum, það komu skin og skúrir
og margskonar breytingar sem
þér tókst að sigla stolt í gegnum
með þinum manni á þinn fallega
og ljúfa hátt.
Guð geymi þig, góða kona.
Ingimar, Dóru og fjölskyldu,
Áslaugu og fjölskyldu og öðrum
ástvinum sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ólöf Vala.
Elsku Lovísa.
Þvílíkur snillingur sem þú
varst þegar þú ákvaðst að koma á
laggirnar Kvennahlaupi í Garða-
bæ þar sem konur hlupu eða
gengu frá Vífilsstöðum niður að
Íþróttamiðstöðinni Ásgarði árið
1990.
Þessi viðburður þinn hefur
heldur betur undið upp á sig, tek-
ið breytingum og verið einn
stærsti viðburður í íslensku
íþróttalífi undanfarin ár.
Eftir hlaup á síðasta ári rædd-
um við 25 ára afmæli hlaupsins
árið 2014. Þig eins og okkur nú-
verandi nefndarkonur í Garðabæ
langaði svo til þess að sjá bæinn
okkar stilla upp listaverki sem
minnir okkur öll á það, að þessi
stóri viðburður samfélags okkar
á sér stað í okkar litla bæjarfélagi
og við getum öll verið stolt af.
Hugmyndavinna okkar er
komin í vinnslu og ég veit að við
munum sjá minnisvarða hlaups-
ins fyrr en varir .
Við kveiktum ljós og heiðruð-
um minningu þína á fyrsta nefnd-
arfundinum þetta árið og er
nokkuð ljóst að við munum minn-
ast þín áfram …
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Birna Guðmundsdóttir.
Árið 1997 kom út bókin Hér
andar Guðs blær, saga sum-
arstarfs KFUK. Í þeirri bók er
rakin saga sumarstarfsins frá
upphafi og fimmtíu ára saga
sumarbúðanna í Vindáshlíð.
Allt frá fyrsta degi sögu Vind-
áshlíðar er Katrínar getið enda
var hún mikill örlagavaldur í
sögu sumarstarfsins. Ung að
árum átti hún sér draum um
sumarbúðir í Kjósinni og strax
árið 1939 skrifar hún til frænku
sinnar, Helgu Magnúsdóttur í
Ólafsvík og getur þess að hún
hafi nefnt það við tvær stjórn-
arkonur í KFUK hve skemmti-
legt það væri ef sumarbúðir
KFUK fengju varanlegan stað í
Kjósinni. Hin unga Katrín var
ekki ein um þennan draum, og
því fékk hún í lið með sér Lilju
Jónasdóttur móður sína og með
hennar liðstyrk rættist loks
draumur Katrínar og annarra
ungra KFUK kvenna. Árið
1949 eignaðist sumarstarf
KFUK land í Kjósinni og þar
hefur verið starfað óslitið síðan.
Eins og áður sagði naut
Katrín liðsinnis móður sinnar
við að láta draum sinn rætast,
en eftir að Guðlaugur Jakobs-
son eiginmaður Katrínar kom
Katrín
Kristjánsdóttir
✝ Katrín Krist-jánsdóttir
fæddist í Reykjavík
26. ágúst 1922. Hún
andaðist á Borg-
arspítalanum 4.
mars 2013.
Hún ólst upp á
Hvítanesi í Hval-
firði, fluttist síðan
að Blöndholti í Kjós
þar sem hún bjó
þar til hún flutti að
heiman til Reykjavíkur.
Útför Katrínar fór fram í
kyrrþey.
til sögunnar stóðu
þau tvö þétt saman
um að gera veg
sumarstarfsins
sem mestan og
bestan. Voru þau
hjónin samhent og
einstök í starfi sínu
fyrir Hlíðina. Katr-
ín var valin af
stjórn KFUK í
fyrstu stjórn Vind-
áshlíðar og var hún
gjaldkeri sumarstarfsins allt
frá árinu 1949 til 1971. Allan
þann tíma vann hún af heil-
indum fyrir félagið. Þó starfi
Katrínar fyrir Vindáshlíð lyki
formlega árið 1971 átti Vind-
áshlíð stóran sess í hjarta
hennar alla tíð.
Auk starfa sinna í Vindáshlíð
tók Katrín virkan þátt í starfi
félagsins í Reykjavík. Um ára-
bil söng hún bæði í blönduðum
kór KFUM og K og í Kvenna-
kór KFUK. Þá var Katrín einn-
ig valin í byggingarnefnd fé-
lagsins þegar félagshús KFUM
og KFUK var byggt við Holta-
veg.
Fyrir störf sín í þágu Vind-
áshlíðar var Katrín valin heið-
ursfélagi Vindáshlíðar árið
2007. Þau hjónin voru Sumar-
starfi KFUK í Vindáshlíð ein-
stök Guðs gjöf. Með þakklæti
og virðingu við minningu þeirra
vottum við ástvinum þeirra
innilega samúð og biðjum þeim
ríkulegrar blessunar Guðs.
F.h. sumarstarfs KFUK í
Vindáshlíð,
Betsy Halldórsson fyrrver-
andi formaður Vind-
áshlíðar,
Guðrún Nína Petersen for-
maður Vindáshíðar,
Gyða Karlsdóttir fram-
kvæmdastjóri KFUM og
KFUK á Íslandi.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR,
Brekku,
Garði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi laugar-
daginn 13. apríl.
Útförin verður frá Útskálakirkju föstudaginn 26. apríl kl. 14.00.
Kristján Vilhjálmsson, Vigdís Böðvarsdóttir,
Sigurður Vilhjámsson,
Kristjana Vilhjálmsdóttir, Friðrik Ágúst Pálmason,
Halldór Vilhjálmsson, Gunnhildur Ásgeirsdóttir,
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Stefanía Vilhjálmsdóttir, Kristinn Kristinsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín,
HULDA SIGRÚN SNÆBJÖRNSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
áður til heimilis að Holtsgötu 6,
lést sunnudaginn 14. apríl.
Sálumessan fer fram frá Kristskirkju, Landa-
koti, föstudaginn 26. apríl kl. 15.00.
Ragnheiður Jóhanna Eyjólfsdóttir.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI HALLDÓRSSON
í Króki,
sem andaðist á Landspítalanum við
Hringbraut þriðjudaginn 16. apríl,
verður jarðsunginn frá Villingarholtskirkju
laugardaginn 27. apríl kl. 15.30.
Lilja María Gísladóttir, Páll Óskarsson,
Ingvar Hreinn Gíslason, Lynn Ann Gíslason
og barnabörn.