Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, Helga Axelsdóttir ✝ Helga Axels-dóttir (Lilla) fæddist á Læk, Skagaströnd, 22. júlí 1930. Hún lést 6. apríl 2013 á Landspítalanum í Fossvogi. Helga var jarð- sungin frá Foss- vogskapellu 12. apríl 2013. þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Minningin lifir, elsku mamma. Helga Björnsdóttir. Trúðu á tvennt í heimi tign sem hæsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingr. Thorsteinsson) Elsku amma. Þessa fallegu bæn fórst þú oft með og kenndir okkur. Við munum ávallt minnast þín þegar við heyrum hana. Núna ertu farin úr þessu jarðríki og komin á góðan stað. Afi tók fagn- andi á móti þér, þú talaðir oft um hvað þú saknaðir hans. Hvíl í friði, elsku Lilla amma. Birna Mjöll. Trausti Björn og Óskar Björn. ✝ Magnús Ás-geirsson húsa- smíðameistari fæddist 19. apríl 1947 í Kópavogi. Hann lést á Land- spítalanum 24. mars 2013. Foreldrar Magn- úsar voru hjónin Ás- geir Blöndal, mál- fræðingur, f. 2. nóvember 1909, d. 25. júlí 1997, sem í áratugi starf- aði við Orðabók Háskólans, og Sigríður Sigurhjartardóttir, hús- freyja, f. 17. febrúar 1917, d. 12. nóvember 1951. Seinni kona Ás- geirs var Njóla Jónsdóttir, f. 24. ágúst 1922, d. 30. janúar 2000. Bræður Magnúsar eru Jóhann Gunnar, múrarameistari, f. 14. júní 1940, kvæntur Arnbjörgu Stefánsdóttur Jónsdóttur, f. 13. ágúst 1938, d. 1. júlí 2008. Þeirra börn eru Ásgeir Bjarni og Sigríð- ur. Sigurður, tæknifræðingur, f. 19. desember 1948, kvæntur Guðrúnu Steingrímsdóttur, f. 27. janúar 1955. Þeirra börn eru Sig- rún Sigurðardóttir, f. 18. apríl 1982 og Þórey Birgisdóttir, f. 4. október 1978. Magnús var kvæntur Magnhildi Magnúsdóttur, f. 10. desember 1940. Þau voru barnlaus, en dætur Magn- hildar eru Íris Björk Sigurð- ardóttir, f. 21. mars 1963, gift Fróða Hjaltasyni, f. 25. janúar 1954, Elfa Kristín Sigurð- ardóttir, f. 19. mars 1963, gift Björgvini Kristjánssyni, f. 11. september 1969, Dóra Berglind Sigurðardóttir, f. 12. september 1964, gift Óskari Bragasyni, f. 29. apríl 1961. Magnús var jarðsunginn í kyrrþey frá Hjallakirkju 3. apríl 2013. Lagður hefur verið til hinstu hvílu elsku Maggi hennar mömmu. Á vængjum vindsins ferðast sál þín ofar skýjum út í geim meðal sólkerfa, vetrarbrauta og stjarna í samvitund og kærleiksins heim. Allt sem var í gær er í dag. Spor fyrnast í sandi, en á vængjum vindsins fljúga fræin og sá því sem koma skal. Fræjum hefur ekki verið sáð til einskis og skila sér í öllum sem þig þekktu. Ég mun alltaf vera þakklát fyrir að þú komst í líf mitt og minna og mótaðir. Ljúft er þín að minnast og sárt að sakna. Elfa. Magnús Ásgeirsson ✝ RagnheiðurBöðvarsdóttir fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1921. Hún lést á Land- spítalanum Foss- vogi 2. apríl 2013. Foreldrar Rögnu eins og hún var alltaf kölluð voru Böðvar Jóns- son, d. 1954 og Guðrún Skúladótt- ir, d. 1965. Systkini Rögnu voru Jón, Gunnar, Ingibjörg og Sig- urbjörg, þau eru öll látin. Hinn 8. apríl 1950 giftist Ragna Jóhanni L. Sigurðssyni loftskeytamanni, f. 20. febrúar 1924, d. 2. september 2009. Börn Rögnu og Jóhanns eru 1) Birna, maki Ásgeir Jónsson. Börn þeirra eru: a) Jóhann Örn, maki Guðný Guðnadóttir og eru börn þeirra Aron, Birna og Atli. b) Ragnheiður, maki Heiðar Þórhallsson og barn þeirra er Viktoría Líf. c) Sturla. 2) Gunn- ar, maki Marta Loftsdóttir. Börn Gunnars eru a) Árni Beck, maki Mie Rasmussen og dætur þeirra eru Rósa Sif og Silja Björk. b) Guðrún Björg, maki Pétur Ingi Pét- ursson og börn þeirra eru Ingunn Lind og Emil. Syn- ir Mörtu og stjúp- synir Gunnars eru a) Hörður, börn hans eru Högni Al- var og Vigdís Elf- ur. b) Finnur. Ragna bjó hjá foreldrum sínum víðsvegar í Reykja- vík en skólagangan var þó yf- irleitt í Austurbæjarskóla. Nokkur sumur var hún í sveit í Mýrdal og unni hún þeim slóð- um alla tíð. Ragna hóf ung störf í Reykjavíkurapóteki og síðan í Ingólfsapóteki en lengst af starfaði hún í Vesturbæj- arapóteki ásamt því að starfa í Melaskóla. Ragna var hlédræg kona en hafði þó sterkar skoð- anir á mönnum og málefnum. Ömmubörnunum fannst hún besta amma í heimi og lang- ömmubörnunum fannst það líka. Henni var mjög umhugað um sitt fólk og tók hag þess fram yfir sinn eigin. Útför Rögnu var gerð frá Fossvogskapellu 18. apríl 2013. Elskuleg tengdamóðir mín, Ragnheiður Böðvarsdóttir, er látin eftir stutt veikindi á nítug- asta og öðru aldursári. Ragna eins og hún var ávallt kölluð var mikil fjölskyldumann- eskja og hugsaði mjög vel um sína. Hlýja hennar og umhyggja fyrir öðrum var einstök. Hún var heiðarleg, réttsýn, vinnusöm og trúföst. Þetta eru þau gildi sem hún innrætti börnunum sínum tveimur. Ragna átti fimm barnabörn og átta langömmubörn. Yngsta langömmubarnið hennar, Vikt- oría Líf, var skírð rúmum tveim- ur vikum áður en hún lést og mætti Ragna að sjálfsögðu í skírnina og gladdist með fjöl- skyldunni. Það var yndislegt að sjá hana með yngsta fjölskyldu- meðliminum. Við Gunnar vorum að enda safaríferð okkar í Suður-Afríku þegar við fengum sorgarfréttirn- ar af láti hennar. Við höfðum tal- að við hana í síma nokkrum dög- um áður og hlustaði hún spennt og áhugasöm á það sem við höfð- um frá að segja. Áður en við lögð- um upp í ferðina tók hún af okkur loforð um að láta ekkert raska ferðaáætlunum okkar sama hvað gengi á hjá henni. Fyrstu kynni mín af Rögnu voru þegar ég, lítil stelpa, kom við í Vesturbæjarapóteki á leið úr sundi og spurði um brotinn apótekaralakkrís. Ragna, fallega góða konan í apótekinu, tók alltaf vel á móti mér og gaf mér og vin- konum mínum oftar en ekki brot- inn apótekaralakkrís. Ragna var móðir Gunnars, bekkjarbróður míns í Melaskóla, og í minning- unni öfundaði ég hann af því að mamma hans ynni í apótekinu. Um þrjátíu árum síðar hóf ég sambúð með Gunnari. Ragna og Jóhann tóku mér og sonum mín- um strax vel og reyndust mér alla tíð vel. Eftir að Jóhann eig- inmaður hennar til 59 ára lést urðu samskiptin enn meiri. Það var mjög sterkt og náið samband á milli hennar og Gunnars og hringdi hún hin síðari ár á hverju kvöldi til að bjóða góða nótt. Ragna flutti á dvalarheimilið Grund fyrir tæpu ári og þar undi hún sér vel. Starfsfólkið á Grund var ein- staklega alúðlegt og hugsaði vel um hana. Þar hitti hún einnig marga sem hún þekkti frá árun- um í apótekinu og oft urðu skemmtilegar umræður um löngu liðna tíð. Rögnu þótti gam- an að fá gesti í kaffi og oft end- uðu sunnudagsbíltúrar okkar Gunnars á Grund. Stundum voru langömmubörnin með í ferð og stundum foreldrar mínir. Alltaf var jafn vel tekið á móti okkur. Ragna var mikil handverks- kona. Hún heklaði diskamottur, bjó til útsaumuð tækifæriskort, var í postulínsmálningu en sein- ustu árin stytti hún sér stundir við að perla jólabjöllur sem hún gaf þeim sem henni þótti vænt um. Þessar jólabjöllur prýða jólatré á mörgum heimilum og halda minningu hennar á lofti. Eitt mesta yndi Rögnu var að fara í bíltúra og koma við í kirkjugörðum þar sem ástvinir hennar hvíldu. Við Gunnar ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum vor- um dugleg að fara með hana út á land hvort heldur var í Skaga- fjörð eða austur í Mýrdal. Hún var búin að leggja drög að næstu ferð en sú ferð verður ekki farin þar sem hún er farin í enn lengra ferðalag. Ragna mín, ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Hvíl þú í friði. Þín tengdadóttir, Marta Loftsdóttir. Í dag kveð ég ömmu í hinsta sinn. Ævi hennar hér á jörð er lokið en hún mun áfram lifa í hjarta mínu og huga. Við kveðju- stund reikar hugurinn og leitar uppi minningar sem hjálpa mér að takast á við sorgina sem fylgir slíkri stund. Á mínum yngri árum bjó pabbi á Birkimelnum og við systkinin nutum góðs af því, því þegar við vorum hjá pabba vorum við líka hjá ömmu og afa. Amma lét það ekki á sig fá og sinnti okkur vel. Oftar en ekki leyfði hún mér að skottast með sér í vinnuna í Melaskóla og fékk ég það ábyrgðarhlutverk að vökva allar plönturnar í stóra glugganum. Amma leyfði okkur krökkunum einnig að bralla ýmislegt, til dæmis að gramsa í skápunum og er mér minnisstætt eitt skiptið sem við frænkurnar klæddum okkur upp í föt og skó af ömmu, „stríðs“máluðum okkur og buð- um strákunum upp í dans. Við vorum hinar glæsilegustu meyjar og myndir eru til því til sönn- unar. Við áttum ekki í neinum erfiðleikum með að finna okkur eitthvað að dunda við í Vestur- bænum; við lékum lausum hala í ævintýraleikjum í undurfögrum garðinum eða sulluðum í virkis- gröfinni kringum tóma Þjóðar- bókhlöðuna. Ísferðir til að kaupa bananasplitt voru tíðar ásamt sunnudagsbíltúrum hingað og þangað. Ef líkaminn var þreyttur voru spilin dregin fram og kenndi amma mér flesta spilakapla sem ég kann í dag. Amma var hannyrðakona mik- il og var óspör á heimagerðu gjafirnar og mínar mestu ger- semar eru bláu dúllurnar í stíl við sparistellið og perluskrautið sem á sinn heiðursess á jólatrénu. Loksins þegar ég fór að fikta við hekl kenndi amma mér að halda rétt á heklunálinni þegar henni blöskraði aðferðin sem ég í van- kunnáttu minni beitti. Það er eitt sem stendur upp úr þegar ég hugsa til ömmu og það er faðmlagið hennar. Ávallt þeg- ar við heilsuðumst eða kvödd- umst var faðmast og kysst. Faðmur ömmu var ávallt opinn og ávallt vel þeginn og mun ég sakna þess að fara í heimsókn í Vesturbæinn án þess að fá ömmuknús. Elsku amma, ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og kenndir mér. Þú verður alltaf í hjarta mínu og minna. Guðrún Björg Gunnarsdóttir. Ragnheiður Böðvarsdóttir Elsku hjartans systir mín og vinkona hefur nú kvatt eftir áralanga baráttu við illvígan sjúkdóm. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért nú farin frá okkur langt fyrir aldur fram. Minningarnar streyma fram og tárin falla. Þú varst á 15. ári þegar ég fæddist og varst stóra systir mín sem ég dáðist að og leit svo mikið upp til. Fyrsta minning mín um þig var þegar þú kenndir mér að syngja Krummi krunkar úti, ég man hvað ég var stolt og söng hástöf- um. Þegar ég varð eldri og stofn- aði mitt fyrsta heimili varð systrasamband okkar enn nán- ara. Stutt var á milli dóttur minn- ar, Þórhildar, og yngsta sonar þíns, Sigga, þau tengdust strax miklum vináttuböndum og með þeim áttum við yndislegar sam- verustundir sem við geymum í hjörtum okkar. Elsku Sissa mín, hjartalag þitt Sesselja Signý Sveinsdóttir ✝ Sesselja SignýSveinsdóttir fæddist í Kópavogi 7. nóvember 1960, hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 5. apríl 2013. Útför hennar var gerð frá Kópavogs- kirkju 17. apríl 2013. var svo fallegt, ég gat alltaf leitað til þín hvort sem um var að ræða prakt- ísk atriði varðandi heimilishald eða erf- iða líðan. Þú varst úrræðagóð og faðm- ur þinn og hjarta var ávalt opið. Þér var mjög umhugað um hvernig öðrum liði í kringum þig og varst alltaf til staðar fyrir ætt- ingja og vini enda varstu ætíð umvafin yndislegu fólki. Þú munt ávallt vera fyrirmynd mín, ég dáðist að baráttuþreki þínu, lífs- gleði og æðruleysi gagnvart þín- um erfiða sjúkdómi. Þú lagðir áherslu á að lifa lífinu til fulls þrátt fyrir mótlætið og valdir að horfa á fegurðina í lífinu í kring- um þig. Elsku systir mín, þakka þér fyrir að hafa staðið mér ávallt nærri í gleði og sorg. Ég bið Guð að styrkja og blessa Svenna, syni, tengdadótt- ur, sonarsyni, foreldra og aðra ástvini sem eiga um sárt að binda Er sem handan ljómi land, loginn sanda gyllir. Kærleiksandi bindir band beggja stranda á milli. (Höf.ók.) Sigurborg Sveinsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR ÁGÚSTSDÓTTUR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir frábæra umönnun, hlýhug og vináttu. Ágúst Bergsson, Stefanía Guðmundsdóttir, Kristín Bergsdóttir, Kristmann Karlsson, Birgir Símonarson og fjölskyldur. ✝ Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNA KRAGH, Álftamýri 26, Reykjavík, lést sunnudaginn 14. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sólborg Ósk Kragh, Kristján Ágúst Gunnarsson, Íris Helga Valgeirsdóttir, Auðunn Trampe, Valgeir Ólafur Kragh, Erla Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, HILDUR ANDRÉSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hjallatúni fimmtu- daginn 18. apríl. Hún verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugar- daginn 27. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Viðarsdóttir, Birna Viðarsdóttir, Andrés Viðarsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.