Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Sænski leikhópurinn PotatoPotato
sýnir næstu þrjá daga í Tjarnarbíói
verkið Píslarvottar án hæfileika en
því er lýst sem „hryðjuverkasýn-
ingu um norrænu paradísina“.
Verkið er byggt á samnefndri skáld-
sögu eftir Kára Tulinius sem kom út
fyrir þremur árum og er að miklu
leyti leikið hér á ensku.
Sænski leikhópurinn, sem starfar
í Malmö, er á leikferð um Svíþjóð,
Ísland og Noreg með verkið sem
frumsýnt var fyrir um hálfum mán-
uði. Hópurinn hefur á undanförnum
misserum sett upp verk um pólitísk-
ar aðgerðir í evrópskum samtíma og
þá sérstaklega í norrænu velferð-
arparadísinni. Nýja sýningin fylgir
eftir verki hópsins Danskjävlar –
bedst i Europa sem fjallaði um
hægri-pópúlisma en Píslarvottar án
hæfileika fjallar um hljómsveitina
Terroristaklúbbinn sem fer út í
beinar pólitískar aðgerðir, semur
lög, les um frelsishetjur og fær inn-
blástur frá byltingum. En spurt er
hvort meðlimirnir séu tilbúnir að
fórna einhverju.
„Þrusu leikdómur“
Kári hitti meðlimi leikhópsins
fyrst um jólaleytið árið 2010 þegar
þau voru hér á landi og settu upp
litlar leiksýningar. Honum var boðið
á eina sýningu hópsins, sem fjallaði
um sjálfsvígsárás í Stokkhólmi
skömmu áður, þar sem sprengju-
maðurinn var sá eini sem lést. Við
frekari kynni kom ný skáldsaga
hans til tals og vakti athygli Sví-
anna, en hún fjallar um ungmenni í
Reykjavík sem eiga sér óljósa
drauma um að fremja hryðjuverk.
„Svíarnir höfðu áhuga á efni bók-
arinnar enda voru þau að velta fyrir
sér að gera sýningu um ungt rót-
tækt fólk sem er langt til vinstri og
þá pælingu hvers vegna ekki sé
lengur hægt að vera vinstrisinnaður
hryðjuverkamaður, líkt og fyrir
tuttugu til þrjátíu árum,“ segir
Kári. Hann var í framhaldinu beð-
inn um að skrifa einskonar skýrslu,
þar sem sögunni var lýst, og ákvað
stjórn leikhópsins að setja upp verk
sem byggðist á henni.
„Ég skrifaði síðan fyrir þau lengri
lýsingu á bókinni, lýsti söguþræð-
ingum, persónum og helstu þemum,
og þýddi að auki nokkra kafla,“ seg-
ir Kári. „Í kjölfarið fór ég til Malmö
í mars í fyrra og vann í viku með
leikhópnum. Rætt var hvernig væri
gott að setja sýninguna upp og þá
fóru þau að velja leikara og huga að
verkinu. Það tók annað ár, þau byrj-
uðu að æfa sýninguna í febrúar í
vetur og ég fór aftur út í mars og
vann með leikurunum og leikstjór-
unum, við lokavinnslu verksins.“
Það var síðan frumflutt fyrir tveim-
ur vikum, í Stokkhólmi.
„Verkinu var mjög vel tekið.
Þrusu leikdómur birtist í dag-
blaðinu Dagens Nyheter – hann var
svo góður að það var eins og
mamma einhvers í hópnum hefði
skrifað hann,“ segir Kári og hlær.
Hann var viðstaddur frumsýn-
inguna og segist hafa verið mjög
sáttur við útkomuna. Er þetta
ennþá sagan hans?
„Já, það finnst mér, þótt búið sé
að vinna hana upp alveg frá grunni.
Ég var hissa hvað mikið af bókinni
minni er ennþá í verkinu; heilu sen-
urnar og ræðurnar eru úr henni,
þótt þetta séu nú sænskir krakkar.
Sagan gerist ekki lengur á Íslandi
en sænsku karakterarnir gætu verið
bestu vinir þeirra íslensku.“
Verkið er sýnt á fimmtudag,
föstudag og laugardag í Tjarnarbíói
og hefjast sýningar klukkan 20.
Leiksýning um unga róttæklinga
„Hissa hvað mikið af bókinni minni er
ennþá í verkinu,“ segir Kári Tulinius
Morgunblaðið/Golli
Hryðjuverkasýning „Sagan gerist ekki lengur á Íslandi en sænsku karakterarnir gætu verið bestu vinir þeirra ís-
lensku,“ segir Kári Tulinius. Hann er hér með sænskum aðstandendum sýningarinnar í Tjarnarbíói.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
EVE Fanfest, hátíð aðdáenda og
notenda tölvuleiks fyrirtækisins
CCP, EVE Online, hefst í dag í
Hörpu og í kvöld
kl. 21 mun Sin-
fóníuhljómsveit
Íslands flytja
tónlist úr leikn-
um í Eldborg.
Verður það í
fyrsta sinn sem
sinfóníuhljóm-
sveit flytur þá
tónlist en höf-
undur hennar er
tónskáldið Jón
Hallur Haraldsson. Tónlistin sem
flutt verður er að mestu frá árunum
2002-9 en einnig verður leikin tón-
list sem á eftir að bæta við leikinn.
Jón Hallur segist hafa lært á
hljóðfæri sem barn og byrjað að
semja raftónlist á táningsaldri.
Hann hafi verið ráðinn til CCP árið
2000 með það verkefni að semja tón-
list, búa til hljóð í leikinn og forrita.
Yfir hálf milljón manna spilar leik-
inn og er áheyrendahópur Jóns því
vægast sagt stór.
Sveimkenndar tónsmíðar
– Tónlist fyrir tölvuleik hlýtur að
lúta öðrum lögmálum en önnur tón-
list, ekki satt? Hvað þarf að hafa í
huga þegar slík tónlist er samin?
„Þetta er kannski svipað og bak-
grunnstónlist í bíómyndum. Hún má
ekki vera fyrir og má ekki taka at-
hyglina frá notandanum. Þetta er
meira til að gefa einhvers konar til-
finningu, búa til stemningu,“ svarar
Jón Hallur.
– Og hún má ekki vera þreytandi?
„Hún má ekki vera þreytandi.
Helst áttu eiginlega ekki einu sinni
að taka eftir henni, þá er hún rétt
gerð,“ segir Jón Hallur.
– Nú er tónlistinni lýst í tilkynn-
ingu þannig að hún hafi sterka skír-
skotun til sveimtónlistar níunda ára-
tugarins. Er það rétt skilgreining?
„Já, það má segja það. Þaðan er
minn bakgrunnur og svona aðallega
upp úr tónlistarstefnu sem menn
kalla „ambient“,“ segir Jón Hallur
og á þar við sveimtónlist. Spurður
að því hvort hann hafi leitað inn-
blásturs í tónlist ákveðinna lista-
manna segir hann svo vera og nefnir
m.a. Aphex Twin og kvikmynda-
tónskáldin Vangelis og Jean Michel
Jarre.
– Það hlýtur að vera snúið að út-
setja þessa tónlist fyrir sinfón-
íuhljómsveit?
„Já og það var ekki ég sem gerði
það, ég myndi ekki hafa hundsvit á
því,“ svarar Jón Hallur en maðurinn
sem fékk það verkefni er tónskáldið
Kristján Guðmundsson. Jón Hallur
segist hafa notið fullkomins frelsis
við að skapa hljóðheim EVE Online
og Kristjáni takist fullkomlega að
endurskapa þann hljóðheim sem sé
mikið afrek.
CCP hefur haldið Fanfest árlega í
Reykjavík frá árinu 2004 og hefur
hátíðin farið vaxandi með ári hverju.
Hátíðin í ár fer fram um alla Hörpu
og er margt í boði þá daga sem hún
stendur yfir en henni lýkur 27. apríl.
Meðal þess sem boðið verður upp á
eru sýningar, fyrirlestrar og óvænt-
ar uppákomur. Leikmenn EVE On-
line víða að úr heiminum sækja há-
tíðina, um 2.000 talsins og um
hundrað erlendir blaðamenn. Hátíð-
inni lýkur með tónleikunum Party
at the Top of the World, en á þeim
koma fram Skálmöld, Retro Stef-
son, DJ Margeir og bandaríski
plötusnúðurinn og listamaðurinn Z-
Trip.
Tónlist sem á að vekja
sem minnsta athygli
Sinfóníuhljómsveit
Íslands flytur tónlist
úr EVE Online
Stemning Mynd frá hátíðinni í fyrra, starfsmaður í EVE Online-stíl.
Vígalegur Menn leggja mikið á sig
til að líta sem best út á EVE Fanfest.
Jón Hallur
Haraldsson
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
fanfest.eveonline.com/en/info/ program.
MIKIÐ ÚRVAL
af garni, blöðum, prjónum,
tölum, og öðrum prjónavörum
Þönglabakka 4, sími: 571-2288, www.gauja.is
Lopi frá
Ístex -
mögulega
besta
verð á
landinu!
Vordagar Mjódd
Opið til 21 í kvöld
Ýmis tilboð og uppákomur