Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 1

Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. M A Í 2 0 1 3  Stofnað 1913  122. tölublað  101. árgangur  REIKNAÐ MEÐ YFIR 500 KEPPENDUM SPORTBÍLL KOSTAR UM 150 MILLJÓNIR 125 ÍSLENSKIR KEPPENDUR Í LÚXEMBORG BÍLAR ÍÞRÓTTIRBLÁALÓNSÞRAUTIN 10 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðurkenndur skoðunarmaður frá Svifflugsambandi Danmerkur er væntanlegur hingað um næstu helgi til að framkvæma svonefnda CAMO-skoðun á átta til níu íslensk- um svifflugum. Það hefur ekki gerst áður í 77 ára sögu Svifflugfélags Ís- lands, að sögn Kristjáns Svein- björnssonar, formanns félagsins. Hér á landi er enginn sem hefur leyfi eða sérþekkingu til að CAMO- skoða svifflugur. Rúmlega 30 skráðar svifflugur eru á landinu. Þar af flugu 22 árið 2008 en aðeins níu fóru á loft í fyrra. Lofthæfi þeirra sem eru með slíkt rennur út í lok júní nk. „Það er svo mikil pappírsvinna við að halda loft- hæfinu,“ sagði Kristján um ástæð- una. „Einkaaðilarnir gefast upp meðan félagið berst við þetta. Við eyðum 200-300 tímum á ári í papp- írsvinnu sem ekki þurfti áður.“ Skoðunarmaður þarf að hafa vott- un flugmálastjórnar síns lands til að mega framkvæma CAMO-skoðun. Áður skoðuðu reyndir félagsmenn í Svifflugfélaginu svifflugur félagsins og fóru með pappírana til Flugmála- stjórnar. Kristján sagði svipaðan hátt hafa verið á skoðunum hér og í sambærilegum klúbbum í Evrópu. Ísland varð aðili að Flugörygg- isstofnun Evrópu (EASA) og segir Kristján að fyrst hafi reglur verið samræmdar gagnvart atvinnuflugi. Síðan hafi sömu reglur verið nánast heimfærðar beint yfir á sportflugið, bæði vélflug og svifflug. Einn flokk- ur vélflugs er þó undanþeginn, þ.e. gamlar flugvélar og heimasmíði. „Hátt í helmingur fljúgandi einkavéla er í flokki gamalla véla og heimasmíði, þótt þær séu ekki nema um þriðjungur skráðra véla,“ sagði Kristján. Hann kenndi um óheyri- legum kostnaði við opinbert eftirlit. Dani skoðar svifflugurnar  Enginn viðurkenndur skoðunarmaður hér með sérþekkingu á svifflugum  Mikil pappírsvinna við að viðhalda lofthæfi, segir formaður Svifflugfélags Morgunblaðið/Árni Sæberg Svifflug Mikil pappírsvinna. Vísbendingar eru um að sumarið geti orðið „sæmi- lega hlýtt“, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veð- urfræðings. Tiltölulega hár sjávarhiti mótar lofthitann í veru- legum mæli og getur því stuðlað að hlýindum. Engu að síður geta naprir norðanvindar blásið á lands- menn. Spáð er fremur hægri suðlægri átt á morgun og hlýindum á Norðausturlandi. »15 Morgunblaðið/Eggert Gæti orðið „sæmilega hlýtt“ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjöldi bænda á Norður- og Austurlandi verð- ur fyrir þungu höggi fjárhagslega vegna kals í túnum í vetur. Ljóst er að marg- ir verða fyrir milljónatjóni og áætla má að heildartjónið nemi hundruðum milljóna króna. Á sumum bæj- um eru 70-80% ræktunar ónýt vegna kals og ekkert annað að gera en að plægja túnin og rækta að nýju til að reyna að fá einhverja uppskeru í haust. Meðal kúabú þarf 50-60 hektara tún. Ef kalið hef- ur eyðilagt gróðurinn í 35 hekturum þarf við- komandi bóndi að kosta rúmum 5 milljónum til endurræktunar. Samt er óvissa með upp- skeru grænfóðurs í haust vegna þess hversu seint er hægt að sá, enda klaki enn að fara úr jörðu og erfitt að vinna að ræktun. Bjargráðasjóður bætir tjón bænda vegna kals, eftir því sem fjármunir hans hrökkva til. Sjóðurinn er ekki digur og getur því ekki bætt tjón bænda nema að sáralitlu leyti, nema til komi sérstök framlög frá ríkisvald- inu eins og eftir eldgosin. Margir bændur hafa gengið mjög á hey- fyrningar sínar í vetur og síðustu vetur og eru margir tæpir með fóður nú þegar gróður er seinn til vegna kulda. MTjón hleypur á hundruðum milljóna »4 Milljóna- tjón hjá bændum  Endurrækta þarf tún norðanlands vegna kals Víða kal » Tún eru kalin frá Hegranesi og norður í Fljót í Skagafirði. Í Eyja- firði er ástandið verst í Öxnadal og Hörgárdal en enn eftir að meta ástandið við ut- anverðan fjörðinn. » Kal er í allri Suð- ur-Þingeyjarsýslu, í Vopnafirði og á Fljótsdalshéraði.  Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Reykjavíkur í sumar er tæplega tíu sinnum stærra en Detti- foss og Goðafoss, flaggskip íslenska flotans, og mun vera stærsta skip sem hefur komið til Íslands. Skipið heitir Adventure of the Seas og er rúmlega 137 brúttótonn og rúmar rúmlega 3.100 farþega og um 1.200 skipverja. Fulltrúar skipafélaga sem voru á ráðstefnu hér fyrir skömmu vilja kanna betur hvort hægt sé að bjóða upp á tónleika og fleira fyrir far- þega skemmtiferðaskipanna í Hörpu. »6 Farþegaskip á stærð við tíu Dettifossa Ljósmynd/Matt H. Wade hjá Wikipedia Skip Adventure of the Sea getur flutt rúmlega 3.000 farþega.  Stærstu lífeyr- issjóðirnir hafa samþykkt að fella niður hluta af skuldum þeirra sem eru með lánsveð, í samræmi við viljayfirlýsingu ráðherranefndar fráfarandi rík- isstjórnar og Landssamtaka lífeyrissjóða, að sögn Þóreyjar S. Þórðardóttur, framkvæmdastjóra LL. Málið sé nú komið til Alþingis sem þarf að sam- þykkja fjárútlát ríkissjóðs áður en hægt er að fella niður skuldir sem eru umfram 110% af markaðsvirði fasteigna sem fjármagnaðar voru með lánsveðum. »4 Sjóðirnir sam- þykktu niðurfellingu Þórey S. Þórðardóttir  Utanríkisráðherrar Evrópusam- bandsins ákváðu í gærkvöldi að af- létta vopnasölubanni til sýrlenskra uppreisnarmanna samkvæmt til- kynningu frá William Hague, utan- ríkisráðherra Bretlands. Tilkynningin barst eftir meira en 12 klukkustunda langar viðræður milli ráðherranna sem sitja nú á fundi í Brussel. Hague sagði að Evrópusam- bandið myndi áfram viðhalda stærstum hluta refsiaðgerða gegn ríkisstjórn Sýrlands. »20 Sýrlenskir uppreisn- armenn fá vopn Sýrland Uppreisnarmenn fá vopn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.