Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 6
SVIÐSLJÓS
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Nú þegar sumarið er að hefjast fara
erlend skemmtiferðaskip að koma í
hafnir landsins. Samtals verða 83
skipakomur til Reykjavíkur í sumar
en sum skipanna koma oftar en einu
sinni. Samkvæmt upplýsingum frá
Faxaflóahöfnum eru skráð farþega-
rými í fyrrnefnd-
um skipum rúm-
lega 101 þúsund
talsins. Von er á
fyrsta skemmti-
ferðaskipinu,
Fram, næstkom-
andi föstudag, 31.
maí.
Mörg skipanna
eru í stærri kant-
inum en stærsta
skemmtiferða-
skipið sem von er á til Reykjavíkur í
sumar, Adventure of the Seas, rúm-
ar samtals 3.114 farþega og 1.180
skipverja. Skipið er rúm 137 þúsund
brúttótonn en til samanburðar má
nefna að flaggskip íslenska flotans,
Dettifoss og Goðafoss, eru hvort um
sig 14.664 brúttótonn. Samkvæmt
upplýsingum frá Faxaflóahöfnum er
um að ræða stærsta skip sem komið
hefur til landsins.
Fleiri skip stoppa yfir nótt
Að sögn Ágústs Ágústssonar,
markaðsstjóra Faxaflóahafna, munu
fleiri skip stoppa yfir nótt í Reykja-
vík í sumar heldur en í fyrra. „Það
eru held ég um það bil 23 skip sem
stoppa yfir nótt og það eru eiginlega
allt stór skip,“ segir Ágúst og bætir
við að um 19 skip hafi stoppað yfir
nótt í fyrra. Hann bendir einnig á að
ferðaþjónustan hafi reynt að fá
skemmtiferðaskipin til að vera hér
yfir nótt. „Við höfum verið að reyna
að fá skipin til að vera lengur hérna
til að farþegarnir eyði meira og mun-
ar um það að þeir eru allavega rúm-
lega tvo heila daga hérna,“ segir
Ágúst og bendir á að farþegarnir fari
gjarnan í skoðunarferðir í landi. „Því
lengur sem farþegar stoppa því
meiri líkur eru á að þeir eyði ein-
hverjum peningum hjá okkur og til
þess er nú leikurinn gerður.“
Klára stækkun Skarfabakka
Vinna við stækkun Skarfabakka í
Sundahöfn hófst í apríl á síðasta ári
en hann verður lengdur um 200
metra. Að sögn Ágústs verður hin
stækkaða höfn komin í notkun í byrj-
un næsta mánaðar. „Það verður að
vísu svolítill yfirborðsfrágangur eftir
en það er hægt að binda skipin og
nota kajann,“ segir Ágúst og bætir
við: „Það munar ansi miklu því að oft
er þetta orðið þannig að það koma
eitt, tvö og kannski þrjú skip á dag
og þá er erfitt að koma þeim að þeg-
ar þau eru orðin svona stór. Mörg af
þessum skipum eru um 300 metra
löng.“ Þá bendir hann á að eftir
stækkunina sé kajinn 650 metra
langur og því komist þar fyrir tvö
þrjú hundruð metra löng skip í einu.
Að sögn Ágústs er verið að vinna
rannsókn á efnahagslegum áhrifum
skemmtiferðaskipanna sem koma
hingað til lands. „Við erum með
samning við Rannsóknarsetur ferða-
mála hjá Háskólanum á Akureyri.
Það eru Cruise Iceland samtökin
sem eru að láta gera rannsókn á því
hverju farþegar skemmtiferðaskip-
anna bæta hér við,“ segir Ágúst.
Nú þegar hafa 73 skemmtiferða-
skip boðað komu sína til Reykjavík-
ur sumarið 2014. Þar á meðal er Ad-
venture of the Seas sem fjallað var
um hér að ofan. Stærsta skipið sem
von er á næsta sumar er hinsvegar
risaskipið Royal Princess en það er
hvorki meira né minna en 139 þús-
und brúttótonn.
Rétt er að benda áhugasömum
lesendum á að hentugt getur verið að
klippa út listann hér til hliðar og
geyma hann á góðum stað.
Rúmlega 100 þúsund farþegar
Von er á samtals 83 skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar Sum skipanna eru gríðarstór
Fleiri skip munu stoppa yfir nótt heldur en í fyrra Fyrsta skipið kemur næstkomandi föstudag
Komud. Skip Lega Komud. SkipStærð brt. Lega Stærð brt.
2013Komur skemmtiferðaskipatil Reykjavíkur í sumar
COSTAPACIFICAEMERALD PRINCESS
31.maí FRAM Skarfabakki 11.647
3. júní CRYSTALSYMPHONY Skarfabakki 51.044
3. júní SEAEXPLORER Miðbakki 4.200
3. júní ADVENTURE OFTHE SEAS Skarfabakki 137.276
6. júní ARTANIA Skarfabakki 44.588
7. júní MSCMAGNIFICA Skarfabakki 95.128
10. júní AMADEA Skarfabakki 29.008
11. júní AIDAluna Skarfabakki 69.203
11. júní DISCOVERY Sundabakki 20.216
11. júní SEVEN SEASVOYAGER Skarfabakki 42.363
12. júní AURORA Skarfabakki 76.152
17. júní COSTAPACIFICA Skarfabakki 114.288
18. júní FRAM Skarfabakki 11.647
18. júní SEAADVENTURER Miðbakki 4.376
19. júní AIDAcara Skarfabakki 38.557
23. júní MARCO POLO Skarfabakki 22.080
23. júní ARTANIA Skarfabakki 44.588
24. júní QUEENVICTORIA Skarfabakki 90.049
25. júní SAGARUBY Sundabakki 24.492
25. júní AIDAluna Skarfabakki 69.203
28. júní CELEBRITY INFINITY Skarfabakki 90.940
1. júlí ALBATROS Skarfabakki 28.518
4. júlí EUROPA Skarfabakki 28.890
6. júlí AIDAcara Skarfabakki 38.557
9. júlí OCEAN PRINCESS Sundabakki 30.277
9. júlí AIDAluna Korngarður 69.203
9. júlí CELEBRITYECLIPSE Skarfabakki 121.878
9. júlí AZAMARAQUEST Skarfabakki 30.277
11. júlí NG EXPLORER Miðbakki 6.471
12. júlí ARCADIA Skarfabakki 83.781
14. júlí AMADEA Skarfabakki 29.008
15. júlí HAMBURG Miðbakki 15.067
17. júlí SEAPRINCESS Skarfabakki 77.499
19. júlí NG EXPLORER Miðbakki 6.471
19. júlí CELEBRITY INFINITY Skarfabakki 90.940
22. júlí HANSEATIC Miðbakki 8.378
22. júlí QUEEN ELIZABETH Skarfabakki 90.901
23. júlí AIDAluna Skarfabakki 69.203
23. júlí AIDAcara Skarfabakki 38.557
26. júlí SILVER CLOUD Miðbakki 16.927
26. júlí COLUMBUS 2 Skarfabakki 30.277
29. júlí PRINSENDAM Skarfabakki 38.848
29. júlí ORIANA Skarfabakki 69.153
30. júlí THOMSONSPIRIT Skarfabakki 33.930
31. júlí MINERVA Miðbakki 12.449
31. júlí HAMBURG Skarfabakki 15.067
1. ágú VOYAGER Miðbakki 15.343
2. ágú ALBATROS Skarfabakki 28.518
2. ágú PRINCESS DANAE Miðbakki 16.531
3. ágú BRILLIANCE OFTHE SEAS Skarfabakki 90.090
5. ágú BRAEMAR Skarfabakki 24.344
6. ágú AIDAluna Korngarður 69.203
6. ágú CELEBRITYECLIPSE Skarfabakki 121.878
7. ágú SILVER EXPLORER Miðbakki 6.072
8. ágú DISCOVERY Skarfabakki 20.216
8. ágú ATHENA Miðbakki 16.144
8. ágú VEENDAM Skarfabakki 57.092
9. ágú MARCO POLO Skarfabakki 22.080
17. ágú SEASPIRIT Miðbakki 4.200
18. ágú PRINCESS DANAE Miðbakki 16.531
19. ágú PRINCESS DAPHNE Miðbakki 15.833
20. ágú AIDAluna Skarfabakki 69.203
21. ágú BLACKWATCH Skarfabakki 28.613
24. ágú ORIANA Skarfabakki 69.153
1. sept BREMEN Miðbakki 6.752
2. sept AMADEA Skarfabakki 29.008
2. sept EURODAM Skarfabakki 86.273
4. sept AIDAluna Skarfabakki 69.203
4. sept ADVENTURE OFTHE SEAS Skarfabakki 137.276
5. sept CARIBBEAN PRINCESS Skarfabakki 112.894
5. sept PRINCESS DAPHNE Miðbakki 15.833
8. sept BRILLIANCE OFTHE SEAS Skarfabakki 90.090
8. sept CRYSTALSYMPHONY Skarfabakki 51.044
10. sept SEASPIRIT Miðbakki 4.200
11. sept SEABOURN SOJOURN Skarfabakki 32.346
13. sept AIDAbella Skarfabakki 69.203
16. sept ALBATROS Skarfabakki 28.518
17. sept EXPEDITION Miðbakki 6.172
17. sept EMERALD PRINCESS Skarfabakki 113.561
18. sept FRAM Miðbakki 11.647
18. sept SILVERWHISPER Skarfabakki 28.258
26. sept NORWEGIAN STAR Skarfabakki 91.740
1. okt CARNIVALLEGEND Skarfabakki 85.942
Komur alls: 83
Heimild: Faxaflóahafnir
Ágúst
Ágústsson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Tækifæri eru til tónleikahalds fyrir
farþega skemmtiferðaskipa sem
stoppa yfir nótt í Reykjavík, að mati
fulltrúa skipafélaganna Carnival
UK, Seabourn Cruises, Silversea og
Royal Caribbean Cruise Line, sem
viðstaddir voru ráðstefnuna Cruise
North Atlantic Symposium sem ný-
verið var haldin í Björtuloftum í
Hörpu. Þetta segir Ágúst Ágústs-
son, markaðsstjóri Faxaflóahafna.
Harpan kom mest á óvart
Um það bil 90 manns sóttu ráð-
stefnuna en á henni var fjallað um
starfsemi skemmtiferðaskipa á
Norður-Atlantshafi. Að ráðstefn-
unni, sem einungis var opin boðs-
gestum, stóðu ferðayfirvöld og hafn-
ir í Nýfundnalandi og Labrador,
Grænlandi, Orkneyjum og Noregi,
Faxahafnir sf. og Þórshöfn í Fær-
eyjum.
Að sögn Ágústs hafði enginn af
fyrrnefndum fulltrúum skipafélag-
anna komið áður til Íslands. Í ferð
þeirra hingað til lands hefði Harpan
komið þeim mest á óvart og full-
trúarnir beðið um sérstaka skoð-
unarferð um hljómleikasali hússins.
Þá hefðu þeir verið sannfærðir um
að tækifæri væru til tónleikahalds í
Hörpunni fyrir farþega skemmti-
ferðaskipa sem stoppa næturlangt í
höfuðborginni. Þá bendir Ágúst á að
flest stærri skemmtiferðaskipin sem
koma til Reykjavíkur stoppi hér yfir
nótt.
Fulltrúar stórra skipafélaga
sjá tækifæri í Hörpunni
Ljósmynd/Ágúst Ásgeirs
Ráðstefna Gestir ráðstefnunnar North Atlantic Cruise Symposium á svöl-
um Hörpunnar í Reykjavík. Ráðstefnan var aðeins opin boðsgestum.
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi
sími: 488 - 9000
www.samverk.is
samverk@samverk.is
Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf
Víkurhvarfi 6, 230 Kópavogi