Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 9

Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 9
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Samkeppniseftirlitið hefur enn ekki tekið afstöðu til þess hvort tilefni sé til frekari rannsóknar eftir að Viðskiptablaðið kvartaði undan 365 miðlum í mars 2012 fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu á íslenskum fjölmiðlamark- aði. Héraðsdómslögmaður telur bagalegt hve lengi mál sem þessi eru til umfjöllunar hjá stofnuninni og hvetur til bætts verklags. Skoðað á næstu dögum „Við höfum verið að skoða mál- ið. Aðilum þess verður gerð grein fyrir því á næstu dögum hvert framhaldið verður,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri Sam- keppniseftirlitsins. Pétur Árni Jónsson útgefandi Viðskiptablaðsins undrast seina- ganginn við vinnslu málsins. „Við sendum kvörtunina formlega inn 28. mars 2012 og nú eru liðnir 14 mánuðir. Við skiljum ekki þennan seinagang. Enn hefur ekki einu sinni verið tekin afstaða til þess hvort málið verði rannsakað nán- ar,“ segir Pétur. Heiðrún Lind Marteinsdóttir héraðsdómslögmaður á lögmanns- stofunni LEX gætir hagsmuna Viðskiptablaðsins í málinu. Að hennar mati er sá tími sem mál taka hjá Samkeppniseftirlitinu allt of langur. „Ef markmið sam- keppnislaga um að efla virka sam- keppni á fram að ganga, þá er vandséð hvernig ná megi því fram þegar málsmeðferð er svona löng. Það er hvorki þeim sem kvartar, né þeim sem er kvartað er undan, til hagsbóta að bíða svona lengi,“ segir Heiðrún. Hún segir það taka 3-5 ár að fá niðurstöðu í sambæri- legum málum. Hún gagnrýnir verklag stofn- unarinnar. „Á frumstigum mála er eins og engin skoðun fari fram af hálfu stjórnvaldsins. Hugsanlega er þörf á því að hefja strax frumrann- sókn þannig að unnt sé að skera nokk- uð fljótt úr um hvaða hátt- semi leiðir til alvarlegrar sam- keppnisröskunar, og hvaða málum megi strax loka án afskipta. Auk þess þyrftu að vera til frekari sáttarúrræði svo hægt sé að ljúka málum með sátt þar sem það á við. Fjárskorturinn er eitt en fleira kemur til,“ segir Heiðrún. Framlög lækkað um 20% Umboðsmaður Alþingis tók langa málsmeðferð Samkeppn- iseftirlitsins til umfjöllunar í fyrra. Í svörum til hans kom fram að Samkeppniseftirlitið væri með- vitað um vandann og að það leitaði leiða til þess að bregðast við hon- um. Í framhaldinu ritaði umboðs- maður Alþingis efnahags- og við- skiptaráðherra bréf um vandann. Í kjölfarið hækkuðu stjórnvöld framlög um 20 milljónir til stofn- unarinnar í fjárlögum ársins 2013. Í heild hafa framlög til Samkeppn- iseftirlitsins lækkað um 20% frá hruni að sögn Páls Gunnars Páls- sonar forstjóra. Tekur 3-5 ár að fá niðurstöðu í mál  14 mánuðir frá kvörtun Viðskipta- blaðsins til Samkeppniseftirlitsins MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ÁRSALIR FASTEIGNAMIÐLUN 533 4200 FASTEIGNASALA FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN Vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá .... Hafðu samband Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Buxnaleggings kr. 6.900 Str. 38-48 Ármúla 17. Sími 533-1234. www.isol.is Slípari Rotex Ro 150 Batterís borvél T 18+3 Fræsari OF 1010 Juðari ETS 150/3 Hjólsög TS 55 R + land Stingsög PSB 300 Vertu á GLÆSILEGAR SUMAR- YFIRHAFNIR Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Opnum á nýjum stað í júní H Ú S G Ö G N Verslun okkar er opin: Virka daga kl.9-18 Laugardaga kl.11-16 Sunnudaga lokað Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is 60% -20% -30%-90% -10% -50% 40% opnum kl.9 Sýningareintök og útlitsgallaðar vörur með allt að 90% afslætti fyrstir koma fyrstir fá VEGNA FLUTNINGA RÝMINGARSALA Fjarstýringavasarverð2.500áður5.200 Hornborð verð 15.970áður19.900 Speglar verð5.000 áður 47.900 Heilsukoddarverð2.900áður 6.000 Baststólar verð frá5.000 áður 25.000 Sjónvarpsskáparverðfrá23.640áður59.900 1 stk Tungusófi verð 70.000 áður 196. 900 Sófasett 311 verð 139.000 áður 436.400 1 stk mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.