Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 11
Stofnandinn Albert Jakobsson er einn af stofnendum Bláalónsþrautarinnar en hjólreiðaáhuginn hefur fylgt honum
frá því snemma á níunda áratugnum. Hann mun ekki keppa í ár enda í nógu að snúast í skipulaginu.
og þar af er um einn þriðji á malbiki
og er heildarhækkunin upp á 600
metra.“ Albert segir ekki mikið um
óhöpp en þó alltaf eitthvað. Ein
beygja er að hans sögn sérstaklega
varhugaverð. „Sú beygja er á
Djúpavatnsleiðinni en þar hefur fólk
bæði verið að sprengja dekk og
detta. Þar er svolítið þröngt þannig
að ef einhver sprengir þá fipast fólk
þar fyrir aftan. Við verðum núna
með björgunarsveitaraðstoð á þeim
stað en við höfum verið svo lánsöm
að það hefur enginn slasast alvar-
lega.“
Björgunarsveitirnar sjá um ör-
yggið á staðnum og eru með bíla
fremst, í miðjunni og aftast. „Aftasti
hópurinn sér um að taka þá upp
sem lenda í óhappi eða treysta sér
ekki til að klára. Við köllum þann
hóp fægiskófluna.“
Verðlaun veitt í Bláa lóninu
Sú nýbreytni hefur verið tekin
upp í ár í samvinnu við Bláa lónið að
lóninu er lokað að keppninni lokinni
svo þátttakendur hafa einir aðgang
að því. „Við vorum að sprengja utan
af okkur búningsaðstöðuna og vor-
um komnir í öngstræti með það
þannig að það er bara hjólafólkið
sem fer ofan í núna. Við ætlum líka
að gera stærri viðburð úr þessu,
meira í ætt við hvernig þetta var í
gamla daga þegar við vorum á milli
tuttugu og fjörutíu og gátum verð-
launað í Bláa lóninu og haft meira
húllumhæ þar.“
Albert fær sjaldnast að taka
þátt í þrautinni, eins og hann segir
sjálfur, þar sem hann stendur svo
oft að skipulagningu. „Ég hef samt
einstaka sinnum fengið að prófa.
Ég fékk að keppa fyrir tveimur
árum en það vildi ekki betur til en
svo að ég fór á hausinn og viðbeins-
brotnaði á Krísuvíkurveginum en
kláraði reyndar keppnina. Ég mun
ekki keppa í ár, verð á kafi í skipu-
laginu.“
Undanfarin tvö ár hafa komið
til landsins þekktir hjólreiðamenn
frá bæði Danmörku og Noregi til að
taka þátt í keppninni. „Ellingsen
byrjaði að flytja inn Merida-reiðhjól
frá Noregi og þeir eru með heimsk-
lassalið á sínum snærum og senda
einn mann núna í keppnina frá
Merida-liðinu og svo kemur lið frá
Danmörku. Þessi sem kom frá
Merida í fyrra lenti í fjórða sæti svo
í ár senda þau betri gaur.“
Spandex betra en gallabuxur
Albert segir að umhverfisvit-
und og fall krónu eigi líklegast
stærsta þáttinn í örum vexti íþrótt-
arinnar hér á landi. „Maður finnur
gríðarlega fyrir fjölgun á stígunum.
Hér áður fyrr vorum við strákarnir
einu mennirnir sem vorum að hjóla
á veturna en það er ekki þannig
lengur. Ég hef svo sem ekki aðra
skýringu nema kannski þá að við
höfum fengið frægara fólk til að
koma inn að hjóla og það hefur
fengið mikla umfjöllun sem gerir
það að verkum að fólk sér að maður
þarf ekki að vera nörd í spandex til
að geta skellt sér á götuhjól eða
fjallahjól. Það enda reyndar flestir í
spandexinu af því að það er mun
þægilegra að vera í sérhönnuðum
hjólafatnaði. Það verður til dæmis
mjög óþægilegt fyrir hnén þegar
gallabuxurnar blotna.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Í tilefni af því að fyrstu íþróttakenn-
arar voru útskrifaðir frá Íþróttaskóla
Björns Jakobssonar fyrir 80 árum og
Íþróttakennaraskóli Íslands stofn-
aður fyrir 70 árum síðan var blásið til
veislu um síðustu helgi. Hátt í 300
manns komu saman og var skólasag-
an rifjuð upp í gegnum leik, dans og
skemmtiatriði. Gamlir og ungir
íþróttakennarar ræddu saman, döns-
uðu og gerðu ýmiss konar leikfimis-
æfingar.
Árni Guðmundsson fyrrverandi
skólastjóri og kona hans Hjördís
Þórðardóttir voru heiðruð á samkom-
unni en þau unnu samfellt í 40 ár við
skólann og var Árni skólastjóri allan
þann tíma. Fyrrverandi nemendur
skólans afhentu þeim málverk af
hjónunum sjálfum. Árni hefur haft
mikil áhrif á íþróttakennslu í gegnum
tíðina og í hans skólastjórnartíð var
námið lengt úr einu ári í tvö.
Afmælishátíð
Heiðurshjón Hjördís Þórðardóttir og
Árni Guðmundsson.
Íþróttaskóli
í 80 ár
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600