Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 14 26 www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Útskriftarstjarnan er komin. Glæsileg útskriftargjöf. Okkar hönnun og smíði Nýr 4ra rétta seð ill og A la Carte í Perlunni Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56 2 0207 • perlan@perlan.is • ww w.perlan.is Gjafabréf Perlunnar Góð gjöf við öll tækifæri Skotveiðimaður hefur verið dæmdur í 80 þús- und króna sekt vegna rjúpnaveiða í fyrra- haust í Gjábakkahrauni norðan gamla Gjá- bakkavegarins, innan marka þjóðgarðsins á Þingvöllum. Jafnframt er hann sviptur skot- vopnaleyfi í sex mánuði, en er hins vegar sýknaður af kröfu um upptöku haglabyssu. Þá er í dómi Héraðsdóms Suðurlands ákveðið að allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, en í ákæru var ekki gerð krafa um að ákærða yrði gert að greiða hann. Málið var höfðað vegna brots á veiðilögum og reglugerð um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Í gögnum kemur fram að maðurinn hafi verið um 2,2 kílómetra innan þjóðgarðsins. Hann bar að hann hefði ekki verið að veiðum þegar að honum var komið heldur á leið í bíl sinn eftir að hafa athugað með veiðar á svæði utan þjóðgarðsins. Því til sannindamerkis benti ákærði á að hann hefði verið með byssuna á bakinu og með gikköryggi byssunnar á. Dómurinn fellst ekki á þetta og segir m.a. í niðurstöðum dómsins að „ákærði var eða hafði verið á veiðislóð og hvort sem ákærði var á leið til bifreiðar sinnar eða ekki umrætt sinn, þá verður ekki framhjá því litið að hann var með byssu sína hlaðna.“ Samkvæmt vopnalögum skuli skotvopn vera óhlaðin við flutning á milli staða og að auki í umbúðum. Ennfremur segir í niðurstöðum dómsins: „Verður að líta svo á að meðan ákærði gekk með byssu sína hlaðna á bakinu umrætt sinn hafi hann verið á veiðum, enda engin skyn- samleg skýring komin fram á því hvers vegna ákærði var með byssuna hlaðna, önnur en sú augljósa að hann hafi verið á veiðum. Það að gikköryggið hafi verið á breytir þessu ekki, enda góðir veiðisiðir að taka ekki öryggið af fyrr en veiðimaður er tilbúinn að hleypa af skoti sínu. Má gera ráð fyrir því að veiðimaður sem gengur um veiðislóð með hlaðna haglabyssu sé á veiðum,“ segir í nið- urstöðum dómsins. aij@mbl.is Sekt vegna „rjúpnaveiða“ í þjóðgarðinum  „Engin skynsamleg skýring komin fram á því hvers vegna ákærði var með byssuna hlaðna, önnur en sú augljósa að hann hafi verið á veiðum“ Morgunblaðið/Golli Þingvellir Rjúpnaskyttan var tekin með hlaðna byssu um 2,2 km innan þjóðgarðsins. „Við erum aðeins farin að sjá ofan í hóla, þeir eru farnir að standa upp úr,“ sagði Óskar Gunnarsson, bóndi á Dæli í Skíðadal. Í gær var þar norðan slagveðurs-rigning, 4°C hiti og spáð hlýindum næstu daga. „Snjórinn hefur sigið mikið en það er geysilega mikið eftir,“ sagði Ósk- ar. „Þetta getur gerst mjög hratt ef það hlýnar.“ Á Dæli er búið með um 50 kýr og um 50 kindur. Lambféð er á fullri gjöf í hólfi við fjárhúsin og kemst ekki á beit fyrir snjónum. Óskar sagði að fjárbændur í kring væru all- ir með féð á húsum eða í hólfum heima við, hvergi nokkur beit fyrir féð. Óskar sagðist ekki vita um ástand túnanna undir snjónum. Þó er vitað að ekki er frost í jörðu. Nokkur tími þarf að líða eftir að snjó tekur upp og túnin að þorna áður en sést hvort gróður tekur við sér. Óskar sagði að neðar í sveitinni, þ.e. í miðjum Svarf- aðardal, væri minni snjór og honum sýndist að þar væri víða kal í túnum. „Þetta hefur verið óskaplega lang- ur vetur,“ sagði Óskar. Snjórinn kom í lok október. Bændur í Skíðadal sluppu við hretið í byrjun september og fjárskaða að mestu leyti, enda voru göngur sömu helgi og hretið gerði. Óskar sagði að veturinn og vorið 1995 hefði líka verið mikill snjór en ekki jafnmikið harðfenni og er nú. „Í vetur snjóaði svo mikið í frost- linum, rétt við frostmark. Það skóf svo lítið að snjórinn er mjög jafnt yfir allt,“ sagði Óskar. Hann sagðist helst ekki vilja hugsa um ástand girðinga undir fannferginu. „Maður sér lítið af þeim ennþá en ég reikna með að þær séu mjög illa farnar,“ sagði Óskar. Hann á von á að sumarið verði stutt. „Ætli maður verði ekki að bera á um það leyti sem maður hefur verið að byrja að slá,“ sagði Óskar. Hann kvaðst eiga hey út júní. gudni@mbl.is Aðeins farið að sjást í hólana í Skíðadal  Snjórinn farinn að síga en mikið eftir Dæli Snjórinn hefur sigið heilmikið síðan þessi mynd var tekin. Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður, segir að til alvarlegrar skoðunar sé að banna með öllu vopnaburð í þjóðgarðinum. Það þurfi að hafa í huga við breytingar á skotvopnalöggjöf sem liggur fyrir Alþingi. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem greint er frá hér til hliðar, kemur fram það álit dóms- ins að heimild Þingvallanefndar til að setja sérstakar tímabundnar reglur m.a. um bann við veiðum dýra innan þjóðgarðsins, geti ekki verið lagastoð fyrir ótímabundnu og altæku banni við skotveiðum þar. „Fyrst og fremst viljum við að tekin verði af öll tvímæli um það að menn sem bera vopn innan þjóðgarðsins geti ekki haldið því fram að þeir hafi verið á göngu. Lögfræðingar eru að skoða hvernig rammi laga og reglna þarf að vera til að það sé afdráttarlaust að vopnaburð- ur innan þjóðgarðsins sé bannaður. Við teljum slíkt ekki eiga heima í þjóðgarðinum og svo má benda á að menn þurftu að skilja vopn sín eftir þegar þeir gengu til funda á Þingvöllum til forna,“ segir Ólafur Örn Haraldsson. Skoða algjört bann við vopnaburði BREYTINGAR Á SKOTVOPNALÖGGJÖF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.