Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 15

Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Ylfa Kristín K. Árnadóttir Ágúst Ingi Jónsson Skýjað hefur verið víða um land undanfarið og vætusamt og óttast sumir að þetta sé það sem koma skal næstu vikurnar. Einar Svein- björnsson veðurfræðingur segir að vísbend- ingar séu um að sumarið verði „sæmilega hlýtt“ en það sé þó útilokað að segja til um hvernig það verði að öðru leyti. Einar segir tiltölulega háan sjávarhita geta þýtt að sumarið verði hlýtt þar sem hann móti lofthitann í verulegum mæli. En þrátt fyrir háan sjávarhita getum við verið „óhepp- in“ þannig að hér verði ríkjandi vindar af köldum svæðum, norðri og norðvestri, eins og hefur verið undanfarið. „En þó að það hafi verið ríkjandi vindar úr þeim óhagstæðu átt- um í einhverjar vikur núna í vor gefur það engar vísbendingar um hvernig veðrið verður í sumar. Það getur snúist eins og hendi sé veifað á einum degi.“ Kuldapollur í háloftunum Að sögn Einars hefur kuldapollur verið í háloftunum yfir landinu og vesturundan. „Það er ekkert óvenjulegt við það en það er eðlilegt við svona kuldapolla að minnka og hverfa með hækkandi sól og eftir því sem það sumrar hjá okkur. Þetta eru síðustu dreggjar vetrarins á norðurhjaranum. Hækkandi sól og upphitun yfirborðsins, minnkandi snjór og klaki gera að verkum að svona kuldapollar hverfa með tímanum,“ segir hann. Frekar kalt hafi verið í gær og verði í dag en síðan séu spár hagstæðar hvað varðar hita. Búist sé við meira af suðlægu lofti og því fari hitinn hækkandi og umhverfið verði sumarlegra, grasið grænki og blómin springi út. Fólk þurfti því ekki að hafa áhyggjur af veðrinu núna. „Þetta er einmitt tíminn fyrir ský og úrkomu,“ segir Einar. „Það er gott að fá úrkomuna framan af sumri þegar gróð- urinn er að vaxa. Það er svo oft þannig að ef það eru sólardagar á þessum árstíma á höf- uðborgarsvæðinu fylgir því yfirleitt frekar kaldur vindur en það er fyrir norðan og aust- an þar sem gott sólfar og hlý gola geta farið saman. Íbúar á Norður- og Austurlandi munu fá þannig daga þegar líður á vikuna en þessi vor- eða sumarkoma hjá okkur gengur hægum en samt öruggum skrefum fram á við.“ Getum vonað að þær bregðist Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði á bloggi sínu á sunnudag að á síðustu árum hefði verið venjan að hiti kæmist í 20 stig einhvers staðar á landinu fyrir lok maímán- aðar. „Nú eru að vísu fimm dagar eftir af mánuðinum en enn bólar ekkert á svo háum hita í tölvuspám. Við getum samt vonað að þær bregðist. Það hefur ekki gerst síðan 1999 að hiti á landinu hafi ekki náð 19 stigum á þessum tíma. Þá var hæsti hiti fyrstu fimm mánaða ársins 18,1 stig. Jafn og nú. Fyrir þann tíma voru hitamælistöðvar mun færri en nú er og líkur á háum tölum minni ár hvert. Í maílok 1994 var hæsti hiti ársins til þessa tíma 17,2 stig. Við huggum okkur við það að í maílok 1979 hafði hitinn hvergi náð 15 stigum á landinu – við erum ekki að lenda í því að þessu sinni. Þetta er þó ekki þannig að einhver skortur sé á hlýju lofti á norðurhveli – það er bara ekki hér,“ skrifar Trausti. Síðustu dreggjar vetrarins  Vísbendingar um að sumarið verði „sæmilega hlýtt“  Tiltölulega hár sjávarhiti en getum verið „óheppin“  Ekki skortur á hlýju lofti á norðurhveli – það er bara ekki hér  Hvergi 20 gráður í maí Morgunblaðið/Eggert Kuldalegt Veðrið hefur ekki verið sérstaklega fallið til útivistar og betra að vera vel klæddur. VEÐURHORFUR » Á miðvikudag er spáð fremur hægri suðlægri átt. Útlit er fyrir að léttskýjað verði á Norðaustur- og Austurlandi, en að skúrir verði í öðrum landshlutum. Spáð er 8 til 15 stiga hita og að hlýjast verði NA-lands. » Á fimmtudag er spáð suðaustanátt. Áfram er spáð bjartviðri norðaustan til og að hiti breytist lítið. » Suðlæg átt verður áfram á föstudag og væta á köflum sunnan- og vestantil, en annars þurrt. Hiti yfirleitt 7 til 12 stig. www.kia.com ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook *M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,84%. 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. Nýr Carens kostar frá 4.990.777 kr. Aðeins 47.677 kr. á mánuði í 84 mánuði* H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -1 2 0 2 Nýr Kia Carens - rúmgóður 7 sæta fjölskyldubíll Það er frábært að skutlast með börnin á íþróttaæfingar, í tónlistarskólann eða heim til leikfélaganna þegar bíllinn er rennilegur og góður í akstri eins og Kia Carens. Í honum finnur þú allt sem prýðir góðan og einstaklega vel búinn 7 sæta fjölskyldubíl og að sjálfsögðu er hann með 7 ára ábyrgð. Nýr Carens 1,7 dísil, sex gíra, eyðir frá 5,1 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Komdu í Öskju og kynntu þér nýjan og einstaklega vel búinn Carens.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.