Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 16

Morgunblaðið - 28.05.2013, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Verðlaunaafhending í Nýsköpunarkeppni grunnskóla- nemenda fór fram í Háskólanum í Reykjavík síðastliðinn sunnudag. 53 þátttakendur voru í úrslitunum en kepp- endur unnu í vinnustofum á fimmtudag og föstudag með aðstoð frá sérfræðingum úr háskólasamfélaginu. Alls hlutu 18 keppendur verðlaun í fjórum flokkum, uppfinn- ingu, útlits- og formhönnun, landbúnaði og tölvu- og tölvuleikjum. Forseti Íslands afhenti verðlaunin og flutti hátíð- arræðu en hann er verndari keppninnar. Hann hrósaði keppendum fyrir dugnað auk þess sem hann hvatti til þess að kannað yrði hvernig mætti auka hlut stráka í keppninni en ár hvert eru stúlkur í miklum meirihluta þátttakenda. Illugi Gunnarsson, nýskipaður mennta- og menningarmálaráðherra var einnig viðstaddur og flutti hvatningarræðu til hugmyndasmiðanna ungu þar sem hann benti á að hugmyndir þessara krakka væru þau fræ sem síðar verða að máttarstólpum íslensks efnahagslífs. Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri vöruþróunarsviðs Marel, tók fram að hann hefði orðið sérstaklega hrifinn af tækni- og tölvuþekkingu þátttakenda. Það væri slík tækniþekking sem væri mikilvæg í dag fyrir fyrirtæki eins og Marel, en Marel er aðalbakhjarl keppninnar. Skólar einnig verðlaunaðir Auk verðlauna fyrir bestu hugmyndirnar eru einnig veitt verðlaun til þeirra skóla sem eiga flesta nemenda- fulltrúa í úrslitunum. Í flokki lítilla skóla var Brúarás- skóli í Fljótsdalshéraði hlutskarpastur, en í flokki stórra skóla hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ farandbikarinn fimmta árið í röð, og benti forsetinn á það í ræðu sinni. Margrét Harðardóttir, skólastjóri Hofsstaðaskóla, var vitanlega mjög stolt af árangri skólans. Velgengni skól- ans útskýrir Margrét bæði með stefnu skólans í nýsköp- unarkennslu auk þess sem Sædís Arndal, smíðakennari við skólann hafi dregið vagninn og verið dugleg við að að- stoða krakkana þegar þau hafi fengið góðar hugmyndir. bmo@mbl.is Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir Nemendur Alls hlutu 18 keppendur verðlaun í fjórum flokkum, uppfinningu, útlits- og formhönnun, landbúnaði og tölvum og tölvuleikjum. Sigurvegararnir stilltu sér upp með forsetanum og menntamálaráðherranum. Sigruðu fimmta árið í röð  Nýsköpunarverðlaun grunnskólanema veitt  Hofs- staðaskóli hlutskarpastur áfram  Hátt hlutfall stúlkna Sannir heimilisvinir Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is ryksugur Fyrsta flokks frá FÖNIX... Áttatíu manns útskrifuðust úr raunfærnimati frá Iðunni fræðslu- setri í gær. Um var að ræða ófag- lærða iðnaðarmenn, 25 ára og eldri, sem höfðu öðlast í það minnsta fimm ára starfsreynslu og höfðu hug á að ljúka námi í sínu fagi. Iðan hefur aldrei fyrr útskrifað svo stór- an hóp í einu. „Starfsvettvangur útskrift- arhópsins er mjög fjölbreyttur og má þar t.d. nefna iðngreinar eins og pípulagnir, múraraiðn, málaraiðn, húsasmíði, bifvélavirkjun, bifreiða- smíði, bílamálun og vélstjórn,“ seg- ir í fréttatilkynningu. Með raunfærnimatinu hafa þátt- takendurnir öðlast viðurkenningu á þeirri færni sem þeir hafa aflað sér í starfi og frítíma. Það mun í mörg- um tilfellum koma til styttingar á námi. Kjósi þeir svo er næsta skref að setjast á skólabekk og taka til við nám sem margir hófu en luku ekki. gudni@mbl.is Ljósmynd/Iðan Útskrifuðust úr raunfærnimati Lögmannafélag Íslands efnir til hádegisverðar- fundar á Hilton Hótel Nordica þriðjudaginn 28. maí kl. 12:00- 14:00. Fundarefnið er: „Framtíð- arskipan dóm- stóla, meðal ann- ars með tilliti til hugmynda um millidómstig.“ Frummælandi verður Jón Stein- ar Gunnlaugsson, hæstaréttar- lögmaður og fyrrverandi hæsta- réttardómari. Skráning er á vef Lögmanna- félagsins. Fjallar um framtíð- arskipan dómstóla Jón Steinar Gunnlaugsson Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, stend- ur fyrir fundi þriðjudaginn 28. maí kl. 20 í kvennaheimilinu Hallveig- arstöðum, Túngötu 14. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dós- ent í guðfræðilegri siðfræði, flytur þar erindi um skömmina. Í erindinu fjallar hún um tvær siðferðilegar tilfinningar; skömm og sekt, og veltir fyrir sér bæði skyldleika þeirra og mismun. Að erindinu loknu verða opnar umræður fundargesta. Rætt um skömmina STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.