Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Óskar Andri og Kristín Alís Víðisbörn eru
mikið fuglaáhugafólk og nýverið fengu þau
leyfi Náttúrufræðistofnunar Íslands til þess
að standa að fuglamerkingum.
Fuglar leika stórt hlutverk í lífi þeirra
beggja. Óskar er mikill áhugamaður um
fuglaljósmyndun og Kristín stundar meist-
aranám í líffræði við Háskóla Íslands og
rannsakar hrafninn í meistaraverkefni sínu.
„Fuglar hafa alla tíð verið stór hluti af lífi
okkar en við erum alin upp við Elliðavatn
þar sem fuglalífið er fjölbreytt. Við systk-
inin nálgumst þó fuglana með ólíkum hætti.
Ég hef mesta ánægju af því að mynda
fuglana og upplifa þá í sínu náttúrulega um-
hverfi en áhugi Kristínar er öllu fræði-
legri,“ segir Óskar aðspurður hvernig fugla-
áhuginn kviknaði. „Ég hef lengi verið að
taka myndir af fuglamerkingum og hef
meðal annars fylgst með merkingum vað-
fugla, hrafna og fálka. Þá ákvað systir mín
að rannsaka hrafninn í meistaraverkefni
sínu og í framhaldi af því tókum við þá
ákvörðun að sækja um fuglamerkingaleyfi
til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar var
okkur vel tekið enda ekki mikið um nýliðun
í þessu fagi.“
Kannar hvort hrafnsungar
séu samfeðra
Kristín þakkar bróður sínum þennan
mikla fuglaáhuga sem leiddi hana í líf-
fræðinám við Háskóla Íslands þar sem hún
sérhæfir sig í fuglafræðum. „Sem eldri
bróðir hafði Óskar mjög mikil áhrif mig og
varð í raun til þess að ég lagði fuglafræði
fyrir mig af alvöru,“ segir Kristín sem varp-
ar ljósi á lífshætti hrafna í meistaraverkefni
sínu. „Ég ákvað að rannsaka hrafninn þar
sem hann er skemmtilegur óðalsfugl.
Hrafninn er einkvænisfugl og ég er meðal
annars að safna erfðasýnum til þess að
kanna hvort ungar eigi sama föður en rann-
sóknin er skammt á veg komin og nið-
urstöður liggja ekki fyrir.“
Fuglamerkingar nákvæmisvinna
Kristín segir fuglamerkingar mikla ná-
kvæmisvinnu. „Það er vissulega að mörgu
að hyggja. Það þarf að fara mjúkum hönd-
um um ungana og passa að þeir séu nægi-
lega stórir til þess að bera hringana, sé svo
ekki þá er hætta á að hringarnir detti fram
af og festist á klónum.Gæta þarf þess að
meiða ekki fuglana.“
Systkin merkja hrafnsunga í Heiðmörk
Hrafninn merktur Það er mikið nákvæmnisverk að merkja fugla og það þarf að fara
mjúkum höndum um ungana, en systkinin hafa leyfi Náttúrufræðistofnunar.
Fuglar leika stórt hlut-
verk í lífi þeirra beggja
Ljósmyndir/Óskar Andri Víðisson
Kristín Alís rannsakar hrafninn Kristín leggur stund á
fuglafræði við Háskóla Íslands og íslenski hrafninn er
meginviðfangsefni rannsóknar hennar í meistaranáminu.
Haldinn verður kynningarfundur um tillögu að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, í Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjarnarsal kl. 17.15-19.00 næstkomandi fimmtudag 30. maí. Um er að ræða lögboðinn kynningarfund.*
Á fundinum verða meginmarkmið tillögunnar kynnt,
ásamt forsendum og umhverfismati.
Kynning þessi fer fram áður er tillagan verður tekin
til afgreiðslu hjá borgaryfirvöldum.
* Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. einnig 7. gr. laga nr. 105 um umhverfismat áætlana
Ljósmynd: Ragnar Th Sigurðsson
www.skipbygg.is
Sjá nánari kynningargögn á adalskipulag.is
og á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is
Nýtt aðalskipulag fyrir
Reykjavík til ársins 2030
Borg fyrir fólk