Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 19
LSS Útboð Lánasjóðs sveitarfélaga hafa gengið vel það sem af er ári. Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) heldur fjórða almenna útboð ársins í dag. Fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í gær að í boði verði flokkarnir tveir sem LSS sé að byggja upp þessi miss- erin, LSS24 og LSS34. Miðað sé við að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði, en sjóðurinn áskilji sér þó rétt til að taka hvaða upphæð sem er. Talsverður gangur Í Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka kemur fram að tals- verður gangur hafi verið í útgáfu LSS það sem af er ári, og hafi sjóð- urinn þar notið góðs af mikilli spurn eftir skuldabréfum á mark- aði. Útgáfa bréfa til nýrrar fjár- mögnunar nemi 3,13 milljörðum króna það sem af er ári. Þar af hafi verið gefin út LSS24-bréf fyrir 1,34 milljarða króna og útgáfa LSS34-bréfa í slíkum útboðum nemur 1,79 milljörðum króna. Auk þess hafi sjóðurinn haldið skiptiút- boð í síðustu viku, þar sem eig- endum eldri skuldabréfaflokksins LSS 08 1 hafi boðist að skipta þeim bréfum út fyrir LSS34-bréf. Und- irtektir hafi verið góðar og LSS hafi fengið inn bréf í fyrrnefnda flokknum fyrir 3,76 milljarða króna að nafnvirði, en greitt fyrir þau með LSS34-bréfum fyrir 4,84 millj- arða króna að nafnvirði. LSS34-flokkurinn hafi ríflega tvöfaldast að stærð í kjölfarið, og sé hann nú 8,21 milljarður króna að nafnvirði. Þetta hafi hins vegar ekki áhrif á áætlaða útgáfu það sem eftir lifir árs þar sem hér hafi verið um endurfjármögnun að ræða en ekki fjármögnun nýrra út- lána. Í Morgunkorni kemur jafnframt fram að núverandi útgáfuáætlun Lánasjóðs sveitarfélaga hljóði upp á útgáfu sem nemur 4-5 milljörðum króna að nafnvirði til fjármögnun- ar nýrra útlána. Þar af sé gert ráð fyrir að útgáfan nemi 2-3 milljörð- um króna á fyrri hluta ársins en 2 milljörðum króna á seinni helmingi árs. Miðað við útgáfuna til þessa vanti því aðeins 870 milljónir króna upp á að neðri mörkum áætlunar- innar sé náð, en 1,87 milljarða króna vantar upp í efri mörkin. Mögulega endur- skoðuð til hækkunar Greining Íslandsbanka telur þó nokkuð líklegt að áætlunin verði endurskoðuð til hækkunar um mitt ár, m.a. vegna aðkomu LSS að end- urfjármögnun erlendra skulda Kópavogsbæjar í krónum. Auk þess kunni að verða meiri gangur í fjárfestingum sveitarfé- laga þegar líður á árið, og þannig geti lántaka þeirra hjá LSS þá að sama skapi orðið eitthvað meiri. 500 milljóna útboð  Lánasjóður sveitarfélaga með sitt fjórða almenna útboð í ár í dag  LSS nýtur góðs af mikilli spurn eftir skuldabréfum FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Eric Schmidt, starfandi stjórn- arformaður netrisans Google, seg- ist hvorki botna upp né niður í umræðunni um skattgreiðslur fyr- irtækisins í Bretlandi, sem hefur varað í nokkurn tíma. Schmidt sagði í samtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær, að fyrirtækið greiddi skatta sína í Bretlandi, samkvæmt lögum þess lands. Google greiddi 10 milljónir punda, jafnvirði 1,7 milljarða króna, í skatta í Bretlandi á ár- unum 2006 til 2011, en á sama tímabili voru tekjur fyrirtækisins 11,9 milljarðar punda, eða sem nemur ríflega 2.200 milljörðum króna. Schmidt sagði við BBC að það væri í verkahring stjórnvalda í hverju landi fyrir sig að ákveða hvernig væri staðið að skatt- heimtu á fyrirtæki og því væri það breska ríkisstjórnin sem þyrfti að breyta skattalögum vildu stjórn- völd að fyrirtæki greiddu hærri skatta. „Það sem við gerum er löglegt. Ég botna hvorki upp né niður í þessari umræðu, því ég tel að það sé ekki fyrir hendi nokkurt val þegar til skattgreiðslna kemur,“ sagði Schmidt við BBC í gær- morgun. „Ef bresk stjórnvöld ákveða að breyta skattalögunum munum við fara að þeim lögum, rétt eins og við förum að núgildandi lögum.“ Margaret Hodge, formaður fjár- laganefndar breska þingsins, hef- ur lagt til að sett verði á lagg- irnar ný þingnefnd, sem endurskoði skattalög stærri fyr- irtækja. Hún sagði í samtali við breska dagblaðið Independent að slíkri nefnd ætti að vera kleift að kafa undir yfirborð bókhaldsins hjá fyrirtækjum. Segir Google fara að lögum  Stjórnvalda að breyta lögum AFP Stjórnarformaður Eric Schmidt, stjórnarformaður Google.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.