Morgunblaðið - 28.05.2013, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Á morgun verða 60 ár liðin frá því að
Nýsjálendingurinn Edmund Hillary og
Sérpinn Tenzing Norgay urðu fyrstir
manna til að klífa tind Everest, hæsta
fjalls í heiminum. Síðan hafa þúsundir
manna klifið tindinn, þeirra á meðal sex
Íslendingar, og meira en 200 Everest-
farar hafa farist á fjallinu.
Fjöldi þeirra sem freista þess að ganga
á Everest hefur aukist mjög á síðustu ár-
um. Í ár hafa um 500 manns komist á
tindinn, þeirra á meðal áttræður Japani,
sem varð elsti maðurinn til að sigra Eve-
rest, indversk kona sem missti fót í slysi
fyrir tveimur árum og fyrstu Everest-
fararnir úr röðum kvenna í Sádi-Arabíu
og Pakistan.
Tveir Íslendingar klifu tindinn fyrr í
mánuðinum, þeir Ingólfur Geir Giss-
urarson og Leifur Örn Svavarsson. Leif-
ur Örn er fyrsti Íslendingurinn sem klifið
hefur tind Everest norðanmegin í fjallinu
en sú leið er mun fáfarnari og erfiðari en
sú sem venjulega er farin.
633 Everest-farar á einu ári
Á árinu 2010 höfðu alls 3.142 manns
klifið tind Everest, sumir þeirra oftar en
einu sinni. Um 77% Everest-faranna
gengu á tindinn eftir árið 2000. Everest-
göngurnar náðu hámarki árið 2007 þegar
633 komust á tindinn, þar af 350 erlendir
fjallgöngumenn og 253 sérpar sem önn-
uðust leiðsögn.
169 göngumenn komust á tind Everest
23. maí 2010, fleiri en á nokkrum öðrum
degi. Reyndar voru þeir fleiri á þessum
eina degi en samanlagt á 30 fyrstu ár-
unum eftir að Edmund Hillary og Tenz-
ing Norgay sigruðu Everest 29. maí
1953.
Í lok ársins 2010 höfðu 219 Everest-
farar farist á fjallinu og rúmur fjórð-
ungur þeirra dó á niðurleið eftir að hafa
komist á tindinn. Dauðsföllunum hefur
fækkað hlutfallslega á síðustu árum en
þar sem göngumönnunum hefur fjölgað
eru þau enn mörg. 54 göngumenn hafa
dáið á fjallinu frá árinu 2000.
Everest er 8.848 metra hátt og nefnt
eftir breska landmælingamanninum Sir
George Everest (1790-1866). Gerðar
höfðu verið átta tilraunir til að klífa tind-
inn þegar þeim Hillary og Tenzing tókst
það loks fyrir sextíu árum. Þeir voru að-
eins í fimmtán mínútur á tindinum vegna
skorts á súrefni. Flestir Everest-farar
nota súrefniskúta en tveir göngugarpar,
Reinhold Messner og Peter Habeler,
urðu fyrstir til að klífa tindinn án
súrefnisbirgða í maí 1978.
Everest sigrað
Nýsjálendingurinn Edmund Hillary og nepalski Sérpinn Tenzing Norgay urðu fyrstir manna
til að klífa tind hæsta fjalls í heimi fyrir sex áratugum
Edmund Hillary Tenzing Norgay
18. apríl
Búðir II
5.913 m
22. apríl
Búðir III
6.157 m
2. maí
Búðir IV
6.462 m
3. maí
Búðir V
6.706 m
18. maí
Búðir VII
7.315 m
13. maí
Búðir VI
7.010 m
26. maí
Búðir IX
8.504 m
Khumbu-
fjalljökullinn
Vestur-
dalur
Lhotse-
hlíð
Suður-
skarð
21. maí
Búðir VIII
7.894 m
13. apríl 1953
Grunnbúðir
5.364 m
29. maí 1953
Tindur Everest
8.850 m
N
Heimild: Royal Geographical Society/8000ers.com/NatGeo*
100
200
300
400
500
600
1953 60 65 70 75 80 85 90 95 2000 05 2010
Fjöldi Everest-fara á ári
Dauðsföll
Auk þeirra fórust 13 fjallgöngumenn sem reyndu að
komast á tind Everest á árunum 1922-1952
2
8
6 6
2 2
3
11
8
7
4 4
10
8
4
2
5
8
5
3
15
9
4 4
2
5
3
4
7
6
11
7
5
3
Göngur á tindinn á árunum 1953-2010:
yfir 4,400
Fjöldi göngumanna sem hafa farist á Everest:
206
Hópurinn naut aðstoðar
22 sérpa sem önnuðust
leiðsögu og 350 burðar-
manna í grunnbúðum
Everest-gangan 1953
Breskur hópur undir
forystu Johns Hunt ætlaði
að koma tveimur
mönnum á tindinn
Charles Evans og Tom
Bourdillon reyndu fyrst
að klífa tindinn en urðu
að snúa við
Hunt, Hillary og
Tenzing munu hafa
sammælst um að segja
ekki frá því hver þeirra
varð fyrstur á tindinn en
Tenzing skýrði frá því
síðar að Hillary hefði
verið fyrstur*
Everest-farar eftir löndum:
(tíu fjölmennustu skv. upplýsingum frá 2011) 100 (rúnnað af )
Nepal
2.264
Bandaríkin
536
Kína
299
Bretland
264
Japan
169
Indl.
152
S-Kórea
118
Rússl.
118
Frakkl.
95
Spánn
91
Katmandú Everest-fjall
Indland
Kína
60 km
NEPAL
3
60 ár liðin frá
fyrstu göngunni
á tind Everest
Þúsundir manna hafa klifið tindinn
Yfir 200 hafa farist á hæsta fjalli heims
AFP
Á toppnum Raha Moharrak varð í vik-
unni fyrst sádi-arabískra kvenna til að
klífa hæsta fjallstind heimsins.
Laurent Fabius, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði í gær að ríki Evr-
ópusambandsins hefðu „vaxandi
grunsemdir“ um að efnavopnum
hefði verið beitt í Sýrlandi.
Fabius sagði þetta eftir fund utan-
ríkisráðherra ESB-ríkjanna í Bruss-
el en bætti við að nauðsynlegt væri
að rannsaka málið til hlítar áður en
ákvörðun yrði tekin um hvernig
bregðast ætti við notkun efnavopna í
Sýrlandi. Franska dagblaðið Le
Monde skýrði frá því í gær að
stjórnarherinn í Sýrlandi hefði beitt
eiturgassprengjum í árásum á upp-
reisnarmenn í þorpi nálægt Damas-
kus í nokkra daga í röð í apríl og maí.
Deilt um vopnabann
Utanríkisráðherrar ESB sam-
þykktu í gærkvöldi að aflétta banni
við sölu vopna til Sýrlands. Frakkar
og Bretar vildu að bannið yrði af-
numið til að hægt yrði að styrkja
stöðu uppreisnarmanna í átökum við
stjórnarherinn og knýja stjórn As-
sads, forseta Sýrlands, til að hefja
friðarviðræður við uppreisnarmenn.
Austurríkismenn, Finnar, Svíar
og Tékkar voru hins vegar andvígir
því að vopnasölubannið yrði afnum-
ið. Þeir töldu að það myndi aðeins
auka blóðsúthell-
ingarnar og verða
til þess að hættu-
leg vopn kæmust
í hendur ísl-
amskra öfga-
manna, meðal
annars hreyfing-
ar sem hefur lýst
yfir stuðningi við
hryðjuverkasam-
tökin al-Qaeda.
William Hague, utanríkisráðherra
Bretlands, tilkynnti í gærkvöldi að
vopnasölubanninu yrði aflétt. Til-
kynningin kom eftir tólf stunda lang-
an fund utanríkisráðherra ESB.
Hague sagði að refsiaðgerðum gegn
ríkisstjórn Sýrlands yrði viðhaldið.
Eftir fundinn í Brussel fór Laur-
ent Fabius til Parísar til að ræða við
utanríkisráðherra Bandaríkjanna og
Rússlands um tilraunir til að knýja
fram friðarviðræður milli stjórnar
Assads og sýrlenskra uppreisnar-
manna í Genf í næsta mánuði. Sýr-
lenska stjórnin hefur léð máls á
friðarviðræðunum og leiðtogar
helsta bandalags uppreisnarmann-
anna þinga nú í Istanbúl um hvort
þeir eigi að taka þátt í friðarviðræð-
um við alræðisstjórnina.
Grunaðir um að
beita eiturgasi
ESB afnemur vopnasölubann
Sýrlenskir
hermenn.