Morgunblaðið - 28.05.2013, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Nágrannaþjóðir
okkar Íslendinga
gæta þess að gera vel
við sjómenn sem
dvelja langdvölum
fjarri ástvinum.
Norskir sjómenn fá
sem nemur 3,3 millj-
ónum króna í sjó-
mannaafslátt, danskir
1,9 milljónir og fær-
eyskir milljón. Sú var
tíðin að íslenskir sjómenn fengu
rúma tíund af norska afslættinum
en jafnvel það fannst fyrstu „tæru
vinstri stjórninni“ boðlegt að af-
nema. Þau Jóhanna og Stein-
grímur tóku skattaafslátt af sjó-
mönnum þó engin þjóð standi í
meiri þakkarskuld við sína sjó-
menn en Íslendingar. Það var öm-
urlegur gjörningur. Hinni svoköll-
uðu alþýðustjórn fannst sjálfsagt
og eðlilegt að ráðast á sjómenn,
líkt og sjávarútveginn í heild sinni.
Nú hefur ný ríkisstjórn tekið við
völdum og ástæða til þess að óska
henni velfarnaðar. Það er birta yf-
ir þeim Sigmundi Davíð og Bjarna
Ben. Sjómenn vilja að þeir fari í
syndakistu Jóhönnu og Steingríms
með uppbrettar ermar og komi
sjómannaafslætti upp á dekk á ný
fyrir utan auðvitað að leyfa sjávar-
útvegi að dafna þjóðinni til heilla.
Steingrímur Jóhann kvað í
greinargerð með óréttlætinu
„… erfitt að rökstyðja sjó-
mannaafslátt gagnvart ýmsum
hópum,“ en þiggur sjálfur marg-
vísleg hlunnindi sem ráðherra og
þingmaður! Það er líkast sem þau
skötuhjú hafi gleymt uppruna sín-
um, gleymt því að engin stétt á
ríkari þátt í sókn þjóðarinnar til
betri lífskjara en sjómenn.
Sjómenn krefjast þess að ný
ríkisstjórn láti af árásarstefnu Jó-
hönnu og Steingríms og endurveki
sjómannaafslátt. Það væri ekki
ónýtt ef hún tæki upp sama afslátt
og nú gildir í Færeyjum. Milljón
krónur í sjómannaafslátt! Það væri
sterk yfirlýsing um áform um að
virða rétt sjómanna.
Sjómannadagurinn 75 ára
Sjómannadagurinn verður um
helgina en í ár eru 75 ár frá fyrsta
sjómannadeginum. Það væri
skemmtileg yfirlýsing til sjómanna
ef nýr ráðherra lýsti því yfir að
sjómannaafsláttur verði endurvak-
inn.
Sjómenn eiga það skilið!
Ég vitna í lokin í grein Sigrúnar
Agöthu Árnadóttur um lífið um
borð í íslensku fiskiskipi: Þessa
stundina er ég stödd um borð í
frystitogara, dagur þrjátíu. Þrjátíu
dagar sem ég hef verið fjarri vin-
um og fjölskyldu. Þrjátíu dagar
síðan ég steig á fast
land, keyrði bíl, fór til
læknis, nýtti mér að
einhverju leyti þá
þjónustu sem okkar
skattar fara í. Þeir
eru nú ekki margir
eftir, þrjátíu og þrír
dagar verður þessi
túr. En í þessa þrjátíu
daga hef ég unnið 12
stunda vaktir, stans-
laust, ekkert helgarfrí
eða slíkur munaður.
Að jafnaði gera það
396 klukkustundir í vinnu um borð.
Hluturinn, þ.e. laun fyrir mán-
uðinn, er kominn í 1.300.000. Vá,
segja sumir. Hvað er hún að
kvarta? Jú, ef þetta er tekið saman
í útborguð laun gera þetta 699.270
kr. miðað við 46,21% skatt, fyrir
utan orlof, hlífðarfatnað, mat-
arpening og lífeyrissjóð. Svo kem-
ur auðvitað þessi elskulegi sjó-
mannaafsláttur sem er 740 kr. á
dag. Frábært. Fyrir 396 klst. af
vinnu fæ ég u.þ.b. 630.000 kr. út-
borgaðar. Eftir skatt gera þetta
1.765 kr. á klukkutíma eftir að
hafa verið í 33 daga í burtu frá
mínum nánustu, tala nú ekki um
þá sem eiga fjölskyldur og sjá ekki
börnin sín nema einu sinni á mán-
aðarfresti. Í rauninni eru of-
urlaunin einfaldlega tilkomin
vegna mikillar vinnu, svo ekki sé
talað um hættuna sem fylgir því að
vinna um borð í togara. Svo ég
spyr, er þetta sanngjarnt? Svari
nú hver fyrir sig.
Sigrún Agatha hittir naglann á
höfuðið. Sjómenn hafa ekki að-
stöðu á borð við aðra landsmenn
til þess að nýta opinbera þjónustu,
heldur eru á sjó í öllum veðrum
við að færa björg í bú. Sjó-
mannaafsláttur er réttlætismál.
Sjómannaafsláttinn
aftur upp á dekk
Eftir Jónas
Garðarsson
»Hinni svokölluðu al-
þýðustjórn fannst
sjálfsagt og eðlilegt að
ráðast á sjómenn, líkt og
sjávarútveginn í heild
sinni.
Jónas Garðarsson
Höfundur er framkvæmdastjóri Sjó-
mannafélags Íslands.
- með morgunkaffinu
Íslendingar sigruðu í opna flokkn-
um á Norðurlandamótinu sem fram
fór í Keflavík um helgina. Þeir tóku
forystuna strax í fyrsta leik og létu
hana aldrei af hendi til leiksloka.
Danir urðu í öðru sæti og sigruðu í
kvennaflokknum. Verðlaunagripur-
inn verður því geymdur í Danmörku
þar sem sameiginlegur árangur liða
Dana var bestur.
Spilað var á Flughóteli í Keflavík
og nýr útreikningur notaður þar sem
20 stig eru til skiptanna. Reyndist
þetta nýja kerfi ágætlega og mun það
verða notað á stórmótum í framtíð-
inni.
Aðstaða á spilastað var mjög góð
og margreyndir keppnisstjórar,
Sveinn R. Eiríksson og Vigfús Páls-
son, höfðu góð tök á stjórnun mótsins.
Í mótslok var spilurum og áhorf-
endum boðið í Víkingaheima í Njarð-
vík þar sem verðlaunaafhending fór
fram. Skemmtileg tilbreyting en Ja-
fet Ólafsson, forseti Bridssambands-
ins, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, sáu um að hengja me-
dalíurnar á keppendur.
Hrósuðu sigri. Dönsku liðin fengu verðlaunagripinn í Norðurlandamótinu til geymslu eftir góðan árangur en Danir
urðu í öðru sæti í opnum flokki og unnu kvennaflokkinn. Gleði þeirra var ósvikin í verðlaunaafhendingunni.
Danir geyma verðlaunagripinn
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Borðplötur
í öllum stærðum og gerðum
• Swanstone
• Avonite
• Harðplast
• Límtré
Smíðað eftir máli
og þínum óskum
Lyfjaskömmtun er ókeypis þjónusta sem Lyfjaborg býður viðskiptavinum
sínum. Hún hentar einstaklega vel þeim sem taka að staðaldri nokkrar
tegundir lyfja og vítamína.
Ókeypis skömmtuná lyfjum
Fljótleg Þægileg Örugg Persónuleg