Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 29

Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 29
menni, hlýr og traustur og trúr sínu fólki. Fjölskyldan átti hug hans allan og barnabörnin nutu góðs af því. Það gladdi okkur öll þegar dóttursonur hans var skírður Guðmundur Ari í höf- uðið á báðum öfum sínum, grunlaus um að örfáum vikum seinna myndi Guðmundur Örn greinast með alvarlegan sjúk- dóm. Það var gott að eiga þau hjón að, þegar við fjölskyldan geng- um í gegnum erfiða tíma. Hann átti líka sinn sess í gleðistund- um okkar, afmælum, jólum, öðrum stórhátíðum og sum- arfríum þegar við fjölskyldurn- ar gerðum okkur glaðan dag saman. Hans verður sárt sakn- að. Elsku Auður, Árni, Einar og Lilja og fjölskyldur ykkar, Maggi og Kalli og fjölskyldur ykkar, Guð geymi með ykkur minningu um góðan dreng. Birna Einarsdóttir og fjölskylda. Guðmundur Örn, góður drengur, er látinn langt fyrir aldur fram. Hann fæddist og ólst upp vestast í Vesturbæn- um, var miðsonur systur minn- ar, einstaklega hugljúfur og elskulegur drengur sem allir löðuðust að. Við Lilja eldri syst- ir mín byrjuðum búskap á Æg- isgötunni, hún á efri hæð með sína þrjá drengi en við Sigurður í kjallaranum með okkar tvö börn. Það var mikill samgangur milli fjölskyldnanna. Krakkarn- ir léku sér saman, Siggi okkar og Guðmundur Örn voru leik- félagar og hin fylgdu með. Það var oft gaman hjá þeim á stétt- inni og í garðinum. Minningar um æsku Guðmundar eru marg- ar tengdar mínum börnum. Vænn drengur sem skilur eftir sig fallegar minningar. Þegar Guðmundur óx upp bjó hann á hæðinni hjá ömmu sinni og þar átti hann fallegan páfagauk, Flóka, sem hann og Dísa ömmusystir hans sinntu. Eftir barnaskóla fór Guðmundur Örn í Hagaskólann og síðan í MR að sjálfsögðu. Hann lærði lyfja- fræði í Háskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Háskólann í Uppsölum. Það var sama hvað Guðmundur fékkst við, allt lék í höndum hans, smíðaði jafnvel húsgögn eða innréttingar af mikilli smekkvísi. Guðmundur Örn kvæntist ungur frábærri stúlku, Auði Einarsdóttur. Hjónaband þeirra var einstak- lega farsælt og eignuðust þau þrjú myndarleg börn sem öll voru með foreldrum sínum í Uppsölum meðan á námi Guð- mundar stóð. Eftir lokapróf í Uppsölum flutti fjölskyldan heim og seinna byggðu þau sitt fallega heimili í Fossvoginum. Þau Auður fóru frábæra ferð með alla fjölskyldu til Uppsala síðasta sumar, einskonar píla- grímsferð. Ég á fallega minnn- ingu. Það var desemberkvöld, snjóbreiða yfir öllu og heimili Guðmundar Arnar og Auðar einstaklega fallegt með jólaljós- um um allan garð og litlu tjörn- ina. Við hjónin áttum þar ynd- islegt kvöld með fjölskyldunni. Guðmundur frábær gestgjafi eins og alltaf. Síðast þegar við Guðmundur kvöddumst sagði hann: verum í sambandi. Ég sendi Auði, Árna Krist- jáni, Einari Erni, Lilju Björk og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Guðmundar Arnar frænda míns. Sigrún Magnúsdóttir. Í dag kveðjum við kæran vin okkar eftir stutta og snarpa orrustu við illvíg veikindi. Hrannast upp góðar minningar í huganum frá ótal samveru- stundum allt frá því er við vor- um ung með framtíðina út- breidda og áhyggjulaust lífið framundan þar sem seinna bættust við börn okkar sem léku saman og voru samstiga í uppvextinum. Minningar frá heimsókn til Uppsala í Svíþjóð þar sem Guð- mundur var við nám í lyfjafræði bera hátt þar sem þau Auður buðu okkur velkomin á heimili sitt á námsmannasvæðinu og sýndu okkur þá gestrisni sem þau hefur einkennt alla tíð. Þar var margt skoðað og brallað og oft hefur verið rifjað upp þegar við grilluðum íslenskar lamba- kótelettur á svölunum hjá þeim með því reykjarkófi sem þá gjarnan myndast og við heyrð- um skyndilega í sírenum sem nálguðust óðfluga. Var þá ko- lagrillið tekið með kjötinu á og hlaupið niður stigana og út á túnblett þar sem við stóðum sakleysið eitt uppmálað þegar slökkviliðið birtist. Til margra ára var föst hefð hjá fjölskyldum okkar að hittast á Eurovision þar sem keppnin var tekin mjög alvarlega í byrj- un en með meiri afslöppun seinni árin. Eru afar ljúfar minningar með þeim ætíð tengdar þeim degi. Einnig hef- ur 17. júní verið frátekinn með þeim því þann dag átti Guð- mundur svikalaust, afmæli hans bar upp á þjóðhátíðardaginn og var því tvöföld hátíð með fjöl- skyldu og vinum. Í byrjun aðventu, ár eftir ár, höfum við farið saman í sveita- kyrrðina og vetrarmyrkrið á jólahlaðborð á Geysi í Haukadal með mikilli tilhlökkun. Fátt er betra en sú hefð að byrja jólahátíðina í yndislegu um- hverfi með góðum vinum. Guðmundur var þúsundþjala- smiður og mjög hagur í hönd- unum. Hann miklaðist ekki af verkum sínum en lét verkin tala. Sama hvað gera þurfti heima við gerði hann sjálfur og gerði það vel og af metnaði. Hvort þurfti að smíða eldhús- innréttingu, leggja rafmagn eða pípuleggja, endurgera garðinn eða laga bílinn, allt gerði hann sjálfur, einn og hjálparlaust. Þessi hæfileiki kom sér líka vel í hobbíum „dellukallsins“ Guð- mundar, hann m.a. smíðaði frá grunni og betrumbætti ótal fjarstýrð flugvélamódel. Annað var gríðarlegur áhugi hans á fiskirækt. Hann ræktaði áskorunar vegna og kom upp afkvæmum, fyrst scala og sverðdragara en snéri sér svo að discusum. Marga kvöldstundina sátum við og hann ræddi af þekkingu um fiskana í ræktuninni og auðvelt var að sitja eins og dáleiddur að fylgjast með stóru og fallegu fiskabúri hans. Og í tjörn í gróskulegum garðinum syntu margra punda stórir og patt- aralegir japanskir „koi“ fiskar. En eitt var hann fyrst og fremst. Fjölskyldumaðurinn Guðmundur. Fjölskyldan skipti hann mestu máli í einu og öllu. Við sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðmundur var dulur og ekki allra en svo sannarlega vinur vina sinna. Við þökkum honum margar góðar samveru- stundir og einstaka vináttu. Það er sárt að horfa á eftir góðum dreng og kærum vin. Inga og Frank. Í dag kveðjum við góðan vin hinstu kveðju þegar Guðmund- ur er allur eftir snarpa og erf- iða baráttu við þann bölvald sem krabbameinið er. Vinskapur okkar nær aftur til ársins 1975 þegar þau Auður og Guðmundur fóru að vera saman. Margt hefur verið brall- að í gegnum öll þessi ár sem liðin eru. Minningarnar eru ótal marg- ar, til dæmis ferðirnar tvær til London þegar við fórum að sjá Rolling Stones og svo auðvitað Sir Paul McCartney. Guðmund- ur lék á als oddi í þessum ferð- um og kunni hann vel að meta góða tónlist og mikið var nú hlegið. Guðmundur var lífsglaður maður og átti hin ýmsu áhuga- mál. Líklega voru fiskarnir að- aldellan hans, en þeir skipta tugum, margir þeirra fágætir. Hann hafði græna fingur í garðinum og var handlaginn með afbrigðum við smíðar. Einnig smíðaði hann og flaug fjarstýrðum flugvélum, sem mjög gaman var að fylgjast með. Við höfum ferðast saman innanlands og hæst ber dags- ferðirnar í Stykkishólm og til Vestmannaeyja og var varla hægt að fá betri ferðafélaga en þau Auði og Guðmund. 17. júní veislurnar á afmæli Guðmundar undanfarna áratugi hafa verið veglegar eins og gestgjafanna er siður og hætt er við að dagurinn verði með nokkuð breyttu sniði héðan í frá. Alloft var farið í pottinn í Kvistalandinu og þar var sko margt spjallað. Okkur hefur þótt gaman að taka saman í spil og áttum við góða kvöldstund með þeim hjónum í mars sl. stuttu áður en veikindi Guð- mundar versnuðu. Fyrir allar þessar samver- stundir erum við þakklát. Við erum viss um að tveir ferfætlingar, þær Tinna og Hnota, hafa beðið húsbónda síns og þar hafa orðið fagn- aðarfundir. Elsku Auður, Árni, Einar, Lilja, Binni og barnabörnin Viktoría Mörk, Auður Harpa og Guðmundur Ari, okkar hugur er hjá ykkur og við vonum að Guð muni hjálpa ykkur að sefa sorgina. Guð blessi ykkur öll. Ykkar vinir, Halla og Þorgeir. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða. Og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson) Jafnvel þótt við höfum grun um að hverju stefni kemur and- látsfregn alltaf í opna skjöldu og þannig var mér farið þegar ég frétti lát Guðmundar, míns góða vinar og vinnufélaga sl. 30 ár. Stuttu fyrir jól áttum við létt spjall, hann sagðist vera að fara í rannsókn næsta dag og þá virtist fráleitt að nú 5 mánuðum seinna stæðu fjölskylda og vinir yfir moldum hans. Guðmundur var ekki marg- máll að eðlisfari. Það gerði ekk- ert til, okkur lét vel að þegja saman enda vænlegast að ein- beita sér að lyfjaafgreiðslunni. Aðalsmerki hans voru traust og heiðarleiki. Allt stóðst sem um var talað og hann stóð þétt að baki okkar í meðbyr og mótlæti daganna. Axlaði þá ábyrgð sem honum var falin. Góður fagmað- ur sem alltaf var hægt að leita ráða hjá. Kæri vinur, ég óska þér góðrar ferðar til nýrra heim- kynna, ef þú skyldir stofna apó- tek þar bið ég þig að taka frá stöðu þangað til minn tími kem- ur. Efst í huga þínum var alltaf fjölskyldan sem nú sér á eftir ljúfum manni langt um aldur fram. Ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Blessuð sé minning Guð- mundar Arnar. Guðný Margrét Ólafsdóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Undanfarna daga hef ég dund- að mér við lestur bréfa sem farið hafa milli okkar langafa á liðnum misserum. Margur skyldi ætla að hér væru á ferðinni snjáð bréf á þvældum pappír í gamalli öskju, enda mörg þeirra rituð af ríflega hundrað ára gömlum manni. En hann langafi minn var jú engum líkur. Auðvitað eru þetta tölvu- póstar. Ég á því mikla láni að fagna að hafa átt langafa að sem góðan, jafnvel náinn vin. Við áttum skap saman, leyfi ég mér að segja. Fundir okkar voru margir og spjallið spannaði allt milli himins og jarðar. En ég held að ég skrökvi ekki þegar ég fullyrði að hver einasta stund sem við áttum saman hafi bæði byrjað og endað á hlátri. Alltaf skellti langafi uppúr þegar maður birtist, og hláturinn hans var bráðsmitandi eins og þeir vita sem til þekkja. Við vorum sammála um að það væri óþarf- lega flókið að ávarpa mig; „dótt- ursonarsonur“ og það varð því úr að yfirleitt kallaði hann mig frænda. Vinalegra gat það ekki orðið. Þó gamanmálin væru fyrirferð- armikil hjá okkur langfeðgum þá ræddum við einnig lífsins gang. Ég fræddist töluvert um hans lit- ríku ævi, erfiðleika, söknuð og sorg, því ekki var líf hans tómur dans á rósum. En hann var þeim gáfum gæddur að dvelja ekki óþarflega lengi við sögur af sjálf- um sér, heldur sýndi hann við- mælendum sýnum ætíð meiri áhuga. Maður varð einhvern veg- inn alltaf eitthvað í návist langafa. Það sem mér fannst stórmerki- legt við hann var sú staðreynd að hann var alltaf skrefi á undan Elli kellingu, sama hvað hún rembdist við að ná í skottið á honum. Sund- ið, golfið, dugnaðurinn, æðruleys- ið, allt hefur þetta líklega átt sinn þátt. En ég held að hún hafi ekki haft það í sér að næla í svona skemmtilegan mann. Hann gerði aldrei mikið úr sín- um eigin verkum, og síst vildi hann kalla sig skáld. En orðhagur var hann. Limruformið þótti okk- ur bráðskemmtilegt og eru þær orðnar margar sem við höfum skotið á milli okkar, og sumar þeirra vart prenthæfar (þær fund- ust okkur samt fyndnastar). Mér munu aldrei gleymast stundirnar í Veiðivötnum, í kofanum að kvöldi, þegar langafi snaraði enskum limrum yfir á íslensku af slíkri snilld að viðstaddir urðu orðlausir, oftast þá af hlátri. Mér finnst því ekki óviðeigandi að láta eina fjúka hér í lokin. Langafa hafði borist til eyrna írsk limra, sem er nokkurn veginn svona: „On the chest of a barmaid in Kinsale/Were tattooed the pri- ces of ale/And on her behind/For the sake of the blind/Was the same information in Braille.“ Langi var ekki lengi að hugsa sig um og snaraði; „Á brjóstinu á bar- mey frá Tindum/eru bjórprísalist- ar í myndum/en aðrir þó betri/ með upphleyptu letri/á bossanum, ætlaðir blindum“. Við hlógum þangað til það var sárt. En nú er hann farinn, hundr- aðkallinn okkar. Ég verð ætíð stoltur að vera einn af hans fjöl- mörgu afkomendum og víst er að Gissur Ólafur Erlingsson ✝ Gissur ÓlafurErlingsson, löggiltur dómtúlk- ur og skjalaþýð- andi, fæddist í Brúnavík við Borg- arfjörð eystra 21. mars 1909. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð í Reykja- vík 18. maí 2013. Útför Gissurar fór fram frá Grafarvogskirkju 27. maí 2013. sögur af langafa verða lengi sagðar. Hvíl í friði, frændi. Ólafur Kjartan Sigurðarson. Gissur var ein- hverju sinni spurður skýringa á eigin langlífi. Hann var fljótur til svars að vanda og sagði það vera vegna þess að hann hefði allt- af verið latur. Ekki er ég viss um að allt það sem þessi einstaki mað- ur áorkaði á langri ævi væri stað- reynd ef leti hefði einkennt hann. Miklu heldur trúi ég að æðruleysi, einstök skapgæði og húmor hafi þar skipt meira máli, fyrir nú utan genin og það allt saman. Ég var svo lánsöm að eiga Gissur að góð- um vini gegnum fjölskyldutengsl, en hann var afi mannsins míns og náði í rúm þrjú ár að vera langa- langalangafi barnabarnabarnsins míns. Það var alltaf tilhlökkun að heimsækja Gissur í Seljahlíð, þar sem hann bjó síðustu æviárin og leið þar vel. Meðan heilsan leyfði kom hann oft í heimsóknir til okk- ar og fór með okkur í eftirminni- lega ferð á óperufrumsýningu í London, til að sjá og heyra langaf- astrákinn sinn, kominn hátt á tí- ræðisaldur. Ekki eru margir mán- uðir síðan við sáum myndir af honum í sjónvarpi í flugferð með frænda sínum og á ferð um Selja- hverfið á gömlum eðalvagni. Svona var gamli maðurinn, enda- laust ungur í anda og til í ný æv- intýri. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki oftar heimsótt elsku Gissur og aðstæður leyfa því mið- ur ekki að ég geti fylgt honum hinsta spölinn. En minningin um einstakan ættarhöfðingja lifir með okkur fjölskyldunni. Hafi hann þökk fyrir allt. Ásgerður Ólafsdóttir. Gissur Ólafur Erlingsson er látinn á 105. aldursári. Með hon- um er genginn einn af merkari mönnum samtímans. Hann var af- ar fjölhæfur maður, enda gegndi hann margvíslegum störfum um ævina bæði til lands og sjávar. Gissur og kona hans, Valgerður Magnúsína Óskarsdóttir, fluttu í Grafarholtið árið 2002. Þau voru ein af þeim fyrstu er hófu þar bú- setu. Ekki leið á löngu þar til Graf- arholtssókn var stofnuð árið 2003. Séra Sigríður Guðmarsdóttir var kjörin sóknarprestur árið 2004. Séra Sigríði og Gissuri var vel til vina enda var hann afar Biblíu- fróður maður og kunni vel trúar- bragðasögu sem þau ræddu oft um. Hann sýndi kirkjunni okkar, Guðríðarkirkju, þann heiður og velvilja að hann gaf henni Vajsen- húss-biblíuna frá 1747. Hún skip- ar öndvegi í fordyri kirkjunnar. Þetta allt þökkum við af alhug. Við vottum aðstandendum og ástvin- um þessa heiðursmanns innilega samúð. Veri hann að eilífu Guði falinn. Aðalsteinn Dalmann Októsson. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANNES G. JÓHANNESSON, Nönnugötu 6, sem andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 14. maí, verður jarðsunginn frá Áskirkju miðvikudaginn 29. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Kristniboðið eða Áskirkju. Petrína Kristín Steindórsdóttir, Sigþrúður Jóhannesdóttir, Ólafur Bragason, Kristín G. Jóhannesdóttir, Preben Hansen, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Árni Andersen, Sigríður M. Jónsdóttir, Rut Andersen, Þorsteinn Gunnarsson, Steindór Andersen, Hrefna Ársælsdóttir, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Stefán Eggertsson, Magnús Heimir Jóhannesson, Margrét Baldursdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, VALDÍS SÆUNN KRISTINSDÓTTIR frá Hrísey, síðast búsett í Svíþjóð, lést á Háskólasjúkrahúsinu í Örebro þriðjudaginn 16. apríl. Útförin hefur farið fram í Svíþjóð. Minningarathöfn fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 3. júní kl. 13.00. Greftrun duftkers fer fram í Hríseyjarkirkjugarði laugardaginn 8. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélagið. Guðjón Björnsson, Valgerður Guðjónsdóttir, Jónatan G. Jónsson, Rósa Guðjónsdóttir, Pétur Helgason, barnabörn, Árný B. Kristinsdóttir, Brynhildur Kristinsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.