Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 30

Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 ✝ Ingiríðurfæddist í Reykjavík 14. nóv- ember 1906. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Mörk 18. maí 2013. Ingiríður var því 106 og hálfs árs þegar hún lést. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þór- dís Þorsteinsdóttir húsmóðir í Reykjavík, f. á Reykjum, Skeiðahr. 14.9. 1878, d. 22.10. 1963, og Vilhjálmur Vigfússon verkam. í Reykjavík, f. í Hamrakoti, A-Húnav. 26.10. 1878, d. 14.2. 1942. Systkini Ingiríðar voru Eva, f. 11.9. 1903, d. 21.1. 1904; Vilhelmína Þórdís, f. 16.6. 1905, d. 31.7. 1995; Valgerður, f. 29.8. 1908, d. 17.6. 1911; Valgerður Eva, f. 23.6. 1912, d. 15.10. 1975; Svan- laug Rósa, f. 8.10. 1914, d. 13.5. 2003; Sigríður, f. 3.6. 1916, d. 12.8. 1999; Ingvar Þorsteinn, f. 5.11. 1918, d. 21.9. 1988; stúlka, f. andv. 1920. Eiginmaður Ingiríðar var Salberg Guðmundsson, vélstjóri og verkamaður á Suðureyri, f. 26.6. 1912, d. 31.8. 1952. Þau gengu í hjónaband 15.5. 1937. Foreldrar hans voru hjónin Herdís Þórðardóttir, f. í Súg- andafirði 23.12. 1872, d. 30.8. 1942, og Guðmundur Júlíus Pálsson, f. á Látrum í Sléttuhr. 31.7. 1860, d. 13.6. 1935. Börn Ingiríðar og Salbergs: 1) Svan- hildur Salbergsdóttir, f. 23.10. 1937, d. 9.5. 1977. Hún var gift 4.5. 1996. Sonur Salbergs og El- ínar S. Grétarsd. er Jóhann Jökull, f. 14.4. 1997. Dóttir Sal- bergs og Ernu S. Gunnarsd. er Unnur Eva, f. 18.4. 2000. Sal- berg býr í Bandar. og eig- inkona hans er Melanie Jó- hannss. Þorgeir, f. 25.5. 1963. Maki: Minaya Multykh, f. 30.10. 1965. Synir þeirra: Daniel Mul- tykh, f. 20.5. 1989, unnusta Sunna B. Mogensen, f. 13.5. 1986, og Viktor, f. 19.11. 2006. 4) Guðmundur Hermann Sal- bergsson, f. 31.3. 1945, d. 28.5. 1993. Eftirlifandi eiginkona er Karólína Árnad., f. 30.10. 1947. Dætur þeirra: Hrund Guð- mundsd., f. 16.4. 1974. Maki: Þórhallur Einiss., f. 19.6. 1973. Sonur þeirra Úlfur, f. 2008. Sig- ríður Guðmundsd., f. 4.12. 1977. Maki: Lárus Á. Hermannss., f. 15.6. 1976. Börn þeirra: Guð- mundur Hermann, f. 2003, Kar- ólína Huld, f. 2006, og Felix Krummi, f. 2012. Ingiríður ólst upp á Berg- staðastíg 7 í Reykjavík. Hún vann við ýmislegt, s.s. fisk- vinnslu, umönnun á Kleppi og var þerna á Hótel Borg áður en hún kynntist manni sínum. Ingi- ríður og Salberg bjuggu fyrstu árin í Reykjavík en fluttu árið 1941 til Suðureyrar við Súg- andafjörð og bjuggu þar í 15 ár. Eftir að Salberg lést 1952 starf- aði Ingiríður við fiskvinnslu á Suðureyri en hún flutti aftur til Reykjavíkur árið 1956. Eftir það vann hún í Þórskaffi bæði við þrif á daginn og afgreiðslu á kvöldin. Síðar bjó hún í Kópa- vogi hjá dóttur sinni þar til hún flutti, fyrst á Hjúkrunarh. að Víðinesi á Kjalarnesi og síðan á Mörk við Suðurlandsbraut. Ingiríður verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. maí 2013, kl. 13. Sigurði F. Mar, f. 10.11. 1933. Dætur þeirra: Kristín Ingibjörg, f. 28.10. 1958. Dætur henn- ar og Jóns Halls Stefánss. eru: Brynja, f. 23.9. 1980. Hún er gift Kristjáni Derekss., f. 22.8. 1980. Börn þeirra eru: Þór- hildur Arna, f. 2006 og Matthías Derek, f. 2010. Þórdís Halla, f. 2.8. 1993, sambýlism. Sindri Heiðarss., f. 12.2. 1991. Birna, f. 26.5. 1960. Sonur hennar og Þorgeirs V. Halldórss. er Elías Mar, f. 23.2. 1984. Dóttir Birnu og Péturs Ó. Péturss. er Svanhildur S., f. 20.2. 1995. Steinunn, f. 7.10. 1965. Sonur hennar og Svein- björns Hrafnss. er Anton Ingi, f. 1.5. 1990. 2) Ásthildur Salbergs- dóttir, f. 25.8. 1939. Maki: Frið- rik Söebech, f. 30.12. 1931. Börn þeirra eru: Berglind, f. 8.8. 1967, og Þórarinn, f. 14.12. 1969. Maki: Stefanía Unnarsd., f. 3.2. 1973. Börn þeirra eru: Birta Kristín Stefánsd., f. 20.7. 1997, Ásta Fanney, f. 29.5. 2000, og Friðrik Fannar, f. 9.8. 2001. 3) Vilhelmína Þórdís Sal- bergsdóttir, f. 19.2. 1942. Maki: Jóhann Hálfdanars., f. 24.9. 1939. Synir þeirra eru: Salberg, f. 23.6. 1960. Var giftur Ragn- heiði Gunnarsd. Þau skildu. Börn þeirra eru: Guðmundur Hermann, f. 27.10. 1993, unn- usta Hjálmey Oddgeirsd., f. 24.10. 1991, og Vildís Inga, f. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells.) Æðruleysi, jafnaðargeð, hlýja og jákvæðni. Þetta kemur upp í hugann þegar við kveðjum hana mömmu okkar. Hún fékk hundr- að og sex ár og hálfu betur hérna megin og mestan tímann heilsu- hraust. Síðustu árin var þó elli kerling farin að herja á hana og gera henni lífið leitt. Mamma fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún talaði oft þegar leið á ævina um Bergstaðastíg 7 og fólkið í því húsi og minntist þess með hlýju. Hún starfaði við ýmislegt hér í Reykjavík, s.s. fiskvinnslu, við umönnun og á Hótel Borg. Þegar hún starfaði þar kynnt- ist hún pabba sem var sjómaður í Reykjavík, en þær unnu saman á Borginni hún og Ásta systir hans. Þau giftust og bjuggu fyrstu árin í Reykjavík. Þar fæddust Svana og Ásta. Síðar fluttu þau til Suðureyrar við Súgandafjörð þar sem Villa og Gummi fæddust. Oft hefur verið fjörugt í kotinu með fjóra hressa krakka auk vina innanborðs. Þegar henni þótti lætin keyra úr hófi sagði hún stundum: „Nú skuluð þig fara að passa ykkur, mig er farið að klæja í nefið.“ Þá fór fljótt að sljákka í okkur því ekki vildum við að hún yrði reið. Þau pabbi áttu nokkrar kindur og hænur og ræktuðu kartöflur og grænmeti svo þau voru sjálf- um sér nóg með ýmislegt. Mamma hafði gaman af að syngja og „kunni öll lög“ að okk- ar mati. Hún söng í kirkjukórn- um og var í Kvenfélaginu Ársól. Hún hafði stundum orð á því þegar árin í Súgandafirði bar á góma að þar hefði verið gott að búa. Mamma fékk sinn skerf af mótlæti í lífinu. Pabbi lést langt um aldur fram árið 1952 aðeins fertugur að aldri. Fjórum árum síðar flutti hún til Reykjavíkur til að geta verið nær sínu fólki en öll systkini hennar bjuggu í Reykja- vík. Ekki vorum við yngri börnin hennar nú sátt við þá tilhögun og ætluðum sko ekki að flytja til Reykjavíkur. En við urðum að sætta okkur við þetta og festum rætur hér syðra að lokum. Eftir að hún kom aftur suður vann hún í Þórskaffi við þrif og kvöldaf- greiðslu. Svanhildur dóttir henn- ar lést tæplega fertug í maí 1977 og Guðmundur Hermann dó 48 ára gamall í maí 1993. Öllum þessum áföllum tók hún með ótrúlegu æðruleysi og hélt sínu striki. Hún var þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Hún fór í ferðalög innanlands, bæði dags- ferðir og lengri ferðir með okkur börnum sínum en alltof oft vildi hún ekki ónáða eða vera fyrir. Nokkrar ferðir fór hún til út- landa, bæði til Svíþjóðar og Nor- egs og einnig í ferðalög suður um Evrópu þar sem farið var á milli staða og gist hér og þar. Þar naut hún sín vel og var ævinlega þakklát og glöð fyrir að fá að koma með, alltaf jákvæð og aldr- ei kvartaði hún um þreytu hvern- ig sem þvælst var um. Rúmlega sjötug flutti hún til Ástu og Friðriks í Kópavogi þar sem hún bjó þar til hún fór á Hjúkrunarheimilið á Víðinesi og síðan á Mörk þar sem hún and- aðist södd lífdaga. Hún var kletturinn í lífi okkar og styrktist við hverja raun. Ekki var hún kvartsár en alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd við uppeldið á barnabörnunum enda vinsæl og kölluð Inga amma tölu- vert langt út fyrir barnabarna- hópinn sinn. Við þökkum af heilum hug umhyggju og elsku alla tíð. Hvíl í friði. Ásthildur og Vilhelmína Salbergsdætur. Elsku Inga (lang)amma var góð fyrirmynd, söng mikið og hló. Ef hláturinn lengir lífið er hún sönnun þess. Hún kenndi afkomendum sín- um jákvæðni, bjartsýni, glað- lyndi og lífsgleði. Eftir því hef ég alltaf farið. Amma nennti líka endalaust að segja okkur krökkunum sögur og spila við okkur. Ég gisti oft hjá ömmu sem barn og unglingur. Þá eldaði hún fyrir mig hakk og spaghetti í litlu íbúðinni sinni þar sem ég síðar stofnaði mitt eigið heimili. Margoft hljóp ég ein yfir holt- ið til hennar og ef hún svaraði ekki dyrabjöllunni hélt ég að hún væri dáin. Alltaf var ég jafnglöð þegar hún kom loksins til dyra. Þá svaf hún bara eða lá og las, á „vitlausa eyranu“ en amma missti heyrn á öðru eyranu sem barn. Í minningunni var amma alltaf prjónandi. Mikið fannst mér notalegt hljóðið í prjónunum fjórum sem slógust saman. Ég fyllist líka aðdáun því ég skildi aldrei hvernig hún prjónaði hæla á sokkana. Inga amma var móttækileg fyrir breytingum. Þegar hún hætti að geta prjónað fékk hún tölvu og fór bara að leggja kapal í henni. Þannig munum við ömmu alltaf – enda stórmerki- legt á þeim tíma og afar sjald- gæft. Líf ömmu var ekki auðvelt. Hún stritaði í gegnum lífið, var ekkja í 61 ár og átti örugglega ekki von á því að verða 106 ára, 6 mánaða og 4 daga. Hún var hraust og glöð, ánægð með sitt og gerði gott úr öllu. Eftir að Inga amma varð 100 ára varð hún sérstakt áhugamál margra vina minna. Sér í lagi fylgdust ungir nemendur í skólanum mín- um grannt með henni. Þeir spurðu oft hvort amma væri enn lifandi og hvað hún væri eigin- lega orðin gömul. Anton Ingi minn minnist Ingu langömmu að smyrja ofan í hann með litlu hnífunum og þvo hon- um eftir matinn með borðtusk- unni. Hann man hana að lesa, með risastóra stækkunarglerið fyrir framan sig. Það var líka mikið sport að leika sér í rafræna rúminu hennar og ruggustóln- um. Ég bjó í íbúðinni hennar ömmu þegar ég eignaðist mitt eina barn. Ég valdi nafnið henn- ar og fann með nafnið Anton, sem þýðir jú ómetanlegur. Það segir meira en mörg orð um hversu mikils virði hún var mér. Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þú veizt, að gömul kona var ung og fögur forðum, og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest. Ó, sýndu henni vinsemd í verki og í orðum. Sú virðing sæmir henni og móður þinni bezt. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson.) Elsku (lang)amma. Þessar ljóðlínur komu upp í hugann, hlýjar og yndislegar, eins og hendurnar á þér, eins og þú. Þín Steinunn og Anton Ingi. Hún Inga amma mín lifði sannarlega tímana tvenna. Þær breytingar sem urðu á heims- mynd allri frá því hún fæddist árið 1906 og fram til dagsins í dag eru engu líkar. Hún sleit barnsskónum þegar helmingur þjóðarinnar bjó enn í torfbæjum, var að komast á unglingsaldur þegar fyrri heimsstyrjöldinni lauk og varð ekkja með fjögur ung börn skömmu eftir þá síðari. Lífshlaup hennar spannaði nær alla síðustu öld og gott betur, hún var enn að láta til sín taka þegar komið var fram á þá öld sem við lifum nú. Inga amma bjó yfir miklum innri styrk og æðruleysi. Það hefur ekki verið auðvelt að standa uppi sem einstæð móðir og fyrirvinna fjögurra barna um miðja síðustu öld en hún lét ekki bugast heldur umvafði þau með kærleik sínum og studdi þau út í lífið. Hún hafði létta lund og kaus að líta á björtu hliðarnar, tókst á við það sem að höndum bar og bar höfuðið hátt. Henni féll aldr- ei verk úr hendi og hún var æv- inlega eitthvað að sýsla. Enginn veit hversu margar peysur, vett- linga eða sokka hún prjónaði um ævina, en geta má nærri að það hafi hlaupið á hundruðum. Hún hætti ekki að prjóna fyrr en á tí- ræðisaldri og var svo nýtin að það fór varla nokkur spotti til spillis. Nýtnin var henni í blóð borin og hún fór ætíð vel með allt, hvort sem það var matur, föt eða annað. Jólagjafirnar frá henni voru alltaf dásamlegur samtíningur af hinu og þessu smálegu, eitthvað handprjónað og svo gjarnan eitthvað sem hún hafði keypt á basar eða markaði, maður hafði á tilfinningunni að hún væri að viða að sér efni í jólapakkana til okkar barna- barnanna allt árið. Þegar ég var að alast upp bjó Inga amma í Miðtúninu og þang- að var alltaf gott að koma. Stundum fengum við systurnar að gista og allra best var að fá að sofa í dálitlu bóli sem var útbúið þannig að stillt var upp tveimur hægindastólum hvorum á móti öðrum. Í þetta ból voru sett teppi til að jafna áferðina, lak yfir og svo sæng og koddi, þarna var pláss fyrir eitt telpukorn sem þótti afar gott að kúra eftir að amma var búin að syngja og fara með bænir. Inga amma var sér- lega söngelsk og kunni ógrynni af vísum og textum, í minning- unni er hún alltaf syngjandi með bros á vör. Þegar aldurinn færð- ist yfir og hún hætti að lesa og prjóna gerði hún sér það til dægrastyttingar að syngja, hún heyrði illa en lét það ekki á sig fá og upp úr henni runnu revíu- textar, lausavísur, barnalög og sálmavers. Stundum þegar gesti bar að garði á hjúkrunarheim- ilinu þar sem hún dvaldi síðustu æviárin mátti sjá hana liggja í rúminu með lokuð augun eins og hún væri sofandi en oftar en ekki var hún þó að raula eitthvað fyrir munni sér. Kynslóðir koma og kynslóðir fara, með Ingu ömmu kveður ættmóðir sem stóð keik í lífsins ólgusjó, missti mann og tvö af fjórum börnunum sínum langt fyrir aldur fram en lifði lífinu lif- andi og gerði sér far um að gleðja aðra hvenær sem færi gafst. Hún er sterk fyrirmynd okkar sem eftir stöndum, hafi hún þökk fyrir allt. Kristín Ingibjörg Mar. Amma er farin heim, á 107 ára afmælisári sínu og var hún hvíld- inni fegin. Blessuð sé minning hennar. Þegar ég man fyrst eftir henni, þá var ég að heimsækja hana í vinnuna, 4 ára gutti í bíla- leik með fjögurra hjóla ryksugu sem var 3 sinnum stærri en ég sjálfur og ók henni um gólf og ganga Þórskaffis eins og herfor- ingi á flottasta bíl bæjarins. Amma vann þar hin ýmsu störf á þeim tíma. Amma hafði hlýja nærveru og var húmorinn alltaf á réttum stað. Hún spilaði mikið og kunni fullt af spilum og köplum sem hún kenndi okkur barnabörnum. Þá bjó hún í lítilli íbúð í hárri blokk með mikið útsýni. Eftir að hún hætti að vinna þá fór ég oft og gisti hjá henni því alltaf voru dyrnar opnar hvort sem maður kom einn eða með vinum sínum. Um áttrætt flutti hún inn á heimili foreldra minna þar sem þau útbjuggu litla íbúð handa henni. Alltaf var gott að vita af henni þegar maður kom heim og um tíma þá var herbergið mitt við hliðina á íbúðinni hennar. Þegar ég flutti svo að heiman og þá var herberginu mínu breytt í eldhús fyrir hana. Þarna leið ömmu vel og vildi hún hvergi annarstaðar vera. Meira að segja var búið að nýtískuvæða hana með því að setja upp tölvu fyrir kaplana hennar og ótrúlegt hvað hún var fljót að læra á hana. Þegar aldurinn færðist yfir ömmu þá flutti hún á Hjúkrunar- heimilið Mörk. Þá var hún farin að gleyma og það kom fyrir að hún þekkti ekki sína nánustu þegar þeir komu í heimsókn til hennar. Alltaf mundi hún samt eftir mér og það sýndi sig þegar hún spurði aftur og aftur í síð- asta afmælinu sínu hvort ég ætl- aði ekki að koma í veisluna. Allir þeir sem hafa hugsað um ömmu eiga þakkir skildar fyrir vel unnin störf. Minningin um ömmu lifir. Þórarinn Söebech Þegar við systur setjumst nið- ur til að skrifa minningargrein um hana elsku Ingu ömmu okkar fylla einungis ljúfar og góðar minningar hug okkar. Mikið sem við erum lánsamar að hafa átt hana sem ömmu. Hún var merkileg manneskja, hún þurfti að reyna margt um dagana en andi hennar var sterkur og bugaðist aldrei. Þrátt fyrir lífsins þrautir var hún með einstaklega létta lund, jákvæð, og brosmild. Æðruleysi hennar þrátt fyrir sorgir og missi var aðdáunar- vert. Hún kom oft til okkar í Skóg- arlundinn og gisti þá í nokkra daga. Mamma setti í hana perm- anett og gerði hana fína. Þær gátu spjallað mikið um allt milli himins og jarðar. Ömmu fannst afskaplega gott að fá sér mola- kaffi og fannst okkur stórmerki- legt hve lengi hún gat verið með einn sykur- eða konfektmola. Þegar við áttum erfitt með að hemja okkur gat hún maulað á sínum mola, að því er virtist endalaust. Enda nægjusöm með eindæmum. Það var ljúft að hafa hana hjá okkur, hún kenndi okk- ur bænir, kapla, spil og las mikið fyrir okkur. Við vorum alveg vissar um að hún kynni alla kapla heimsins. Hún prjónaði mikið og við áttum alltaf nóg af vettling- um og sokkum. Einnig voru lambhúshetturnar hennar ómiss- andi og lopapeysurnar kær- komnar og margar til enn. Alltaf þegar hún vaknaði með okkur fór hún með bænina „Nú er ég klæddur og kominn á ról“ og svo þegar við fórum að sofa fór hún með bænina „Nú legg ég augun aftur“. Ógleymanleg er 85 ára afmæl- isferðin hennar. Þá var farið til Þýskalands og Austurríkis. Oft var hitinn mikill og setið í heitum bílum langar stundir en amma var bara hress og hafði unun af öllu sem fyrir augu bar. Það sem okkur finnst einnig svo skemmtilegt við ömmu er hve ung í anda hún í rauninni var. Hún var mjög virk með Fé- lagi eldri borgara og fór í margar ferðirnar með þeim. Dansaði mikið og svo lærði hún á tölvu til að geta lagt kapla. Hún fékk mörg ár hér á jörð og fór einstaklega vel með þau. Síðustu ár voru oft erfið en það var hugsað vel um hana. Þrátt fyrir veikindi var amma söm við sig, raulaði, brosti og bað guð að blessa alla sem komu til hennar. Við kveðjum elsku Ingu ömmu okkar með bæninni hans pabba með þökk fyrir allt. Eyddu drottinn öllum fljótt, ótta úr huga mínum. Svo ég geti sæl í nótt, sofið í faðmi þínum. (Guðmundur Salbergsson.) Sigríður og Hrund. Ingiríður Vilhjálmsdóttir HINSTA KVEÐJA Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Takk fyrir allt. Þín tengdadóttir, Karólína. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, EINAR MATTHÍASSON Ph. D., Ljósalandi 19, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 21. maí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. maí kl. 13.00. Guðbjörg Guðbergsdóttir, Gunnþórunn Einarsdóttir, Guðjón Gunnarsson, Karl Einarsson, Brynja Magnúsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.