Morgunblaðið - 28.05.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013
Smáauglýsingar
Snyrting
Spænskar gæðasnyrtivörur, fram-
leiddar úr náttúrulegum hráefnum,
og eru fyrir alla daglega umhirðu
húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta
allri fjölskyldunni. Sjá nánar í
netversluninni: www.babaria.is
Geymslur
Plastgeymslu-útihús
4,5 fm. Auðveld í uppsetningu og
viðhaldsfrí. Verð 180 þús.
Uppl. í síma 893-3503 eða 845-8588.
Sumarhús
Ósamansett gestahús
Stærð 5x4 m utanmál. Bjálki 44 mm.
Netfang: Snotra 1950@gmail.com
Til sölu flott heilsárshús í smíðum
í Vaðlaheiði við Akureyri.
Nánar inni á:
orlofshus.is - Leó, sími 897 5300.
Eignarlóðir
Sýning laugardag og sunnudag kl. 13-
17. Í landi Kílhrauns á Skeiðum, 50
mínútna akstur frá Reykjavík.
Landið er einkar hentugt til skógrækt-
ar, falleg fjallasýn. Uppl. Hlynur í s.
824 3040.
Festu þér þinn sælureit í dag
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Glæsileg matarstell frá Mikasa
til sölu - Brúðkaupslisti. Glæsileg
matarstell og kaffistell frá Mikasa.
Culture Platinum er glæsilegt stell
sem er mjög vinsælt hjá okkur, stellið
er allt ferkantað með platínurönd og
búið til úr beina-postulíni. Í boði eru
margar gerðir af flottum matarstell-
um frá Mikasa og Tékklandi.
Bohemia Kristall,
Glæsibæ, s. 571 2300.
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar
Auk gullhringa eigum við m.a. tita-
nium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
SUNDFATNAÐUR Á 30%
AFSLÆTTI
Teg. ADOLPHI - Bh. áður kr. 9.550,
NÚ KR. 6.685, og buxur, áður
kr. 6.650, NÚ KR. 4.655.
Teg. FEVER - Bh. áður kr. 8.850,
NÚ KR. 6.195, buxur, áður kr. 3.850,
NÚ KR. 2.695.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Margs er að minnast þegar
leiðir nú skilja og litið er til
baka. Kynni mín af Mörtu hóf-
ust fyrir rúmum 60 árum þegar
þau bundust tryggðarböndum
Stefán bróðir minn og hún, en
þau opinberuðu trúlofun sína
þann 23. september 1951.
Árið 1953 tóku þau til notk-
unar nýbýli úr landi Víðimýrar
sem þau nefndu Víðidal. Land-
nám ríkisins hafði annast fyrstu
framkvæmdir með ræktun,
lagningu vegar og girðinga. Ær-
ið verkefni beið þeirra með alla
uppbyggingu en engin hús voru
fyrir á jörðinni. Byrjað var á
byggingu kjallara íbúðarhúss
sem þau bjuggu í fyrsta árið en
fluttu svo upp á efri hæð árið
eftir. Þá þurfti einnig að koma
upp húsum fyrir sauðfé og kýr.
Þegar Marta og Stebbi byrj-
uðu búskap í Víðidal áttu þau
raunar ekki mikið meira en
hvort annað og óbilandi trú á
lífið og tilveruna. Má segja að
þau hafi lagt nótt við dag við
uppbyggingu á jörðinni en 30
árum síðar festu þau kaup á
henni.
Marta var dugnaðarforkur að
hverju sem hún gekk að og féll
aldrei verk úr hendi. Hún tók að
sér saumaskap heima í Víðidal
fyrir fyrirtæki Gunnars Jó-
hannssonar frá Varmalæk og
með þeirri vinnu lagði hún
drjúgt til heimilisins. Einnig
þurfti hún að sinna börnum og
búi er Stefán var fjarverandi við
vörubílaakstur. Er fram liðu
stundir fór allt erfiðið að bera
ávöxt með stækkandi búi og
betri aðstöðu en Marta var sí-
vinnandi alla tíð, þar til heilsu
hennar fór að hraka.
Marta var mikil félagsman-
neskja og átti auðvelt með að
blanda geði við fólk. Hún var
mjög hreinskiptin og sagði
skoðanir sínar umbúðalaust.
Hún tók þátt í fjölmörgum fé-
lögum, m.a. Kvenfélagi Seylu-
hrepps. Hún tók vel á móti
gestum og ávallt var sest að
veisluborði er þá bar að garði.
Það var að hausti 1964 að
fjölskyldan í Víðidal breytti
nokkuð til og flutti á Hótel
Varmahlíð sem við hjónin rák-
um þá. Þar gerðist Marta ráðs-
kona og fór létt með að gera allt
í senn; elda mat, baka, afgreiða
í veitingasal og sinna þvotti.
Stefán keyrði á milli og sinnti
búverkum í Víðidal. Viljum við
Þóra þakka þann tíma af alhug
og allar þær góðu minningar
sem honum tengjast.
Árið 1978 tók Marta við verk-
stjórn í skógræktarstöðinni í
Laugarbrekku, var að vísu búin
að vinna allmörg ár hjá Sigurði
skógarverði en tók svo við þeg-
ar hann féll frá. Sinnti hún
starfinu af alvöru og festu. Dæt-
ur okkar hjóna, Jóhanna og
Helga, unnu um árabil í skóg-
ræktinni hjá Mörtu, sem reynd-
ist þeim afburðavel og erum við
hjónin afar þakklát fyrir það.
Þóra vill að leiðarlokum
þakka fyrir einstaka tryggð og
vináttu, sem var henni svo mik-
ils virði.
Kæri bróðir, ég veit að sökn-
uður þinn er mikill en minningin
um Mörtu þína veit ég að muni
veita þér þann lífsþrótt sem
Marta Fanney
Svavarsdóttir
✝ Marta FanneySvavarsdóttir
fæddist á Reykjum
í Tungusveit í Lýt-
ingsstaðahreppi 8.
nóvember 1931.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Sauðárkróks 15.
maí 2013.
Útför Mörtu fór
fram frá Víðimýr-
arkirkju 25. maí
2013.
endast mun þér þar
til þið verðið saman
á ný. Við vottum
þér og fjölskyldu
þinni okkar innileg-
ustu samúð og
kveðjum kæra heið-
urskonu með því að
segja: Far þú í
friði, friður Guðs
þig blessi. Hjartans
þakkir fyrir öll
liðnu árin.
Sigurður og Þóra.
Nú vagga sér bárur í vestanblæ,
að viði er sólin gengin.
Og kvöldroðinn leikur um lönd og sæ
og logar á tindunum þöktum snæ
og gyllir hin iðgrænu engin.
En englar smáir með bros á brá
í blásölum himins vaka,
og gullskýjum á þeir gígjur slá,
og glaðkvikan bárusöng ströndinni
hjá
í einu þeir undir taka.
Heyrirðu, vinur, þann unaðsóm,
svo hugljúfan, vaggandi,
harmana þaggandi?
Hann talar við hjörtun sem blær við
blóm.
Þei! Í fjarska er hringt. – Yfir fjöll, yf-
ir dali
inn friðsælan kliðinn ber vindurinn
svali
af himneskum kvöldklukkuhljóm:
„Þreytta sál,
sofðu rótt!
– Gefi þér
Guð sinn frið!
– Góða nótt!“
(Guðmundur Guðmundsson)
Elsku Marta, kærar þakkir
fyrir gæsku og gleðistundir.
Þínum anda fylgdi glens og gleði,
gamansemin auðnu þinni réði.
Því skal halda áfram hinum megin
með himnaríkisglens við mjóa veginn.
Ég vona að þegar lífi mínu lýkur,
ég líka verði engill gæfuríkur.
Þá við skoðum skýjabreiður saman
og skemmtum okkur, já, það verður
gaman.
(Lýður Ægisson)
Hvíldu í friði, elsku frænka.
Sigríður, Guðbjörg og
Helga Sjöfn Helgadætur.
Það greru ekki götur á milli
bæjanna Uppsala og Silfrastaða,
árin sem Sigríður Helgadóttir
og Svavar Pétursson bjuggu
þar. Þá hófust kynni okkar
Mörtu, sem ætíð hafa verið ljúf
og ég á henni svo margt að
þakka. Gróðrarstöðin í Reykj-
arhólnum var hennar starfsvett-
vangur, þar sem hún vann mikið
og óeigingjarnt starf. Vítt um
hérað á hún sína bautasteina í
görðum og gróðurreitum, stæði-
leg tré eða blómstrandi runna.
Hún var ætíð að miðla og fræða.
Mörtu var það þung raun er
þrengt var að starfi gróðrar-
stöðvarinnar, en hún stóð með-
an stætt var. Á liðnum árum
hefur Marta tekist á við þung-
bær veikindi og henni hefur ver-
ið hvíldin kær. Páll J. Árdal orti
um burnirótina, sem bað til
Guðs að bera sig til blómanna í
birtu og yl. Ég vil tileinka
Mörtu frænku minni lokaerindin
í ljóði Páls:
Þá krýpur hljótt við hennar fót
frá himnum engill smár.
Hann losar hægt um hennar rót.
Þá hýrna fölvar brár.
„Ó, berðu mig til blómanna í
birtu og yl!“
Á svanavængjum sveif hann burt
á sólarbjarta leið.
Við brjóst hans lá hin bleika jurt
og bætt var sérhver neyð.
Þau bárust upp til blómanna í
birtu og yl.
Við sjáum hana sitja í trjá-
lundinum umkringda blómstr-
andi runnum og horfa yfir
gróðrarstöðina sína í Reykjar-
hólnum. Guð blessi minningu
þína, kæra frænka. Með sam-
úðarkveðju.
Helga Bjarnadóttir.
Í hugum okkar flestra er vor-
ið tími væntinga. Náttúran
vaknar til lífsins og enn eitt
sumarið er framundan. En þó
svo að náttúran vakni af vetr-
ardvala sofna sumir sem eiga
skilið að fá hvíldina. Marta í
Víðidal kvaddi þessa jarðvist á
sólríkum vordegi. Hugsanlega
valdi himnafaðirinn henni þenn-
an árstíma til þess að hún gæti
á nýjum stað hlúð að viðkvæm-
um gróðri. Marta vann sem
skógarvörður í Laugarbrekku í
Varmahlíð í áraraðir. Hún var
mjög fróð um allt sem viðkom
ræktun og garðyrkju. Þeim
fróðleik hafði hún viðað að sér
með lestri garðyrkjubóka og
einnig hjá Sigurði Jónassyni,
sem hún vann hjá í Laugar-
brekku. Þó svo að við Marta
tengdumst fjölskylduböndum,
þar sem hún var gift Stefáni
föðurbróður mínum, kynntist ég
henni best þegar ég vann hjá
henni í skógræktinni. Þar var
Marta allt í senn; verkstjóri,
kennari, móðir og síðast en ekki
síst vinkona. Það var svo sann-
arlega gott fyrir óharðnaðan
ungling að stíga sín fyrstu skref
á vinnumarkaði hjá Mörtu því
alltaf var hún réttlát. Af natni
og alúð gerði hún kröfur um að
allt væri unnið vel og var ekki
spör á hrósið þegar vel tókst til.
Það var oft glatt á hjalla í kaffi-
skúrnum í skógræktinni og
einnig víða í gróðurreitnum.
Marta hafði mikla kímnigáfu
og í augum hennar bjó ekki ein-
ungis hlýja og umhyggja, þar
bjó einnig stríðnisglampi sem
gerði oft vart við sig. Hún sló á
létta strengi og stríddi þeim
sem voru henni nánir en alltaf á
léttum nótum. Já, Marta var
bæði lagin við plöntur og fólk
enda var hún geysilega vinsæl
og flestir sem komu í skógrækt-
ina að kaupa sér plöntur þekktu
hana vel. Fjölmargir lögðu líka
leið sína í gróðurreitinn til þess
að hitta sanna og trausta vin-
konu. Marta var afar næm á til-
finningar annarra og það var
gott að létta á hjarta sínu við
hana. Ég veit að móðir mín hef-
ur alla tíð verið Mörtu þakklát
fyrir traust hennar og vináttu.
Er ekki allt í sóma? spurði
hún oftast þegar við hittumst
eftir langan aðskilnað á meðan
hún horfði rannsakandi í augu
manns eins og hún væri ekki
alltaf sannfærð um að svarið
sem hún fékk væri raunhæft.
Marta var líka örlát og gjaf-
mild, einstaklega barngóð, um-
hyggjusöm móðir og amma og
traust eiginkona. Það er víst
óhætt að segja að Marta hafi
verið bæði fjölhæf og dugleg
kona því hvort sem um var að
ræða garðyrkjustörf, hannyrðir,
matseld, vörubílaakstur eða
hvaðeina, allt fór það henni vel
úr hendi. Marta var mikið nátt-
úrubarn og störf hennar hjá
skógræktinni voru fyrir henni
hugsjón sem hún lagði líf og sál
í.
Ég vona svo innilega að það
sé gróðursælt þar sem Marta er
núna og ég sé hana fyrir mér í
svörtum buxum og rauðum bol,
jafnvel með skyggnishúfuna,
vinnandi af fullum krafti, af lífi
og sál í gömlu góðu skógrækt-
inni okkar. Þannig kýs ég að
minnast Mörtu um ókomin ár.
Far í friði, elsku Marta, og
hafðu hjartans þökk fyrir allt.
Elsku Stebbi og fjölskylda,
Guð gefi ykkur styrk og bless-
un.
Helga Sigurðardóttir.
Ég minnist hennar Mörtu
með hlýju í huga. Ég var svo
lánsöm að vinna hjá Mörtu
mörg sumur í skógræktinni í
Varmahlíð. Það búa eflaust
margir að því í dag, sem unnu
hjá henni, hversu góður læri-
meistari hún var. Marta kenndi
manni margt um umhirðu og
ræktun plantna, allt unnið af
hugsjón og metnaði. Varla leið
sá dagur að maður fengi ekki
hrós eða þakkir frá henni, það
lýsti hennar persónuleika mjög
vel.
Þakka þér, Marta mín, fyrir
ævilanga vináttu. Blessuð sé
minning þín. Allri fjölskyldunni
sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Blómin falla, fölskva slær
á flestan ljóma. –
Aldrei hverfur
angan sumra blóma.
Þannig varstu vinur, mér
sem vorið bjarta.
Það sem gafstu
geymist mér í hjarta.
Ilma sprotar, anga lauf,
sem aldrei falla.
Drottinn launi
elskuna þína alla.
(Sigurbjörn Einarsson)
Þessar ljóðlínur eiga svo
einkar vel við, er ég kveð
Mörtu, mína elskulegu vinkonu,
sem nú er horfin sjónum okkar.
Marta var eins og drottning í
ríki sínu í Skógræktinni í
Varmahlíð. Þar var hennar
heimur og þar hlúði hún að öllu
lífi, hvort sem voru trén, hinn
minnsti gróður eða við sem unn-
um undir hennar stjórn. Frá
henni stafaði umhyggja og kær-
leikur. Þessi fíngerða kona lét
ekkert aftra sér, vann eins og
herforingi. Hvern dag mætti ég
til vinnu full eftirvæntingar,
vegna hennar, sem veitti mér
stuðning og hvað við gátum
hlegið af minnsta tilefni. Dag-
arnir okkar eru ógleymanlegir
og vináttan hélst alla tíð.
Ég votta Stefáni og fjölskyld-
unni allri mína dýpstu samúð.
Vertu Guði falin, Marta mín.
Hafðu þökk fyrir allt.
Þín
Edda L. Jónsdóttir.
Á lífsleiðinni verða ýmsir
áhrifavaldar á vegi okkar.
Marta í Víðidal var einn af mín-
um góðu. Mín gæfa var að
dvelja sumarparta í Víðidal hjá
Mörtu og Stebba á sjöunda ára-
tugnum. Í þá daga þótti gott að
koma börnum í sumardvöl í
sveit. Það var ekki á óskalist-
anum hjá mér. Fótboltinn var
lífið frá morgni til kvölds. Þess
vegna var ekki tilhlökkun í mín-
um huga, heldur kvíði og sökn-
uður. En Marta og Stebbi
breyttu þessu snarlega. Með
gleði sinni, húmor og virðingu
gerðu þau lífið og dvölina góða
og eftirminnilega. Það var fram-
andi fyrir mig að kynnast
sveitalífinu, framsóknarhugsjón-
unum og fylgisfólki Kristjáns
Eldjárns forseta. Þarna birtist
mér önnur hlið á lífinu og varla
hægt að kynnast henni í betra
umhverfi eða hjá skemmtilegra
fólki.
Marta var einstaklega hlý og
umhyggjusöm og ekki hjá því
komist að láta sér líða vel í ná-
vist hennar. Þegar ég var sjálf-
ur kominn með fjölskyldu var
það fastur liður að fara í skóg-
ræktina til Mörtu, bæði á sumr-
in og á aðventunni. Mikill vin-
skapur hefur alla tíð verið á
milli Víðidalsfólksins og minnar
fjölskyldu og þess hef ég notið.
Fyrir vináttu þeirra, hlýhug og
umhyggju er ég afar þakklátur.
Allar góðu minningarnar um
hana Mörtu lifa í hjörtum okk-
ar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
sendi ég Stebba og fjölskyld-
unni í Víðidal innilegar samúð-
arkveðjur.
Óskar G. Björnsson.