Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 36

Morgunblaðið - 28.05.2013, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú pælir sjaldan í hvers vegna lífið leiki við þig, en gerðu það núna. Kapp er best með forsjá; þér liggur ekkert á, því hlutirnir verða hér líka á morgun. 20. apríl - 20. maí  Naut Þið ættuð ekki að láta smá orðaskak við vini fara í taugarnar á ykkur. Kannski hættir þér til þess að vega og meta náungann eða sjálfan þig á grundvelli eigna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki erfiðar minningar úr for- tíðinni standa í vegi fyrir þér. Þú þarft að end- urmeta tengsl þín við vini og vandamenn. Farðu þér því hægt og láttu öryggið sitja í fyr- irrúmi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gefðu þér tíma til þess að kanna vandlega allar hliðar á ákveðnu máli áður en þú afræður nokkuð. Því fylgir mikil ábyrgð að aðrir skuli leita til þín um ráð. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert góður skipuleggjandi og skalt bjóða fram starfskrafta þína þar sem þeir nýtast best. Opinn persónuleiki þinn fær aðra til að slaka á. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Besta leiðin til þess að höndla strauma augnabliksins er að vera duglegur í vinnunni. Það er þung byrði að þurfa að gera alla hluti kórrétt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hugulsemi og áhugi á öðrum er eru hluti af kostum þínum. Félagslífið er með mesta móti því allir vilja hitta þig um þessar mundir. Vertu því tillitssamur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Annasamur dagur, mikið um snúninga, stuttar ferðir og innkaupatúra og símasamtöl við ættingja. Forðastu að lána öðrum peninga og að fá peninga að láni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Kannski ertu alls ekki að reyna að vera svalur – en fólkinu í kringum þig finnst þú svalur. Finndu þess vegna upp enn fleiri áætlanir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Spennan í loftinu hefur minnkað frá því í gær og hún á eftir að minnka enn frekar. Það er hætt við að áætlanir sem tengj- ast ástarmálum og börnum breytist í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú virðist vera rétta tækifærið fyrir þig að koma málum þínum áfram. Ann- ars drukknar þú bara í óleystum verkefnum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þig langar til að kaupa eitthvað fallegt í dag. Bros þýðir það sama á öllum tungu- málum og því getur jákvætt hugarfar komið sér vel í ólíklegustu aðstæðum. Sigrún Haraldsdóttir var á með-al pólitískra álitsgjafa í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Í gær barst umsjón- armanni kveðja frá Sigrúnu af því tilefni: „Myndin sem birtist af mér í Mbl er alveg herfileg. Mér datt þessi vísa í hug þegar ég sá hana. Hakan teygð og húðin grá, hárlýjurnar stuttar, mest ég þyki minna á mömmu Gilitruttar.“ Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, snýr út úr þekktri vísu: Afi minn fór á honum Rauð eitthvað suður á Mela. Sumum gaf hann sykur og brauð sem hann þurfti að stela. Ármann Þorgrímsson hefur ver- ið iðinn við kolann í pólitískum vísum upp á síðkastið. Hann kast- ar fram: Vel trúi ég bændur sig súnni með Sigmund og félaga í brúnni. Um einn samt ég veit þarna austur í sveit sem orðinn er blendinn í trúnni. En hann á fleiri strengi í hörpu sinni: Ýmislegt sem á að laga allt ber vott um mikið strit, blóð og augu, bein og maga bæta aldar gamalt slit. Hjálmar Freysteinsson slær á létta strengi: Pólitíkin mun batna brátt, brýni ég menn til dáða að vinna allt í samráði og sátt, (svo fæ ég einn að ráða). Davíð Hjálmar Haraldsson gat ekki stillt sig um að bæta við: Af gömlu tré er gott að saga svo grói vel og taki lit. Ármann sér fram á meira við- hald á næstu misserum: Fjölgar viðhalds ferðum mínum, fékk ég nýjan lækni í vetur, flotta dömu, fríða sýnum fallegri en doktor Pétur. Umsjónarmaður rakst á Óskar Magnússon á kaffistofunni í Há- degismóum og heyrði ágæta limru sem til varð í vetur: Skáldið í kviðinn var skorið, skánar er líður á vorið. Þó fékk sér bjór á þorrablót fór og þvoði allt innyflaslorið. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af pólitík, Sigmundi og mömmu Gilitruttar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HRAÐASTILLIR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann gengur með þér að bílnum. 1 EIG ANDI NOTAÐIR BÍLAR LIFI Í NÚINU VINSAM- LEGAST HJÁLPIÐ ÉG FÓR LOKSINS FRÁ KONUNNI MINNI. VÁ! ÞAÐ HEFUR EKKI VERIÐ AUÐVELT FYRIR HANA, SÉR- STAKLEGA Í ÞESSUM FIMBUL- KULDA OG SNJÓATÍÐ! NEI ... SÉRSTAKLEGA ÞVÍ HÚN VILDI ENDILEGA MOKA MÉR LEIÐ SVO ÉG KÆMIST Í GEGNUM SNJÓINN. ERT ÞÚ BÚINN AÐ BORÐA? ÉG ER AÐ VINNA Í ÞVÍ. GRETTIR GR ET TI R Víkverji stóð í þeirri trú að landinnværi enn að súpa seyðið af hruninu og hefði hvorki til hnífs né skeiðar. Eftir hrunið sáust skýr merki þess að fólk hafði ekki mikið á milli handanna og fór að draga úr hvers konar neyslu. Fortíðarþrá lét á sér kræla þar sem allt gamalt og gott komst í tísku. Dæmi um þetta var að ferming- arveislur fóru aftur í heimahús og ekki lengur slegist um veislusali um borg og bý með nokkurra ára fyr- irvara. En nú er öldin önnur og land- inn farinn að spreða á ný. x x x Víkverji hefur síðustu vikur ogmánuði verið að leita að veislu- sal undir fermingarveislu á næsta ári og það er sama hvar drepið er niður fæti. Allt er uppbókað, og það fyrir löngu segja kunnugir. Á nokkr- um stöðum hefur leiguverð fengist uppgefið og það hefur hækkað tölu- vert frá því að Víkverji þurfti síðast á sal að halda undir fermingarveislu. Í sumum tilvikum upp undir 100 þúsund kall fyrir daginn, en þá fylgir yfirleitt starfsmaður og aðstaða öll til fyrirmyndar. Þá eru veitingar eft- ir og önnur útgjöld, þannig að ferm- ingin kostar sitt. x x x Því skal þó haldið til haga að Vík-verji gat fengið sal á einum stað umbeðinn dag að ári. Þar fylgdi sá böggull skammrifi að salinn þurfti að tæma fyrir klukkan 17 þann dag- inn fyrir næstu veislu því hann væri yfirleitt tvísetinn. Þetta finnst Vík- verja peningagræðgi á hæsta stigi og greinilegt að salareigandinn, sem er söngskóli í þessu tilviki, gerir út á þennan bransa. Víkverji hefði þá orðið að bjóða upp á hraðrétti. x x x Leitin heldur áfram en það endarkannski með því að Víkverji fær- ir veisluna heim og sker bara niður gestalistann. Gera þetta eins og í sinni fermingu forðum daga, þegar herbergin á heimilinu voru rýmd fyrir veisluborðin og gestirnir komu í hollum. Það eru fagrar minningar frá þeim góða degi, þar sem þröngt máttu sáttir sitja og ganga heim saddir og sælir. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn er nálægur þeim sem hafa sundurmarið hjarta, hann hjálpar þeim sem hafa sundurkraminn anda. (Sálmarnir 34:19) bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.